Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 15

Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Starfsmenn tónlistarskóla Garðabæjar bera einróma yfírlýsingu sína í öll hús í bænum Garðabær Gagnrýni á ráðn- ingu skólastj óra STARFSMENN Tónlistarskóla Garðabæjar standa allir að yfirlýs- ingu þar sem mótmælt er vinnu- brögðum bæjarstjórnar við ráðn- ingu Agnesar Löve í starf skólastjóra frá áramótum. Skólanefnd tónlistarskólans hafði mælt með ráðningu Smára Ólason- ar yflrkennara, og 25 af 36 kennur- um skólans höfðu skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Smára. Við atkvæðagreiðslu í bæjar- stjórn hlaut Agnes öll atkvæði. Starfsmenn hafa undirritað yfir- lýsingu þar sem vinnubrögð bæjar- stjórnar eru fordæmd. Stefnt er að því að bera þessa yfirlýsingu út í öll hús í Garðabæ. Stórlega misboðið „Okkur er stórlega misboðið við framkomu bæjarstjórnarinnar," segir Ólafur Elíasson, kennari við Tónlistarskóla Garðabæjar. „Þessi kosning er á skjön við eðlilega stjórnsýslu. Fagleg nefnd, sem er skólanefnd, á samkvæmt reglugerð að mæla með umsækjendum sem bæjarráð á að velja úr. Skólanefnd komst að þeirri niðurstöðu að Smári Ólason væri hæfastur og mælti með honum einum. Kosningin í bæjar- stjórn virðist hafa farið fram á rúss- neska vísu án umræðu. Við kennar- ar teljum það ekki ósanngjarna kröfu á hendur bæjarstjórnar að okkur sé valinn yfirmaður sam- kvæmt faglegu mati,“ sagði Ólafur. Hann sagði að yfirlýsingu starfs- mannanna væri ekki beint gegn Agnesi; „heldur erum við fyrst og fremst að mótmæla þessari hroka- fullu misbeitingu valds bæjar- stjórnar, sem á lágkúrulegan hátt nær sér niðri á yfirkennaranum með þessum hætti.“ Ólafur sagðist þarna vísa til þess að Smári hefði löngum talað fyrir hugmyndum kennaraliðsins um málefni og rekstur skólans í sam- skiptum við bæjarstjórn og ætti hann mikinn þátt í þeim góða starfsanda sem væri í skólanum. Ólafur lagði áherslu á að við skól- ann væri vel menntað kennaralið sem hefði staðið fyrir öflugu starfi; skólinn hefði t.d. á að skipa úrvals- strengjasveit og blásarasveit og öfl- ugri söngvaradeild. Nemendur fluttu óperu fyrir tveimur árum og hafa spilað inn á geisladisk. Starfsmenn hafa haldið fund um málið og þar var yfirlýsing þeirra samþykkt. Ólafur segir hana verða borna út í hvert hús í Garðabæ. „Það segir talsvert um hug okkar í þessu máli að hver og einn einasti starfsmaður skrifaði undir,“ segir hann. Mikil reiði Hann segir að bæjarstjórnin hafi einnig hunsað alla þá vinnu sem skólanefnd Tónlistarskólans lagði í að fara yfir umsóknir og ræða við umsækjendur áður en mælt var með ráðningu Smára. Ólafur sagði að mikil reiði væri meðal kennara skólans vegna máls- ins og þeir væru slegnir. „Þegar við fengum að heyra þetta á föstudag- inn var andrúmsloftið eins og ein- hver hefði dáið í skólanum," sagði Ólafur. Skólanefnd lagði til að Smári yrði ráðinn til fimm ára en starfsnefnd, sem skipuð var, mælti með við bæj- arráð að bæjarstjórn veldi milli Smára, Agnesar og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, kennara við skólann. Við skriflega, leynilega kosningu á bæjarstjómarfundi síðastliðinn fimmtudag hlaut Agnes Löve, sem er þekktur píanóleikari og fyrrver- andi skólastjóri Tónlistarskóla Rangárvallasýslu, öll greidd at- kvæði og samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að ganga frá ráðn- ingarsamningi hennar. Umsækjendur um stöðuna voru 10. Ráðgert er að Agnes taki um áramót við starfi skólastjóra af Gísla Magnússyni, píanóleikara, sem lætur af störfum vegna aldurs. Gísli hefur verið skólastjóri síðan 1985 og starfað við skólann í um 30 ár. Morgunblaðið/Golli Foreldrar barna í 3-U í Smáraskóla hafa sent bæjaryfirvöldum í Kópa- vogi erindi, þar sem farið er fram á það að leiðin frá Hrísey, sem er hús- ið í bakgrunni myndarinnar, og að íþróttahúsinu verði lýst. Þóra Björg Ragnarsdóttir, er nemandi í 3-U. Foreldrar barna í Smáraskóla senda bæjaryfírvöldum bréf Vilja lýsa skólaleiðina Kópavogur FORELDRAR bama í 3-U í Smára- skóla hafa sent bæjaryfirvöldum í Kópavogi bréf, þar sem farið er fram á það að gönguleiðin frá vest- asta húsi skólans og að íþróttahús- inu í Smáranum verði lýst. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Sigríði Karlsdóttur bekkjar- fulltrúa. „I dimmasta skammdeginu er mikið óöryggi fólgið í því að hafa leiðina að húsinu óupplýsta," sagði Sigríður. „Þegar vont er veður eru bömin einfaldlega í hættu, því þarna er heldur engin gangstétt. Ég veit til þess að í fyrra, þegar mikill bylur var úti, lagði aðstoðarskólastjórinn bflnum sínum við aðkomuna að hús- inu til að lýsa leiðina fyrir bömin.“ Umrætt hús kallast Hrísey og er vestasta hús Smáraskólans og mun eldra en sjálf skólabyggingin. Þór- hildur Þorbergsd(ít1ir, kennari 3-U, tók undir orð Sigríðar og sagði að búið væri að biðja um lýsingu þama margoft. Hún sagði að þar sem hús- ið væri vestan megin við Kópavogs- völlinn hefði húsvörður skólans beð- ið forstöðumann iþróttasvæðisins um að kveikja á ljósum við völlinn á morgnana til að lýsa upp svæðið. Hún sagði að það væri nú gert, en samt væri lýsingin ekki nægilega góð. Brýnt að bæta úr ástandinu sem fyrst „Það er ekkert að því að vera í þessu húsi, svo Iengi sem skólaleiðin verður lýst,“ sagði Sigríður beklq'ar- fulltrúi. „Þar sem bömum í skólan- um fer ekki fækkandi skilst mér að þetta hús verði áfram notað sem skólastofa næstu ár og því brýnt að bæta úr ástandinu sem fyrst.“ Sigríður sagðist hafa sent bréfíð til þriggja aðila, þ.e. til fræðslust- jóra Kópavogsbæjar, bæjarstjóra og tæknideildar. Bréfin voru send um miðjan mánuðinn og sagðist hún ekki hafa fengið nein viðbrögð við þeim. Málið var tekið fyrir á bæjar- ráðsfundi Kópavogsbæjar 16. des- ember og þar var því vfsað til um- sagnar fræðslustjóra. Kristinn Kristjánsson fræðslusljóri sagði í samtali við Morgunblaðið að næsta skref væri að hafa samband við tæknideild og fara ofan í þcssi mál með henni. Hann sagðist búast við því að það yrði annaðhvort gert á morgun eða á milli jóla og nýárs. 0,24 WISI 0,21 WISl Safír, demantar, 14 kt. hvítagull Verð ó setti ó mynd kr. 96.000 Fallegir demantsskartgripir með safír og demöntum Komið og sjóið okkar frábæra úrval Laugavegi 49 4 Símar 551 7742,561 7740 ♦ Fax 561 7742 “í heild eru sögumar auðlesnar og skemmtilegar ... og framvindan létt og leikandi. Hér er engin tilgerð á ferð...” “... frásögnin liðast áfram eins og mjúklína ...” Sögur Páls eru gar, hugljúfar og vel skrifaðar og einkennast af sannri frásagnargleði.” Steinunn Inga Óttarsdóttir, DV “.. .mun margur hafa gaman af að lesa þessar sögur Páls ... em opnar og nálægar.” Erlendur Jónsson, Mbl. “...alveg stórskemmtilegar sögur, það er það sem þær eru fyrst og fremst: Skemmtilegar!” Þóra Arnórsdóttir, Rás 2 VERK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.