Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 6

Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Hlutur ríkisins í FBA seldur í einu lagi til hóps fjárfesta í opnu útboði Hlutur hvers hlut- hafa að hámarki 6% Morgunblaðið/Ásdís Fyrirkomulag á sölu hlutabréfa ríkisins í FBA kynnt, f.v. Jón Sveinsson, Finnur Ingólfsson, Ami Mathiesen og Hreinn Loftsson. LIÐLEGA helmings hlutur ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. verður seldur í einu lagi til dreifðs hóps fjárfesta þar sem hver aðili má ekki kaupa meira en 6% hlutafjár í bankanum. Tilgangurinn er að tryggja að hámarksverð fáist fyrir eignina og verður söluverðið að minnsta kosti tæpir tíu milljarð- ar kr. Útboðið fer fram í byrjun nóvember. Gengi hlutabréfa FBA hækkaði um 5% eftir að fyrirkomu- lag útboðsins var kynnt. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra og Arni Mathiesen sjávarút- vegsráðherra fara sameiginlega með eignarhlut ríldsins í Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins hf. (FBA) og kynntu þeir samkomulag ríkis- stjómarflokkanna um fyrirkomulag einkavæðingar bankans á blaða- mannafundi í gær. Ríkið seldi 49% hlutafjár í bankanum á síðasta ári og býður nú út þau 51% sem eftir eru. Fram kom að markmið útboðs- ins er nú að hámarka söluverðið, að selja dreifðum hópi hlutinn í heilu lagi og að öllum gefist kostur á að bjóða í hlutinn. Til að tryggja að hámarksverð fá- ist er talið nauðsynlegt að hópur fjárfesta standi sameiginlega að til- boði í alla eignina. „Hámarksverð fyrir eignarhlut ríkisins í bankanum verður aðeins tryggt með því að selja allan hlutinn í einu lagi,“ sagði Finnur Ingólfsson. Skýrði hann það með því að vísa til þess að hópur fjárfesta ætti nú þegar stóran hlut í bankanum og þyrfti ekki að bæta miklu við til að geta ráðið honum al- veg. Þá kynni sá hluti eignar ríkis- ins sem eftir er að verða lítils virði. Lágmarksgengi er 2,8 og skulu tilboð miðast við staðgreiðslu. Nafn- verð 51% hlutar ríkisins er 3.460 milljónir kr. og verða hlutabréfin því ekki seld fyrir lægri upphæð en 9,7 milljarða kr. Reglur um skyldleika Settar eru reglur um skyldleika og hámark hvers aðila innan fjár- festahópanna til að tryggja dreifða eignaraðild. Hámark hvers aðila eða skyldra aðila má ekki fara yfir 6% nafnverðs hlutabréfa í FBA og skal lágmarkshlutur hvers aðila innan hópsins vera 6 milljónir að kaup- verði. Það þýðir að í hverjum hópi tilboðsgjafa geta að lágmarki verið níu aðilar og að hámarki tæplega 600. Eftir að tilboði hefur verið tek- ið verður eign ríkisins skipt í sam- ræmi við tilboðið og einstakir hlutir framseldir til hvers aðila fyrir sig innan hópsins. Lagði Finnur Ing- ólfsson áherslu á að hlutabréfin yrðu ekki afhent félagi tilboðsgjaf- anna heldur þeim sjálfum. Reglur um skylda aðila og fjár- hagslega tengda gilda meðal annars um hjón og sambýlisfólk, skyld- menni í beinan legg, systkini, systk- inaböm og systkini fóður eða móð- ur. Þær gilda m.a. um samstæðu fé- Iaga, móðurfélög og dótturfélög og ef einstakur aðili á meira en 35% eignarhlut í fyrirtæki. Tekið er fram að bönkum í meirihlutaeigu ríkisins er óheimilt að mynda hóp með öðram innlendum bönkum eða sparisjóðum. Einnig er sérstaklega tekið fram að sparisjóðir teljast ekki skyldir aðilar í þessari skil- greiningu. Þá kom fram á blaða- mannafundinum að núverandi eig- endur að bankanum gætu tekið þátt í kaupunum. Fyrirfram verður gengið úr skugga um það hvort hópamir upp- fylli skilyrði um skyldleika eða tengsl aðila og um hámark eignar- hluts hvers og þeim gefinn kostur á að leiðrétta og bæta úr hugsanleg- um ágalla. Er það gert til þess að tryggja að ekkert tilboð verði úr- skurðað ógilt af þessum sökum eftir að búið er að opna þau. Markmiðið að fá sem hæst verð Ráðherramir lögðu áherslu á að samstaða væri meðal ríkisstjómar- flokkanna um þessa niðurstöðu. Ámi Mathiesen sjávarútvegsráð- herra sagðist vera ánægður með niðurstöðuna. Markmiðið væri skýrt, að fá sem hæst verð fyrir hlut ríkisins í FBA og á sem opnastan hátt til þess að tryggja að sem flestir ættu kost á að taka þátt í útboðinu. Lýsti hann þeirri von sinni að vel tækist til við sölu bank- ans enda væri þetta mesta einka- væðing ríkisfyrirtækis til þessa. Þegar ráðherrarnir vora spurðir hvort mögulegt væri að tryggja dreifða eignaraðild að FBA á eftir- markaði vakti sjávarútvegsráð- herra athygli á því að í lögum væru ákvæði sem heimiluðu afskipti af því. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði á það áherslu að slíkt væri ekki til umræðu í tengslum við þetta tiltekna mál. A blaðamannafundinum var vísað til ummæla forsætisráðherra um sölu FBA í lokuðu útboði að loknu forvali. Iðnaðarráðherra sagði að fundist hefði betri leið til að ná sömu markmiðum. Hreinn Lofts- son, formaður einkavæðingamefnd- ar ríkisstjórnarinnar, sagði að fram- kvæmd útboðsins væri að vissu leyti viðbrögð við þeirri þróun sem orðið hefði í viðskiptum með bréf í bank- anum á eftirmarkaði að undanfömu en framkvæmdin væri einnig í fullu samræmi við útboðslýsingu sem gefin var út við sölu hlutabréfanna á síðasta ári. Ráðherrarnir vonuðust til að áhugi yrði á bréfunum. Hreinn Loftsson sagði að það væri ótvíræð- ur kostur fyrir fjárfesta að vita í hvaða hópi þeir yrðu ef tilboði þeirra yrði tekið. Annars hefðu þeir verið í ákveðinni óvissu um félags- skapinn. Útboð í nóvember Útboðið verður kynnt á næstu vikum og frestur til að skila inn þátttökutilkynningum rennur út 21. október. Tilboðseyðublöð verða af- hent eftir 1. nóvember og tilboðum skal skila föstudaginn 5. nóvember. Þeir sem standa að hæsta tilboðinu eiga að greiða kaupverðið 15. nóv- ember. Gengi hlutabréfa í FB A var 2,85 á Verðbréfaþingi íslands í gærmorg- un. Gengið hækkaði lítilsháttar í gærmorgun og stóð í 2,87 þegar lok- að var fyrir viðskipti vegna blaða- mannafundar ráðherranna. Gengið hækkaði enn eftir að opnað var fyrir viðsldptin síðdegis í gær og loka- gengi dagsins var 2,99. Hafði verð- gildi bréfanna því hækkað um tæp 5% frá deginum áður. Orca skoðar málið út frá hagsmunum þess Eyjólfur Sveinsson, stjómarfor- maður Orca SA, sagði að hluthafar sem mynda Orca hefðu enga ákvörðun tekið um hvort þeir myndu taka þátt í útboðinu, en þeir myndu skoða málið út frá hagsmun- um Orca. Hann sagði að sér virtist sem að ríldsstjórnin hefði leitast við að gæta jafnræðis við söluna og ákvörðunin væri í ágætu samræmi við markmið ríkisstjómarinnar sem kynnt vom þegar ákveðið var að selja bankann. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, sagði að Kaupþing hefði áður lýst því yfir að FBA væri áhugaverður fjárfestingakostur og því útilokaði hann ekki að Kaupþing tæki þátt í útboðinu. Um það væri hins vegar of snemmt að segja nokkuð á þessu stigi. Atvinnuleysi 1,7% í ágúst Kröfum um- sækjanda í HÍ vísað frá HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur vísaði í gær frá dómi kröfu sálfræð- ings, sem sótt hafði um stöðu lekt- ors við Háskóla íslands, um að fellt yrði úr gildi álit dómnefndar um sérstaka tímabundna lektorsstöðu í sálfræði við félagsvísindadeild há- skólans. Dómnefndin taldi umsækj- anda ekki hafa staðfest hæfni sína til þess að gegna umræddri stöðu á sviði tilraunasálfræði með meginá- herslu á skynjun og hugfræði. Stefndi umsækjandinn því dóm- nefndinni, háskólanum og íslenska ríkinu og krafðist þess að viður- kennt jrði með dómi að hann hefði verið hæfur til að gegna stöðunni auk þess sem hann krafðist miska- bóta. Héraðsdómur hafnaði hins vegar dómkröfum umsækjandans þar sem dómstólar ættu ekki úrlausnarvald um sakarefni, sem heyrir sam- kvæmt lögum eða venju undir stjómvöld að leysa úr, eins og fram kemur í 1. mgr. 24. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 en samkvæmt lagaákvæðinu verður máli vísað frá dómi eigi sakarefnið ekki undir dómstóla. Stefnandi var ennfremur dæmd- ur til að greiða dómnefndinni 450 þúsund krónur í málskostnað og ís- lenska ríkinu 100 þúsund krónur í málskostnað. SKRÁÐUM atvinnuleysisdögum í ágúst fækkaði um tæplega 3.300 frá mánuðinum á undan og um tæplega 15 þúsund frá ágústmánuði 1998. Jafngilda atvinnuleysisdagar í ágúst því að 2.412 manns, eða 1,7% af áætl- uðum mannafla (143.164 manns í ágúst) hafi að meðaltali verið á at- vinnuleysisskrá, eins og fram kemur í yfirliti Vinnumálastofnunar yfir at- vinnuástand á Islandi. Atvinnulausir karlar vom að með- altali 802 og atvinnulausar konur 1.610 en þessar tölur jafngilda 1% atvinnuleysi meðal karla en 2,6% meðal kvenna. Síðastliðna 12 mánuði vora um 2.888 manns að meðaltali atvinnulausir eða 2,1% en árið 1998 vora um 3.788 manns að meðaltali atvinnulausir eða um 2,8%. Atvinnuástand skánar víðast hvar Atvinnuástand hefur batnað víð- ast hvar á landinu nema á Vestfjörð- um þar sem atvinnuleysi hefur auk- ist lítillega og á Suðurlandi þar sem lítil breyting hefur orðið. Átvinnu- leysið minnkar hlutfallslega mest á Norðurlandi vestra og á Suðurnesj- um en atvinnulausum fækkar mest að meðaltali á höfuðborgarsvæðinu en litlar breytingar era annars stað- ar. Atvinnuleysi er nú hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu og minnst á Vesturlandi. Það er nú tals- vert minna en í ágúst í fyrra á öllum atvinnusvæðum nema á Austurlandi og Vestfjörðum þar sem það er lítið eitt meira. Atvinnuleysi kvenna minnkar um 6,1% og atvinnuleysi karla um 5,3% milli mánaða. Þannig fækkar at- vinnulausum konum að meðaltali um 108 á öllu landinu og atvinnulausum körlum um 41. Vinnumálastofnun spáir því að at- vinnuástand muni batna enn frekar í september, eins og venja er til. At- vinnuleysi geti orðið á bilinu 1,3% til 1,6%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.