Morgunblaðið - 23.12.1999, Page 1

Morgunblaðið - 23.12.1999, Page 1
293. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Samningur um aukið samstarf Rúss- lands og Hvíta-Rússlands staðfestur Ahersla á hernaðar- mikilvægi Moskvu. AFP, AP. EFRI deild rússneska þingsins í Moskvu, sambandsráðið, samþykkti í gær með 158 atkvæðum samning sem gerður var við Hvíta-Rússland um aukið samstarf og jaínvel sam- runa ríkjanna. Ráðið er skipað ríkis- stjórum sambandslýðvelda og hér- aða Rússlands. Tveir voru á móti. Samningurinn hafði þegar verið samþykktur í neðri deildinni, dúm- unni og neðri deild hvítrússneska þingsins í höfuðborginni Minsk. Efri deild þingsins í Hvíta-Rúss- landi afgreiddi samninginn einnig í gær og var hann samþykktur sam- hljóða með 54 atkvæðum. Forsetar ríkjanna, Borís Jeltsín í Rússlandi og Alexander Lúkasjénkó í Hvíta- Rússlandi, gerðu samninginn fyrr í mánuðinum. Hinn síðarnefndi, sem vill sam- eina ríkin sem fyrst, hefur þó kvart- að undan því að liðið geti áratugur áður en það gerist en orðalag samn- ingsins er óljóst. Stofnað verður sameiginlegt ráð forsetanna beggja, forsætisráðherra ríkjanna og þing- forseta þeiiTa en ekki er búið að skilgreina valdsvið ráðsins. Lúkasjenkó hefur sýnt mannrétt- indum og lýðræði litla virðingu og stendur því mörgum rússneskum lýðræðissinnum stuggur af honum, einnig er bent á að efnahagslega geti Hvíta-Rússand orðið byrði á Rússum sem standa illa að vígi fyrir í þeim efnum. Rætt er um að gjaldmiðill verði sameiginlegur árið 2005 og byrjað að samræma skatta- kerfi frá 2001. Flestir Hvít-Rússar eru rússneskumælandi, þjóðirnar eru náskyldar og kannanir gefa til kynna almennan stuðning við sam- runa. Sumir stjórnmálaleiðtogar í Moskvu vöruðu við því að rússnesk sambandslýðveldi gætu notað ákvæðin um stöðu Hvíta-Rússlands í væntanlegu sambandi ríkjanna tveggja sem fyrirmynd að kröfum um aukið sjálfræði í eigin málum. Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, ávarpaði sambandsráðið fyrir atkvæðagreiðsluna og mælti með honum. „Með því að sameinast Hvíta-Rússlandi styrkjum við stöðu okkar til framtíðar og eflum hernað- arlega getu okkar,“ sagði hann. Ráðherrann sagði að samningur- inn myndi í engu breyta stöðu rúss- nesku sambandsríkjanna gagnvart miðstjórnarvaldinu í Moskvu og varaði þau við því að reyna að nýta sér hann í því skyni. Miklir skógar- eldar í Kaliforníu Glendale. Reuters. NOKKUR hundruð slökkviliðs- menn reyndu allt hvað þeir gátu til að slökkva skógarelda sem loguðu í San Gabriel-fjöllum norður af borginni Los Angeles í Bandaríkj- unum í gær. Á myndinni má sjá logana teygja sig til himins í hlíð- inni að baki Verdugo Hill sjúkra- hússins sem er í 16 kílómetra fjar- lægð frá miðborg Los Angeles. Ekki er vitað hversu alvarlegt tjón á mannvirkjum hefur orðið vegna eldanna en talið er fullvíst að fólk hafi ekki hlotið skaða af þeirra völdum. Tveimur hraðbraut- um í nágrenninu hefur verið lokað. Hermt er að hvass vindur auki útbreiðsluhraða eldanna og eru logarnir sagðir tugir metra á hæð. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá bilun í spennistöð. Um hádegi í gær höfðu eldarnir náð að eyða um 200 hekturum lands og stafaði um 500 heimilum ógn af útbreiðslu þeirra. Slökkvi- liðsmenn dældu vatni umhverfis hús sem stóðu nálægt eldinum í þeirri von að geta komið í veg fyrir að þau yrðu honum að bráð. Á tímabili var eldurinn aðeins í nokk- urra hundraða metra fjarlægð frá sumum húsanna. Breiðþota hrapar við Stansted London. Reuters. FLUTNINGAÞOTA af gerð- inni Boeing 747 hrapaði tveim mínútum eftir flugtak frá Stan- sted-flugvelli, norðan við Lon- don, í gær og fórust með henni fjórir menn. Ekki var vitað hvað olli slysinu. Þotan var frá flugfélaginu Korean Airlines og á leið til Mílanó. Hún skall niður á óbyggðu svæði um 25 mínútum fyrir sjö og varð mikil spreng- ing í flakinu. Farmurinn var sprengiefni, að sögn Sky- stöðvarinnar. Venesúela Fórnar- lömb jarð- sett La Guaria, Caracas. AP, Reuters. RÁÐAMENN kirkjugarða í Venes- úela hvöttu í gær erlendar þjóðir til að gefa landsmönnum líkkistur sem skortur er á eftir aurskriðurnar og flóðin í liðinni viku. Líklegt þykir nú að aldrei verði unnt að slá föstu hve margir fórust, nefndar eru tölur frá 5.000 til 30.000. Um 1.500 lík hafa fundist en vitað að fjölmargir grófust undir leðjunni sem sópaði á brott bæjum og borgar- hverfum. Stjórnvöld hafa þegar lýst heil hverfi „minningarreiti". Skrið- urnar komu úr hlíðum fjalla sem eru á milli höfuðborgarinnar Caracas og Karíbahafsins. Áherslan er nú lögð á að finna lík, koma í veg fyrir gripdeildir og fá þá sem komust af til að yfírgefa svæðið. Margir voru tregir til þess og sögð- ust efast um að fleiri skriður færu af stað. „Þetta gerist einu sinni á 50 ára fresti,“ sagði einn þeirra, Juan Car- los Yepes, í borginni La Guaira. Búið var að flytja um 68.000 manns á brott í gær með þyrlum og skipum. Flóttamenn hraktir á brott? FLÓTTAFÓLK frá Tsjetsjníu fékk í gær heita súpu í búðum við bæinn Sleptovskaja í Ingúsetíu, við landa- mærin að Tsjetsjníu, gær. Stjórn- endur búðanna hafa hins vegar hætt að láta fólk frá svæðum sem Rússar ráða nú í uppreisnarhéraðinu fá mat. Mun markmiðið vera að þvinga flóttamennina til að snúa aftur heim, að sögn Peters Bouckaerts, tals- manns mamiréttindasamtakanna Human Rights Watch sem AFP- fréttastofan vitnaði í. Hann sagði að í liðinni viku hefði járnbrautarlest með 37 vögnum, fullum af flóttafólki, verið send til Sernovodsk í Tsjetsjníu. Fólkið fengi að velja á milli þess annars vegar að fara aftur á átakasvæðið, þar sem oft væri búið að ræna heimili þess eða þau væru í rúst eftir sprengju- árásir, eða veslast upp matarlaust í landamærabænum. Boucaerts sagði ennfremur að rússnesk stjómvöld stugguðu við fréttamönnum í Slept- ovskaja og þeir fengju ekki að fara yfir landamærin til Tsjetsjníu. Vamarmálaráðuneytið í Moskvu sagði í gær að hafin yrði rannsókn á því hvort rússneskir hermenn hefðu myrt tugi óbreyttra borgara í þorpi skammt frá Grosní í byrjun mánað- arins. Talsmaður ráðuneytisins bætti því við að ekki væri útilokað að Tsjetsjenar í rússneskum ein- kennisbúningum hefðu verið að verki. Misvísandi fregnir bámst af bar- dögum í uppreisnarhéraðinu í gær en allt benti til að Rússar væm að reyna að loka tveim aðdráttarleið- um vopnaðra sveita Tsjetsjena um fjallaskörð í suðurhluta héraðsins. Rússneski herinn hélt einnig uppi liörðum stórskotaliðs- og flug- skeytaárásum á Grosní, að sögn AP. Rússar sögðu að enn væru um 4.000 Tsjetsjenar undir vopnum í borginni og hefur þeim tekist að hindra frek- ari framsókn rússneska hersins inn í borgina. MORGUNBLAÐIÐ 23. DESEMBER 1999

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.