Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 52

Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Hestar o g honey-nut Kristín Gestsdóttir hefur aldrei verið meðmælt því að börnum væri gefíð sykrað morgurkom, en hvað hestum viðkemur veit hún ekki hvað segja skal. UM DAGINN vorum við hjónin á ferð í Landbrotinu og komum þar að sem bræður tveir voru að jáma skjóttan hest en faðir þeirra hélt í tauminn. Öðru hverju laumaði faðirinn hendinni ofan í vasa sinn og dró upp eitt- hvað sem hann gaf hestinum úr lófa sínum. „Hvað ertu með þama?“ spurðum við, svarið var: „Honey-nut cheerios, hann verð- ur svo rólegur þegar hann fær það.“ Þetta var nú hestur en ekki bam, bömin verða ekki róleg af að borða mikinn sykur og hunang er líka sykur. Ég þekki böm sem borða stundum honey-nut cheer- ios sem sælgæti eins og hestur- inn en geta ekki hugsað sér að borða það í morgunmat með mjólk út á. Mér datt í hug að prófa að setja honey-nut cheerios í múffukökur og rúgbrauð og varð útkoman mjög góð, svo góð að ég er ekld í vafa um að hann Glanni sem verið var að jáma hefði kunnað vel að meta. IIHMWIBMBMMB—HMM—I Honey-nut múffur (muffins) ____________2e99_____________ ___________2 dl sykur________ _________50 g smjörlíki_____ _________2 V; dl hveiti_____ 2 tslc. lyftiduft ______1 tsk. brúnkökukryddd__ ___________1 dl mjólk_______ 2 dl honey-nut cheerios nokkrir honey-nut hringir til skreytingar 1. Hrærið egg og sykur þar til það er ljóst og létt. 2. Bræðið smjörlíkið, kælið að mestu en setjið síðan út í. 3. Blandið saman hveiti, lyfti- dufti og brúnkökukiyddi og setj- ið ásamt mjólkinni út í. Hrærið lauslega saman. 4. Setjið honey-nut cheerios út í og blandið varlega saman við með gaffli. 5. Setjið 3 tsk. af deigi í hvert múffuform og setjið einn hring á miðju hverrar múffu. 6. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn í 190°C, setjið í heitan ofninn og bakið í 15 mín- útur. Rúgbrauð með honey-nut 300 g heilhveití 250 g rúgmjöl 150 g hveiti 2 V2 tsk. salt 3 tsk. motarsódi __________1 V2 dl síróp_______ __________6 dl súrmjólk_______ dós með loki 1. Setjið heilhveiti, rúgmjöl, hveiti, salt og matarsóda í skál og blandið saman. 2. Setjið síróp og súrmjólk út í og hnoðið deig. Gott er að nota hrærivél. Deigið á að vera frekar lint. 3. Setjið honey-nut eheerios út í og hnoðið áfram svo að það jafnist vel um deigið. 4. Notið góða dós með loki. Hér var notuð Macintosh-dós, 20 cm í þvermál og 8 cm á hæð. Þrýstið deiginu vel ofan í dósina, bleytið hendurnar, þá gengur það betur. 21/2-3 cm borð þarf að vera ofan á brauðinu. 5. Hitið bakaraofn í 110°C, blástursofn í 100°C, setjið dósina í ofninn og bakið brauðið í 12 klst. 6. Brauðið fyllir út í dósina, þegar það er fullbakað. Athugið: Þetta brauð er best bara með smjöri, en að sjálf- sögðu má borða ost eða annað álegg með því. (Svaf yfir m 56 Svaf yfir mig... Skiptir ekki máli - Enginn yfirmaður! -1- í VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hundarnir í Sflakvísl DÝRAVINUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi láta það koma fram að henni fyndist skömm að því að ein manneskja skuli hafa það mikil völd að geta sagt til um það hvort hundarnir í Sílakvísl skuli lifa eða deyja. Hún sagði þetta vera yndislega hunda og að dýr ættu að fá að lifa eins og mann- fólkið ef þeir gerðu engum mein. Um Keisarann aftur EG hafði samband fyrir stuttu við Velvakanda um Keisarann v/Helmmtorg. A sunnudag fór ég þarna framhjá og þar lá kona í götunni og önnur kona stóð yfir henni og lét öllum illum látum. Þegar vegfar- endur reyndu að huga að konunni sem þarna lá brást hin konan hin versta við. Því næst heyrðist hátt sírenuvæl og lögregla og sjúkralið var þarna mætt. Hversu lengi á þetta að ganga svona? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég verð vitni að svona löguðu þeg- ar ég geng þama framhjá. Fólk ráfar út og inn á Keisarann og margt af því er mjög illa á sig komið og áreitir vegfarendur, betlar af þeim og lætur ófriðlega. Eg vil aftur skora á borg- arstjóra og aðra í borgar- stjóm að beita sér fyrir því að þessum hræðilega stað verði lokað. Þarna hef ég líka séð böm standa og horfa á þetta, það finnst mér hræðilegt og öryggi okkar borgaranna er ógn- að meðan þessi staður er opinn. Sigrún. Tapað/fundið Áklæði tapaðist STÓR strangi af áklæði, grátt og grænt að lit, datt af kerru einhvers staðar á leiðinni frá Túnunum í Garðabæ í áttina að Árbæ. Strangans er sárt saknað og er finnandi vinsamlega hringi í síma Árbæjar- brekku. 895 7096, 8923310, 565 7096. Gleraugu töpuðust GLERAUGU töpuðust í miðbæ Reykjavíkur eða á leiðinni í Garðabæ aðfara- nótt sunnudagsins 12. september. Finnandi vin- samlega hringi í sima 565 8756. Fjalar er týndur KISINN á myndinni heitir Fjalar og hann slapp úr bíl í vesturbænum sl. fimmtu- dag. Hann á heima í Garðabæ þannig að hann er líklega villtur í vestur- bænum. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 565 9293 eða 861 9293. Köttur í óskilum FRESSKÖTTUR 5-6 ára, svart og brúnbröndóttur, ]jós undir höku, með hvítar lappir og doppu yst á rófu- nni, hefur verið í garðinum á Miklubraut 72 í 6-7 daga. Kötturinn er búinn að týna merkisspjaldi en er með dökkt hálsband er um hálsinn. Hann virðist ekki rata heim. Uppl. í síma 5612229. Kanína fannst HVIT kanína með brún eyru, brúnt nef og brúnar loppur fannst í Kópavogi sl. þriðjudag. Uppl í síma 897 0443, 567 0443 e. kl. 17 og í vinnusíma 580 5148 Páfagaukur í óskilum BLÁR páfagaukur er í óskilum í Stapaseli í Selja- hverfi. Eigandi getur haft samband í síma 698 0267. SKAK Umsjón Margcir Pétnrsson STAÐAN kom upp í úrslita- skákinni í landsliðsflokki á Skákþingi íslands um helg- ina. Helgi Áss Grétarsson (2.495) var með hvítt og átti leik, en Hann- es Hlífar Stef- ánsson (2.560). Hvíta staðan virðist í fljótu bragði von- laus, en Helgi Áss fann óvænta leið til að bjarga tafl- inu: 69. b4!! axb3+ (Svart- ur drepur í framhjá- hlaupi) 70. Kb2 _ Kxe4 og samið jafhtefli. Þótt ótrúlegt megi virðast getur svartur ekki knúið fram vinning í stöðunni með manni og peði meira gegn berum kóngi hvíts. Þeir Helgi Áss og Hannes Hlífar deildu efsta sætinu á mótinu með 9'/2 vinningi af 11 mögulegum. Þeir verða því að tefla einvígi um Is- landsmeistaratitilinn. Hvítur leikur og heldur jafntefii. HÖGNI HREKKVÍSI z, l/en/u/ega. erhaeuv úti ciLíarrnetur^ -en, mótorhjó/'o Aans er inn '/ á- i/er/cs/xáinu- Víkveiji skrifar... NEI, ertu búinn að fá töskuna? Þannig spurðu ferðafélagar Víkverja hver eftir annan þegar hann kom í matinn í öðrum jakka en hann hafði verið í dagana þrjá á undan og að öðru leyti sómasam- lega til fara. Ferðataskan hafði sem sé orðið viðskila við hann og komst ekki í hendur eiganda fyrr en síðdegis á miðvikudegi eftir flugferð sem hófst á sunnudags- morgni. Slíkt gerist og það þrátt fyrir það að sá sem tekur við töskunni í Leifsstöð fullvissi farþegann um að allt gangi nú upp þrátt fyrir langa leið og tvær flugvélaskiptingar. Taskan muni rata sömu leið og far- þeginn enda merkingin rétt. SAS- flugfélagið er svo öruggt með sig að þeir leyfa sér að slengja fram eftirfarandi texta á töskumiðum sem þeir bjóða farþegum: „Far- angur er eins og gæludýr. Hann fylgir þér hvert fótmál.“ Heyr á endemi! í þessari sömu ferð bað Víkveiji um gangsæti á leið frá Kaupmannahöfn til Frankfurt. St- arfsmaður SAS í Kaupmannahöfn sagði það lítið mál og gramsaði í lyklaborðinu. Annað kom á daginn. Vikverji fékk alls ekkert sætis- númer á brottfararspjaldið og varð að bíða þar til næstum allir voru komnir um borð. Fékk þá glugga- sæti í þriggja sæta röð. Énn var af- greiðslumaður flugfélagsins stikk- frí; þetta var ekkert mál en hann gerði bara ekki það sem hann sagði að væri ekkert mál. Aftur bað Víkverji um gangsæti og lagði mikla áherslu á það þar sem framundan var nærri ellefu klukkustunda flugferð. Já, já, sagði afgreiðslukona Lufthansa á flug- vellinum í Frankfurt og fékk Vík- verja sæti 44E. Þegar út í vél kom reyndist það miðjusæti í þriggja sæta röð. Lítið spennandi. Víkverji spurði nærstaddan flugþjón hvort hægt væri að breyta einhverju en hann sagði svo ekki vera þar sem vélin væri full. Sorrí, sagði hann, yppti öxlum og var stikkfrí. Enn hafði starfsmaður flugfélags ekki staðið við sitt, var sjálfur víðsfjarri, ábyrgðarlaus og getur þess vegna haldið áfram að gera sömu vitleys- una. Víkveiji gerði tvenn mistök. í fyrra sinnið að líta ekki á brottfar- arspjaldið sem SAS-maðurinn í Kaupmannahöfn fékk honum. Þá hefði hann séð strax að sætisnúmer vantaði og getað rekið það ofan í hann. í síðara skiptið hefði hann átt að spyija Lufthansa-konuna hvort sæti 44E væri örugglega gangsæti. Þá hefði kannski komið í ljós að hún hefði ýtt á E en ekki D á lyklaborðinu og hægt að laga mistökin. Niðurstaðan: Skoðið, fylgist með og spyrjið til að gengið sé úr skugga um að óskir séu upp- fylltar. Það er ekki dónalegt að spyrja ítrekað og vera vakandi fyr- h- því að þessi störf séu rétt unnin. Öll sögðu þau að það væri ekkert mál. Víkverji gæti ekki sagt orð ef honum hefði verið sagt að ekki væri hægt að koma til móts við óskir hans. Varðandi töskuna síðkomnu þá hafði Víkverji vaðið fyrir neðan sig að nokkru leyti. Hafði í handfar- angri sínum skyrtu, nærföt, sokka, tannbursta, raksköfu, aðra mynda- vél sína og tvær filmur. Hann var því ekki alveg handalaus á áfanga- stað og meðan beðið var töskunnar góðu (gæludýrsins!) keypti hann skyrtur og nærföt. Og var kannski kominn tími til.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.