Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
++ ++
Svona hr. Bondevik, rektu nú gæsimar út á guð og gaddinn með venlig hilsen fra Norge.
rGMu/vÍD-
í rósavið
heimihsins
>>/°9 filóð
. • Myndlampi
• Nicam Sterao
‘ • Allar aðgerðir á skjá
- • 3 Skart tengi / '? V
' • Super UHS tengi i
• Fjarstýring • Fast text
^............
AEG
Uppþyottavél
I Faiorft 6280 U-W
-• Tekur 12 manna stell
• 6 þvottakerfi
• 4 hitastig
• Aqua Control
• Sexfalt vatnsöryggiskerfi
©3 ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
www.ormsson.is
I Vésturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Ve«tflrðln
I Gelrseyrartsúöin, Patreksfiröi. Pokahomiö, Tálknafirði. Straumur, Isafiröi. Rafverk, Bolungarvtk. Noröuiiand: Kf. Steingrímsfjaröai; Hólmavik. Kf. V-Hún.,
ja, Sportmyndir, Blönduósi. Skagfiröingabúö, Sauöárkróki. Elektro co. ehf., Dalvfk. Radionaust, Akureyri. Nýja Filmuhúsið, Akureyri. öryggi, Húsavík. Urö,
>nafiröinga, Vopnafiröi. Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Stööfiröinga. Kf. Fáskrúösfirðinga, Fáskrúðsfiröi. KASK Djúpavi
UMBODSMENN
IHvammstanga. Kf. Húnvetninga, S,----,—_______________________.----------------------- ----------- .
Raufarhöfn. Áusturland: Vopnafiröinga, Vopnafirði. Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Stööfiröinga. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK Djupavogi.
KASK, Höfn, Suðuriand: Klakkur, Vik. Mosfel, Hellu. Árvirkinn, Setfossi. Rás, Þoriákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Foto, Vestmannaeyjum. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: gósbogin
Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Mikið annríki hjá hárgreiðslustofum
Glæsileiki
ríkjandi
Elsa Haraldsdóttir
UM ÞESSAR
mundir er mikið
annríki hjá hár-
greiðslustofum landsins,
mikið stendur til, mikið
er “spáð og spekúlerað“
hvernig fólk á að líta út
þegar það heilsar nýju ár-
þúsundi. Elsa Haralds-
dóttir rekur hárgreiðslu-
stofuna Salon Veh, en
hún hefur verið mjög
áberandi í sínu fagi und-
anfama áratugi. En
hvernig virðist henni fólk
helst vilja líta út við þessi
umtöluðu tímamót?
„Fólk hefur aldrei lagt
eins mikið upp úr útliti og
um þessi jól og áramót.
Það eru allir klipptir og
greiddir og ef tala á um
einhverjar sérstakar
greiðslur er greiðsla fólks
dálítið ýktari en hún hef-
ur verið áður. Sem dæmi
má nefna að fólk vill hafa
hárið hærra, stærra, meiri krull-
ur og loftmeira. Glæsileiki er
ríkjandi.“
- Er túberingin þá vinsæl
núna?
„Túberingin er bara ein teg-
und af tækni sem er nauðsynlegt
að hafa með í greiðsluferlinu
hvort sem hún er sjáanleg eða
ekki. Oft er hárið t.d. túberað til
þess að losa það í sundur.“
-Er mikið pantað hjá ykkur
um jól og áramót?
„Já, aldrei meira og langir
vinnudagar fara í hönd. Við vinn-
um ekki langan vinnudag á Þor-
láksmessu og ég vinn aldrei á
aðfangadag. En þess í stað
leggjum við meira upp úr vik-
unni milli jóla og nýárs. Við
vinnum t.d. á nýársdag og gam-
lársdag, ekki allar, en flestar
stofur hafa opið á þessum dög-
um núna og bjóða þá jafnvel upp
á snyrtingu, við gerum það,
bjóðum upp á pakka. Það hefur
veriðmjög mikið pantað. Mest
eru það konur sem hafa pantað
en þær fá andlitssnyrtingu og
hárgreiðslu, margar vilja hafa
uppsett hár á hátíðunum. Mikið
er einnig um alls konar hár-
skraut í hári, spennur sem glittir
í.“
- Er mikið tillit tekið til kjóla
þegar valin er hárgreiðsla?
„Það verður að fara saman
hárgreiðsla, kjóll og hárskraut.
Skrautið í dag er bleikt, blátt,
silfrað og gyllt. í stutt hár eru
settar litlar spennur með stein-
um og mér finnst smart að hafa
þær margar. í sítt hár notar
maður meira hárbönd sem eru
vafin inn í hárið svo aðeins glitt-
ir í þau, líka er glimmer vinsælt
hjá yngra fólki. Silfur er yfir
höfuð vinsælt núna bæði í snyrt-
ingu og í hári, ýmist sem úði eða
þá sem glimmer.“
-Er venjulegt að hafa svona
mikið opið um jól og áramót?
„Persónulega er ég ekki
hlynnt þessu en segja má að í
þetta skipti þurfi að
taka tilllit til að-
stæðna. Svona tíma-
mót koma ekki aftur í
bráð. Ég var í París
um síðustu mánaða-
mót að leggja línurnar í hár-
greiðslu sumarsins og sá þá hvað
Parísarbúar leggja mikla áherslu
á áramótin - það að ný öld geng-
ur í garð og nýtt árþúsund. Það
hreif mig hvað þeir skreyttu alls
staðar mikið í anda aldamótanna
en ekki jólanna að þessu sinni.
Það er alltaf mjög gaman að
geta gert sér dagamun af góðu
tilefni. Á minni stofu höldum við
► Elsa Haraldsdóttir fæddist á
fsailrði 1948. Hún lauk hár-
greiðsluprófi 1969 frá Iðnskólan-
um í Reykjavík og fór þá til Vín-
arborgar til náms og var þar til
1971 er hún fékk meistarabréf.
Hún opnaði fyrstu hárgreiðslu-
stofuna í Glæsibæ og hefur síðan
rekið hárgreiðslustofur bæði á
Laugavegi og í Húsi verslunar-
innar. Hún hefur unnið til fjölda
verðlauna í sínu fagi og síðustu
árin hefur hún einnig sinnt fé-
lagsmálum fyrir erlend fagfélög.
Elsa býr með syni sínum Jóhanni
Tómasi Sigurðssyni.
alla vikuna á milli jóla og nýárs
hátíðlega með því að bjóða við-
skiptavinum okkar upp á freyði-
vín og hátíðarbrag. Auðvitað
fylgir létt og gott skap með.“
-Þú ert búin að vera lengi í
þessu fagi, hefur þú ekki orðið
vitni að miklum breytingum?
„Ég verð að segja að ég hélt
að þær yrðu meiri, ég hef unnið
mikið með erlendu starfsfólki og
við höfum alltaf beðið eftir
breytingunni stóru, en hún hefur
ekki komið. Með starfi mínu er-
lendis hef ég haft það markmið
að reyna að segja fyrir um hvað
væri að koma í hártísku og satt
að segja finnst mér furðu lítið
hafa breyst í sjálfri hárgreiðslu-
tækninni á þeim nær þrjátíu ár-
um sem ég hef verið í hár-
greiðslu. Mesta þróunin hefur
orðið í efnum og háralitunum en
sjálf tæknin við að greiða er sú
sama og maður kenndi fyrir
þrjátíu áram.“
- Hefur þú kennt mörgum
hárgreiðslu á þínum ferli?
„Já, mér telst til að ég sé búin
að hafa 78 nema á þessum nær
þrjátíu ára ferli. Til gamans má
segja að af þessum hópi eru 57 í
starfi, sem er ansi gott hlutfall.
Það hefur alltaf verið metnaðar-
mál hjá mér að nemamir mínir
fái þá kennslu að þeir geti eftir
nám og starfsþjálfun
hjá mér verið hæfir til
að vinna hvar sem er í
heiminum. Ég hef
miðað mína kennslu
við erlenda menntun
- Þú nefndir áður hárgreiðslu
sumarsins - hvernig verður hún?
„Línurnar koma í janúar og ég
get ekki sagt lesendum Morgun-
blaðsins frá hvað er framundan
fyrr en þá, þótt ég viti hvernig
þær línur verða. Eitt get ég þó
sagt; það eru nýir straumar í
hreyfanleika hársins og áfram er
áherslan á háralitun."
Breytingin
stóra hefur
ekki orðið
líka.“