Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Perlur fyrir svín Ona Kamu, Samuli Kosminen og Kristján Eldjám koma fram á Kaffileikhúsinu í kvöld. Gítar, slagverk og söngnr í Kaffi- leikhúsinu LEIKLIST IIEY fTjarnarbíði TÖFRATÍVOLÍ Leikgerð: Hópurinn, byggð á leik- riti Bernhards Goss. Leikstjóri: Gunnar Sigurðsson. Tónlistarstjóm og ljós: Skúli Gautason. Leikmynd og búningar: Aino Freyja Jarvelá og Brynhildur Björnsdóttir. Förð- un: Aðalbjörg Hrafnsdóttir. Hljóð- færaleikur: Níels Ragnarsson. Leikarar: Aino Freyja Jarvelá, Brynhildur Björnsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Níels Ragnarsson, Skúli Gautason og Stefán Sturla Sigurjónsson. Sunnudagur 19. sept- ember. Fjöllistahópurinn Hey segir flókna sögu um Töfratívolíið sem birtist á hundrað ára fresti og hin harmrænu örlög Kidda kúreka sem hengdur var fyrir þjófnað á perlufesti fröken Melónu. Hver þáttur sögunnar endar á að ein af perlunum átta finnst og einhverj- um barnungum áhorfanda er falið að geyma hana svo hinn hræðilegi þrjótur prófessor Vaxmann end- urheimti hana ekki. Það er líf og fjör á þessari sýn- ingu í leikgerð leikrits Bernhards Goss um Töfratívolíið. Tjarnarbíó er lítið leikhús og áhorfendur sitja því nálægt sviði og leikurum. Þess vegna hentar húsnæðið mjög vel undir sýningar þar sem ætlast er til að áhorfendur leggi sitt af mörkum. Börnin á frumsýning- unni tóku líka þátt í sýningunni af lífi og sál undir styrkri stjórn Ste- fáns Sturlu Sigurjónssonar, sem náði vel til barnanna, og Aino Freyju Járvelá, sem íék Teddu með barnslegu sakleysi. Halldór Sigurðsson lék fjölmörg lítil hlut- verk en var full aðsópslítill og kraftlaus. Brynhildur Björnsdótt- ir var afar sérstök í hlutverki Brúnhildar en texti Lufsu litlu skilaði sér illa, bæði vegna fram- sagnar og staðsetningar leikkon- unnar að tjaldabaki. Annar aðalkostur sýningarinn- ar var framlag Skúla Gautasonar. Hlutverkið hentaði honum mjög vel; þarna gat hann sungið fyrir börnin, hrætt úr þeim líftóruna og slegið þess á milli á léttari strengi. Hann var mjög sannfær- andi í útliti og fasi, enda virtist útlit hans hannað eftir teikning- um finnsku skáldkonunnar og myndlistarmannsins Tove Jans- son af galdrakarlinum í Múmín- álfabókunum. Auk þessa voru dul- argervi prófessors Vaxmanns einstaklega skemmtilega útfærð og Skúli meinfyndinn í þeim gervum. Það þarf varla að taka fram að aðal hvers vel heppnaðs barnaleikrits er hæfileg blanda af skelfingu blandinni spennu og hreinni og klárri skemmtun. Skúli tókst allur á loft í túlkun sinni á illmenninu sem varð svo óvinsælt meðal hinna lágvöxnustu í áhorfendahópnum að illgirnisleg hlátrasköll kváðu við er hann varð fyrir einhverjum skakkaföllum og í eitt skiptið er söguhetjurnar voru að velta fyrir sér hvernig þær ættu að bregðast við vélráðum hans kvað við stutt og laggott heillaráð frá einum sakleysingjanum: „Drepið hann!“ En það var einmitt i látunum í kringum perlurnar sem upp kom einn hængur á því að láta áhorfendur taka þátt í leiknum. Suma áhorfendur, sérstaklega þá yngstu og uppburðarminnstu, langar alls ekkert til þess. Flest börnin slást um að fá að fela perlur en þegar þau eru beðin að rétta einhverjum öðrum þær ætti að taka fram að viðtakandinn verði að vilja takast það á hendur að fela perluna fyrir hinum hræðilega prófessor Vaxmann. Þetta ætti að koma í veg fyrir að mjög ung börn séu sett í aðstæður sem þau ráða ekki við, sem óneitanlega varð vart við á frumsýningu, og um leið spara foreldrum kostnað við sálfræði- meðferð síðar meir. En það er ekki hundrað í hættunni ef það versta sem komið getur fyrir er að börnunum verði breytt í lítil vaxsvín. Flestum meðal hinna ungu áhorfenda fannst gaman að hættunni og fengu útrás í baráttunni gegn illmenninu í fullvissu um að hið góða sigraði að lokum. Skemmti- legt lagaval og launfyndinn texti bættu upp flókinn söguþráð og á stundum kraftlítinn leik. Sveinn Haraldsson DÚETTINN Helvík heldur tón- leika í Kaffileikhúsinu, miðviku- dagskvöldið 22. september, kl. 21. Dúettinn skipa þeir Kristján Eld- járn gítarleikari og Samuli Kosm- inen slagverksleikari, en þeir hafa starfað saman um nokkurra ára skeið. Þó eru þetta fyrstu opinberu tónleikar þeirra á Islandi. Tónlist þeirra félaga er frum- samin spunatónlist sem byggi á samleik gítara og slagverkshljóð- færa. Sérstakur gestur þeirra á tónleikunum er finnska söng- og leikkonan Ona Kamu, sem mun taka þátt í flutningi nokkurra verka. Þau Samuli og Ona starfa bæði við tónlist í heimalandi sínu auk þess sem Ona hefur töluvert leikið í kvikmyndum, þ.á m. Juha, nýjustu myndi Aki Kaurismákis. Kynning á þýzku menn- ingarsetri Forstöðumaður þýzka menningar- setursins Stiftung Kúnstlerdorf Schöppingen, Josep Spiegel, kynnir stofnunina í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20 í Gunnarshúsi, en á mánudag- skvöldið fór fram slík kynning á Akur- eyri. „Setrið er í bæn- um Schöppingen skammt frá hol- lensku landamær- unum,“ segir Josef Spiegel. „Við veitum árlega 24 sex mánaða styrki þ.e. 12 styrki til myndlistarmanna og 12 styrki til rithöfunda. Vinnust- ofur og íbúðir listamanna eru til húsa í tveimur gömlum nýendur- gerðum og gríðarstórum sand- steinshúsum. Þar eru 8 íbúðir fyrir rithöfunda og sex vinnust- ofur fyrir myndlistarmenn. Þar er einnig gallerí, lítið leikhús, upplestrarsalur og fundarher- bergi auk annarra herbergja. Við erum í tengslum við kunn og virt gallerí t.a.m. Gallery Van der Koelen í Mannheim. Einnig erum við í tengslum við ýmis út- gáfufyrirtæki svo sem Rowhlt í Hamborg. Við gerum fleira en að veita styrki, stöndum til dæmis fyrir margvíslegu samstarfi við ýmsar stofnanir og má þar nefna Há- skólann í Múnster. Ég heimsótti Island fyrir nokkrum árum og heillaðist af menningunni. Heimsóknin hafði afgerandi áhrif á mig. Fegurð landsins er stórkostleg. Ég hafði kynnst íslenskum bókmenntum sem vöktu forvitni mína. Þær eru mjög sér- stakar og í þeim ríkir einstakt andrúms- loft. Ég upplifði þær sem sérstaklega fal- legar og haglega fléttaðar sögur sem endurspegluðu ein- stakt samfélag og þjóðlíf. Hér ríkir öfl- ugt bókmenntalíf og gróska í myndlist. Ég legg ísland ekki að jöfnu við nokkurt annað land. Mér finnst vera mik- ill kostur að þurfa ekki að aka langt út fyrir borgarmörkin til að komast út í óspillta náttúru. ísland er spennandi staður fyrir listamenn. Það er mikilvægt að efla menningartengsl Islands og Þýskalands. í því skyni höfum við hjá Kúnstlerdorf Schöpping- en sett á fót sérstakan þriggja mánaða dvalarstyrk ætlaðan ís- lenskum rithöfundum og lista- mönnum. Með þessu framlagi viljum við hvetja íslenska og þýska aðila til að leggja sitt af mörkum til að styrkja menning- artengsl þjóðanna. Það er ánægjulegt að sjá hversu já- kvæður og hjálpsamur sendi- herra íslands í Bonn, Ingimund- ur Sigfússon, hefur verið þegar við höfum leitað til hans. Þó að við bjóðum nú þennan sérstaka þriggja mánaða styrk ætlaðan íslenskum rithöfundum og lista- mönnum stendur þeim jafnframt til boða að sækja um sex mánaða styrkina sem við bjóðum upp á.“ Josep Spiegel Hófstillt túlkun TOIVLIST Víðistaðakirkja LJÓÐATÓNLEIKAR Björg Halldórsdóttir og Daníel Þor- steinsson fluttu trúarlega ljóða- söngva. Sunnudagurinn 19. septem- ber, 1999. BJÖRG Halldórsdóttir sópran- söngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari opnuðu kristnitökuhá- tíðina á Islandi með tónleikum í safnaðarheimili Akureyrarkirkju í maí sl. og fluttu sömu dagskrá í Víðistaðakirkju sl. sunnudag. Efn- isski-áin samanstóð af trúarlegum söngverkum er spönnuðu tímann frá frá Handel til Arons Coplands. Það eru alltaf tíðindi, er ungt lista- fólk heldur sína fyrstu sjálfstæðu tónleika, „debuterar", eins og það er kallað. Björg hefur fengið í vöggugjöf fallega og mikla rödd, hefur þegar aflað sér góðrar kunn- áttu og þótt efnisskráin hafi ekki gefið henni tækifæri til að sýna hvers hún er megnug, í meðferð stórra verkefna, mátti vel heyra, að hér er á ferðinni eftirtektarverð og efnileg söngkona. Fyrstu tvö viðfangsefnin eru eft- ír Handel, Dank sei dir og Angels, ever bright, úr óratoríunni Theodora, þar sem fjallað er um píslardauða, nefndrar Theodoru, samin 1750, við texta eftir Morell. Ef fyrra lagið er úr þessari órator- íu, hlýtur textinn að vera þýddur. Það var strax ljóst, að Björg hefur mikla rödd og nokkuð jafna í hljóm- an, þótt tónninn sé nokkuð hvass á efra sviðinu. Litanían og sérstak- lega Ave Maria, eftir Schubert, var mjög vel sungin og sama má segja um 0 Salutaris Hostia eftir Rossini, úr Litlu hátíðarmessunni, sem Rossini samdi 1863. Sá átakslausi söngmáti, sem einkenndi tónleik- ana í heild átti síst við í tveimur lög- um úr Biblíuljóðunum, eftir Dvor- ák. Það gætti nokkrar uppljómunar í Agnus Dei, eftir Bizet, sem auð- vitað er aðferð til túlkunar en er oft án innblásturs og trúarhita, þannig að fallega mótaður söngurinn var án allra átaka. Eftir hlé söng Björg Frið á jörðu, eftir Arna Thorsteinsson og tvö smálög eftir Kaldalóns, Klukkna- hljóð og Maríubæn, er Björk söng afar fallega. Þessi mjúkláta afstaða til framsetningar, gerði þrjú kirkjulög eftir Jón Leifs, fallega hljómandi en það vantaði í þau skerpuna og sérkennileikann, jafn- vel í Vertu Guð faðir, faðir pinn, sem var ágætlega sungið. í Allt eins og blómstrið eina og Upp, upp mín sál, vantaði fomeskju Jóns Leifs, þótt þau væru fallega sungin. í þremur lögum úr Hermit Songs, eftir Barber var túlkunin kraftmeiri en í fyrri viðfangsefnun- um og Gömlu amerísku söngvarnir, eftir Copland, voru mjög vel fluttir og mátti heyra, að Björg Þórhalls- dóttir á ýmisleg fleira til en að syngja með flosmjúkum áreynslu- lausum tóni. Hún hefur hljómmikla og fallega rödd, syngur tandur- hreint og væri spennandi að heyra hana taka á í túlkun stórra við- fangsefna. Efnisskráin að þessu sinni, var sérkennilega einlit og sum við- fangsefnin lög, sem mikið hafa ver- ið flutt við jarðarfarir og messur, falleg hversdagstónlist, sem þarf að flytja af glæsibrag, svo að þau geri sig á tónleikum. Það val flytjenda að stilla allri túlkun í hóf, gerði margt, í annars fallegri framsetn- ingu, einum og dauft, sem eftirsjá er að, þegar um svo glæsilega rödd er að ræða, sem Björg hefur fengið í vöggugjöf. Þá var leikur Daníels í heild daufur og ti! baka haldandi, þótt ýmist væri fallega gert hjá honum, eins og reyndar hjá söng- konunni. Jón Asgeirsson Rýntí norræna goðafræði í Snorra- stofu TERRY Gunnell, þjóðfræðingur, heldur fyririestur á vegum Snorra- stofu í Reykholti fimmtudaginn 23. september kl. 21 til minningar um Snorra Sturluson, en hann var drepinn í Reykholti 23. september árið 1241. Fyrirlesturinn ber heitið „Enn rýnt í gullnar töflurnar“. Viðfangsefni Gunnells er sú mikla umræða sem átt hefur sér stað meðal fræðimanna síðustu árin um norræna goðafræði, en birst hafa nokkrar áhugaverðar rann- sóknir þar sem tekið er á þessu við- fangsefni frá ýmsum hliðum. Gunn- ell mun leitast við að gefa hlustendum hugmynd um hvaða straumar eru ríkjandi meðal fræði- manna nú þúsund árum eftir að ís- lendingar lögðu af hinn foma sið með formlegum hætti. ♦ ♦ ♦--- Diddú og Bergþór á Akranesi TÓNLEIKAR verða á sal Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi kl. 20.30 fimmtudaginn 23. september næstkomandi. Þar munu söngvararnir Bergþór Páls- son og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, flytja söngdagskrá byggða á lögum Sigfúsar Haldórssonar auk laga úr vinsælum söngleikjum. Undirieikari er Jónas Ingimundar- son. Forsala aðgöngumiða á tónleik- ana er hafin í Bókaskemmunni á Akranesi og í Framköllunarþjón- ustunni í Borgarnesi. Miðaverð er 1.500 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.