Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 31

Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 31 LISTIR Alþjóðlegur blær og glæpasögur Gautaborg.Morgunblaðið SÍÐDEGIS á sunnudag lauk Bóka- stefnunni í Gautaborg, en hún reyndist þegar upp var staðið slá öll sín f'yrri met í aðsókn, með yfir 110 þúsund heimsóknum (ekki gestum þvl margir koma oftar en einu sinni) frá fimmtudegi til sunnudags. A sýningunni mátti raunar skynja öllu alþjóðlegra yfirbragð en áður, með bókaútgefendum og rithöfundum frá 17 löndum, m.a. frá Kóreu, Kína og Zimbabwe, sem gerðu stefnuna blæbrigðaríka. Það að sýningar- svæðið hefur vaxið upp í nær 10 þúsund fm, svo og fyrirmyndar skipulagning gerði að verkum að nokkuð auðvelt var að snúa sér við og komast leiðar sinnar um svæðið. Fjögur höfuðþemu voru ríkjandi á skipulögðum fundum stefnunnar: Biblían, glæpasögur, þýskar bók- menntir og geðheilsuherferð. Mest umtalaða og jafnframt um- deilda bókin, var án efa Biblían og yfir 20 pallborðsumræður voru helgaðar bókinni og trúnni frá ýms- um sjónarhólum. Ný sænsk biblíu- þýðing er væntanleg á markaðinn í nóvember næstkomandi. Spennusagnahöfundar nutu at- hygli að vanda, og laugardagurinn var tileinkaður þeim. Hin 75 ára Margaret Yorke, sótti stefnuna heim og þótti með sitt gráa hár, skarpt augnaráð og milt brosið, minna á persónu eftir Agötu Christí, Mrs Marple. Auk York bar hæst hinar nýju norrænu glæpasagnadottningar, einkum hina norsku Karin Fossum (f. 1954) og sænska höfundinn Lisa Marklund (f. 1964). Karin Fossum hlaut viðurkenningu hjá Skandina- viska Kriminalselskapet fyrir bók- ina „Se dig inte til bake!“ frá árinu 1996, en síðasta bók hennar er „Djevlen holder lyset“. Lisa Marklund varð landsþekkt eftir að hún tók á móti Poloni-verð- laununum fyrir bóldna „Sprangar- en“ fyrir tæpu ári. Álit dómnefndar var „frumleg glæpasaga ... þar sem skapheit blaðakona stendur annars vegar í spennuþrungnum eltinga- leik við morðingja og hins vegar í framkvæmdastjóravandamálum jafnhliða því að sækja bömin á leik- skóla.“ Marklund var falið að deila út Poloni-verðlaununum á Bók- tefnunni í ár og sigurvegarinn reyndist Aino Trosell. Aino, sem er 50 að aldri, hefur unnið bæði sem félagsráðgjafi og logsuðukona, en á einnig rithöfundarferil að baki. Hún hefur áður hlotið bókmenntaverð- laun Ivar Lo-Johanssons. Bókmenntaverðlaun Hennings Mankells voru veitt í fyrsta sinn í ár, tileinkuð afrískum höfundi sem að þessu sinni var Yvonne Vera frá Zimbabwe. Skáldsögu hennar Und- er the Tounge (1996) mætti ef til vill kalla listræna glæpasögu, þar sem sifjaspjöll eru eitt leiðandi þema bókarinnar. íslenskir höfundar á bókastefnu Þegar boðið er upp á 10-20 áhugaverða fyrirlestra og umræðu- fundi samtímis, reynir á valfrelsið. Allnokkrir tugir völdu að hlýða á ís- lensku skáldin á föstudaginn var, Þórarin Eldjám og Gyrði Elíasson, undir góðri leiðsögn Ulfs Ömkloo. Þýðandi Gyrðis, John Swedenmark kom einnig fram og flutti túlkanir sínar á þeim ljóðum sem höfund- urinn las á íslensku. Árið 1993 gaf Bonniers út þýðingu Swedenmarks á Svefnhjólinu, sem hlaut sænska titilinn „Sömnhojden", með „and- legum styrk úr myrkfælnisjóði", en ljóðaþýðingamar em enn í leit að útgefenda. Þórarinn sem notaði tækifærið til að þakka Svíum að hann gat setið við skriftir í Stokk- hólmi á velgengnisárum sænska kerfisins, lék sér að því annars veg- ar að flytja á sænsku eigin túlkanir á textum sínum og hins vegar að lesa úr danskri þýðingu með sænsk- um framburði, kafla úr sögulegri skáldsögu sinni, Brotahöfuð, sem hér nefnist „Blátomet" og sem til- nefnd var til Norrænu bókmennta- verðlaunanna og keppti til úrslita um Aristeion-verðlaunin. Fyrirlestur Auðar Magnúsdóttur sagnfræðings um konur víkinga- tímabilsins fór fram á sunnudegi samkvæmt áætlun og reyndist hinn áheyrilegasti. Hún benti meðal ann- ars á að samkvæmt lögum þeirra tíma gátu aðeins ekkjur verið efnis- lega sjálfstæðar. Vissulega nutu eiginkonur höfðingjanna virðingar en hinar munu þó fleiri sem fáar eða engar heimildir em til um. Auður dró þá ályktun að þótt goðsögnin um styrk og sjálfstæði kvenna al- mennt á því tímabili reyndist skáld- skapur þá mætti vel sækja styrk í slíka goðsögn og það gerðu til að mynda stofnendur íslenska kvenna- blaðsins Melkorka, sem hóf göngu sína mánuði áður en Island varð sjálfstætt 1944. Tímaritið Forskning & Fram- steg, júlí-ágúst 1999 er tileinkað ár- inu „1000 í nýju ljósi“ og þar má finna grein eftir Auði um hina „sterku konu“. í sama hefti má meðal annars finna umfjöllun um doktorsritgerð eftir sagnfræðing- inn Henrik Janson, undir hinni ögr- andi yfirskrift „hedendomen ár ett luftslott byggt av eftervarl- den“. Janson er sagður halda því fram að hið heiðna hof í Uppsala hafi aldrei verið til og að heiðnin sé sköpuð af kristindóminum! Þýdd verk íslenskra höfunda mátti finna víðsvegar á sýning- unni, þótt þeir kynntu sig ekki í eigin persónu að sinni. Meðal sjö nýrra bóka í haustútgáfu Gauta- borgarforlagsins Anamma Böcker AB er þýðing á Elskan mín, ég dey, eftir Kristínu Ómar- sdóttur. Þýðingin er eftir Ann- Sofie Axelsson og kápuhönnun eftir Jóhan Mentzer, afar fallega unnin, enda fær hún að prýða for- síðuna á kynningarbæklingi for- lagsins. Sænskur titill er „Álskling jag dör“. Anamma hefur bætt við sig kiljuútgáfu og þar má sjá „Z - en karlekshistoria“ eftir Vigdísi Grímsdóttur meðal nýrra titla. Lestrarherferð árið 2000 Á blaðamannafundi í lok stefn- unnar kynnti framkvæmdastjórinn Bertil Falck tvö fyrirhuguð þemu að ári, annars vegar norrænar bók- menntir og hins vegar „lestrarher- ferð“ sem mun hefjast á sjálfri stefnunni með Bengt Westerberg og Elisabet Reslegárd í farar- broddi. Elísabet hefur meðal ann- ars unnið fyrir hönd þeirra sem eiga við „dyslexi" að stríða. Bertil Falck lagði áherslu á að í sínum huga væri takmarkið að ná betur til yngra fólksins.En svo er ég ekki að- eins ræðismaður Bókastefnunnar, því ér er líka ræðismaður Islend- inga,“ minnti framkvæmdastjórinn á, þegar hann tók stoltur fram inn- rammað kynningarplakat fyrir stefnu næsta árs: Mynd eftir ís- lensku listakonuna Sigrúnu Eld- jám. Myndin nefnist Að lesa upp- hátt og er þetta í þriðja sinn sem mynd eftir íslending prýðir vegg- spjald stefnunnar. Glæný línuýsa Ath.: Eigum aðeins 2 tonn FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ OF*"1**' 8 Fiskbúðin Vör Höfðabakka 1 v/Gullinbrú, sími 587 5070. - heimili góðu tilboðanna - a'*‘«Zz

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.