Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 23
______________VIÐSKIPTI____________
Bjarni Þórðarson, framkvæmdastjóri íslenskrar endur-
tryggingar hf., um IBEX, samstarfsaðila FÍB-Trygginga
Ummæli stangast á
„UMMÆLI Halldórs Sigurðsson-
ar hjá FIB-Tryggingum, sem birt-
ust í Morgunblaðinu í gær, um að
umfang bílatrygginga FÍB-Trygg-
inga hefði fyrr náð hámarki samn-
ings við IBEX-bifreiðatryggingafé-
lagið í London en gert var ráð fyr-
ir, stangast á við ummæli í seinustu
ársskýrslu IBEX,“ segir Bjarni
Þórðarson, tryggingastærðfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Is-
lenskrar endurtryggingar hf., í
samtali við Morgunblaðið.
I ársskýrslu IBEX fyrir árið
1998 kemur fram að heildarupp-
hæð iðgjalda bifreiðatrygginga fé-
lagsins á íslandi hefði numið 1,2
milljónum sterlingspunda, sem eru
um 142 milljónir króna samkvæmt
gengi dagsins í gær. Þar segir
einnig að þessi velta hefði verið
nokkru minni en upphaflegar áætl-
anir hefðu gert ráð fyrir, en jafn-
framt væri gert ráð fyrir stöðugum
vexti á árinu 1999 og væri svo litið
á að á Islandi væru mikil tækifæri
að finna fyrir IBEX. Jafnframt
segir í ársreikningnum að áfram
verði mjög vandlega fylgst með
þróun tryggingaviðskipta félagsins
á Islandi.
Þetta segir Bjai-ni að sé vísbend-
ing um að heildarupghæð trygg-
ingasamninga sem FÍB-Trygging
hafi gert fyrir hönd IBEX-trygg-
ingafélagsins sé ekki bráðum full-
nýtt, heldur að þvert á móti sé tals-
vert í land með að því marki verði
náð.
Bjarni bendir jafnframt á að
heildarupphæð sem bifreiðatrygg-
ingasamningar IBEX geti náð, fyr-
ir tryggingarfélagið í heild, sé rúm-
ir tiu milljarðar króna, en sam-
kvæmt ársskýrslu IBEX hafi bíla-
tryggingasamningar félagsins stað-
ið í rúmum 6,6 milljörðum króna.
Þess vegna sé erfitt að ímynda sér
að tryggingasamningar IBEX séu
að ná þeirri hámarksfjárhæð sem
þeim sé leyfilegt að ná.
IBEX endurtryggir
Loks vildi Bjarni koma þeirri at-
hugasemd á framfæri að IBEX-
tryggingarfélagið tryggði sig hjá
endurtryggjendum með svipuðu
fyrirkomulagi og íslensk bifreiða-
tryggingarfélög. Hann segir að
hlutfall endurtryggingaiðgjalda sé
líkt hjá innlendum tryggingarfé-
lögum og hjá IBEX hvað bíla-
tryggingar varðar, en í ársskýrslu
IBEX má sjá að um 4,5% af bók-
færðum iðgjöldum félagsins var
varið í iðgjöld endurtrygginga.
„I ársskýrslu IBEX kemur fram
að þeir gera ráð fyrir að bera sjálf-
ir tjón allt að 200.000 pundum eða
tæpum 24 milljónum króna, en
endurtryggjandinn tekur á sig það
sem umfram er. Þetta er líklega af
svipaðri stærðargráðu og hjá ís-
lenskum tryggingarfélögum," segir
Bjami.
Bjarni segir að hlutfall endur-
trygginga í eignatryggingum sé
hins vegar töluvert hærra.
Hann segir jafnframt að sam-
vinna milli tryggingafélaga á
tryggingamarkaði Lloyd’s sé afar
takmörkuð. Þar séu hópar sem eigi
með sér ákveðið samstarf, og séu
þeir í ólíkri starfsemi. En annars
sé hörð samkeppni milli trygging-
arfélaga sem starfa á Lloyd’s
tryggingamarkaðnum.
Námstefna um árangur
kvenna í atvinnulífínu
FIMMTUDAGINN 23. september
kl. 13 til 16 endurtekur dr. Sherron
Bienvenu námstefnu um árangur
og velgengni kvenna í atvinnulíf-
inu, sem haldin er á vegum Vegs-
auka þekkingarklúbbs á Grand
Hótel Reykjavík. Skráning gengur
vel og stefnir í að verði uppselt, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi
námstefna er haldin. Dr. Bienvenu
hélt þessa námstefnu síðast í byrj-
un júní sl. og komust þá færri kon-
ur að en vildu. Af þeim sökum og
0,1% hækk-
un vísitölu
byggingar-
kostnaðar
HAGSTOFAN hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan september
1999. Vísitalan er 236,7 stig og
hækkaði um 0,1% frá fyrra mán-
uði.
Hækkun vísitölunnar síðastliðna
þrjá mánuði samsvarar 2,1%
hækkun á ári. Síðastliðna tólf mán-
uði hækkaði byggingaryísitalan
um 2,5%.
Launavísitalan
hækkar
Hagstofan hefur einnig reiknað
út launavísitölu miðað við meðal-
laun í ágúst 1999. Vísitalan er
182,2 stig og hækkar um 0,1% frá
fyrra mánuði.
vegna fjölda áskorana var ákveðið
að endurtaka hana nú.
Þetta viðfangsefni er konum
hugleikið. Konur láta sífellt meira
til sín taka í atvinnulífinu en þurfa
að horfast í augu við önnur áskor-
unarefni en karlar. Þótt mikið hafi
áunnist á síðustu árum þurfa þær
þó enn að glíma við að þær eru sett-
ar undir aðra mælistiku en karlar.
Að sögn Bienvenu tjá konur og
karlar sig stundum á mismunandi
hátt en jafnframt tjá þau sig líka
oft á sama hátt en eru ekki skilin á
sama hátt. Sýni karl ákveðni og
festu er hann skörungur en sýni
kona það sama sjá karlar það sem
neikvætt merki um frekju og yfir-
gang.
Megintilgangur námstefnunnar
er að hjálpa konum að yfirstíga
þessar hindranir og hámarka ár-
angur sinn og velgengni í starfi og
einkalífi með bættum samskiptum.
Nánari upplýsingar er að finna á
slóðinni: http://www.vegsauki.is
Skráningarsíminn er 552-8800.
Einnig er hægt að skrá sig með
tölvupósti. Netfangið er: vegsauki
@simnet.is
Spennandi litir við allra hæfi!
Ráðgjafi frá lancöme sýnir þér töfra litanna í dag.
Glæsilegir kaupaukar.
HÁALEITIS APÓTEK,
Háaleitisbraut 68, sími 581 2101.
Nútfma
innheimtuaðferðir
intrum ( j| justitia
I N K A S S O
V__________________________
50 viðbótarsæti
Tveir fyrir einn til
London
18. og 25. október
trákr. 14.390
fyrir manninn
Bókaðu á mlðvikudag eða
fimmtudag og tryggðu Þér betta
ótrúlega tilboð til London
Gildir 18. og 25. okt. frá mánudegi til fimmtudags
London er tvímælalaust eftirsóttasta heimsborg Evrópu í dag og
vinsældir hennar hafa aldrei verið meiri, enda finnur þú hér frægustu
leikhúsin, heimsþekkta listamenn í myndlist og tónlist, glæsilega veit-
inga- og skemmtistaði og meðan á dvölinni stendur nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Nú getur þú tryggt þér 2
sæti á verði eins til London og valið um gott úrval hótela frá 2ja til 4ra
stjömu, allt eftir því hvað þér hentar. Aðeins 50 viðbótarsæti á þessu
einstaka tilboði.
Hótel i London
Kr. 3.700 2 stjömur
Verð á mann á nótt í 2ja manna h
Bayswater.
Kr. 4.200 3 stjömur
Verð á mann á nótt í 2ja manna h
Stakis.
Kr. 5.300 3'/2-4 stjörr
Verð á mann á nótt í 2ja manna h
Kensington Gardens.
Flugsæti til London
Verð kr. 14*390
Flugsæti til London m. flugvallarsköttum.
Ferð frá mánudegi til fimmtudags,
18. og 25. október.
Flugsœti kr. 21.200.
Skattur kr. 3.790 x 2 = 7.580 kr.
Samtals kr. 28.780, kr. 14.390 á mann.
Flug alla fimmtudaga og
mánudaga í október og
nóvember.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
i erbergi,
i erbergi,
\erbergi,
Hvenær er laust?
30. sept.
4. okt. -
7. okt.
11. okt.
14. okt.
18. okt.
21. okt.
25. okt.
28. okt.
I. nóv. -
4. nóv. -
8. nóv. -
II. nóv. -
- uppselt
laus sæti
- 18 sæti
- laus sæti
-11 sæti
- 38 sæti
- 21 sæti
-58 sæti
- 39 sæti
laus sæti
- uppselt
laus sæti
laus sæti
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð 7. og 14. okt.
Verð kr. 29.990
Sértilboð 7. og 14. október, Grand Plaza,
2 stjömur, 4 nætur í 2ja manna herbergi,
flug, gisting með morgunverði, skattar.