Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Utlit fyrir að læknar fáist til Dalvíkur og Hríseyjar Starfsmenn byggingarfélagsins Kötlu hófu í vikunni að reisa stoðir og sperrur í viðbyggingu við húsnæði Hita- og vatnsveitu Akureyrar á Rangárvöllum. Umfangsmiklar framkvæmdir á svæði HVA á Rangárvöllum Nýbyggingar og endurbætur á eldra húsnæði ÍBÚAR í Dalvíkurbyggð og Hrísey höfðu af því miklar áhyggjur að missa báða heilsugæslulækna sína úr héraðinu og ekki að ástæðulausu. Að sögn Jónasar Oskarssonar, for- manns stjórnar Heilsugæslustöðv- arinnar á Dalvík, er allt útlit fyrir að læknamál héraðsins leysist far- sællega. Heilsugæslustöðin á Dalvík er tveggja lækna stofnun, sem einnig sinnir Hríseyingum. Bragi Sigurðs- son, sem var heilsugæslulæknir við Heilsugæslustöðina á Dalvík, hefur verið ráðinn til starfa á Heilsu- gæslustöðina á Akureyri og þá hafði nafni hans Stefánsson hugsað sér að flytja burtu úr sveitarfélaginu um næstu mánaðamót en þá rennur ráðningarsamningur hans við stofn- unina út. „Við teljum okkur hafa náð sam- komulagi við Braga Stefánsson um að hann verði hjá okkur áfram og Tónlistarfélag Akureyrar Þýskur kvart- ett flytur kammerverk FYRSTU tónleikar vetrarins á vegum Tónlistarfélags Akur- eyrar verða haldnir fimmtu- dagskvöldið 23. september næstkomandi kl. 20.30 í Safn- aðarheimili Akureyrarkirkju. A tónleikunum kemur fram Cuvilliés-kvartettinn frá Miinchen og flytur kammer- verk eftir meistarana Haydn, Mozart og Beethoven. Kvar- tett þessi er arftaki Sinnhoffer- kvartettsins sem Islendingum er að góðu kunnur eftir að hafa haldið 17 tónleika hér á landi. Árið 1995 andaðist Ingo Sinn- hoffer og tók þá Florian Sonn- leitner að sér listræna stjóm hópsins og hefur leikið með honum síðan. Nafn sitt dregur kvartettinn af Cuvillies-leik- húsinu þar sem Sinnhoffer- kvartettinn lék ótal sinnum meðan Ingo Sinnhoffer starf- aði með honum. þá hafa borist þrjár umsóknir um hina læknisstöðuna og verður farið yfir þær umsóknir á fundi stjórnar á morgun, [í dag, miðvikudag]," sagði Jónas. Skorað á Braga að vera áfram A fund bæjarráðs nýlega mættu þrír einstaklingar úr Dalvíkurbyggð og lögðu fram undirskriftalista með nöfnum 750 íbúa sveitarfélagsins, þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að beita sér fyrir því að Bragi Stef- ánsson læknir endurskoðaði þá ákvörðun að flytjast á brott úr byggðinni. Þá fékk Jónas í hendur í fyrrakvöld undirskriftalista frá Hrísey, sem meginþorri íbúa skrif- aði undir, þar sem skorað var á stjóm Heilsugæslustöðvarinnar að beita sér fyrir því að Bragi Stefáns- son yrði áfram á staðnum. Bæjarráð og stjórn Heilsugæslu- ÁTAK gegn umferðarhraða í íbúðarhverfum hófst nú í haust, eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær. Liður í því er að koma fyrir hriðahindrunum og var byrjað á slíkum fram- kvæmdum á Suðurbrekkunni. Með fréttinni í gær átti að birt- stöðvarinnar skipuðu á dögunum samstarfsnefnd um málefni Heilsu- gæslustöðvarinnar og átti nefndin tvo fundi með Braga Stefánssyni. Á fundi bæjarráðs og heilsugæslu- stöðvarinnar kom m.a. fram að mjög brýnt væri að til kæmi meiri stuðningur frá bæjarfélaginu, t.d. varðandi húsnæðismál, flutninga og annað sem stuðlað gæti að því að fá góða sérfræðinga í heimilislækning- um. Bæjarráð lýsti sig fúst til sam- starfs um ráð til úrbóta í húsnæðis- málum ef það kynni að hjálpa til við ráðningu nýs læknis. Einnig urðu umræður um tækjakaup og vöntun á hjúkrunarfræðingum. Staða Braga Sigurðssonar hafði verið auglýst áður en án árangurs en nú bárust sem fyrr segir þrjár umsóknir um stöðuna. „Utlitið er því mjög gott og þetta er mál sem mun leysast farsællega,“ sagði Jónas. ast mynd, þar sem Kristján Þor- valdsson hjá Garðverki var að raða steinum í hraðahindrun á gatnamótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis. Vegna mis- taka við vinnslu blaðsins vant- aði myndina og birtist hún því hér. MIKLAR byggingaframkvæmdir standa nú yfir á svæði Hita- og vatnsveitu Akureyrar, HVA, á Rang- árvöllum. Þar er verið að reisa við- byggingu við húsnæði HVA og þá er stefnt að því bjóða út um helgina byggingu skrifstofuhúsnæðis, sem verður áföst núverandi skrifstofu- húsnæði. Einnig verður ráðist í um- fangsmiklar breytingar á núverandi skrifstofuhúsnæði og á næsta ári er stefnt að því að hefja byggingu véla- geymslu á lóðinni vestan við húsnæði HVA. I vikunni var byrjað að reisa vegg- stoðir og speiTur í um 925 fermetra viðbyggingu norðan við núverandi húsnæði HVA, sem hýsa mun lager og verkstæði HVA og Rafveitu Akureyrar. Stoðir og sperrur eru úr límtré með tilbúnum einingum á milli, bæði á veggjum og þaki. Að sögn Kristjáns Baldurssonar verkefnisstjóra er mjög fljótlegt að reisa slík hús og eru útveggir og þak tilbúin að utan og innan þegar ein- ingum hefur verið komið fyrir. Hér er um íslenska framleiðslu að ræða og kemur hún frá Límtré á Flúðum. Kristján sagði verkið nokkurn veg- inn á áætlun, framkvæmdir hófust í síðasta mánuði en verklok eru áætl- uð í lok næsta mánaðar. Kostnaður við bygginguna er um 40 milljónir króna en verkið vinnur byggingarfé- lagið Katla í Dalvíkurbyggð. Heildarkostnaður um 200 milljónir króna Skrifstofuhúsnæðið, sem boðið verður út í næsta áfanga, verður hringlaga hús á þremur hæðum, samtals um 620 fermetrar. Þar verða skrifstofur bæði Hita- og vatnsveitu og Rafveitu í framtíðinni, en eins og komið hefur fram hefur Akoplastos keypt húsnæði Rafveitunnar við Þórsstíg. Þá standa til breytingar á núverandi húsnæði veitunnar, m.a. á starfsmannaaðstöðu og mötuneyti. Loks er stefnt að því að byggja 1.200 fermetra vélageymslu vestan við húsnæði HYA á næsta ári og tengist sú bygging fyrirhuguðum flutningi fleiri stofnana að Rangárvöllum, m.a. gatnagerðardeildar og umhverfis- deildar. Það er Arkitekta- og verk- fræðiskrifstofa Hauks ehf. sem er hönnuður framkvæmdanna. Heildar- kostnaður við allar þessar fram- kvæmdir er um 200 milljónir króna, að sögn Kristjáns. Morgunblaðið/Kristján Hraðahindrunum komið fyrir Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Giljahverfi Borgarsíða — Bakkasíða Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. . Morgunblaðið I Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á Islandi sém er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Bæjarstjóri um orð ráðamanna um fjármál sveitarfélaga Alhæfíngar og mikil ein- földun á staðreyndum KRISTJAN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, lagði á fundi bæj- arstjórnar í gær fram bókun þar sem fram kemur að bæjarstjórn Akur- eyrar telji ummæli ráðamanna þjóð- arinnar á síðustu vikum um fjármál sveitarfélaga vera alhæfingar og mikla einföldun á staðreyndum um fjármál sveitarsjóða landsins. „Ljóst er að sú gagnrýni sem höfð hefur verið uppi á sveitarfélögin fyr- ir skuldasöfnun er ómakleg og virð- ist sem málflytjendur vilji ekki horfast í augu við höfuðástæður þessarar þróunar. Þær liggja m.a. í byggðaþróun síðari ára og enn frem- ur þeirri staðreynd að löggjafarvald- ið hefur ekki gegnt þeirri frum- skyldu sinni að tryggja sveitarfélög- unum eðlilega tekjustofna í sam- ræmi við þær skyldur og kvaðir sem lög og reglugerðir kveða á um,“ seg- ir í bókun bæjarstjóra, sem sam- þykkt var á fundinum. Einnig segir að lögbundin verk- efni og skyldur sveitarfélaga ásamt fjármögnun þeirra verkefna sé með þeim hætti að ríkisvaldið, Alþingi og framkvæmdavald leggi sveitarfélög- um landsins til verkefni og skyldur og setji þeim jafnframt efnahagsleg- an ramma með lögum og reglugerð- um. Það sé skylda sveitarstjórna að ráðstafa fjármunum sveitarfélag- anna með skynsamlegum hætti en jafnframt sé það skylda löggjafar- valdsins að sjá til þess að tekjustofn- ar sveitarfélaga séu á hverjum tíma í samræmi við þau verkefni sem þeim er lögskylt að sinna. Látíð verði af orðahnippingum „Bæjarstjórn Akureyrar hvetur til þess að forsvarsmenn ríkis og sveit- arfélaga láti af orðahnippingum sem engu skila en einbeiti sér fremur að því af alvöru að leita leiða til þess að greiða úr vaxandi skuldasöfnun," segir í bókuninni. Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, kvaðst taka heilshugar undir bókun bæjarstjóra og sagði slæmt að fulltrúar ríkis og sveitarfélaga væru að agnúast um þessi mál. Ásgeir Magnússon, formaður bæj- arráðs, sagði óþolandi að forsvars- menn þjóðarinnar skyldu leyfa sér að koma fram með og alhæfa um stöðu sveitarfélaga og framkvæmdir á landsbyggðinni. Trúlegt væri að í einhverjum tilvikum væru sveitarfé- lög að framkvæma fyrir meira fé en aflað er á árinu, en í flestum tilfellum væru framkvæmdirnar tengdar álögum ríkisvaldsins, t.d. varðandi einsetningu grunnskóla. Hann sagði ijölda verkefna hafa verið varpað yf- ir á sveitarfélögin á liðnum árum án þess að tekjustofnar hefðu fylgt. Aðalfundur Skákfélags Akureyrar AÐALFUNDUR Skákfélags Akureyrar verður haldinn í íþróttahöllinni á Akureyri, gengið inn um norðvesturdyr, næstkomandi fimmtudag, 23. september, kl. 20. Auk venju- legra aðalfundarstarfa verður rætt um húsnæðismál félagsins og fram fer umræða um skák- þing Norðlenzinga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.