Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 E 7 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Staða yfirlæknis í hjartasjúkdómum Laus er til umsóknar staða yfirlæknis í hjarta- sjúkdómum við lyflækningadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í hjartalækningum og al- mennum lyflækningum. Starfinu fylgir starfskil á lyflækningadeild I og II, vaktaskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsókna- vinnu. Ennfremur hefur yfirlæknirinn ábyrgð á daglegum rekstri rannsóknarstofu í lífeðlis- fræði. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í öllum hefðbundnum störfum hjartasérfræðings, sér- staklega á hjartaómskoðunum ög gangráðs- ísetningum. Einnig skal umsækjandi hafa góða reynslu í almennum lyflækningum. Við ráðn- ingu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahússlækna.Staðan veitist eftir nánara samkomulagi. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt upplýsingum um kennslustörf og ritstörf, auk greinargerðar um væntanleg rannsóknarverkefni. Umsóknir, á þartil gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgjandi gögnum skulu berast í tvíriti, fyrir 1. febrúar 2000, til Þorvaldar Ingv- arssonar, framkvæmdastjóra lækninga FSA, 600 Akureyri. Nánari uppíýsingar gefa dr. Björn Guðbjörnsson, forstöðulæknir lyflækninga- deilda, í síma 460 3100, fax 462 4621, netfang bjorng@fsa.is og Þorvaldur Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri lækninga, netfang thi@fsa.is. Stöður aðstoðar- og deildarlækna Staða aðstoðarlæknis eða deildarlæknis er laus til umsóknar. Staðan ertil lengri eða skemmri tíma og gæti verið hluti af kandídatsári við- komandi eða sérnámi í ákveðnum sérgreinum svo sem heimilislækningum. Boðið er upp á lyflækninga-, handlækninga-, bæklunar-, kvenna-, geð- eða barnadeild. Staðan gæti einnig hentað reyndum lækni sem hefði áhuga á að öðlast frekari reynslu á vissu sviði. Æski- legt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2000 eða sem fyrst eftir það. Frekari upplýsingar veita Alexander Smárason fræðslustjóri og Þorvaldur Ingvarsson fram- kvæmdastjóri lækninga í síma 463 0100. Endurhæfingardeild Staða reynds aðstoðarlæknis (deildarlæknis) er laus til umsóknar. Eftir samkomulagi getur verið um hlutastarf að ræða. Starfsemi endurhæfingardeildar fer fram bæði á FSA og Kristnesspítala þar sem er 16—19 rúma deild fyrir inniliggjandi endurhæfingar- sjúklinga auk sjúkraþjálfunar-og iðjuþjálfunar- deilda. Fyrir liggja hugmyndir og tillögur um framtíðarþróun endurhæfingar á vegum FSA og uppbyggingu þjónustu á þessu sviði við íbúa á upptökusvæði sjúkrahússins. Upplýsingar veita Haukur Þórðarson yfirlæknir í síma 463 1100 og Þorvaldur Ingvarsson fram- kvæmdastjóri lækninga í síma 463 0100. Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns sjúkraþjálfara á Kristnesspítala. Starfiðfelst m.a. í aðstoð við þjálfun og umsjón með þjálf- unaraðstöðu. Upplýsingar um starfið veita Sonja Middelink og Jóhann Ævarsson sjúkraþjálfarar í síma 463 1100. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2000. Umsóknir sendist Lucienne ten Hoeve for - stöðusjúkraþjálfara á eyðublöðum sem fást á skrifstofu. Öllum umsóknum um störfin verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Ný dögun er félagsskapur áhugamanna um sorg og sorgarvid- brögd. Verkefni félagsins er einkum frædslustarf; fyrirlestrar og útgáfa fróttabréfs. Einnig er veitt ráðgjöf, símaþjónusta, námskeidahald og önnur tengsl við syrgjendur. Félagið hefur starfað írúman áratug. Frá áramótum hafa samtökin aðsetur á Mannhæð, Laugavegi 7, Reykjavik. Starfsmaður félaga- samtaka - nýtt starf Óskað er eftir áhugasömun starfsmanni í hlutastarf (40—60%). Menntunar- og hæfniskröfur: — Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun er æskileg en ekki skilyrði. — Reynsla af ráðgjafarvinnu og skilningur á þörfum syrgjenda er æskileg. — Vera sjálfstæður og skipulagður í starfi, hafa hlýja og góða framkomu, eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli. Starfssvið: — Uppbygging á aðsetri samtakanna. — Annast fjárreiður og félagatal félagsins. — Annast símaþjónustu og ráðgjöf. — Umsjón með tölvukerfi og heimasíðu. — Vinna með sjálfboðaliðum. — Ýmis önnur verkefni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vinnutími er samkomulag. Um framtíðarstarf er að ræða. Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins sr. Gylfi Jónsson í síma 895 5550. Enæðslumiðstöð l|/ Reykjavíkur Laus störf í grunn- skólum Reykjavíkur Kennarar Engjaskóli, sími 510 1300 Almenn kennsla í 4. bekk. 2/3 staða, laus strax. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri í símum 899 7845 og 861 3542. Seljaskóli, sími 557 7411 Líffræði á unglingastigi og almenn kennsla í 6. bekk Önnur störf Austurbæjarskóli, sími 561 2680 Skólaritari 50% starf. Safamýrarskóli, sími 568 6262 Stuðningsfulltrúi til að vera með nemendum í bekk frá 1. janúar nk. 50% starf frá kl. 13—17. Upplýsingar veita Erla/Björk í síma 568 6262. Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðar- skólastjórar. Umsóknir ber að senda í skólana. Umsóknum skal skila til okkarfyrir 5. janúar nk. merktar: „Ný dögun" sr. Gylfi Jónsson, Hallgrímskirkja, 101 Reykjavík. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. • Frfldrkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Staða fulltrúa á rekstrardeild Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar er laus til umsóknar. Um er að ræða 75% starf og í því felst að meginhluta innritun barna á leikskóla en einnig geta fallið til síma- varsla og önnur almenn skrifstofustörf. Viðkomandi starfsmaður þarf að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, hafa gott vald á íslensku máli og geta unnið sjálf- stætt. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er þjónustumið- stöð í þágu menntunar í bænum, með sérhæft starfsfólk og þar ríkir jákvæður starfsandi. Þess ber að geta að stofnunin er reyklaus vinnustaður. Launakjör eru samkvæmt samningi við Starfs- mannafélag Hafnarfjarðar. Upplýsingar gefa Ingibjörg Einarsdóttir rekstrarstjóri og Bryndís Garðarsdóttir leikskólafulltrúi í síma 555 2340. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2000. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði VINNUEFTIRLIT RÍKISIN8 Administration of occupatlonal safety and health Bíldshöföa 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík Lögfræðingur Laust er til umsóknar starf lögfræðings hjá Vinnueftirliti ríkisins. Starfið heyrir beint undir forstjóra stofnunarinnar og felst það einkum í eftirfarandi: • Lögfræðilegur undirbúningur reglna og reglu- gerða sem settar eru af stjórn VER skv. lögum nr. 46/1980. • Aðlögun íslenskra reglna og reglugerða á sviði vinnuverndar að ákvæðum EES- samningsins. • Ýmis lögfræðileg úrlausnarefni sem varða framkvæmd eftirlits með aðbúnaði, hollustu- háttum og öryggi á vinnustöðum. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun og/eða reynslu á sviði vinnuréttar og einnig sérmenntun og/eða reynslu á sviði Evrópurétt- ar. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur Sæmundsson forstjóri eða Dagrún Þórðardóttir skrifstofustjóri í síma 550 4600. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir 15. janúar 2000. Gigtarfélag íslands Skrifstofu- starf Gigtarfélag íslands óskar eftir að ráða starfs- mann í 40 til 50% starf á skrifstofu sína. Auk almennra skrifstofustarfa felst starfið í mót- töku sjúklinga hjá læknum. Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum ein- staklingi með hæfni í mannlegum samskiptum og með tölvukunnáttu. Gigtarfélag íslands er reyklaus vinnustaður. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vinsamlega sendið umsókn til félagsins sem tilgreinir aldur, menntun og fyrri störf fyrir 31. desember. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 863 9922. Gigtarfélag íslands, Ármúla 5, IS-108 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.