Morgunblaðið - 24.10.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.10.1999, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Á FEGURSTA STAÐ JARDRÍ KIS Snæviþakinn tindur Ama Dablam fjalls læt- ur engan ósnortinn. Nú er rúmt ár liðið frá því að fimm hafnfirskir fé- lagar úr Slysavarnafé- ----------------------- lagi Islands létu draum sinn rætast. Þeir gengu á þennan stórbrotna tind sem þykir einn fegursti gimsteinninn í því nisti sem Himalaya- fjallgarðurinn myndar. Arni Eðvaldsson segir hér frá því er leiðang- ursmenn náðu á tindinn hinn 20. október 1998. ÞAÐ var létt yfir leiðang- ursmönnum er komið var í aðalbúðir í 4.500 metra hæð við rætur Ama Da- blam hinn 12. október 1998. Betri stað fyrir aðaibúðir var vart hægt að hugsa sér, því þarna voru slétt- ar og grasi vaxnar flatir. Þama voru saman komnir leið- angrar frá öllum heimshornum, svo sem breska hernum, Rússlandi, Kanada, Þýskalandi og víðar. Auk okkar sjömenninga var leiðangurs- stjórinn, Nick Kekos, breskur fjall- göngumaður með mikla reynslu í háfjallaklifri. Hann var m.a. að- stoðarleiðangursstjóri þegar Is- lendingar klifu Everest í maí 1997. Þröng á þingi Leiðin á tindinn lá eftir suðvest- ur hrygg fjallsins en hann skagar hátt í þrjá km út frá tindinum sjálf- um. Fyrstu búðir voru á hryggn- um, í um 5.800 m hæð. Þar var þröng á þingi og fátt um fína drætti þegar tjaldstæði voru ann- ars vegar. Hlaða þurfti upp tjald- stæði úr grjóti. Tók það drjúga stund enda við komnir hærra en nokkur okkar hafði stigið fæti áð- ur. Að höfðu samráði við Ang Babu Sherpa, sem var yfirburðarmaður í öðrum leiðangri, var búnaður beggja hópanna borinn á jakuxum upp í efri grunnbúðir í um 5.500 m hæð. Eftir dags hvíld var hafist handa ásamt Sherpum hins leið- angurins við að koma upp efri grunnbúðum. Því næst var að koma birgðum og búnaði fyrir í búðum tvö sem voru í 6.000 m hæð. Leiðin á tindinn liggur eftir 3 km löngum hryggnum sem er egg- hvass og á honum eru brött og erf- ið klettabelti. Nick leiðangursstjóri taldi okkur í það góðu formi að við gætum komist af með aðeins einar búðir á fjallinu sjálfu, þriðju búðir í um 6.300 m hæð. Við þetta sparað- ist mikill tími og erfiði. Sherparnir ætluðu að koma fyrir þar tjöldum og við myndum síðan seinna ferja þær birgðir og búnað sem við höfð- um komið fyrir í öðrum búðum upp í þær þriðju. Langur dagur Við vöknuðum morguninn eftir um klukkan 5 og vorum tæpa tvo tíma að gera okkur ferðbúna. Eftir Ljósmynd/Árni Örvar virðir fyrir sér útsýnið af „svölunum" í 6.200 m hæð. Sjá má línur sem fyrri leiðangrar hafa skilið eftir í bergveggnum. i ' ’tí 1? K JKt Pg|i mm U 'X■» '1 h§Æ /f.V />■) pwl SfZt y jlffg mMi m f **** Dzb 'afit var t-yf*ta btíði siáv°mh* >zzz ar,eZ* 1 fi;> i Lóbuché Dingboch Pangbocl [engbochi klaustrið lamche Bazar INDLAND 'mynd/ön Ljósmynd/Símon Leiðin á íjallið liggur eftir hryggnum hægra megin við Ama Dablam tindinn, sem er fyrir miðju. Göngumenn eru f.v. Árni, Örvar, Júlíus, Valgarður og Pálmi. að hafa farið um fyrstu búðir hófst síðan hið eiginlega klifur. Aðstæð- ur voru með besta móti, sól skein í heiði og granítið var þurrt og vel fallið til klifurs í þægilegum hitan- um. Þótti sumum erfitt að klifra í hlýjum plastskóm sem líkjast skíðaskóm. Til að byrja með þurft- um við að hliðra okkur upp eftir hryggnum og teygja drjúgt úr skönkunum án þess þó að erfiðleik- ar væru teljandi. Þreytan var ekki eins og maður á að venjast og verkjaði mig t.d. ekkert í vöðva. Eftir nokkur skref blés maður hins vegar eins og hvalur en eftir stutta hvfld var maður orðinn upplagður á nýjan leik. Eftir um klukkustundar klifur frá fyrstu búðum kom fyrsti þrösk- cuar AMA Dablam-tindur er 6.856 metra hár og umlykur Mingbo- dal. Fjallinu er oft líkt við gimstcin í nisti Himalaya-ljalla og sagt að ef Everest sé Ijalladrottning þá sé Ama Dablam prinsessa. Fjallið var lengi talið ókleift og þykir verðugt við- fangsefni fyrir fjallgöngumenn. Fyrstu íslendingarnir komust á tindinn þann 20. október í fyrra. Leiðangursmenn eru allir félagar í björgunarsveitinni Fiskakletti í Hafnarfírði. Þeir sem fóru á tindinn voru Árni Eð- valdsson, Júlíus Gunnarsson, Símon Halldórsson, Valgarður Sæmundsson og Örvar Atli Þorgeirsson. Aðstoðarmenn þeirra á vettvangi voru Pálmi Másson og Sveinn Þór Þorsteinsson. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.