Morgunblaðið - 22.09.1999, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tólf hæða
hótel
hrundi
PEI Tak-stræti í Taipei, höfuð-
borg Taívans, leit út eins og víg-
völiur eftir að 12 hæða hótel,
Sungshan-hótelið, hafði hrunið
þar í jarðskjálftanum. Handan
götunnar, gegnt þeim stað þar
sem byggingin stóð, stóðu ætt-
ingjar fólks sem vitað var að svaf
í byggingunni þegar jarðskjálft-
inn varð. Þar biðu þeir áhyggju-
fullir frétta og margir sáust biðja
fyrir ástvinum.
Aðeins nokkrar efstu hæðir
byggingarinnar voru heilar og
lágu í' einu lagi í turni sem slútti 45
gráður yfir götunni, en neðri hluti
byggingarinnar lá í miklum haug
á jörðinni. Hjálparstarfsmenn sem
voru við störf á vettvangi töluðu
um að fjöldi manna væri enn fast-
ur í rústunum. Rúmlega hundrað
manns hafði verið bjargað eða
tekist af sjálfsdáðum að skríða
undan brakinu skömmu eftir að
skjálftinn reið yfir í fyrrinótt.
Slökkviliðsmenn reyndu að röta
í rústunum og slökkva elda sem
kviknað höfðu í nokkrum þeirra
herbergja byggingarinnar sem
enn voru heil. Þeir voru hvattir
áfram af nærstöddum sem reyndu
að aðstoða þá eftir megni.
„Flýtið ykkur, flýtið ykkur, þeir
eru þarna inni,“ hrópaði kona
sem virtist vera ómeidd og bætti
við: „Eg bjó á niundu hæð, en nú
er það fjórða hæð.“
Jarðskjálfti af stærðargráðunni 7,6 á Richter reið yfír Taívan
Þúsundir taldar vera
enn á lífi í rústunum
Sameinuðu þjúðirnar geta ekki aðhafst
fyrr en beiðni berst frá Kínastjórn
Taipei, Istanbul, Hong Kong. AP, ATP, Reuters
AP
Maður sem bjargað var úr rústum hótelbyggingarinnar í Taipei
er færður í skyndi í sjúkrabíl
ÞUSUNDIR Taívanbúa þustu út á
götur borga og bæja eftir að jarð-
skjálfti reið yfír eyjuna í gærnótt.
Skjálftinn varð um stundarfjórðungi
fyrir klukkan tvö, rétt fyrir klukkan
sex síðdegis að íslenskum tíma. Á
annað þúsund manns hafa fundist
látnir og tilkynnt hefur verið um
meira en fjögur þúsund slasaða, en
talið er að þúsundir geti enn verið á
lífí í rústunum. Skjálftinn, sem talinn
er hafa verið um 7,6 á Richter, er
hinn harðasti sem gengið hefur yfír
Taívan í áratugi, eða allt frá því að
skjálfti af svipaðri stærðargráðu varð
árið 1935 og varð meira en þrjú þús-
und mönnum að bana.
. Um fímmtán hundruð
eftirskjálftar
Upptök skjálftans eru talin hafa
verið um 145 kílómetrum suður af
höfuðborginni Tapei í Nantou-héraði
á miðri Taívan, 12,5 kílómetrum
vestur af Sun Moon-stöðuvatninu
þar sem eitt stærsta útivistarsvæði
landsins er að finna. Mest tjón hefur
orðið í borgum og bæjum í Nantou-
héraði, sérstaklega í borginni Puli,
sem liggur næst upptökum skjálft-
ans. í Taipei, þar sem um 2,7 millj-
ónir manna búa, varð hins vegar til-
tölulega lítið tjón en þar eyðilagði
skjálftinn 12 hæða hótel í austur-
hluta borgarinnar. Tilkynnt hefur
verið um meira en 1500 eftirskjálfta,
allt að 6,8 á Richter.
Ástandið í Nantou-héraði er mjög
slæmt og vitað er að á einu sjúkra-
húsi þar þurfti að raða líkum upp ut-
andyra vegna þess að búið var að
fylla öll rými innanhúss fljótlega eft-
ir að skjálftinn varð. „Líkhúsin eru
full,“ sagði embættismaður í
Nantou-héraði og fór fram á að
sendir yrðu frystiklefar og líkpokar
á staðinn. „Við þurfum á allri þeirri
hjálp að halda sem við getum fengið.
Við þurfum lækna og hjúkrunarfólk
og bifreiðar til að flytja særða á
sjúkrahús annars staðar." Hann
sagði að um hundrað þúsund manns
væru heimilislausir af völdum jarð-
skjálftans. Aðhlynning hinna særðu
hefur verið torvelduð af rafmagns-
leysi sem skjálftinn orsakaði. Talið
er að milli 5 og 6 milljónir heimila
hafi verið án rafmagns fyrst eftir að
skjálftinn reið yfír.
Nokkur þúsund hermenn hafa
slegist í hóp björgunarmanna og þyrl-
ur og bifreiðar hersins hafa verið not-
aðar við hjálparstarfíð. Góðgerðar-
samtök búddatrúarmanna hafa einnig
skipulagt neyðarmóttöku matvæla og
hjálpargagna handa þeim þúsundum
manna sem orðið hafa heimilislausir
af völdum skjálftans. Margir þeirra
sem misst hafa heimili sín sögðust
ætla að sofa úti undir berum himni af
ótta við öfluga eftirskjálfta.
Kínverjar bjóða fram aðstoð
Forseti Taívan, Lee Teng-hui,
sendi í gær eftirlifandi fórnarlömb-
um skjálftans innilegar samúðar-
kveðjur og lofaði aðstoð á vegum rík-
isstjórnarinnar. „Eg hvet al-
mennning til að sýna stillingu og við
munum gera allt til að hjálpa fólki
við að koma lífí sínu í eðlilegt horf á
ný,“ er haft eftir forsetanum.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar vott-
uðu einnig Taívanbúum samúð og
hétu þeim aðstoð. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti sagðist hafa átt
samræður við stjórnvöld í Taívan um
hvaða hjálp Bandaríkjamenn gætu
veitt við þessar aðstæður. Athygli
vakti að Kínverjar hafa boðist til að
senda aðstoð til Taívan en sem kunn-
ugt er hefur verið mikil spenna í
samskiptum Kínverja og Taívanbúa
að undanförnu, þar sem hinir fyrr-
nefndu hafa gert tilkall til eyjarinnar
allt frá árinu 1949. „Við erum reiðu-
búnir að senda alla þá aðstoð sem við
getum til að glíma við afleiðingar
skjálftans," er haft eftir Jiang Zemin
í gær. Talsmenn kínverska utanrík-
isráðuneytisins tóku skýrt fram að
boð Kínverja um aðstoð til handa
Taívan hefði ekkert að gera með
pólitískan ágreining landanna.
Sameinuðu Þjóðirnar geta ekki
látið til sín taka í hjálparstarfínu þar
sem alþjóðasamfélagið viðurkennir
ekki stjórnina í Taipei vegna and-
stöðu Kínverja. Hjálparstarfsmenn á
vegum Sameinuðu þjóðanna geta því
ekki aðhafst fyrr en Kínverjar biðja
formlega um aðstoð fyrir hönd Taí-
vans. Það yrði einnig til þess að fleiri
lönd gætu sent hjálp til landsins, þar
sem löggjöf margra ríkja gerir það
að skilyrði að formleg beiðni berist
svo hægt sé að bregðast við. Rauði
krossinn í Kína hefur boðið systur-
samtökum sínum í Taívan 100.000
dollara aðstoð í peningum og vistir
og hjálpargögn fyrir andvirði um
60.000 dollara.
Japanar ætla að senda 100 hjálp-
arstarfsmenn til Taívan og hafa heit-
ið að láta í té nauðþurftir í samráði
við alþjóðlegar hjálparstofnanir.
Einnig hafa Rússar lofað aðstoð og
Singapúr ætlar að senda 39 manna
lið hjálparstarfsmanna á vettvang í
Taívan.
Þá eru fímmtán manns á vegum
tyrknesku hjálparsamtakanna
AKUT á leið til Taívan með ýmis-
konar tækjabúnað til að auðvelda leit
að fólki í rústunum. AKUT kom
mjög við sögu þegar unnið var að því
að grafa fólk úr rústum eftir jarð-
skjálftann í Norðvestur-Tyrklandi,
þar sem meira en 15.600 manns lét-
ust í nýliðnum mánuði.
Óvenjulegur skjálfti
Jarðskjálftafræðingar segja að
skjálftinn í Taívan hafí um margt
verið óvenjulegur þar sem jarð-
skjálftar á þessu svæði eigi venju-
lega upptök sín á hafi úti og fjarri
mannabyggðum. Ragnar Stefánsson,
jarðskjálftafræðingur Veðurstofunn-
ar, segir í samtali við mbl.is að
SKJÁLFTINN í TAÍVAN
Öflugur jarðskjálfti skók Taívan í fyrri-
nótt. Byggingar þar sem fólk lá í
fastasvefni hrundu og vitað er um á
annað þúsund
Skjálftinn er talinn
hafa verið 7,6 á Richter
Austur Kina-
haf
-
Nantou
Upptök skjálftans
lágu í Nantou-héraði
á miðri eynni
ZHEJIANG
KÍN A
FUJIANG
skjálftinn hafí orðið á þekktu jarð-
skjálftasvæði sem liggi milli Japans
og Filippseyja. Hann segir að á
þessu svæði gangi úthafsbotn Fil-
ippseyjahafs undir meginlandið við
Kína og þar sem plöturnar mætist
myndist oft mikil spenna.
Mikið efnahagslegt tjón er talið
hafa orðið í skjálftanum og nemur
það samkvæmt sumum útreikning-
um allt að 3,2 milljörðum banda-
ríkjadollara, jafngildi um 2.300 millj-
arða íslenskra króna. Hátækniiðnað-
ur í Taívan hefur orðið mjög illa úti
og hefur jarðskjálftinn meðal annars
lamað framleiðslu í Hsinchu-iðngörð-
unum sem eru á norðurhluta eyjar-
innar. Meðal þeirra fyrirtækja sem
hafa orðið fyrir tjóni er United
Microelectronics Corp. (UMC), stór-
fyrirtæki sem framleiðir örgjörva og
tölvubúnað. „Það mun taka okkur að
minnsta kosti nokkra daga að koma
framleiðslunni í gang á nýjan leik,“
sagði forstjóri UMC í gær. Stærsta
fyrirtæki Taívan á þessu sviði,
TSMC, gerði minna úr skaðanum af
völdum jarðskjálftans og lýsti því yf-
ir að ekki væri búist við því að hann
hefði mikil áhrif á magn framleiðsl-
unnar í þessum mánuði.
Haft er eftir fjármálasérfræðing-
um í Suður-Kóreu að verð á örgjörv-
um muni hækka í kjölfar náttúru-
hamfaranna. Bent er á að fyrr á
þessu ári hækkaði verð á örgjörvum
mikið í kjölfar þess að rafmagn fór af
stórum hluta eyjarinnar 29. júlí og
stöðvaði framleiðslu á örgjörvum.