Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 59

Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 59 ^ Tveir kunnir Rafelson-leikarar, Scatman Crothers og Nicholson í The King OfMarvin Gardens, óvenjulegri og athyglisverðri dæmisögu sem fór fyrir ofan garð og neðan hjá almenningi. FÓLK í FRÉTTUM Gamandramað Stay Hungry var athyglisverð fyrir margar sakir. M.a. er hún fyrsta alvörumynd þeirra Sally Field (sem hér er ásamt ung- unmbroddborgara, Jeff Bridges) og Arnolds Schwarzenegger. Nýr endir á Hannibal BOB RAFELSON Jack Nicholson og Bob Rafelson gerðu eina af myndum áttunda áratug- arins, Five Easy Pieces. Síðan hefur gengi þessara vina og samstarfs- manna, sem hér eru staddir við töku myndarinnar, verið fjarska ólíkt. UM þessar mundir virðist sem fer- ill Bobs Rafelsons sem kvik- myndaleikstjóri, sé á enda runn- inn. Eftir tvö skelfileg mistök, Blood and Wine, (‘98) og Afan Trouble, (‘92, þar sem vinur hans, Jack Nicholson, gat ekki einu sinni hjálpað uppá sakirnar, lítur svo út sem hann verði að fara aft- ur á sinn byrjunarreit í sjónvarp- inu. Rafelson er New York búi, fæddur ‘33, af kunnum tónlistar- mannaættum. Þótti eirðarlaust ungmenni og flæktist víða til sjós og lands við hin ólíkustu störf áð- ur en hann reyndi fyrir sér sem handritahöfundur hjá sjónvarp- inu, Það átti greinilega betur við hann en sjórinn, ródeóið og trommurnar, svo nokkuð sé nefnt af fyrri störfum Rafelsons sem vakti athygli með nokkrum góð- um handritum mynda, í bálki sem kenndur er við Play Of the Week, og þótti vandað sjónvarpsefni. Þetta var á tímum uppgangs bítlatónlistarinnar og Rafelson datt í lukkupottinn er honum hug- kvæmdist að búa til The Monkees. Ekki aðeins hljómsveitina heldur ótrúlegar vinsældir, gera ofur- stjörnur úr þessum meðaljónum sem voru vinsælasta efni á sjón- varpsstöðvunum. Hugmyndin var greinilega fengin að láni frá Bítlamyndinni A Hard Days Night og tónlistina sömdu góðir músik- antar einsog Neil Diamond. Hver man ekki Last Train to Clarks- ville og Pm a Beiiever? Þættirnir voru á toppnum ‘66-68, og leið Qórmenninganna lá beint á tjaldið - undir handleiðslu Rafelsons, sem fékk vin sinn og félaga, Jack Nicholson (þa nánast óþekktan B- myndaleikara og handritshöfund), til að hjálpa sér við skriftir Mon- keesmyndarinnar Head. (‘68). Hún olli ekki titringi þegar hún var frumsýnd, heldur kolféll og markaði upphafið á hruni hljóm- sveitarinnar. Er engu að síður komin á stall með sígildum „cult’“ myndum fyrir löngu. Samstarf þeirra Nicholsons hélt hinsvegar áfram að blómstra. Um þessar mundir var Rafelson einn aðaleigandi BBS Productions, framsækins framleiðslufyrirtækis, sem Ijármagnaði m.a. Easy Rider, (‘69). Sá hann til þess að Nichol- son vinur hans fékk matarmikið hlutverk í myndinni, sem varð til þess að vekja fyrst alvarlega at- hygli á einum fremsta leikara FIVE EASY PIECES, (‘70) ★★★★. Frægasta mynd leikstjórans og fyrsta aðalhlutverk Jacks Nicholson í alvörumynd. Hann fer stórkost- lega með hlutverk manns sem alinn er upp á menntaheimili en hefur snúið baki við miðstéttinni og væn- legum ferli sem píanóleikari. Eftir að hafa starfað sem farandverka- maður á borpöllum og víðar um ára- bil snýr hann aftur heim til Nýja- Englands. Hefm- ekki fundið það sem hann er að leita að. Rafelson heldur óaðfmnanlega á þessu sigilda umfjöllunarefni og nýtur góðs af magnaðri frammistöðu Nicholsons sem túlkar vel skaphita leitandi, óánægðs manns sem á erfitt með bæði að finna sjálfan sig okkar tíma. Rafelson gerði það ekki endasleppt, hvað Nicholson snerti, því hann útvegaði honum aðalhlutverkið í næstu mynd sinni, Five Easy Pieces, (‘70), þar sem leikarinn fékk heldur betur að sýna að hann er bæði fær skap- gerðarleikari og á einkar létt með að bera uppi myndir. Áfram héldu þeir samstarfinu með The King OfMarvin Gardens, (‘72), annarri hágæðamynd, BBS framleiddi og allt var í sómanum. Enn eitt stór- virkið, Stay Hungry, (án Nichol- sons), kom frá hinum snjalla handritshöfundi/Ieikstjóra 1976, en tvær síðastnefndu myndirnar gengu ekki hætishót og Rafelson hélt að sér höndum til 1981. Þá og sitt rétta umhverfi. Karen Black, Billy „Green“ Bush, Susan Anspach og Irene Dailey, bæta einnig mynd- ina með sterkum leik. Nokkur atriði eru eftirminnilega vel gerð á allan hátt. Ekki síst það sem kenna má við kjúklingasalatið og telst sígilt. Annars er myndin sigur og nánast toppurinn á ferli allra þeirra sem að henni standa, utan Nicholsons. THE KING OF MARVIN GARDENS (‘72) irtrk'A Unnendur góðrar leiklistar mega ekki láta þessa fara framhjá sér, þótt döpur sé í aðra röndina. Jack birtist á tjaldinu umtöluð kvik- myndagerð hans af skáldsögu James M. Cains, The Postman Always Rings Twice. Nokkuð djörf, og þau Nicholson og Jessica Lang voru skemmtilega kynsoltin innanum matarafgangana á eld- húsborðinu. Annars hafði hún litlu við að bæta ágæta kvik- myndagerð bókarinnar frá ‘46. Nú liðu sex ár, þá kom Black Widow, þessi fíni glæpatryllir með tveimur hörkuleikkonum, Theresu Russell og Debru Win- ger, fram á sjónarsviðið. Einkum var Russell kraftmikil sem morð- kvendi sem drap maka sína sér til ánægju og efnahagslegs ábata. Þessar tvær myndir sýndu að Raf- Nicholson leikur annað aðalhlut- verkið, útvarpsmanninn David. Hann heldur tU Atlantic City tU að koma bróður sínum Jason (Bruce Dern) tU hjálpar úr vondum málum. Rafelson tekst að draga upp einkar hryssingslega mynd af borginni og gerir þar betur en Malle í Atlantic City. Frumleg, gráglettin og afai- fáséð mynd þar sem þessir senu- þjófar eru í sínu magnaðasta formi. Gamanið og alvaran blandast þó ekki þannig saman að öUum líki og þessi vel gerða og forvitnUega mynd naut engan veginn þeirrar aðsóknar sem hún átti skilið. Með Ellen Bur- styn og Scatman Crothers. Sígild myndbönd elson, sem fram til þess hafði stýrt eigin, innihaldsríku og dramatísku verkum, var einnig fær um að gera viðunandi og vel lukkaðar afþreyingarmyndir. 20th Century Fox hafði rekið hann skömmu áður fyrir ófull- nægjandi vinnubrögð við gerð spennumyndarinnar Brubaker, (‘79), og fengið Stuart Rosenberg til að búa til vinsæla skemmtun úr efninu. Næsta mynd Ieikstjórans var hin metnaðarfulla Mountains Ofthe Moon, (‘90), sem segir af raunum landkönnuða í leit að upptökum Nflar á ofanverðri síðustu öld. Mik- ilfengleg mynd með ábúðarmiklum Patrick Bergin í hlutverki könnuð- arins fræga, Sir Richard Burton. Myndin vakti athygli og fékk fína dóma, en gekk ekki í augu almennings. Það gerði ekki heldur, Man Trouble, (‘92, alvond erkivitleysa um öryggisvörðiun Jack Nichol- son. Hæfileikum þeirra Harry Dean Stanton, Beverly D’Angelo og Ellen Barkin, er einnig gjörsamlega sóað í mynd sem áhorfendur forðuð- ust einsog heitan eldinn. 1996 reyndu þeir aftur í samein- ingu, Nicholson og Rafelson, Utkoman varð glæpatryllirinn Blood and Wine. Skömminni skárri en engu að síður hraksmánarlegur afrakstur þessara fornfrægu fé- laga. I fyrra lauk Rafelson við sjón- varpsmyndina Poodle Springs, byggð á sögu eftir Raymond Chandler, með James Caan í hlut- verki spæjarans Philips Marlowe. Fátt er vitað um útkomuna. Á sínum uppgangstíma var Raf- elson sérstæður listamaður með sinn eigin, auðþekkta stfl. Lét vel að fjalla um mannleg samskipti í þröngu rými - bæði sem höfundur og leikstjóri. Hafði einstakt lag á Ieikurum sínum og að því er virð- ist samstarfsfólki öllu. Hópvinna var þá frekar einkenni starfs- bræðra hans í Evrópu og gerði Rafelson sérstæðari á sínu sviði í Vesturheimi. Hann tók atriðin gjarnan í réttri röð og lagði áherslu á að leikararnir og annað kvikmyndagerðarfólk lifði sig inní atburðarásina. Þannig urðu bestu verkin hans til. meitluð með hönd- um ákveðins og trausts leikstjóra og þéttri og fagmannlegri vinnu leikara og tæknimanna sem greini- lega náðu saman sem heild. STAY HUNGRY, (‘76) -kirk'h Jeff Bridges fer á kostum í enn einni jaðannyndinni sem enginn sá. Hikið ekki við að njóta hennar ef svo ólík- lega vill til að hún reki á fjörur ykk- ar. Ungur efnamaður í Alabama (Bridges) kaupir heilsuræktarstöð til að loka fasteignaviðskiptum. Þau eiga eftir að draga óvæntan dilk á eftir sér eftir að tveir starfsmenn stöðvarinnar (Sally Field og Amold Schwarzenegger), koma inní líf hans, ásamt eigandanum (R.G. Arm- strong). Óvenjuleg, vel skrifuð blanda gamansemi og dramatískra uppgjöra þar sem þau Field og Schwarzenegger (í einu sínu fyrsta hlutverki), hressa uppá gang mála. Sæbjörn Valdimarsson RITHÖFUNDURINN Thomas Harris hefur fundið nýjan endi á Hannibal til þess að auðvelda kvik- myndun sögunnar sem er fram- hald af Lömbin þagna. Framleið- andinn Dino De Laurentiis og breski leikstjórinn Ridley Scott höfðu komist að þeirri niðurstöðu að endir skáldsögunnar hentaði ekki kvikmynd. Handritshöfund- urinn David Mamet er nú að fara yfir lausn Harris. Anthony Hopk- ins hefur, að því er fregnir. herma, samþykkt að fara aftur með hlut- verk Hannibal Lecter, en Jodie Foster hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hún leikur CI- arice Sterling að nýju. 251. biö- gesturinn heiðraður HERMANN Fannar Valgarðsson datt í lukkupottinn þegar hann var númer 251 í röðinni að kaupa miða á heimildarmyndina Kynlíf: Saga Annabel Chong síðastliðinn föstu- dag. Hér sést Isleifur B. Þórhalls- son, kynningarstjóri Sambíóanna, afhenda honum 10 þúsund króna úttekt í versluninni Rómeó og Júl- íu. Ástæðan fyrir því að áðurnefnd tala þykir merkileg er sú að um- rædd Annabel Chong setti heims- met þegar hún naut kynlífs með 251 karlmanni í röð og fjallar heim- ildarmyndin um þau áhrif sem at- burðurinn hafði á líf hennar. Breiðskífa frá Holly Johnson HOLLY Johnson, sem gerði garð- inn frægan með Frankie Goes To Hollywood á níunda áratugnum, er að gefa út sína fyrstu breiðskífu síðan hann greindist með alnæmi árið 1991. „Ég fann fyrir upp- sveiflu hvað heilsu og útlit varðar og langaði einfaldlega til að syngja aftur,“ segir Johnson sem er 39 ára. „En í raun er ég að taka upp þráðinn þar sem ég hætti þegar al- næmi hristi svo harkalega upp í lífi mínu.“ Frankie Goes To Hollywood öðlaðist vinsældir um heim allan eftir að lag sveitarinnar „Relax“ var bannað á BBC-út- varpsstöðinni árið 1984. Á tíunda áratugnum hætti Johnson í tónlist- inni til að skrifa sjálfsævisögu sína og mála. T *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.