Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 62

Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 62
JÉ62 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ mbl.is býður á tónleika með FÓLK í FRÉTTUM hotíð Rpykjavik Jnzz Fpstival The Immigrants, leika í Súlnasal Hótels Sögu kl. 21 í kvöld. Verður að vera líf o g sveifla THE IMMIGRANTS hefja tónleika sína kl. 21 í Súlnasal í kvöld. Hljómsveitin er skipuð fimm hljóð- færaleikurum sem sest hafa að í Svíþjóð. Það eru Islendingarnir Halldór Pálsson altósaxófónleik- ari, Hjörleifur Björnsson bassa- leikari og Erlendur Svavarsson trommuleikari, auk Rúmenans Ge- orge Nistor sem leikur á trompet og hollenska píanistans Jerry Stenson. Það náðist í kappana í gær þar sem þeir biðu í kulda og trekki eft- ir leigubíl á Keflavíkurflugvelli og sagði Erlendur að það væri ofsa- lega gaman að vera kominn heim að spila. „Þetta er í fysta sinn síðan ég flutti til Svíþjóðar 1976 sem mér hefur verið boðið heim að spila. Okkur í bandinu finnst öllum að djassinn hafi Qarlægst hlustendur sína á seinustu árum. Við stofnuð- um bandið til að skemmta fólki og ef það tekst ekki missum við marks. Það verður að vera líf og sveifla, eða eins og Duke Ellington sagði; „It Don’t mean a Thing if it ain’t got the Swing“. - Og á að taka lag eftir hann? „Kannski eitt frá gamla karlin- um læðist með, en annars leikum við yngri djass, bæði frumsaminn og erlendan. Svokallað „postbop” í anda Cannonball Adderley & The Jazz Messangers". Það verður mik- ið líf og fjör og við viljum fá fólk með okkur.“ Láttu þetta ekki fram hjá þér fara, skráðu þig á mbl.is dagana 8. til 15. september. Morgunblaðið/Ásdís Kerfill; Hilmar, Andrew, Matthías, Eyþór, Bryndís Halla og Óskar. Með því er hægt að vinna miða fyrir tvo á tónleikana með Robbie Williams í Laugardalshöllinni 17. september næstkomandi FJÖLMARGIR AÐRIR VINNINGAR [ BOÐI ★ Nýjasti geisladiskurinn með Robbie Williams frá Skífunni ★ Robbie Williams bolur frá Skífunni ★ Árituð mynd af Robbie Williams ★ Kvöldmáltíð fyrir tvo á Hard Rock ★ Doritos kornsnakk og Pepsí risakippa Aðalvinningar verða dregnir út hjá Mono miðvikudaginn 15. september milli kl. 7 og 10. Verður heppnin með þér? Hmbl.is ^ALLTAf= eíTTH\SAT> A/ÝT7 Ryþmískara en oft áður í KVÖLD kl. 20.30 hefjast útgáfu- tónleikar í Kaffileikhúsinu. Þar verð- ur flutt verkið Kerfíll eftir Hilmar Jensson gítarleikara, en hann tók það upp ásamt hljómsveit í janúar sl. Diskurinn er sá fjórði af fimm sem Smekkleysa gefur út af nútímadjass- tónlist undir heitinu „Frjálst er í fjallasal”. Nafn verksins hefur fylgt hljóm- sveitinni síðan í janúar, en hana skipa auk Hilmars; Andrew D’Ang- elo og Óskar Guðjónsson saxófón- leikarar, Eyþór Gunnarsson píanó- leikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og trymbillinn Matthías Hemstock. Fyrri helmingur tónleikanna sam- anstendur af lögum eftir Hilmar, Óskar, Matthías og Andrew, en tón- verkið Kerfill fyllir seinni helming tónleikanna. Fyrir ólíklegustu hlustendur Hilmar segir að í Kerfíi reyni hann að sameina „þann frjálsa spuna sem við erum að sýsla við og fönk- rokki-yþma. Þetta er hálfgerð svíta hjá mér, u.þ.b 45 mínútna verk.“ - Hvað er kerfíll? „Eg er eiginlega að bauna á sjálfan mig í þessu verki, þar sem ég notaði smákerfi til að semja hluta af því. Þá er Kerfill eins og fTkill. En svo er kerf- ill íslensk jurt sem m.a. er gert te úr.“ - Og er það gott? „Eg hef ekki smakkað það.“ - En er verkið gott? Kannski tor- melt? „Nei, það er örugglega ekki tor- melt, og tónleikarnir verða það ekki í heildina. Bæði í seinni og fyrri hluta er mikið af ryþmískum hlutum, og Kerfill er mun rythmískari en margt af því sem ég hef verið að fást við hingað til. Þannig að hinir ólíkleg- ustu hlustendur munu skemmta sér.“ - Hvernig kom klassíski sellóleik- arínn Bryndís Halla inn í sveitina? „Fyrst og fremst af því að hún er frábær sellóleikari, en líka af því að það er ekki til neinn sellóleikari sem hefur lagt fyrir sig djassinn. Hún þekkir mikið af nútímaverkum og að mörgu leyti eru þau ekki ósvipuð því sem samtímadjassarar erum að sýsla.“ - En Andrew d’Angelo? „Andrew starfar í New York í ýmsum hljómsveitum og sú þekktasta er líklega Matt Wilson kvartett sem hefur gefið út nokkuð af plötum undanfarið, en þeir blanda saman djassaðri tónlist og gríni. Þeir eru mjög fyndnir og skemmtilegir, og seinasta platan þeirra Smile, rauk beint inn á fyi-sta sæti á mörgum sölulistum. Við Andrew þekkjumst frá fornu fari frá Boston og New York og er hann kominn hingað til að leika með okkur í Kerfli, auk þess sem hann á sjálfur verk á fyrri hluta tónleikanna."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.