Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jólin nálgast óðfluga og fólk ýmist í önnum eða rólegheitum
Morgunblaðið/Þorkell
Hilmar Mýrkjartansson hafði í nógu að snúast við pakkaafgreiðslu.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrdn Örk Guðmundsdóttir vinnur í Þjóðarbókhlöðunni.
N okkur
þúsund
pakkar
á viku
Þegar nær dregur jólum
aukast annir í mörgum
starfsgreinum en sums
staðar fellur hins vegar
allt í ró. Blaðamaður og
ljósmyndari brugðu
undir sig betri fætinum í
gær og könnuðu jóla-
stemmninguna í höfuð-
borginni.
AÐFANGADAGUR er á
morgun og undirbúning-
ur júlanna setur sterkan
, svip á mannlífíð. Jólagjaf-
ir og góður matur eru í huga flestra
ríkur þáttur í jólahaldinu. Því mæð-
ir gjaman mikið á þeim sem starfa
við ýmiss konar verslun og þjón-
ustu þegar hátíðimar nálgast. Á
sumum vinnustöðum hægist hins
vegar um þegar nær dregur jólum
Breytt út af
hefðinni
Nóg var um að vera við kjötborð-
ið í Nýkaup í Kringlunni. Flestir
em afar vanafastir þegar kemur að
þvíað velja jólastcikina. Svanhildur
Pálmadóttir ákvað hins vegar að
bregða út af vananum í ár. Hefð er
fyrir því að borða gæs á hennar
heimili á aðfangadag en nú varð
nautalund fyrir valinu. Svanhildur
sagðist vera búin að kaupa alla jóla-
pakkana, kaupin á jólasteikinni
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
Það var eyðilegt um að litast í Þjóðarbókhlöðunni f gær.
væm líklega eitt síðasta verkið fyr-
ir jólin.
Annir í
pakkaafgreiðslu
Það er ekki nóg að kaupa jóla-
gjaflmar, þeim þarf fíka að koma
til réttra viðtakenda. Hilmar
Mýrlgartansson, sem vinnur í
pakkaafgreiðslu Umferðar-
miðstöðvarinnar, sagði að þar væri
mikið að gera fyrir jólin.
Á þriðja tug starfsmanna tryggir
að jólapakkarnir komist til skila.
Hilmar áætlaði að fímm til sex
hundmð pakkar fæm nú um hend-
ur þeirra dag hvem, nokkur þús-
und á viku rétt fyrir jólin. Hann
segir góðan anda ríkja á vinnu-
staðnum fyrir jólin þrátt fyrir ann-
ríkið.
Sala á eymatöppum
datt niður
Jólaprófum í Háskóla íslands
lauk í fyrradag. Meðan á próflestri
nemenda stendur er ys og þys í
Þjóðarbókhlöðunni og starfsmeim
fara ekki varhluta af spennunni í
andrúmsloftinu, að sögn Guðrúnar
Arkar Guðmundsdóttur, sem starf-
ar í fatagæslu og sölubúð í anddyri
Þjóðarbókhlöðunnar. Hún sagði að
í gær hefði heldur betur hægst um.
Á próftímabilinu er sala eyrna-
tappa og ritfanga snar þáttur í
starfi Guðrúnar en hún segir söluna
hafa dregist snarlega saman í gær,
ólíkt annarri verslun um jólin.
Utanríkisráðuneytíð
beinir tílmælum til
Flugleiða
Réttheiti
Keflavíkur-
flugvallar
verðinotað
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur
beint þeim tUmælum tíl Flugleiða að
flugfélagið noti hið rétta heiti Kefla-
víkurflugvaUar á ensku, Keflavik
Intemational Airport, í lqölfar óska
Markaðs- og atvinnuráð Reykjanes-
bæjar þess efnis. Er þetta gert í
bréfi sem sent var Flugleiðum 15.
desember síðastliðinn.
Markaðs- og atvinnuráð Reykja-
nesbæjar hafði fyrr í mánuðinum
krafist þess við samgönguráðuneytið
að það beitti sér fyrir því að nafn-
breyting Flugleiða á „Keflavik Int-
emational Airport" í „Reykjavik Int-
ernational Airport" yrði afturkölluð.
Krafðist ráðið þess ennfremur að
Flugleiðum yrði gerð grein fyrir því
hvert nafn flugvallarins væri og að
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu
Reykjanesbæjar yrði skýrt frá nið-
urstöðunni.
Fram kemur í bréfi vamarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins til
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu
Reykjanesbæjar, sem sent var 20.
desember síðastliðinn, að ráðuneytið
hafi móttekið bréf skrifstofunnar og
er upplýst að ráðuneytið hafi með
bréfi, dagsettu 15. desember, beint
þessum tilmælum til Flugleiða, að
félagið notaði hið rétta heiti flugvall-
arins á ensku, Keflavik Intemational
Airport.
---------------
Orkuveita
Reykjavíkur
stefnir að sölu
á raforku til
ÍSAL
ORKUVEITA Reykjavíkur og ÍSAL
hafa undirritað viljayfirlýsingu um
kaup ÍSALS á hluta þeirrar raforku
sem fæst við stækkun Nesjavalla-
virkjunar. Framkvæmdir við stækk-
un virkjunarinnar úr 60 megavöttum í
76 megavött hefjast á næsta ári og ár-
ið 2001 verður byijað að nota þá við-
bótarorku sem framleidd verður.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjómar Orkuveitu Reylqavíkur, seg-
ir að viljayfirlýsing þessi sé undirrit-
uð með fyrirvara um samþykki
stjómar veitustofnana og stjómar ÍS-
AL og að hún sé gerð í samráði við
Landsvirkjun. Alfreð segir að þetta
yrði í fyrsta sinn sem annað fyrirtæki
en Landsvirkjun gerði samning um
orkusölu til stóriðjufyrirtækis á ís-
landi. Þetta komi til vegna þess að
Landsviriqun hafi ekki næga orku til
að uppfylla þörf ÍSAL.
Alfreð segir að af þeim 16 mega-
vöttum af raforku sem verði til við
fyrsta áfanga stækkunar Nesjavalla-
virkjunar muni tíu fara til ÍSAL en
hin sex muni Orkuveita Reykjavíkur
nýta fyrir hinn almenna raforkumar-
kað, en raforkunotkun hafi vaxið um-
talsvert meira en spár gerðu ráð fyrir.
Kærunefnd jafnréttismála um ráðningu framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits
Ráðning brýtur ekki í
bága við jafnréttislög
KÆRUNEFND jafnréttismála tel-
ur að ákvörðun heilbrigðisnefndar
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
um ráðningu framkvæmdastjóra
heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis í desember 1998
brjóti ekki í bága við jafnréttislög.
Kærandinn, kona sem einnig sótti
um starfið, taldi hins vegar að hún
væri mun hæfari til að gegna um-
ræddu starfi en sá, karlmaður, sem
starfið hlaut. Hún hefði mun meiri
menntun sem nýttist til starfsins.
Starfsreynsla hennar væri að vísu
ekki jafnlöng hans en nýttist á hinn
bóginn vel í starfið.
Jafnréttisnefnd fékk málið inn á
borð til sín um mánaðamótin mars-
apríl sl. en í nýlegu áliti hennar kem-
ur m.a. fram að heilbrigðisnefndin
hafi leitað aðstoðar sérfræðiaðila við
mat á því hvor teldist hæfari til
starfsins, kærandi eða sá sem til
starfsins var ráðinn. Kemst nefndin
að því að niðurstaða sérfræðiaðilans
geti með engu móti talist fela í sér
vísbendingu um sérstaka hæfileika
þess sem ráðinn var umfram kær-
anda, þannig að nægi sem rök til
ráðningarinnar. „Til hins er [þó] að
líta, að kringumstæður við ráðning-
una voru mjög sérstæðar. Löggjaf-
inn hafði steypt saman tveimur mjög
ámóta stórum heilbrigðiseftirlitum -
heilbrigðiseftirliti Kópavogs annars
vegar og heilbrigðiseftirliti Hafnar-
fjarðar, Garðabæjar og Bessa-
staðahrepps hins vegar - og gert úr
þeim eitt embætti. Sú ákvörðun var
því ekki tekin af heilbrigðisnefndun-
um. Heilbrigðisnefndimar voru sam-
mála um að auglýsa ekki eftir nýjum
framkvæmdastjóra. Fyrir hvoru
embætti var framkvæmdastjóri,
[kærandi annars vegar og sá sem
hlaut starfið hins vegar]sem ekki
verður annað séð en hafi gegnt starfi
sínu með sóma og án nokkurra ávirð-
inga. Annar hlaut hins vegar að víkja
vegna sameiningarinnar. Það verður
að teljast málefnalegt sjónarmið við
val á því hvor víkja skuli, að láta
starfsfaldur í starfinu ráða. Á það
sérstaklega við hér, að svo verulegur
munur var á starfsaldri fram-
kvæmdastjóranna. Því verður ekki
talið að ákvörðun heilbrigðisnefndar
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
um ráðningu framkvæmdastjóra fari
í bága við jafnréttislög.“