Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 68
Heimavörn
Sími: 580 7000
Drögum næst
10. sept.
MORGUNBLA8IÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF569 USl
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Landsvirkjun semur
,um orku frá Svartsengi
HITAVEITA Suðurnesja og
Landsvirkjun undirrita orkusölu-
samning á föstudag um sölu á 28
Mw úr nýrri raforkuvirkjun á
Svartsengi. Hluti orkunnar er ætl-
aður álveri Norðuráls í Hvalfírði.
Júlíus Jónsson hitaveitustjóri segir
að hitaveitan treysti því að fá virkj-
unarleyfi á næstunni, enda liggi fyr-
ir yfirlýsing iðnaðarráðherra um að
vii’kjunarleyfi verði gefið liggi fyrir
samningur við Landsvirkjun um
dreifingu orkunnai’.
Ný 30 Mw vélasamstæða til raf-
orkuframleiðslu verður væntanlega
tekin í notkun ásamt nýjum búnaði
til framleiðslu á varmaafli í október.
Fyrir eru framleidd 16,5 Mw af raf-
orku á svæðinu en um leið og nýja
samstæðan verður tekin í notkun
verður hætt framleiðslu í tveimur 1
Mw vélum. Raforkuframleiðslan á
Svartsengi mun því nema um 45
Mw eftir, frá og með október.
Bágborin samningsstaða
Júlíus segir að hitaveitan sé ekki
sátt við það undir hvaða kringum-
stæðum hún hafi neyðst tii að
semja við Landsvirkjun; í ljósi gef-
innar yfirlýsingar ráðherrans um
að virkjunarleyfi væri háð samn-
ingi við Landsvirkjun hafi samn-
ingsstaða hitaveitunnar ekki verið
upp á marga fiska. Hann sagði ljóst
að ekki yrði ráðist í frekari raf-
orkuvinnslu á vegum Hitaveitu
Suðurnesja fyrr en búið væri að
breyta rekstrarumhverfi í orku-
geiranum og þar með samnings-
stöðu fyrirtækisins.
Júlíus sagði að hitaveitan fengi í
sinn hlut fyrir orkusöluna til Norð-
uráls 79% af því verði sem Norðurál
greiðir til Landsvirkjunai’.
Morgunblaðið/Golli
Sér til sólar í Reykjavík
í gær var annar dagurinn frá 19. ágnst sem engin
úrkoma mældist í Reykjavík en síðustu 11 daga
hefur rignt á hverjum degi. Þessi unga stúlka, sem
heitir Hrafnhildur Birta, rak upp stór augu þegar
hún leit út um gluggann og sá hvernig veður var
úti.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ráni afstýrt með
öryggisbúnaði
GERÐ var tilraun til ráns í sölu-
turninum Tvistinum við Lokastíg
seint í gærkvöld, þegar maður með
plastpoka fyrir andlitinu, vopnaður
stórri sveðju, vatt sér inn í sölu-
turninn og hafði uppi hótanir. Eig-
andi sölutumsins var sjálfur við af-
greiðslu og engir viðskiptavimr
vora viðstaddir þegar maðurinn
lagði til atlögu. Eigandinn studdi
hins vegar á neyðarhnapp og
stökkti manninum þannig tómhent-
um á flótta. Allt tiltækt lið Lög-
reglunnar kom fljótlega á vettvang
og hóf þegar í stað leit að mannin-
um. Hann var ófundinn um mið-
nættið, en hann er hávaxinn og
grannur.
Kröfur um breytingar á kjördæmamörkum
Stefnt að skoðana-
könnun í Hornafirði
BÆJARSTJÓRN sveitarfélagsins
Hornafjarðar hefur tekið upp um-
ræður um það hvort óska eigi eftir
breytingum á kjördæmamörkum
þannig að Austur-Skaftafellssýsla
færist úr Norðausturkjördæmi í
Suðurkjördæmi. Til athugunar er
að láta fara fram skoðanakönnun
um afstöðu íbúanna eða jafnvel
formlega atkvæðagreiðslu um mál-
ið.
Sveitarfélagið Hornafjörður
mun tilheyra Norðausturkjördæmi
þegar lög um kjördæmaskipan
taka gildi. Það kjördæmi nær úr
Öræfasveit í Siglufjörð. Gísli
Sverrir Ámason, forseti bæjar-
stjórnar Hornafjarðar, segir að
það hafi legið fyrir að Austur-
Skaftafellssýsla ætti eigi að síður
möguleika á að fara fram á breyt-
ingu á mörkunum. Til breytinga
þyrfti aukinn meirihluta á Alþingi.
Þá hafi þingmenn Austurlands-
kjördæmis sagt að ef eindregin
skilaboð kæmu frá sveitarstjóra-
inni yrði að öllum líkindum tekið
tillit til þess.
Norðurál undirbýr 50% stækkun álversins á Grundartanga
-Stefnt að undirritun orku-
samnings á föstudag
NORÐURÁL stefnir að því að und-
irrita samning við Landsvirkjun nk.
föstudag um kaup á raforku vegna
fyrirhugaðrar 50% stækkunar ál-
versins á Grundartanga úr 60 þús-
und tonnum í 90 þúsund tonn.
Auglýsing um forval vegna stækk-
unar álversins birtist í Morgunblað-
inu sl. sunnudag. Er þar óskað eftir
verktökum til að taka þátt í lokuðu
útboði vegna verksins sem felst með-
al annars í stækkun kerskála. Bjorn
Hogdal, framkvæmdastjóri Norður-
áls, segir að ákvörðun um byggingu
2. áfanga álversins hafi ekki enn ver-
**ð tekin, en mikil undirbúningsvinna
hafi átt sér stað undanfarið.
„Hugmyndin er að við klárum að
vinna nánast alla nauðsynlega verk-
fræðivinnu og undirbúningsvinnu,
svo þegar við ákveðum að ráðast í
stækkunina verði hægt að hefja
hana mjög snögglega. Því biðjum
við um íjölda bráðabirgðatilboða frá
fjölmörgum innlendum sem erlend-
um birgjum og verktökum svo við
getum gert endanlega samninga á
skömmum tíma þegar þar að kem-
ur,“ segir Hogdal.
Verkefni upp á 70
milljónir dollara
Hogdal reiknar með því að
ákvörðun verði tekin í desember og
framkvæmdir geti hafist strax, og í
auglýsingunni er verktími áætlaður
frá desember 1999 til október árið
2000. Hogdal segir að ekki sé þó
gert ráð fyrir að 2. áfangi álversins
verði tekinn í notkun fyrr en í apríl
árið 2001 þegar Landsvirkjun verði
tilbúin að útvega orku til stækkun-
arinnar.
„Fjárfestingarupphæð verkefnis-
ins verður um 70 milljónir dollara,"
segir Hogdal og telur að miili 15 og
20 verktakar og birgjar muni vinna
að stækkuninni, en í byggingu fyrsta
áfanga álversins tóku enn fleiri fyrir-
tæki þátt, að sögn Hogdal. Nokkrar
tölur sem sagt geta til um umfang
verkefnisins eru að steinsteypa verð-
ur 9.000 m2, stál 780 tonn og málm-
klæðningar 19.000 m2.
Hogdal segist reikna með því að
undirritaður verði samningur við
Landsvirkjun um kaup á orku frá
fyrirtækinu vegna stækkunarinnar.
Hann segist ekki geta sagt með
fullri vissu hvort samningurinn
verði undirritaður þá, þar sem eftir
sé að ganga frá nokkrum atriðum
varðandi samninginn, en stefnt sé
að undiraitun. Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, staðfesti
við Morgunblaðið að stefnt væri að
því að undirrita samning við Norð-
urál.
Rætt í bæjarstjórn
Gísli Sverrir segir að hugsanleg-
ar breytingar á kjördæmamörkun-
um séu mikið ræddar á Homafirði
og bæjarstjórn hafi ákveðið að taka
þær til umræðu. Málið var hafið á
bæjarstjórnarfundi síðastliðinn
fimmtudag og ákveðið að það yrði
fyrsta umræða en síðar þyrfti að
ræða það betur og taka afstöðu.
Flestir bæjarfulltrúarnir ræddu
kosti og galla beggja leiða en tveir
lýstu beinlínis þeim skoðunum að
rétt væri að sýslan tilheyrði Suður-
kjördæmi en ekki Norðausturkjör-
dæmi.
Austur-Skaftafellssýsla er í
Austurlandskjördæmi og öll sam-
vinna sveitarfélagsins er austur á
bóginn. Hins vegar eiga íbúarnir
meiri samskipti vestur á bóginn og
eru samgöngur, veðurfar og versl-
unarhættir færð sem rök fyrir
breytingum.
Á bæjarstjórnarfundinum komu
upp hugmyndir um að láta fara
fram könnun á skoðunum íbúanna
eða jafnvel formlega atkvæða-
greiðslu um málið. Gísli Sverrir tel-
ur líklegt að annaðhvort verði gert
á næstunni.