Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 50

Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ ' 50 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 Dýraglens PU STALST SPÆGIPYLSUNNIAF ELOHÚSBOfiDINU, VAR PAB EKKI ? jL-Jl ; HÚN ÁTTIAB VEWRA í KVÖLB- MAUNN - EG VONA /10 PÚ HAFIR 11 NOTTfi HENNAR ífc-----J| j Ljóska Smáfólk MEYMANA6ER.H0U) C0M6 I ALWAYS MAVE TO PLAY RI6HT FIELP? r^r BECAU5E YOU RE SUCH ATERRIBLE PLAYER! I SUPPOSE YOU THINK. YOU'RE 5UCHA6REAT PITCHER,HUH? AND I SUPP05E YOU THINK YOU'RE 5UCH A 6REAT MANA6ER? Hæ þjálfari, af hveiju Það er af því að þú ert Ogþúheldurað Ogþútelurþig verð ég alltaf að spÚa svo lelegur leikmaður. þú sért svo frábær vera svo frábæran á hægri kanti? leikmaður? framkvæmdastjóra? Þetta gæti farið á vesta veg. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Væntanleg árþúsunda- mót Frá Guðmundi Rafni Geirdal: MIKIÐ hefur verið skeggrætt um komandi árþúsundamót á síðum blaðsins. Sumir vilja meina að þau eigi sér stað um komandi áramót, alla vega sé ástæða til að halda upp á að talan 1999 breytist í 2000, sem er óneitanlega allt önnur tala en all- ar þær tölur þessa öld sem hafa byrjað á 19 og eitthvað. Hins vegar eru þeir sem minna á að tímatal okkar hafi byrjað á tölunni 1 því ekki hafi verið til talan 0 á þeim tíma og því séu hin raunverulegu árþúsundamót um þarnæstu ára- mót. Hér er í rauninni deila á milli þeirra sem þykir það flott að talan 2000 verði á öllum dagatölum og hinum sem vilja láta hina vísinda- legu vissu ráða. Mín tillaga er sú að allt árið 2000 sé notað til að lagfæra skekkjur og ófullkomleika úr fortíðinni af hinu ýmsasta tagi. Þannig megi halda al- mennilega upp á komandi áramót, en með eins konar áramótaloforði um að hreinsa til í gömlum skrám til að leysa svokallaðan 2000-vanda af öllu tagi, ekki aðeins með því að laga gömul tölvuforrit, heldur einnig tímatal okkar, því það er ekki aðeins að talan núll hafi ekki verið notuð á fyrstu öldunum eftir Kristsburð, heldur er ekki einu sinni vitað með vissu hvenær Jesú fæddist. í hinni íslensku alfræði- orðabók segir um þetta: „Að líkind- um fæddist J 8-4 f.Kr.“ (1988, bls. 203 (J er skammstöfun fyrir Jesúm)). Þetta þýðir að líkur bendi til að Jesús hafi fæðst fjórum til átta árum áður en tímatal okkar hófst. Það þýðir síðan að ef tíma- talningin væri látin hefjast um það leyti, þá voru 2000 liðin frá hinum líklega Kristsburði í kringum árin 1993-1997. Það þýðir að um það leyti sem góðærið hófst hér á landi (og ónefndur maður tók þátt í for- setaframboði) rann upp ný öld, sú tuttugasta og fyrsta og í ár væru liðin 2002 til 2006 ár frá hinum tíð- rædda atburði. Einnig vil ég benda á að í grein í Times og Newsweek, um það leyti sem hin líklegu árþús- undamót áttu sér stað, þar sem fjallað var um rannsóknir gagnrýn- inna guðfræðinga á hugsanlegri til- vist Jesú kom fram að sagnfræð- ingar væru að verða æ ósáttari við að skipta veraldarsögunni í fyrir og eftir Krist þegar hún byggist miklu mun frekar á tímaskeiðum marg- víslegra menninga og æviskeiða konunga og jafnvel enn frekar á aldursgreiningum fornleifa aftur í tímann. Því er spurning hvort ekki mætti íhuga hvort ekki sé kominn tími til að hefja nýtt tímatal á kom- andi ári og láta það nú loksins byrja á núlli. Þar sem stöðugt er talað um næstu öld sem nýja öld legg ég til að tímatalið sé kallað nýöld. Þá væri hægt að ræða um veraldar- söguna sem fyrir og eftir nýöld. Það væri skammstafað f.n. (fyrir nýöld) og e.n. (eftir nýöld) og skammstafanimar f.Kr. og e.Kr. féllu niður. Það gæti orðið til mikils hagræðis fyrir nútímafólk. Heimur- inn er að færast æ meir saman með aukinni tækni og samgöngum. Því er viturlegt að finna eitt heOdar- kerfi fyrir mannkynið. Því ekki að byrja á því að koma á sameiginlegu tímatali, byrja frá grunni, frá núlli eins og sagt er. Þetta yrði rætt árið 2000 og allt til enda þess og um ára- mótin 2000-2001, aldamót vísinda- sinnaðra manna, yrði breytingun- um endanlega komið á. GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL, skólastjóri. Oíþróttamannsleg framkoma Frá Einari S. Hálfdánarsyni: Ég finn mig knúinn tU að rita nokk- ur orð um framkomu sem ég held að aldrei hafi tíðkast í íþróttum á Islandi. Leikmaður númer 5 í liði Víkings sem hafði það hlutverk að halda í peysuna hjá Marcel, Hollendingnum í liði Fram, í loka- leik íslandsmótsins lét ekki við það sitja, enda peysutogið með sam- þykki dómara leiksins. Hann lét sér um munn fara þvílík ummæli sem lauslega þýdd hljóma „þræll, þú lyktar illa, niggari, farðu aftur í frumskóginn? auk ummæla um móður Marcels og samskipti leik- manns nr. 5 við hana sem ekki eru eftir hafandi í dagblaði. Þetta heyrðu aðrir leikmenn en Marcel. Þegar Marcel var nóg boðið og hrækti á leikmanninn var Marcel rekinn út af, ekki sökudólgurinn. Tveir leikmenn Víkings slógu sam- an höndum; þeim hafði tekist ætl- unarverk sitt. í öðrum löndum er búið að taka á framkomu sem þessari og hefur mjög alvarlegar afleiðingar fyrir leikmenn. Það er Víkingi til skammar að reyna að ná fram úr- slitum í leik með þessum hætti. Við Luca Kostic vil ég segja: Hér á íslandi viljum við ekki þola að íþróttir séu stundaðar á þennan máta. EINAR S. HÁLFDÁNARSON, lögmaður og endurskoðandi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.