Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 53
í DAG
Árnað heilla
OZ\ÁRA afmæli. í dag,
O\J miðvikudaginn 22.
september, verður áttræð
Arnbjörg Hermannsdóttir,
Ólafsbraut 30, Ólafsvík.
Eiginmaður hennar var
Magnús Kristjánsson.
BRIDS
Umsjdn Guðmundur
Páll Arnarson
SUÐUR verður sagnhafí í fímm
laufum eftir að vestur hefur
hindrað í hjarta.
Norður
* G74
¥ D3
♦ ÁK5
4» KG632
Suður
A ÁK65
¥7
♦ 642
4» ÁD984
Vestur Norður Austui” Suður
- - - llauf
3 hjörtu 5 lauf Allir pass
Vestur tekur fyrsta slaginn á
hjartaás og spilar svo kóngnum,
sem suður trompar og tekur
tvisvar tromp. Austur reynist
eiga einspil í trompi og hendir
tígli í það síðara. Hvernig er
best að spila?
Spilið kom upp í keppni í
Bandaríkjunum fyrir 50 árum.
Á þeim tíma var Douglas Steen
þekktur spilari, en það er nafn
sem fáir kannast við í dag. Hvað
sem því líður, þá skrifaði Steen
langa ritgerð um spilið að ofan í
The Bridge World, þar sem
hann sýnir fram á að besta leið-
in sé að spila smáum spaða að
gosanum. Þannig má tryggja
aukaslag á litinn ef vestur á
drottninguna, og ennfremur ef
spaðinn fellur 3-3, sem þó er
ólíklegt.
Norður
A G74
V D3
4 ÁK5
T KG632
A
Vestur Austur
Á D1082
V 1086
^ DG973
10
Suður
AÁK65
¥7
4 642
T ÁD984
Líklegast er að austur sé
með lengd í spaða og tígli. Með
því að spila smáum spaða
strax, verður hægt að þvinga
austur til að gefa upp valdið á
öðrum litnum. Ekki má taka
svo mikið sem einn háspaða
fyrst, því þá getur austur slitið
samganginn fyrir þvingunina
með því að spila enn spaða
þegar hann kemst inn á drottn-
inguna.
KEE ljósmst. Seltjarnarness.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. mars sl. í Bú-
staðakirkju af sr. Sigurði
Grétari Sigurðssyni á
Hvammstanga Kristín
Hrönn Þorbjörnsdóttir og
Gunnar Freyr Sverrisson.
Ljósmyndarinn í Mjódd.
BRÚÐKAUP. Gefm voru
saman 7%ágúst sl. í Áskirkju
af sr. Árna Bergi Sigur-
björnssyni Sveinbjörg
Agústsdóttir og Sveinn Sig-
urðsson. Heimili þeirra er í
Reykjavík.
Svavar er kominn í frí.
Með morgunkaffinu
Er kaffið nokkuð sterkt?
COSPER
Þetta er Magnús, yfirmaður minn.
LíU
t
JONAS HALLGRIMSSON
Því; sem Island ekki meta kunni,
er Island svipt; því skáldið hnje og dó,
skáldið, sem því af öllu hjarta unni,
sem elskaði þess fjöll og dali og sjó
og vakti fornan vætt í hverjum runni.
Þegar hann hrærði hörpustrenginn sæta,
hlýddum vjer til, en eptirtektarlaust,
vesalir menn, er gleymdum þess að gæta,
að guð er sá, sem talar skáldsins raust,
hvort sem hann vil oss gleðja eða græta.
Nú hlustum vjer og hlusta munum löngum,
en heyrum ei - því drottinn vizkuhár
vill ekki skapa skáldin handa öngum;
nú skiljum vjer, hvað missirinn er sár;
í allra dísa óvild nú vjer göngum.
En þeir, sem fylgdu þjer í lífsins glaumi
og þekktu andann, sem þjer drottinn gaf,
fylgja þjer enn þá fram í lífsins straumi
og fúsir berast út á dauðans haf;
því hjer er allt svo dauft og sem í draumi.
Gott er þjer, vinur! guðs í dýrð að vakna;
þig gladdi löngum himininn að sjá.
______ Víst er oss þungt að sjá á bak og sakna
Úr Fjölni samvista þinna; en oss skal huggun ljá;
1847 vjer eigum líka úr lífsins svefni að rakna.
STJÖRNUSPA
eftlr Franves Drake
V.
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert mikill lestrarhestur
og hafsjór af fróðleik um
allt á milli himins ogjarðar.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Þú ert ekki nógu fastur fyrir
þessa dagana og þarft því að
halda þig í hæfilegri fjarlægð
frá því fólki sem reynir að
freista þín á einhvern hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eitthvað eru hlutimh- að vefj-
ast fyi-ir þér svo biddu hlut-
lausan aðila um að leiðbeina
þér svo þú áttir þig betur á
því hvert þú vilt stefna.
Tvíburar _
(21.maí-20.júni) ort
Þér býðst tækifæri til að gera
eitthvað sem reynir verulega
á þig en gefur þér um leið
tækifæri til að víkka út sjón-
deildarhringinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert svo næmur á líðan
annarra að þú verður að gera
eitthvað til að verjast því svo
að það dragi ekki úr þér allan
mátt. Hugsaðu vel um sjálfan
þig-
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er allt í lagi að hampa
sjálfum sér svona af og til ef
það er ekki á annarra kostn-
að. Viijirðu vinna þig í álit
skaltu samt reyna aðrar og
betri aðferðir.
Meyja -j
(23. ágúst - 22. september) iDíL
Nú er rétti tíminn til þess að
líta yfir farinn veg og finna út
hvar má gera breytingar til
hins betra og hvernig best er
að framkvæma þær.
Vo£ XTX
(23. sept. - 22. október) 4* &
Einhver mun koma þér svo á
óvart að þú verður að játa þá
staðreynd að aldrei skyldi
dæma eftir útlitinu einu sam-
an. Sú játning mun reynast
þér ljúf.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þótt þú sért orðlaus af
hneykslun yfir skoðunum
annarra þarftu að virða það
að þótt mennimir séu margir
og misjafnir þá eiga þeir allir
sinn rétt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) Jkv
Þú hefur ferðast víða og
margt hefur komið við sögu.
Gefðu þér nú tíma til að setja
reynslu þína niður á blað og
miðlaðu henni til annarra.
þíns
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Ef leitað verður álits
varðandi verknað annarra
skaltu gefa þér góðan tíma til
skiigreina hvað bjó að baki áð-
ur en þú fellir einhverja dóma.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Vðn'
Þú ert óspar á að hvetja fé-
laga þína til dáða sem er vel
meint en áhrifaríkast er þó að
vera sjálfum sér samkvæmur
og sýna þeim gott fordæmi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú hefur þyrlað upp mold-
viðri og þarft að leita færis á
að útskýra mál þitt og þá þýð-
ir ekkert annað en að leggja
öll spiiin á borðið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞÉTTIFRAUÐ
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SIMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVfK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Sólarlandafarar ath.!
Bermúdabuxur, bolir og bikini
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
Reiki-, heilunar- og *
sj álfstyxkingarnámskeið
Námskeið í Reykjavík:
28.—30. sept. 1. stig kvöldnámskeið
16.-17. okt. 2. stig helgarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10-12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
CALLERÍ
Slwlavörðustíg 5
er 5 ára í dag
Viðskiptavinir dagsins fá
óvæntan glaðning.
í tilefni afmælisins
opnar Inga Elín sýningu á
postulínslömpum í galleríinu.
Verið velkomin!