Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 49

Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 49'' mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið- sögn: Opið alia virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið þriðjud.-fóstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið- vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu: http//www.natgall.is_________________________ LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega kl. 12-18 nema mánud. _____________________ LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma 553-2906.____________________________________ LJOSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið alla daga frá kl. 13-16. Simi 663-2580.______ LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Selljarnarnesi. i sumar verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. milli kl. 13 og 17.__________________________ MINJASAFN AKUREYRAR, Miiyasafnið á Akureyri, Að- alstræti 58, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 19.6. -16.9. alla daga frá kl. 11-17. Einnig á þriöjudags- og fimmtu- dagskvöldum í júlí og ágúst frá kl. 20-21 í tengslum við Söngvökur 1 Minjasafnskirkjunni sömu kvöld kl. 21. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11- 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með miiýagripum og handverks- munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net- fang mínaust@eldhorn.is._____________________ MINJÁSAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/EUiðaár. Opið á sunnudögum kl. 16-17 og eftir sam- komulagi. S. 567-9009._____________________ MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tímum í síma 422-7253.____________________________________ ÍÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum. Simi 462-3550 og 897-0206. __________________ MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr- um tima eftir samkomulagi._________________ NÁTTÚRUPRÆÐISTOPA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._ NATTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16.____________________________________ NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam- kvæmt samkomulagi.________________________ NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17. Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn- ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud. PÓST- OG SfMAMINJASAFNID: Austurgötu 11, Hafcar- firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Simi 555-4321. RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaöastræti 74, s. 551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl. 13.30- 16._________________________________ SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið alla daga frá kl. 13-17. S: 565-4442, bréfs. 565-4251. SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS- SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 13-17. S. 581-4677.________________________ SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl.ls: 483-1165,483-1443.__________________ SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18. Simi 435 1490.________________________________ STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður- götu. Handritasýning er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 14-16 til 15. mai.________________________ STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl. 13- 18 nema mánudaga. Simi 431-5566._______ UÓDMINJASAFN ÍSLANDS: Opiö alla daga nema mánudagakl. 11-17._________________________ AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu- daga ld. 10-16. Langard. 10-15._______________ LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opid alla daga frá kl. 14- 18. Lokað mánudaga.____________________ náttUrugripasafnið, Hafnarstræti. Opið alla daga frákl. 10-17. Simi 462-2983._________________ NONNAHÚS, Aðalstrætl 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júnl -1. sept. Uppl. i sima 462 3555._____________ NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum- arfrákl. 11-17.____________________________ ORÐ PAGSINS ________________________________ Reykjavík sími 551-0000. Akurcyri s. 462-1840.________________________ SUNPSTADIR SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8- 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl. 8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8- 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-22. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16. þri., mið. og fóstud. kl. 17-21._________________ SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd. og sud. 8-19. Sölu hætt hálftlma fyrir lokun._ GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._ HAFNARFJÖRÐUR. Suöurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21. Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.- föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.________ VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl. 6.30- 7.46 or kl. 16-21. Um helgar kl. 8-18._ SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7- 21 oa kl. 11-15 um helgar. Simi 426-7566._____ SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22, helgar 11-18.________________________________ SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud -róstud. kl. 7-21, Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____ SUNDLAUGIN f GARÐI: Opin mán. róst. kl. 7-9 og 16.30- 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard. og sunnud. kl. 8-18. Simi 461-2532.___________ SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-fost. 7- 20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30.____ JADARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-fðst. 7- 21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________ BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21. ÚTIVISTARSVÆÐI______________________________ husdYragarðurinn er opinn alla daga kl. 10-17. Lok- að á miövikudögum. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjöl- skyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á veturna. „ Slmi 5757-800._____________________________ SORPA SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endurvinnslu- stöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar á stórhá- tíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.slmi 520-2205. Forseti Alþingis heimsækir Manitoba HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, verður í heimsókn í Manitoba dagana 20.-24. sept- ember. Hann mun m.a. hitta að máli forseta Manitoba-háskóla og aðra yfirmenn skólans, for- seta fylkjaþingsins og ráð- herra. ÞJONUSTA/FRETTIR Morgunblaðið/Önundur Björnsson Stórir sem smáir tóku virkan þátt í að draga féð í dilka. Frá Fljótshlíðarrétt með Þríhyming í baksýn. Réttað í Fljótshlíðarrétt Breiðabólstað 1 Fljótshlíð. Morgunblaðið. Þriðjudaginn 14. september var réttað í Fljótshlíðarrétt eftir fyrstu leitir á Græna- Qalli. Leitarmenn, liðlega 20 manns ásamt matráðskonum, fóru á afrétti laugardaginn 11. september og komu niður að Þórólfsfelli með safnið síðdegis á sunnudag. Næsta dag var féð rekið út Hlíðina í Fljótshlíðarrétt sem staðsett er við félagsheimilið Goðaland. Þar var féð dregið í dilka á þriðjudagsmorgni og því síðan ekið til síns heima. Bændur í Fljótshlíð fara í fimm til sex leitir haust hvert; tvær á Grænaljall, tvær á Rauð- nefsstaði, eina á Klofninga, heimalönd smöluð og síðast er réttarferð. Um tvö þúsund fjár skiluðu sér af fjalli eftir fyrstu leit eða um sjötti hluti þess fjár sem bændur í Hlíðinni eiga að hausti. Vetrarfóðraðar ær em að jafnaði um 4.600 og má reikna með 1.7 lambi á hverja ær sem reiknast í heildina 12.500 ær með lömbum. Heyra mátti á máli manna, sérstaklega þeirra eldri, að réttir séu ekki orðnar svipur Þessar stöllur vom mættar í réttir þrátt fyrir háan aldur. Frá vinstri: Guðrún Guðjónsdótt- ir, 91 árs, og Þórhildur Þorsteinsdóttir, 96 ára, ekkja séra Sveinbjamar Högnasonar, prófasts á Breiðabólstað. hjá sjón miðað við fyrri tíð. Bæði hafi verið mun fleira fé í réttum og mannlíf allt lífiegra; mikið sungið og skálað. Margt, var um manninn í fyrstu réttum; fólk á öllurn aldri. Það yngsta líklega eins til tveggja ára en sá elsti 99 ára. Sá heitir Sig- urður Árnason, fyrrverandi bóndi á Sáms- stöðum, hagyrðingur góður og hnyttinn í til- svömm. Einnig mátti sjá frú Þórhildi Þor- steinsdóttur, ekkju séra Sveinbjarnar Högna- sonar, prófasts og alþingismanns á Breiðaból- stað í Fljótshlíð, en hún er 96 ára og vel ern. Þess má til gamans geta að frú Þórhildur er móðir séra Sváfnis Sveinbjarnarsonar pró- fasts sem tók við embætti af föður sínum, en þeir feðgar sátu Breiðabólstað samfleytt í 71 ár. Starfsfólk dvalarheimiiisins Kirkjuhvols bauð heimilisfólki upp á réttarferð sem flestir þáðu sem á annað borð voru þokkalega ról- færir. Þó svaraði ein heimiliskonan af Kirkju- hvoli því til aðspurð um réttarferðina að hún hefði í raun og veru engan tíma tii að standa í þessu því hún væri að fara í húsmæðraorlof í viku á Skóga. LEIÐRÉTT Nafnabrengl NAFNABRENGL urðu í mynda- texta með mynd af rannsóknarhópi íslenskrar erfðagreiningar, sem staðsett hefur erfðavísi sem veldur meðgöngueitrun, í blaðinu í gær. Um leið og beðist er velvirðingar á þessum mistökum birtist myndin aftur með réttum nöfnum. Frá vinstri eru: Hreinn Stefánsson, Sigrún Sigurðardóttir, Michael L. Frigge, Steinunn Snorradóttir, Birgir Pálsson, Augustine Kong, Þorlákur Jónsson og Anna S. Ein- arsdóttir. Stjórnmálakonur í fréttatilkynningu í blaðinu í gær var sagt frá náms- og sam- skiptaneti sem ætlað er stjórn- málakonum. í fyrirsögn var reynd- ar sagt stjómmálamenn en átti að vera -konur. Einnig segir í tilkynn- ingunni: „Mikilvægt er því að hefj- ast strax handa og vinna að því að fjölga konum við sveitarstjórnar- kosningarnar sem verða árið 2002. Með það að leiðarljósi hefur nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmál- um nú sent bréf til yfir 2.000 stjórnmálakvenna. Bréfið var sent konum sem eru aðal- og varamenn á Alþingi, konum er eru aðal- og varamenn í sveitarstjórnum og konum sem starfa í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélaga." Kötlugos I grein minni um Kötlugos, sem birtist í Morgunblaðinu 12. sept. hefur ein málsgrein að mestu farið forgörðum. Hún er í III. kafla og var minnst á Kötlugil. Rétt er málsgreinin svona: „Svokallað Kötlugil hjá Hrífunesi fylltist, gömlu brúna á Hólmsá tók af og fólk flúði frá gamla Hrífunesbæn- um, sem stóð lágt og skammt frá Hólmsá." Sr. Páll Pálsson Rangt fóðurnafn í minningargrein í fyrirsögn minningargreinar um Bjarna Snæland Jónsson, eftir Halldór Hjartarson í blaðinu 21. september er rangt farið með föð- urnafn Bjarna og hann sagður Gissurarson. Hið rétta er Jónsson og eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. Námskeið um tákn og myndmál í kirkjum FÉLAG kennara í kristnum fræð- um, siðfræði og trúarbragðafræðum stendur fyrir námskeiðahaldi í vet- ur. Öll námskeiðin eru sniðin að kennurum í grunnskólum. Fyrsta námskeiðið verður haldið laugar- daginn 25. september n.k. í hliðarsal Hallgrímskirkju kl. 10-14. Efni námskeiðsins er tákn og myndmál í kirkjum og saga ein- stakra tákna, í kristinni trú og öðr- um trúarbrögðum. Kennari er sr. Kristján Valur Ingólfsson. Léttar veitingar verða í hádegishléi og eru þær inni í námskeiðsgjaldi sem 500 kr. fyrir félagsmenn en 1.500 kr. fyrir aðra kennara. Myndasýning frá þjóðgörðum og gönguleiðum í Nova Scotia HÉR á landi er staddur kanadískur leiðsögumaður og þjóðgarðsvörður, Jean Timmons, er hefur sérhæft sig í grænni ferðamennsku. Næst- komandi fimmtudagskvöld 23. sept- ember kl. 20.30 verður hann með myndasýningu og kynningu á störf- um sínum á vegum Ferðafélags ís- lands í sal félagsins í Mörkinni 6. Græn ferðamennska er eitt af hugtökum er tengist visthæfri ferðamennsku sem nýtur vaxandi vinsælda, en markmið hennar er að fyrirbyggja að ferðaþjónustan grafi undan sjálfri sér. Timmons mun fjalla um þessa tegund ferða- mennsku og gönguleiðir og þjóð- garða í Nova Scotia sem hafa margt að bjóða göngu- og ferða- fólki. Myndasýningin er öllum opin og aðgangseyrir er enginn. í nóvember verður námskeið um jól og aðventu (jólasmiðja) og eftir áramót verður námskeið um börn, heimspeki, siðfræði og trú. Athugið að námskeiðin eru haldin í samvinnu við Fræðsludeild kirkj- unnar og eru fullgild til að vinna sér inn punkta. Skráningu á námskeiðið annast Hrund Hlöðversdóttir, kennari í Hamraskóla, og Guðlaug Björgvins- dóttir, kennari í Foldaskóla. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12. sími 5544433

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.