Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 27
ERLENT
Banvænir
sveppir
FJÖRUTÍU og tveir Úkraínu-
menn hafa látist að undanfornu
og á sjötta hundrað hafa þurft að
leita sér lækninga eftir að hafa
lagt sér til munns eitraða sveppi,
að því er fram kom hjá úkraínsk-
um embættismönnum í gær.
Sveppatínsla er afar útbreidd
meðal landsmanna á sumar- og
haustmánuðum og er það ekki
nýlunda að fólk veikist við að
borða eitursveppi. A síðasta ári
létust 74 af völdum eitursveppa.
Hafa heilbrigðisyfírvöld í landinu
hvatt fólk til þess að sneiða hjá
sveppum sem vaxa í skóglendi
sem varð fyrir geislamengun í
Tsjémóbýl-slysinu 1986.
Uraníum
gert upptækt
LANDAMÆRAVERÐIR í Ge-
orgíu handtóku í gær fjóra menn
sem grunaðir eru um að reyna að
smygla kjamakleyfum efnum til
Tyrklands. Mennimir, sem allir
em af georgísku bergi brotnir,
vom teknir höndum um 250 km
frá Tbilisi, höfuðborg landsins.
Höfðu þeir rúmt kíló af efni sem
talið er vera úraníum í fómm sín-
um. Frá falli Sovétríkjanna hefur
smygl á kjamakleyfum efnum
aukist afar mikið samfara bágu
eftirliti á geymslusvæðum fyrir
slík eftii.
Straumurínn
liggur til
Belgíu
STRAUMUR flóttamanna sem
leita sér pólitísks hælis í Belgíu
hefur vaxið mjög að undanfömu
og lýsti Antoine Duquesne, inn-
anríkisráðherra landsins, því yfir
í gær að hið aukna innstreymi
flóttamanna kunni að valda því
að stjómvöld hefðu ekki lengur
vald á aðstæðunum. Fjöldi flótta-
manna sem til landsins komu í
ágústmánuði einum er meiri en
sá fjöldi er kom til landsins á öllu
síðasta ári. Flestir flóttamann-
anna koma frá Kosovo-héraði og
sagði Duquesne að alls væm um
20.000 Kosovo-Albanar í Belgíu.
Varaði hann við því að kostnað-
urinn væri farinn að sliga ijár-
hagsáætlanir ráðuneytisins.
Kynlífsvið-
horf ung-
menna
BRESKIR unglingar stunda
mest kynlíf allra ungmenna í
heimi á meðan að ungmenni í
Singapúr fai’a hægast í sakirnar.
Kemur þetta fram í alþjóðlegri
viðhorfakönnun sem breskur
verjuframleiðandi stóð fyrir og
náði til ungmenn á aldrinum 16
til 21 ára. I könnuninni kom þó
fram að unglingar í Singapúr
nytu samvista sinna með fyrsta
rekkjunaut mun betur en ung-
menni annarra þjóða. Þá bentu
niðurstöður til þess að þariendir
piltar væra manna sjálfselskastir
en 44% aðspurðra sögðust setja
eigin vellíðan í efsta sætið. Að-
eins 14% franskra kynbræðra
þeirra vora sömu skoðunar.
Frakkarnir voru mest vonsviknir
með fyrstu kynlífsreynsluna og
sögðu rannsóknarmenn að niður-
stöðurnar væra athyglisverðar,
ekki síst í ljósi orðsporsins sem
af frönskum elskhugum færi.
Nýtt verðstríð í Bretlandi
London. Reuters.
NÝTT verðstríð er hafið á matvörumarkaðnum
í Bretlandi. Stærsta stórmarkaðakeðja landsins,
Tesco, boðaði miklar verðlækkanir á mánudag
eftir að helsti keppinauturinn, Asda, hafði lofað
viðskiptavinum sínum sama vöruverði og tíðkast
í Bandaríkjunum.
„Þetta verða mestu verðlækkanir sem sést
hafa í Bretlandi," sagði talsmaður Tesco. Hann
vildi ekki greina frá því hversu mikil verðlækk-
unin yrði í prósentum en sagði að fréttir fjölmiðla
um að fyrirtækið hefði þegar ákveðið að lækka
verðið um 10% í næsta mánuði væru ekki réttar.
Daginn áður hafði Asda sagt að á næstu 18
mánuðum yrði vöruverðið lækkað þannig að það
yrði svipað og hjá Wal-Mart, bandaríska stór-
fyrirtækinu sem keypti bresku stórmarkaða-
keðjuna íyrir 6,7 milljarða punda, andvirði 790
milljarða króna, fyrir þremur mánuðum.
Asda kvaðst ætla að lækka verð matvöru um
allt að 15% og fatnaðar um allt að 20%. Fyrir-
tækið sagði að stórmarkaðir þess biðu þegar
upp á 10% lægra verð en keppinautarnir og eftir
18 mánuði yrði munurinn allt að 15%.
Wal-Mart er stærsta smásölufyrirtæki heims,
á nú alls 3.636 verslanir og vegna stærðar sinn-
ar getur það krafist lægsta verðs af birgjum sín-
um. „Þetta er mikilvægur tími í breskri smá-
sölu,“ hafði The Sunday Times eftir Richard
Hyman, stjórnarformanni ráðgjafarfyrirtækis-
ins Verdict. „Wal-Mart stefnir að því að verða
stærsta smásölufyrirtækið í Evrópu og ná þvi
marki með lágu vöruverði. Við höfum beðið eftir
því að það hefjist handa frá það kom hingað;
þetta er stríðsyfirlýsing."
Hagnaðurinn eykst þrátt
fyrir harða samkeppni
Hörð samkeppni hefur verið milli breskra
stórmarkaða á árinu og búist er við að hún
harðni vegna komu Wal-Mart. Bresk sam-
keppnisyfirvöld hafa á sama tíma hafið rann-
sókn á því hvort fjórar stærstu stórmarkaða-
keðjumar hafi notfært sér yfirburði sína til að
tryggja „óeðlilegan" hagnað. Fyrirtækin hafa
neitað þessu.
Til sölu
51 % hlutur ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita eftir tilboðum í 51% hlut ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. (FBA). Fyrirkomulag sölu verður
með þeim hætti að áhugasamir hópar skili í lokuðu umslagi tilkynningu
til Ríkiskaupa um þátttöku fyrir kl. 14 fimmtudaginn 21. október 1999.
Hver hópur þarf að uppfylla ákveðin skilyrði, t.d. um dreifða eignaraðild
og að bjóðendur í hverjum hópi séu ekki skyldir eða fjárhagslega tengdir.
Þegar seljandi hefur samþykkt tilboðshópana gefst þeim kostur á að skila
tilboði til Ríkiskaupa fyrir kl. 14:00 föstudaginn 5. nóvember 1999. Bjóða
skal í allan hlut ríkisins sem til sölu er, 51%. Tilboð skulu miðast við
staðgreiðslu, sem fram fari hjá Ríkisféhirði eigi síðar en mánudaginn
15. nóvember 1999.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag sölunnar verður birt í sölugögnum
sem munu liggja frammi hjá Ríkiskaupum frá og með þriðjudeginum
28. september 1999 kl. 14:00.
Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu
W
RÍKISKAUP