Morgunblaðið - 19.12.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 E 3
<00? \
ABOVE
NETWORKS
TM
OZ.COM™ er framsækió Netfyrirtæki með skrifstofur í Reykjavík, Boston og
Stokkhólmi. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 starfsmenn sem vinna að þróun
samskiptalausna fyrir nýja öld.
Markmið OZ.COM er að auðvelda samskipti fólks með tækni sem brúar bilið
milli Netsins, hefðbundinna símkerfa og farsímakerfa. í júní síðastliðnum
fjárfesti Ericsson ISK 1.000.000.000,- í OZ.COM og hefur fyrsta afurð
samstarfs fyrirtækjanna; iPulse, þegar vakið verðskuldaða athygli. Vegna
aukinna umsvifa óskar OZ.COM eftir að ráða öflugt hugbúnaðarfólk.
Hugbúnaðargerð 1041 (Software Development)
Við leitum að fólki sem hefur:
Háskólamenntun og/eða reynslu af forritun í PC/Windows umhverfi (C++)
Áhuga og getu til að tileinka sér nýjungar
Hæfni til að starfa í hóp
Hæfni til að starfa sjálfstætt
Unnið er að rauntíma samskiptalausnum (WAP, Epoc). Stuðst er við
UML hönnunaraðferðir og forritað í C++
Hugbúnaðargerð 1141 (Software Development)
Við leitum að fólki sem hefur:
Háskólamenntun og/eða reynslu af forritun í PC/Windows umhverfi (C++,
Perl og/eða Oracle)
Áhuga og getu til aö tileinka sér nýjungar
Hæfni til að starfa í hóp
Hæfni til að starfa sjálfstætt
Áhuga á að starfa í Los Angeles
Unnið er að brautryðjandi Internettækni
OZ.COM
OZ.COM býöur uppá skapandi vinnuumhverfi sem sameinar ferskt
andrúmsloft, góða tekjumöguleika, mikla vaxtarmöguleika á alþjóðavettvangi,
og metnað til að ná árangri.
Vinsamlega fylltu út umsókn á íslensku eða ensku á vefsvæðí okkar
www.oz.com/jobs eða sendu upplýsingar um þig í pósti til OZ.COM,
Snorrabraut 54, 105 Reykjavík. merkt "OZ.COM - VINNA" fyrir 31.12 1999.
Viö hlökkum til að heyra frá þér.
Fólkið hjá OZ.COM
ISLANDSSIMI
Borgartún 30
105 Reykjavík
Sími: 595 5000
Fax: 595 5050
info@islandssimi.is
islandssimi.is
4
Ný störf hjá ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki
Rekstur tölvu- og fjarskiptakerfa
Tæknideild Íslandssíma óskar eftir að ráða starfsmann sem hefur
áhuga á að vinna með nýjustu tækni á tölvu- og fjarskiptasviði.
Óskað er eftir rafeindavirkja, tölvuði eða starfsmanni með reynslu
af rekstri tölvuneta.
Verk- eða tæknifræðingur
Tæknideild Íslandssíma óskar eftir að bæta við starfsmanni í
öflugan hóp tæknimanna sem vinnur að uppbyggingu og þróun
á fjarskiptakerfi Íslandssíma. Kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa
áhuga á að vinna með það nýjasta og fullkomnasta í heimi
fjarskiptanna.
Markaðs- og sölustjóri
Íslandssími óskar eftir sölu- og markaðsstjóra dótturfyrirtækis.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu af markaðs- og
sölusviði á sviði nútímaviðskipta. Æskilegt er að viðkomandi hafi
viðskiptamenntun.
Skrifstofustarf
Starfskraftur óskast til almennra skrifstofustarfa svo sem móttöku,
símsvörunnar og daglegs reksturs skrifstofu.
Umsóknarfrestur er til 30. desember. Umsóknir sendist til info@islandssimi.is
eða skriflega til Íslandssíma Borgartúni 30. Nánari upplýsingar hjá Íslandssíma.
A
KOPAVOGSBÆR
Lausar stöður við
leikskóla
Núpur v/ Núpalind, sími: 554-7021.
Leikskólinn Núpur tekur til starfa nú um
aldamót.
Einkunnarorð skólans eru gleði, agi,
nám.
Leikskólakennarar, konur og karlar!
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja
taka þátt í metnaðarfullu uppbygginga-
starfi.
Um er að ræða heilar stöður og hluta-
stöður.
Einnig óskast aðstoðarmaður í eldhús.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Hildur
L. Jónsdóttir
Einnig eru lausar heilar stöður og hluta-
stöður í fleiri leikskólanum í Kópavogi.
Upplýsingar um störfin og kjör leikskóla-
kennara í Kópavogi gefur leikskóla-
fulltrúi, Sesselja Hauksdóttir í síma: 570-
1600.
Bent er á að fáist ekki leikskólakennarar til
stafra verða ráðnir starfsmenn með aðra
uppeldismenntun, eða leiðbeinendur í
stöðurnar.
Starfsmannastjóri