Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Fjárhagsáætlun ársins 2000 afgreidd í bæjarstjórn Akureyrar Skuldir bæjarsjóðs aukast um tæpar 200 milljónir FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrar- bæjar fyrú- árið 2000 var samþykkt að lokinni síðari umræðu í bæjar- stjórn sl. þriðjudag, með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Akur- eyrarlista. Fulltrúar Framsóknar- flokks og L-lista sátu hjá og þá voru allar breytingatillögur minnihluta- flokkanna felldar. Heildartekjur bæjarsjóðs á næsta ári verða 4.232 milljónir króna, þar af eru skatttekj- ur áætlaðar 2.457 milljónir króna og tekjur málaflokka 1.775 milljónir króna. Við umræður í bæjarstjórn sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri að framundan væru viðamikil verk- Vinnuslys í Skessugili VINNUSLYS varð í nýbygg- ingu í Skessugili á Akureyri skömmu fyrir hádegi í gær. Maður sem var við vinnu sína féll niður af þaki, eina 6 metra og lenti í snjó, jarðvegi og spýtnarusli. Maðurinn var fluttur á slysadeild FSA en að sögn lögreglu er talið að hann hafi sloppið nokkuð vel. efni sem framsækið bæjarfélag kæmist ekki hjá að framkvæma. I því sambandi nefndi hann úrbætur í mál- efnum grunnskólanna, skipulags- og umhverfismál, leikskólamál, íþrótta- og æskulýðsmál og menningarmál. „Mörgum þessara verkefna er sveit- arfélögum lögum samkvæmt gert að sinna, önnur snúa að þeirri þróun sem íbúamir óska hvað mest eftir að sveitarfélög veiti. Hagstætt árferði, eins og verið hefur hér á landi síðustu 4-5 árin, dregur ekki úr væntingum íbúanna á hendur sveitarfélaginu um aukna þjónustu nema síður sé.“ Áætluð lántaka lækkar um 155 milljónir Kristján Þór sagði fjárhagslegt svigrúm bæjarsjóðs Akureyrar vera um 350-400 milljónir króna á ári og yrði að meta þessa stærð í því Ijósi að ætíð yrðu mörg brýn og fjárfrek verkefni að bíða úrlausnar. Sam- kvæmt fjárhagsyfirliti bæjarsjóðs næsta ár er gert ráð fyrir að Fram- kvæmdasjóður leggi til bæjarsjóðs um 155 milljónir króna vegna ýmissa verkefna sem brýnt er að komi til framkvæmda að sögn bæjarstjóra og hefur þetta í för með sér að áætluð lántaka bæjarsjóðs frá fyrra frum- varpi lækkar úr 300 milljónum króna í 145 milljónir. Samkvæmt ársreikningi bæjar- sjóðs fyrir árið 1998 eru nettó pen- ingalegar skuldir bæjarsjóðs, án líf- eyrisskuldbindinga, um 280 milljónir króna, eða um 19 þúsund krónur á hvern íbúa. Kristján Þór sagði að endurskoðuð áætlun ársins 1999 gerði ráð fyrir að þessar tölur yrðu um 46 þúsund krónur á hvern íbúa í árslok þessa árs og nettóskuldir tæp- ar 700 milljónir króna. Skuldir á íbúa um 60 þúsund krónur í árslok 2000 „Sú fjárhagsáætlun sem hér liggur fyrir gerir ráð f'yrir að nettó skuldir bæjarsjóðs aukist og verði orðnar 892 milljónir króna eða um 59 þúsund krónur á íbúa í árslok 2000. Hér er vissulega um nokkra aukningu skulda að ræða, svo sem gert var ráð fyrir í málefnasamningi Sjálfstæðis- flokks og Akureyrarlista í tengslum við markmið um auknar fram- kvæmdir og bætta þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Þrátt fyrir nokkra aukningu skulda er fjárhagsstaða Akureyrarbæjar áfram mjög sterk og langt innan þeirra marka sem tal- að er um sem skuldaþol sveitarfé- laga,“ sagði Kristján Þór. Til gjaldfærðra fjárfestinga er ráð- gert að verja alls 403,5 milljónum króna brúttó, eða 224,5 milljónir króna að teknu tilliti til 128 milljóna króna tekna. Til eignfærðra fjárfest- inga verður varið 424,5 milljónum króna. Alls fara 118 milljónir króna í félagsmál og þar af 90 milljónir króna í byggingu nýs 630 fermetra leik- Afgreiðslutfmi banka, sparisjóða og dótturfélaga dagana 24., 30. og 31. desember og 3. janúar nk. Lokað á aðfangadag Vegna ákvæða í kjarasamningi bankamanna verða afgreiðslustaðir banka og sparisjóða íramvegis lokaðir á aðfangadegi. Aldahvörf Bankar og sparisjóðir hafa lagt mikið á sig til að tryggja að tölvukerfi þeirra starfi með óbreytmm hætti þegar árið 2000 gengur í garð. Þrátt fyrir að prófanir bendi til þess að ekkert fari úrskeiðis telja bankar og sparisjóðir nauðsynlegt að sýna varúð til að tryggja hagsmuni viðskiptavina sinna. Afgreiðslustaðir banka og sparisjóða verða því lokaðir 31. desember 1999 og 3. janúar 2000. í staðinn verða þeir opnir til kl. 18:00 30. desember 1999. Einnig verða eignarleigufyrirtæki, greiðslukortafyrirtæki og verðbréfafyrirtæki lokuð þessa daga. Þá hefur verið ákveðið að loka netbönkum (heimabönkum) og fyrirtækjatengingum frá kl. 23:30 31. desember 1999 til kl. 12:00 1. janúar 2000. Hægt verður að nota hraðbanka, debetkort og kreditkort eins og vanalega. skóla, sem áætlað er að taka í notkun í lok næsta árs. Til fræðslumála er varið 120 milljónum króna, þar af 56 milljónum til að ljúka nýbyggingu Lundarskóla, ásamt breytingum á eldra húsnæði og fleira. 60 milljónir í Amtsbókasafnið Til menningarmála verður varið 97 milljónum króna og þar af fara 60 milljónir króna í viðbyggingu Amts- bókasafnsins en þar er gert ráð fyrir verklokum árið 2002. Alls fara 113 milljónir króna til íþrótta- og tómst- undamála. Þar af verður 38 milljón- um króna varið til framkvæmda við nýbyggingu Sundlaugar Akureyrar, 30 milljónum til byggingar skauta- hallarinnar og samningsbundið framlag til Vetraríþróttamiðstöðvar íslands hljóðar upp á 30 milljónir króna. Til gatnaframkvæmda verður var- ið 130 miUjónum króna, 50 mUljónum til fráveituframkvæmda og 25 millj- ónum til upphafs framkvæmda í mið- bænum. Til heilbrigðismála fara 36 milljónir, þar af 16 milljónir til FSA og 15 milljónir til framkvæmda við innisundlaug á Kristnesi. Til rekstr- ar eigna fara 20 milljónir og þá til framkvæmda í ráðhúsi bæjarins. Þá fara 6 milljónir í atvinnumál en þar er um að ræða framlag til uppbygging- ar nýs tjaldsvæðis og vetrarútilífs- miðstöðvar, samkvæmt samkomu- lagi við Skátafélagið Klakk. Blaðberar fá mann- brodda GÍFURLEG hálka hefur verið á Akureyri síðustu daga eftir að fór að hlána á ný og hafa ökumenn og gangandi vegfarendur ekki farið varhluta af því. Þó hefur verið ótrúlega lítið um slys við þessar aðstæður. Ingibjörg Júlíus- dóttir hjúkrunarfræðingur á slysadeild FSA sagði að þar á bæ hefðu menn aðeins fundið fyrir því að fólk hefði orðið fyrir óhöppum í hálkunni en þó ótrú- lega lítið miðað við aðstæður í bænum. Golfskórnir til margra nota nytsamlegir Blaðberar Morgunblaðsins sem ganga um bæinn með þungar töskur hafa mátt hafa sig alla við og sumir hverjir hafa gripið til sinna ráða. Einn mætti til að mynda í útburðinn í gærmorgun klæddur golfskónum sínum og bar hann sig nokkuð vel. Morgunblað- ið greip til þess ráðs að senda blaðberum sinum á Akureyri mannbrodda, svo þeir kæmust betur leiðar sinnar f hálkunni. Guðrún Sigurbjörnsdóttir, sem ber út í stærsta hverfíð á Akur- eyri, er hér að máta mannbrodd- ana á kuldaskó sina og hún vonast til að þeir komi að góðum notum. Guðrún sagði að fljúgandi hálka hefði verið á sinni leið í gærmorg- un. Hún fór því rólega yfir en var þeim munlengur að bera út. Guð- rún sagði að snjóinn hefði tekið mikið upp en það væri alltaf vandamál hvað sumir mokuðu illa eða bara alls ekkert frá híbýlum sínum. Morgunblaðið/Kristján Guðrún blaðberi mátar mannbrodda frá Morgunblaðinu á kuldaskó sina. Formlegri dagskrá Jólabæjarins lýkur í dag Uppákomur í miðbænum ('f) BIJNAÐARBANKINN trauslur banki ÍSLANDSBANKI s SPARISJÓÐURINN -fyrirþigogþína FORMLEGRI dagskrá Jólabæjar- ins Akureyrar lýkur í dag, Þorláks- messu, og verður því boðið upp á líf- lega dagskrá í miðbænum, auk þess sem verslanir í bænum verða opnar til kl. 23.00. Skemmtidagskráin hefst um kl. 15.30 í dag en þá munu jólasveinar heilsa upp á börnin í miðbænum, auk þess sem félagar úr Kór Mennta- skólans á Akureyri syngja nokkur jólalög. I kjölfarið munu eldgleypar sýna listir sínar og Kór Akureyrar- kirkju syngur jólalög. Éldgleypar verða aftur á ferðinni um kl. 20 og þá munu Karlakórinn Geysir og félagar úr Kór Menntaskólans á Akureyri taka lagið. Aðstandendur Jólabæjarins reikna með að fjöldi fólks leggi leið sína í miðbæinn, bæði til að ljúka við jólainnkaupin og eins til að upplifa þá einstöku stemmningu sem þar ríkir. Bærinn er fallega skreyttur og kórarnir munu sjá til þess að koma fólki í rétta jólaskapið. Aðstandend- ur verkefnisins eru mjög ánægðir með hvemig til hefur tekist og eru jafnframt vissir um að bærinn hafi staðið undir nafni sem jólabær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.