Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETI ÍSLANDS Á AUSTURLANDI
Ólafur Ragnar hitti hóp grunnskólabarna á Reyðarfirði.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjama
Skólabörnin lögðu
áherslu á byggðamálin
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Forsetinn spjallar við börn á Leikskólanum Dalbæ á Eskifirði.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
I Melbæ, húsi eldri borgara á Eskifirði, var lagið tekið fyrir forsetann.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands,
hóf fímm daga heimsókn sína til Austur-
lands með því að heimsækja Reyðarfjörð
og Eskifjörð. I ræðu á Eskifírði vék forset-
inn að erfiðum deilum um atvinnumál og
virkjun á Austurlandi. Hann hvatti til um-
burðarlyndis og sáttar í þessum málum.
OPINBERRI heimsókn Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Is-
lands, til Norður-Múlasýslu og
Fjarðabyggðar hófst á mánudags-
kvöld. Par tók sýslumaðurinn á
Seyðisfirði, Lárus Bjamason, á
móti forseta íslands og fylgdarliði á
Egilsstaðaflugvelli. Að morgni
þriðjudags ók sýslumaðurinn á
Seyðisfirði forseta og fylgdarliði að
vatnaskilum á Fagradal en þar eru
sýslumörk. Sýslumaðurínn á Eski-
firði, Inger Linda Jónsdóttir, tók
þar á móti þeim ásamt bæjarstjórn
Fjarðabyggðar. Poka var á Fa-
gradal og mátti litlu muna að flutn-
ingabíll æki á bflalest forsetans sem
stöðvað hafði í vegkantinum.
Ekið var til Reyðarfjarðar og
stóðu leikskólabörn vörð, með ís-
lenska fánann í hendi, við tjömina
við innkeyrslu bæjarins og buðu
forseta og gesti velkomna. Nemend-
ur og starfsfólk Reyðarfjarðarskóla
voru heimsótt og tók skólastjórinn,
Þóroddur Helgason, á móti gestum.
Nemendur sýndu stuttan leikþátt
og sungu nokkur lög. Asta Hulda
Guðmundsdóttir, fulltrúi nemenda í
skólanum, ávarpaði forsetann og
lagði áherslu á baráttuna gegn
vímuefnunum. Hún lagði einnig
áherslu á að byggð í fjórðungnum
yrði efld með öflugum atvinnufyrir-
tækjum. Fyrirtækin Skinney og KK
matvæli vora skoðuð og eldri borg-
arar buðu í morgunkaffi í safnaðar-
heimili kirkjunnar en þar flutti
Kristinn Einarsson, formaður fé-
lags eldri borgara, stutt ávarp og
rakti sögu staðarins. Þá tók Jó-
hannes Pálsson á móti forseta og
fylgdarliði í fyrirtækinu Hönnun og
ráðgjöf.
Skoðaði nýjan
leikskóla
Eftir að hafa snætt hádegisverð
með bæjarstjóm Fjarðabyggðar á
Fosshóteli á Reyðarfirði var ferð-
inni heitið til Eski-
fjarðar. Þar var leik-
skólinn Dalbær heim-
sóttur en leikskólinn
státar af nýjum og
glæsilegum húsakynn-
um í fallegu og frið-
sælu umhverfi í botni
fjarðarins. Böm Dal-
bæjar veifuðu fánum
og sungu Gamla Nóa
fyrir forsetann. Þrátt
fyrir að Gamli Nói
kunni orðið ýmislegt í
dag, sem hann ekki
kunni hér áður fyrr,
var hann sunginn upp
á gamla móðinn.
Þá var farið í heim-
sókn í rækju- og loðnu-
vinnslu Hraðfrystihúss
Eskifjarðar þar sem
Aðalsteinn Jónsson
forstjóri og Kristinn
Aðalsteinsson tóku á
móti gestum. Rækju-
vinnsla var í fullum
gangi í fyrirtækinu og
fengu gestir leiðsögn í gegnum
vinnsluferlið. Fullkominn búnaður
er í fyrirtækinu og fengu gestir að
sjá rækjuna frá því hún kom úr
suðu og þar til hún fór lausfryst í
neytendapakkningar. Síðan var
skoðuð nótavinnsla fyrirtækisins.
Að þeirri heimsókn lokinni var ferð-
inni heitið á Sjóminjasafn Austur-
lands sem staðsett er í Gömlu Búð.
Geir Hólm safnvörður leiddi gesti í
gegnum safnið sem hefur ekki ein-
ungis að geyma gamla muni tengda
sjó og sjávarútvegi, heldur muni frá
brjóstsykursgerð og tannlækning-
um svo eitthvað sé nefnt. Drakkið
var kaffi í Hulduhlíð, dvalarheimili
aldraðra á Eskifirði. Þar heilsaði
forsetinn upp á vistmenn og deildi
með þeim þeirri reynslu að hafa
alist upp í sjávarþorpi.
Hilmar Bjamason veitti síðan
leiðsögn um Helgustaðahrepp og
sagði frá helstu markverðustu at-
burðum hreppsins. Þá var Harðfisk-
verkunin Sporður skoðuð en þar er
framleiddur bitafiskur og fengu
gestir að sjá hvemig hann er verk-
aður og smakka á framleiðslunni.
Ölver Guðnason, formaður félags
eldri borgara, bauð gesti velkomna í
Melbæ, sem er hús eldri borgara en
þjónaði áður yngri kynslóðinni þar
sem þar var leikskóli áður en Dal-
bær var tekinn í notkun. Forseti og
fylgdarlið snæddu síðan kvöldverð
með bæjarfulltrúum á Fosshóteli á
Reyðarfirði. Deginum lauk með
samkomu í Félagsheimilinu Valhöll
á Eskifirði, með íbúum Reyðar-
fjarðar og Eskifjarðar. Þar spiluðu
ungir tónlistamemendur fyrir gesti
og kirkjukórar beggja staðanna
sungu nokkur lög.
Sjö ungmennum veitt
hvatningarverðlaun
Brýnt að varðveita
umburðarlyndið
SJÖ ungmenni frá Reyðarfirði og
Eskifirði tóku í gærkvöld við við-
urkenningu úr hendi forseta Is-
lands, Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, á samkomu sem haldin var í
félagsheimilinu Valhöll á Eski-
firði í tilefni af opinberri heim-
sókn forsetans. Viðurkenningin,
sem fyrst var veitt haustið 1996,
ber heitið „Hvatning forseta Is-
lands til ungra íslendinga". Hana
hlutu að þessu sinni:
Berglind Ósk Guðgeirsdóttir
16 ára, frá Reyðarfirði, sem sýnt
hefur mikla hæfileika í söng- og
tónlistarnámi.
Halldór Vilhjálmsson 16 ára,
Eskifirði, en hann hefur sýnt
góða hæfileika í félagsmálum og
hefur unnið gott starf sem for-
maður unglingadeildar Slysa-
varnafélagsins.
Inga Mekkin Guðmundsdóttir
11 ára, Reyðarfirði. Hún hefur
sýnt framúrskarandi árangur
bæði í bók- og tónlistarnámi.
Páll Jóhannesson 10 ára, Reyð-
arfirði, sem sýnt hefur mikinn
dugnað í námi, tónlist og íþrótt-
um og þykir góður leiðtogi sins
hóps.
Sindri Snær Einarsson 11 ára,
Eskifirði, sem sýnt hefiir mikinn
styrk og bjartsýni þrátt fyrir
veikindi sín og reglulegar heim-
sóknir á sjúkrahús.
Tinna Arnadóttir 15 ára, Eski-
firði, en hún stundar söngnám og
er framúrskarandi fiðluleikari.
Þorsteinn Ásbjörn 17 ára,
Eskifirði, er góður alhliða
íþróttamaður. Hann leggur stund
á sund, frjálsar íþróttir og leikur
knattspyrnu með K.V.A.
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, drap í ræðu sem hann
hélt í Valhöll á Eskifirði í gærkvöld
á þá umræðu sem nú er ofarlega á
baugi um náttúruvemd annars veg-
ar og atvinnu- og byggðamál á
Austfjörðum hins vegar. Hvatti
hann Islendinga til að taka þátt í
umræðunni „með opnum huga og
umburðarlyndi" og leyfa „öllum
röddum að hljóma" til að komast
„þannig saman á leiðarenda".
I ræðu sinni fagnaði forseti
traustum stoðum „atvinnuhátta,
menntunar og mannlífs alls“ á Aust-
fjörðum. Kvað hann daginn hafa
fært sér „bjartsýni á framtíð byggð-
arinnar" á Austurlandi. „Umræðan
sem að undanfömu hefur verið frek
á athyglina má ekki verða til þess
að við gleymum hve fjölþættar
framfarimar era, að engin hrað-
braut liggur að sigurmarki, að sam-
spil atvinnu, menntunar, tækni, vel-
ferðar, náttúrugæða og lífshátta er
kjörefni í máttarstólpa, undirstöð-
una sem á nýrri öld mun færa
byggðum hér á Austurlandi blóm-
lega framtíð og tryggja trausta bú-
setu í fjórðungnum öllum.“
Erfitt val fyrir
höndum
Forsetinn minnti á að valið milli
„varðveislu náttúragæða - lands-
lags, gróðurs, dýralífs - og umsvifa
og framkvæmda í þágu atvinnulífs
og vinnumarkaðar“ væri þrautar-
glíma sem háð væri hvarvetna í
heiminum. En á ráðstefnum í Ríó og
í Kyoto hefði verið reynt að setja
leikreglur „sem tryggt gætu börn-
um okkar og afkomendum öllum
sömu gæði náttúrannar og við höf-
um notið“.
Forsetinn áréttaði að um flókið
mál væri að ræða og „afar erfitt
val“. Allir helstu oddvitar fylkinga
hafi mikið til síns máls, enda skerist
„í slíkum deilum skörpustu átaka-
línur nútíðar og nýrrar aldar“. Af
þessum sökum brýndi forseti alla til
að „gæta hófs og gefa sér góðan
tíma, gleyma aldrei að lýðræðið er
nú einu sinni sú stjómskipan þar
sem allir hafa jafnan rétt til mál-
frelsis og þátttöku í ákvörðunum".