Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 56

Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 56
% 56 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Ingibjörg Edda efst í kvennaflokki j SKÁK Reykjavík ÍSLANDSMÓT KVENNA 31.8.-10.9.1999 INGIBJÖRG Edda Birgisdóttir er efst í kvennaflokki á Skákþingi Is- lands þegar mótið er hálfnað. Hún á þvi góða möguleika á að verja titilinn, en hún er núverandi íslands- meistari kvenna. Ingi- S björg hefur hlotið fimm vinninga í sex umferð- um. Hún hefur unnið fjórar skákir og gert tvö jafntefii, en hefur ekki tapað skák. Auk Ingibjargar taka þær Harpa Ingólfsdótt- ir, Aldís Rún Lárus- dóttir, Anna Björg Þor- grímsdóttir, Anna Mar- grét Sigurðardóttir og Steinunn Kristjánsdótt- ir þátt í mótinu. Allt eru þetta ungar og efnileg- ar skákkonur, þótt þær hafi misjafnlega langa reynslu af því að tefla á skákmótum. Þær Anna —y Björg, fyrrverandi Islandsmeistari, Aidís Rún og Harpa eru í 2.-4. sæti á mótinu með fjóra vinninga. Tefld er tvöföld umferð á mótinu, alls 10 umferðir. Mikilvægur sigur Helga Áss I eftirfarandi skák kemur upp drottningarpeðsbyrjun. Þresti verð- ur á ónákvæmni snemma í skákinni. Helgi nýtir sér það og nær öruggu frumkvæði. Eftir mistök Þrastar í 24. leik vinnur Helgi peð og það A nægir honum til sigurs í 46. leik. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Þröstur Þórhallsson Drottningarpeðsbyrjun [D03] l.d4 d5 2.Rf3 Rf6 3.Bg5 Re4 4.Bf4 c6 5.e3 Bg4 6.c3 e6? Hér verður Þresti á slæm ónákvæmni. Betra var 6...Rd7. 7.Db3 Db6 24.Bd3 Rf6? Nauðsynlegt var 24.. .HÍ4 og mæta síðan 25.Hel með He8. 25.Hel! Sennilega hefur Þröst- ur misst af þessum sterka leik. 25.. .Rd5 Ef 25...Hae8 þá 26.Bg6! He7 27.BÍ5 og vinnur peð eða skipta- mun, því eftir 27...Hfe8 28.Hhe2 gengur ekki 28...KT7 vegna 29.Bg6+; 25.. .Rxg4 er lítið skárri kostur: 26. Hg2 Rf6 (ef 26...Hf4 þá kemur 27. Bc4) 27.Hxg5 Hae8 28.Bg6 He7 29.Hge5 og hvítur hef- ur vinningsstöðu. 26. He5 Einfalt og sterkt! Nú vinnur Helgi peð og með peði meira og betri stöðu er hann ekki í vandræðum með sigurinn. 26...RÍ4 27. Be4 Hf6 28.Hxg5 Kf7 29.Kd2 a5 30.He5 Ke7 31.g5 Hff8 32.c4 a4 33.Ke3 a3 34.bxa3 Hxa3 35.Bc2 Ha2 36.h6 Rg6 37.He4 gxh6 38.gxh6 Rh8 39.He5 Rf7 40.Heh5 Hh8 41.h7 Hal 42.Hg2 Hel + 43.Kd2 Hfl 44.Hg8 Hf2+ 45.Kc3 Hf3+ 46.Kb4 e5 1-0 Bikarkeppnin í skák Nú liggja fyrir bráðabirgðaúrslit í Bikarkeppninni í skák. Skákmenn geta kynnt sér stöðuna á heimasíðu Taflfélagsins Hellis: www.sim- netisÆellir. Athugasemdir vegna stigagjafar þurfa að berast í síðasta lagi 12. september. Kvennamót hjá Helli á sunnudag Fyrsta kvennamót Taflfélagsins Hellis í haust verður haldið sunnu- daginn 12. september og hefst kl. 13. Tefldar verða 7 umferðir eftir Mon- rad-kerfí með 10 mínútna umhugs- unartíma. Kvennastarfsemi Hellis var fyrst kynnt á jólapakkamóti félagsins í fyrra og fyrsta kvennamótið var síð- an haldið 6. febrúar á þessu ári. Þessu framtaki hefur verið vel tekið af skákkonum. Okkar virkustu skák- konur hafa tekið þátt í mótunum, en einnig var ánægjulegt að skákkonur sem höfðu ekki sést árum saman á skákmótum mættu á þessi mót. Þátttaka er ókeypis og verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin á mótinu. Ekkert aldurstakmark er á mótinu og vonast er til að sjá sem flesta þátttakendur, bæði þær stúlk- ur sem eru virkastar svo og aðrar sem ekki hafa teflt í nokkurn tíma. Mótið er haldið í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Sami inn- gangur og hjá Bridssambandinu og Keilu í Mjódd. Ingibjörg Edda Birgisdóttir VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver á myndina? VELVAKANDA barst bréf frá sænskri konu sem ferð- aðist um Island í sumar. Sagðist hún hafa fundið átekna fílmu við vörðu á Kjalvegi á leið til Hveravalla. Lét hún framkalla filmuna og var þessi mynd þar á meðal. Þeir sem eiga myndina geta haft samband í síma 569-1318. Suðurnes ÞAð telur einhver ár frá því að sagt var í fréttum að fluttur hefði verið úr stað einhver fjöldi hlassa af skít og honum sturtað hér um Suðurnesin. Eg hélt að dreifa hefði átt úr þessu á ógróið land en eins og sést frá Reykja- nesbrautinni eru haugar þessir enn á stapanum og talandi um það sem er ut- an vega við Reykjanes- brautina og tengist rollum sem þar eru. Hvenær skyldi girðingardraslið upp af Vogaafleggjaran- um verða fjarlægt? Suðurnesjabúi. Framúrskarandi þjónusta Ég á Soda Streem-tæki sem ég þurfti að láta í við- gerð hjá Sól-Viking. Þeir voru svo góðir að lána mér annað tæki á meðan verið var að gera við mitt. Sl. laugardag bilaði svo lánstækið og það var lok- að í Sól-Viking. Datt mér þá í hug að hringja í far- síma sem gefinn var upp í símaskrá og talaði við mann frá Sól-Viking og spurði hann hvort hann ætti nokkuð leið þarna um svo ég gæti fengið tækið mitt. Hann sagðist senda mér nýtt tæki í hvelli sem hann gerði og fékk ég það gefins. Þetta finnst mér alveg framúrskarandi þjónusta. Þetta er þjón- usta sem maður verður ekki var við lengur. Sól- Viking á allan heiður skil- inn fynr þetta. Inga Ósk Guðmundsd. Tapað/fundið Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA með mörgum lyklum á týndist í Mjódd þriðjudaginn 31. ágúst. Skilvís fmnandi hafi samband í síma 564 6484. Hálsmen í óskilum HÁLSMEN er í óskilum í versluninni Misty. I men- inu eru tvær myndir. Upplýsingar í síma 551 3577. Dýrahald Barnakerra og burð- arrúm fást gefíns BARNAKERRA og burð- arrúm fást gefins. Einnig áleggshnífur. Upplýsingar í síma 553 5901. Kettlingar fást gefíns Kærleiksríkir kettlingar í öllum regnbogans litum fást gefíns. Upplýsingar í síma 552 0834. Kettlingur í óskilum KETTLINGUR, brönd- óttur og loðinn, fannst við MeDonalds við Faxafen sl. sunnudagsmorgun. Upp- lýsingar í síma 567 6269. Kanínubúr óskast KANÍNUBÚR óskast. Upplýsingar í síma 552 7053. Svört og hvít læða týndist frá Kattholti SVÖRT og hvít læða með svarta hálsól týndist frá Kattholti. Upplýsingar í síma 567 2909. SKAK limsjón Margeir Pétnrsson STADAN kom upp á opnu móti í Vlissingen í Hollandi í sumar. Heimamaðurinn De Wolf var með hvítt, en Mikhalevski (2.516), ísrael, hafði svart og átti leik. 20. - Bxd4! 21. Dxd4 - Hfd8 (Nú verður hvitur mát eða tapar drottning- unni. Hann reyndi í gríni að hóta máti) 22. Bh6 - Hxd4 og hvít- ur gafst upp. Alberto David frá Lúxemborg sigraði á mótinu með 6 v. af 7 mögu- legum, en þekktari skák- meistarar eins og Mikhail Gurevich, Belgíu og Van der Wiel Hollandi, deildu öðru sætinu. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... Nú vinnur Helgi tíma með því að stugga við svarta biskupnum og riddaranum. 8.Re5 Bh5 9.g4 Bg6 10.h4 f6 ll.Rxg6 hxg6 12.Í3 Rd6 13. Hh2 Hlutverk þessa leiks er að koma í veg íyrir að svartur geti losað sig við peðaveikleikann á g6 með því að leika g5. Hvítur hefur nú tryggt sér varanlegt frumkvæði. 13...Rd7 14. Bd3 f5 15.Rd2 Rf7 Svartur leitar eftir uppskiptum á biskupum, en við það tapast dýrmætur tími. Önnur áætlun er 15...0-0-0 16.0-0-0 Be7. 16.0-0-0 Bd6 17.Bxd6 Rxd6 18.e4 Dxb3 19.axb3 dxe4 20.fxe4 fxe4 21.Rxe4 Rxe4 22.Bxe4 g5 23.h5 Við fyrstu sýn virðist sem svartur hafí létt mjög á stöðunni, en stað- reyndin er að svartur á erfitt með að mæta einfaldri áætlun hvíts, þ.e. að tvöfalda hrókana á e-línunni. 23...0-0 Önnur áætlun er 23...Ke7 og svara 24.Hel með 24...Hh6 en það er > Þresti ekki að skapi að vera í vöm! Fyrsta þemamót Hellis Taflfélagið Hellir heldur nú í fyrsta sinn þemamót Hellis. Mótið fer þannig fram að fyrirfram er valin ákveðin byrjun og skal hún vera tefld í öllum skákum mótsins. Fyrsta mótið fer fram mánudaginn 13. sept- ember og hefst kl. 20. í iyrsta þemamótinu verður tefld- ur skoski leikurinn, nánar tiltekið: 1. e4 e5 2. RÍ3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2. Sigurvegarinn fær verðlaun, nýja bók frá Batsford um skoska leikinn. Einn keppandi verður svo dreginn út og mun fá sömu bók í verðlaun. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Keppendur á mótinu munu svo ákveða í samráði við skákstjóra þá skákbyrjun sem tefld verður á næsta þemamóti félagsins sem er áætlað 8. nóvember 1999. Tefldar verða 7 skákir með 10 mínútna umhugsunartíma. Þátttökugjald er 300 kr. fyrir fé- lagsmenn (200 kr. fyrir 15 ára og yngri) og 500 kr. fyrir aðra (300 kr. fyrir 15 ára og yngri). Skákmót á næstunni 12.9. SÍ mátnetsmót 13.9. Hellir. Þemamót kl. 20 17.9. Norðurlandamót framhaldsskóla 18.9. íslandsmót í atskák, undanr. 20.9. Hellir. Fullorðinsmót kl. 20 Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson NÆSTU vikur og mánuði verða forráðamenn margra stéttar- félaga uppteknir við undirbúning kröfugerðar vegna komandi kjara- samninga. Mörg félög hafa lausa samninga frá febrúar eða mars á næsta ári og því verður fyrri hluti næsta vetrar notaður til að safna í sarpinn efniviði til að dúndra á at- vinnurekendur í kjaraviðræðum. Eins og verðlagsþróun hefur verið síðustu vikur og mánuði má ljóst vera að launþegar muni ekki una því þegjandi að hækkanir dynji yfir án þess að þeir reyni að sækja bætt kjör til að halda kaupmætti sínum. Það er því allrar athygli vert að gefa gaum að skrifum sem fram koma í nýlegri skýrslu Flugleiða til hluthafa um afkomu félagsins á fyrri helmingi ársins. Þar ræðir Hörður Sigurgestsson stjórnarfor- maður (eða það les Víkverji dags- ins að minnsta kosti út úr undir- skrift pistils höfundarins) um af- komu félagsins og víkur síðan nokkrum orðum að horfum næstu misserin. Hann segir m.a. svo: „Rekstrarumhverfi innanlands skiptir einnig afar miklu máli. Gildir það bæði um almenna efna- hagsþróun og þau hagstjórnar- tæki, sem stjórnvöld ráða yfir. Framundan eru samningar um kaup og kjör. Fátt skiptir meira máli fyrir afkomu fyrirtækisins í næstu framtíð en hvort tekst að ná samningum á þessum vettvangi án rekstrartruflana og innan skyn- semismarka." Hér talar stjórnarformaður eins stærsta fyrirtækis á íslandi sem er jafnframt forstjóri annars stórfyr- irtækis og áhrifamaður í íslensku atvinnulífi. Orð hans ber að skoða í því ljósi og þess vegna vega þau þungt. Og hvað er hann að segja? Hann er í raun að setja fram þá af- stöðu atvinnurekandans að stéttar- félögin skuli halda sér nokkuð á mottunni í samningum um kaup og kjör. Setja ekki fram óréttlátar kröfur og ekki standa svo stíft á þeim að til verkfalla þurfi að koma. Þetta virðist því vera eins konar viðvörun. Forráðamenn stéttarfé- laga gætu tekið þessi orð sem brýningu og hvatningu á tvo vegu. Annars vegar: Sýnum atvinnurek- endum í tvo heimana og látum þá ekki buga okkur eða hræða með svona málflutningi. Hins vegar: Setjum fram raunhæfar kröfur sem við vitum að nást og höldum friðinn. Víkverji er ekki beinn aðili að kjaraviðræðum en honum er spurn eftir að hafa rekist á þessa fram- setningu stjórnarformannsins: Er þetta viðvörun eða er þetta hótun? XXX OFT gerist það að hita- eða vatnsveitur þurfa að skrúfa fyrir tímabundið vegna viðgerða eða viðhalds og lítið hægt að amast við því. Þegar slíkt er framundan heyrast hefðbundnar auglýsingar um að vegna viðgerða verði skrúf- að fyrir heita eða kalda vatnið við þessar eða hinar göturnar á ákveðnum tíma. Slíkar auglýsingar eru algjör- lega nauðsynlegar þegar svona nokkuð stendur íyrir dyrum. Það kemur nefnilega of oft fyrir að þetta fer framhjá mönnum og þeir grípa í tómt þegar vatns er þörf eða að þeim setur hroll þegar síst skyldi þar sem heitt vatn rennur ekki lengur um æðar hússins. Þessi áminning er sett fram eftir ábend- ingu í Reykjavík þar sem vatns- leysi á dögunum kom illa við íbúa í einu hverfi borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.