Morgunblaðið - 23.12.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 21
ÚRVERINU
Fiskimerki vekja
athygli í Eyjaálfu
LAUSNIR hátæknifyrirtækisins
Stjörnu-Odda hafa vakið athygli
hafrannsóknarmanna frá Nýja Sjá-
landi og Ástralíu. Vörur fyrirtækis-
ins eru háþróuð fískimerki, sem eru
minni og mæla meira en önnur merki
á markaði. Einnig er fyrirtækið að
þróa staðsetningarmerki og neðans-
jávarmerkibúnað, búnað sem gerir
rannsóknaraðilum kleift að merkja
fískinn án þess að veiða hann fyrst.
Framkvæmdastjóri Austral Fish-
eries, Richard Elvin, kom til lands-
ins ásamt Sigurgeir Péturssyni fyrr-
um skipstjóra, sem starfar í dag sem
framkvæmdastjóri Hampiðjunnar á
Nýja-Sjálandi og er Sigurgeir jafn-
framt í nefnd sem annast stofn-
stærðarmat fyrir suðurskautssvæð-
ið, „Sub-Antarctic fisheries Assess-
ment Greoup“. Sigurgeir hefur
fylgst vel með málefnum Stjörnu-
Odda í gegnum íslenska fjölmiðla og
upplýst vísindamenn á svæðinu um
þau verkefni sem Stjörnu-Oddi vinn-
ur að. Félagið Austral Fisheries er
leiðandi í skynsamlegri nýtingu auð-
lindanna á því hafsvæði og eyðir
stórfé í rannsókntr og samvinnu við
vísindamenn, hér eru því augljós
sóknarfæri fyrir Stjörnu-Odda á
svæðinu.
Samstarf við
Kongsberg Simrad
Stjörnu-Oddi er þessa mánuðina
að leggja lokahönd á þróun neðan-
sjávarmerkingarbúnaðar og tekur
framleiðsluþróun við og markaðs-
setning á vörunni. Búnaður þessi er
sérhannaður fyrir notkun á karfa, en
það er ekkert því til fyrii'stöðu að
með breytingum passi hann fyrir
aðrar físktegundir. Þess má geta að
Stjörnu-Oddi hefur sótt um einka-
leyfi á búnaðinum. Markaðssetning
Stjörnu-Odda á neðansjávarmerk-
ingarbúnaðinum hefst í byrjun árs-
ins 2000.
Nýlega var gert samkomulag við
Kongsberg Simrad um þróun á raf-
eindamerkjum sem geta numið stað-
setningu og byggist á þeirri tækni að
GPS-staðsetning skips er send niður
í hafið gegnum sónarbúnað skipsins.
Þessari tækni hefur Stjörnu-Oddi
sótt um einkaleyfi á og auðveldar
það félaginu verulega að ná sam-
komulagi við stór fjölþjóðleg félög
eins og Kongsberg-samsteypuna.
Munu félögin hvert fyrir sig og
saman markaðssetja staðsetning-
arrafeindamerkin og viðeigandi són-
arbúnað um allan heim, með sam-
starfinu fær Stjörnu-Oddi aðgang að
einu af öflugustu markaðsnetum
heims á þessu sviði.
Fjármögnun fyrir-
tækisins lokið
Á miðju árinu 1999 jókst fjöldi
hluthafa í Stjörnu-Odda í tuttugu og
fimm talsins, af nýjum hluthöfum er
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
stærstur með um 23% af heildar-
hlutafé félagsins, ellefu útgerðarfé-
lög eru á meðal hluthafa og er
Grandi hf. þeirra stærstur. Það
hlutafé sem boðið var út var boðið
völdum fjárfestum og seldist það
allt. Markmið hlutafjárútboðsins var
að afla félaginu fjár til þess að að efla
þróunargetu þess og koma lausnum
þess á markað. „Stjörnu-Odda menn
líta með eldmóði inn í framtíðina þar
sem þeir telja að þörfin fyrir lausnir
félagsins muni stóraukast á næstu
misserum með auknum kröfum sam-
félagsins og neytenda þar sem gerð
verður krafa til sjálfbærra auð-
linda,“ segir í frétt frá fyrirtækinu.
ÞAÐ lá vel á áhöfninni á Arnari HU
þegar skipið kom í land úr síðasta
túr ársins í gærmorgun. Þeir höfðu
líka ærna ástæðu til að fagna því
aflaverðmætið eftir árið er einn
milljarður og 25 milljónir.
Náðist á ellefu
mánuðum
Þetta er nýtt met í fiskveiðum
okkar íslendinga því ekkert skip
hefur áður skilað svo miklu aflaverð-
mæti á einu ári. Reyndai- náðist
þessi árangur á íúmum 11 mánuðum
því Arnar fór ekki út í fyrsta túr ár-
sins fyrr en upp úr miðjum janúar og
hann mun ekki verða á sjó milli jóla
og nýárs.
Tekið var á móti áhöfninni með
kampavíni og konfekti þegar hún
kom í land. Jóel Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings hf. og
Adolf H. Berndsen stjómarformað-
ur þökkuðu áhöfninni vel unnin störf
og frábæran árangur og skálað var
fyrii’ Islandsmetinu og fyrir áfram-
haldandi velgengni á nýju ári.
Jafnt og gott allt árið
Árni Sigurðsson er skipstjóri á
Arnari og Guðjón Guðjónsson er af-
leysingaskipstjóri. Þeir félagar
þakka fyrst og fremst góðri áhöfn og
góðri kvótastöðu þennan frábæra ár-
angur. Einnig hefur verðið á afurð-
unum verið í hámarki og góður
rekstur á útgerðinni. „Þetta hefur
verið svona jafnt og gott allt árið.
Það má segja að allt hafi gengið upp.
Nægur kvóti, valinn maður í hverju
rúmi, engar óvæntar frátafii- og
verðin í hámarki," sagði Árni.
Uthaldsdagar Arnars urðu 290 á
ái-inu og meðalafli á veiðidag var 21,7
tonn. Samtals aflaði Arnar 6.300
tonna upp úr sjó á þessum 290 dög-
um en meðalaflaverðmæti var um 3,5
milljónir á dag. Skipting aflans var
þannig að um 60% hans var þorskur
en 40% aðrar tegundir. Hásetahlut-
ur ársins er rúmar 10 milljónir en
skiptakerfi er. í gangi hjá áhöfninni
þannig að menn eru á sjó tvo túra en
fara síðan einn túr í frí.
, _ Morgunblaðið/Olafur Bemódusson
Islandsmeistarar í aflaverðmæti. Ahöfn Arnars HU kampakát eftir að skipið kom í höfn
á Skagaströnd í gærmorgun.
Milljarður í höfn
Bókaáritanir t versluti
Máls og menningar Laugavegi 18
Ólafur Jóhann Ólafsson áritar
Slóð fiðrildanna
milli kl. 17 og 18 í dag
í versluninni að Laugavegi 18.
Páíl Valsson áritar œvisögu
Jónasar Hallgrtmssonar
milli kl. 16 og 17 í dag
í versluninni að Laugavegi 18.
Mál og menning
www.malogmenning.is • Laugavegi 18 • Sími 515 2500