Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Foreldrar kvarta undan skemmtanahaldi á Eiðistorgi Lögreglan kannar bjórsölu KR-sports Mánaðarlaun æðstu embættismanna ríkisins Föst laun Yfirvinna Laun alls Forsætisráðherra 584.000 584.000 Aðrir ráðherrar 531.000 531.000 Ráðuneytisstjóri forsætisráðun. 380.933 154.900 535.833 Aðrir ráðuneytisstjórar 368.051 133.214 501.265 Ríkislögreglustjóri 331.963 142.508 474.471 Framkvæmdastjóri Umferðaráðs 252.097 86.744 338.841 Skógræktarstjóri 289.287 74.352 363.639 Skólameistari Bændask. á Hvanneyri 299.412 61.960 361.372 Sýslumenn: meðaltal Akureyri, Hafnarfj., Kefiavík, Kópav., Selfoss 309.891 101.614 411.505 Akranes, Blöpduós, Borgarnes, Eskifj., Húsavík, Hvolsvöllur, Isafj., Keflavíkurflugv., Sauðárkrókur, Seyðisfj., Stykkishólmur, Vestm.eyjar 289.287 64.283 353.570 Bolungarvík.Búðardalur, Hólmavík, Höfn, Neskaupst., Olafsfj., Patreksfj., Siglufj., Vík 270.052 49.568 319.620 Æðstu embættismenn ríkisins Mánaðarlaunin komin yfir hálfa milljón krona LÖGREGLUNNI í Reykjavík og bæjaryfírvöldum á Seltjai-nai-nesi hafa borist kvartanir vegna skemmtunarinnar, sem haldin var á Eiðistorgi á laugardaginn, er Knatt- spyrnufélag Reykjavíkur varð Is- landsmeistari. Kvartað var yfir há- vaða og því að áfengi hefði verið selt til ungmenna undir aldri. „KR-ingar voru búnir að bíða í þrjátíu og eitt ár eftir titlinum og það varð bara spennufall í Vestur- bænum,“ sagði Guðjón Ingólfsson, veitingastjóri Rauða ljónsins. „Mið- að við þann mikla fjölda sem kom saman á torginu fóru hátíðarhöldin mjög vel fram, en þegar mest vai' voru um 3.000 manns hér að skemmta sér.“ Þjónar engum hagsmunum að selja ungmennum áfengi Sigurgeii' Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, sagði að bæjaryfir- völd hefðu fengið þó nokkrar kvart- anir vegna hávaða og einnig vegna þess að veitingastaðurinn Rauða ljónið, sem er í eigu KR-sports hf., hefði selt áfengi á Eiðistorgi, en hann hefði ekki haft leyfi til þess. 2000-vandinn Verklok- um víða seinkað SAMKVÆMT nýrri stöðuskýrslu 2000-nefndarinnar, sem var á dag- skrá ríkisstjórnarinnar í gær, hefur áætlunum og verklokum í því skyni að koma í veg fyrir truflanir vegna 2000-vandans, víða seinkað hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem nefndin hefur haft spurnir af. Lag- færingum og prófunum kerfa mikil- vægustu innviðarstofnana á þó að vera lokið í síðasta lagi um næstu mánaðamót sem telst viðunandi ef þær áætlanir standast. Að mati 2000-nefndarinnar eru góðar líkur á að endurskoðaðar áætlanir standist ef áfram verður unnið með svipuðum afköstum og unnið hefur verið með fram að þessu. Að sögn Hauks Ingibergssonar, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytis- ins og formanns 2000-nefndarinnar, má hins vegar ekkert úrskeiðis fara héðan af í aðgerðum til varnar 2000- vandanum og segir hann að það glitti í tímahrak í þeim efnum. Að mati 2000-nefndarinnar gefa skoðanir og þekking almennings á 2000-vandanum samt ekki tilefni til sérstakra aðgerða þar sem nefndin telur ekkert benda til þess að hér- lendis verði almenn hræðsluviðbrögð svo sem fjárúttektir í stórum stíl eða hamstur á matvælum og eldsneyti. ------------------- Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi Framkvæmda- stjóri hættir | GUÐJÓN Ingvi Stefánsson, fram- i kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, lætur af störfum hjá samtökunum á næst- unni. Björg Ágústsdóttir, formaður I stjórnar samtakanna, segir að Guð- l jón Ingvi hafi starfað hjá samtökun- i um í 27 ár og ekkert óeðlilegt sé að I hann láti af störfum eftir langt og gott starf fyrir samtökin. Staða framkvæmdastjóra verður auglýst og ný stjórn samtakanna mun ráða nýjan framkvæmdastjóra í nóvem- ber nk. Þá sagðist hann hafa heyrt af því að ungmennum undir aldri hefði verið seldur bjór, en ekkert væri staðfest í þeim efnum. „Ef það reynist satt að bömum hafi verið selt áfengi er það algjör- lega óviðunandi og verður tekið til athugunar þegar gengið verður frá framhaldsleyfi til Rauða ljónsins," sagði Sigurgeir. Að sögn lögreglunnar hefur tals- vert verið hringt í hana og kvartað yfir samkvæminu á Eiðistorgi og sagði hún að málið yrði kannað. Guðjón sagði að áfengi hefði ekki verið selt til ungmenna undir aldri. „Starfsfólk okkar fékk skýr fyrir- mæli um að selja ekki áfengi til ung- menna undir aldri,“ sagði Guðjón Ingólfsson. „Vín var tekið af þeim ungmennum sem komu með það á staðinn og klukkan tíu voru þeir sem ekki höfðu aldur sendir út af torginu og klukkan hálftólf var eng- inn yngri en 18 ára á staðnum. Helgi Björn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri KR-sports hf., sagði þetta vera ansi harða gagnrýni. Hann sagði það ekki þjóna neinum hagsmunum fyrir fyrirtækið að Björgunar- aðgerðir æfð- ar á varð- skipinu Ægi VARÐSKIPSMENN á Ægi æfðu björgunaraðgerðir nýverið í Faxaflöa suður af Snæfellsnesi. Æft var með danska varðskipinu Triton, en hér eru haldnar æf- ingar reglulega með dönskum varðskipum samkvæmt sam- komulagi Landhelgisgæslunnar og dönsku flotastjórnarinnar. Æfing þessi hófst á því að eld- ur átti að hafa komið upp í vélar- rúmi Ægis og áttu fimm menn að hafa slasast. Björgunargengi Tritons kom um borð og hóf björgunaraðgerðir, auk þess komu tveir læknar um borð með þyrlu. Því næst fóru varðskips- menn af Ægi um borð í Triton þar sem eldur átti að hafa komið upp í mannabústöðum. Fimm manns átti að vera saknað og leituðu reykkafarar þeirra. I öðrum hluta æfingarinnar tóku skipin hvert annað í tog og endaði æfingin svo á því að brúðu var hent í sjó og látinn velkjast þar um tíma og leituðu þyrlur skipanna hennar svo með hitamyndavélum. selja ungmennum áfengi, heldur væri miklu meiri skaði fólginn í því heldur en nokkuð annað. KR-sport hf. fundar um málið Að sögn Helga Björns var ýmis- legt gert til að passa upp á að böm væru ekki á staðnum um kvöldið m.a. hefði verið samið við sjoppuna á Eiðistorgi um að loka fyrr og 20 manns hefðu verið í gæslu á staðn- um. Guðjón sagði að forráðamenn Rauða ljónsins hefðu fundað með bæjarstjóra Seltjarnamesbæjar áð- ur en skemmtunin fór fram og gert honum grein fyrir því að líklega yrði mikill mannfjöldi á staðnum eftir leikinn við Keflavík. Að sögn Guðjóns var reynt að skipuleggja skemmtanahaldið eftir bestu getu og var ákveðið að selja bjór á torginu, sem síðar hefði kom- ið ljós að hefði ekki verið leyfilegt. Helgi Bjöm sagði að stjóm KR- sports hf. myndi funda á morgun og þar yrði farið yfir það sem misfarist hefði á laugardaginn og dreginn af því lærdómur. ENGAR tmflanir hafa verið í GSM- kerfi Landssímans frá því á laugar- daginn, en menn frá Ericsson, framleiðanda kerfisins, komu til landsins í fyrradag til að laga hug- búnaðarvilluna, sem kom upp á föstudaginn, að sögn Olafs Þ. Stephensen, forstöðumanns upplýs- inga- og kynningarmála Landssím- ans. Ólafur sagði að villan, sem komið hefði upp á föstudaginn, hefði aldrei komið upp áður og því hefði farið nokkur vinna í að greina það ferli sem fór af stað er villan gerði vart við sig. Hann sagði að menn frá Landssímanum hefðu farið til Dan- merkur um helgina til að hjálpa við- gerðarmönnum Ericsson að greina villuna. Islendingamir komu ásamt mönnunum frá Ericsson til landsins í gærkvöld. Ný villa „Þetta er ekki alveg svo einfalt að það sé bara ræstur út maður með skrúfjárn," sagði Ólafur, aðspurður SAMKVÆMT úrskurði kjaranefnd- ar um laun embættismanna sem heyra undir dóms- og landbúnaðar- ráðuneytið hefur orðið 10-15% hækkun á launum þeirra á þessu ári, en kjaranefnd úrskurðaði um laun þeirra í síðustu viku. Um er að ræða 50-60 manns, sem gegna embættum á vegum ráðuneytanna og eru þeim greidd grunnlaun og föst yfirvinna, sem er mishá eftir embættum. í starfsreglum kjaranefndar segir m.a. að við ákvörðun launakjara skuli kjaranefnd gæta innbyrðis samræmis í stai'fskjörum hjá þeim sem hún fjallar um, að þau séu á hverjum tíma í samræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambæri- legir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar og að samræmi sé milli þeirra og þeirra launa hjá ríkinu sem greidd eru á grundvelli kjarasamn- inga eða Kjarardóms, sbr.10. gr. Iaga um Kjaradóm og kjaranefnd. Sýslumenn með mishá laun eftír umdæmisstærð Grannmánaðarlaun framkvæmda- stjóra Umferðarráðs, sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið, eru því nú 252 þúsund krónur auk 86.744 króna fyrir yfirvinnu, sem greiðist mánaðai-lega fyrir alla yfirvinnu sem starfinu fylgir. Þá hefm- ríkislög- reglustjóri tæpar 332 þúsund krónur á mánuði auk 142 þúsund króna greiðslu fyrir yftrvinnu, sýslumenn hvers vegna viðgerðarmennimir hefðu ekki komið fyrr. „Nú verður fylgst sérstaklega vel með GSM-símstöðinni, þannig að ef hún fer að haga sér eitthvað óeðli- lega aftur komum við til með að grípa strax inn í.“ Alvarlegar bilanir Bergsveinn Alfonsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sagði að bilanir í GSM-kerfinu gætu haft alvarlega afleiðingar, en sagð- ist ekki vita til þess að bilunin um helgina hefði haft áhrif. „Við þurfum að ná til viðbragðs- aðila úti um allt land eftir ýmsum leiðum. Það að hringja í gegnum GSM-kerfið er ein leiðin af mörg- um, en auk þess notumst við við boðtæki, venjulegan síma og NMT- síma [farsíma].“ Ólafur sagði að Landssíminn hefði alla tíð brýnt fyrir fólki, sér- staklega í öryggisgeiranum, að leggja aldrei traust sitt á eina boð- leið. frá rúmum 270 þúsund krónum upp í rúmar 309 þúsund krónur, eftir um- dæmum, auk yfirvinnugreiðslu frá tæpum 50 þúsund krónum upp í rúm- ar 102 þúsund krónur, en auk fastrar yfirvinnu skal greiða þeim sýslu- mönnum, sem fara með innheimtu tekna fyrir ríkissjóð í sínu stjórn- sýsluumdæmi, fyrir yfirvinnu með hliðsjón af innheimtuárangri þeirra. Skólameistari Bændaskólans á Hvanneyri, sem heyrir undir land- búnaðarráðuneytið, hefur nú í grannmánaðarlaun rúmar 299 þús- und krónur auk tæpra 62 þúsund króna greiðslu íyrir yfirvinnu og skógræktarstjóri rúmar 298 þúsund krónur auk rúmra 74 þúsund króna fyrir yfirvinnu. Laun annarra embættismanna innan stjórnsýslunar, sem Kjara- dómur ákveður, hafa ennfremut’ hækkað á þessu ári en forsætisráð- herra hefur nú 584 þúsund krónur á mánuði og aðrir ráðherrar 531 þús- und krónur á mánuði. Kjaranefnd úrskurðaði af því tilefni um Iaun ráðuneytisstjóra og hefur ráðuneyt- isstjóri forsætisráðuneytisisins hæst mánaðarlaun ráðuneytisstjóra, eða rúmar 380 þúsund krónur, auk tæpra 155 þúsund króna fyrir yfir- vinnu. Mánaðarlaun annarra ráðu- neytisstjóra eru rúmar 368 þúsund krónur auk rúmra 133 þúsund króna sem greiddar era fyrir alla yfirvinnu sem fylgir starfmu. Hjúkrunarfræðingar kæra launaúrskurði 5 kærur þegar borist sam- starfsnefnd UM 5 kærar hafa borist til sam- starfsnefndar Ríkisspítalanna og Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, þar sem hjúkranarfræðingar kæra niðurstöður framgangsnefndar um röðun þeirra í launaflokka, sam- kvæmt framgangskerfi sem komið var á í kjölfar síðustu kjarasamninga. Að sögn Herdísar Sveinsdóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga, liggur ekki fyrir hvort kærurnar verði teknar fyrir af sam- starfsnefndinni eða hvort þeim verði vísað aftur til framgangsnefndar. Hún telur að meðferð þessara fyrstu kæra verði prófmál en segir að félag- ið viti ekki við hverju það eigi að bú- ast varðandi framhald málsins, hvort fleiri kærur berist eða ekki. Stofnað var til framgangsnefndar í kjölfar síðustu kjarasamninga þar sem hjúkrunarfræðingar fá starfs- reynslu sína metna í ýmist A-, B- eða C-flokk. Hjúkrunarfræðingai’ geta kært úrskurð framgangsnefndar til samstarfsnefndar stéttarfélags hjúkrunarfræðinga og þeirrar heil- briðgisstofnunar sem viðkomandi starfar hjá. Samkvæmt samkomulagi Landhelgisgæslunnar og dönsku flotastjórn- arinnar eru haldnar æfingar reglulega hér með dönskum varðskipum. GSM-kerfí Landssímans Viðgerðarmenn skoða kerfíð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.