Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ferðamenn fá að kenna á
öryggisviðbúnaðinum
Jerúsalem. AP.
ísraelskur lögreglumaöur aðstoðar ferðamann í gamla borgarhlutanum í Jerúsalem. Lögreglan er með mikinn
viðbúnað í borginni vegna hugsanlegra hermdarverka um hátíðarnar.
LÖGREGLAN í Jerúsalem er með
mikinn viðbúnað vegna hættunnar á
að átök blossi upp í gamla borgar-
hlutanum þegar hundruð þúsunda
kristinna manna, gyðinga og músl-
ima flykkjast þangað á gamlársdag.
Rúmlega 300 myndavélum hefur
verið komið fyrir í gamla borgarhlut-
anum til að fylgjast með mannþröng-
inni. Ráðgert er að 12.000 lögreglu-
menn, átján sinnum fleiri en
venjulega, haldi uppi eftirliti á göt-
um borgarhlutans á gamlársdag.
Sá dagur verður mjög sérstakur
fyrir kristna menn, gyðinga og músl-
ima. Búist er við að kristnir menn
flykkist til gamla borgarhlutans um
áramótin til að halda upp á árþús-
undaskiptin. Gamlársdagur er einn-
ig síðasti föstudagurinn í föstumán-
uði múslima og gert er ráð fyrir að
hundruð þúsunda múslima taki þátt í
bænasamkomum í E1 Aksa-mosk-
unni þann dag. Hvfldardagur gyð-
inga hefst einnig um kvöldið og við-
búið er að heittrúaðir gyðingar
streymi þá að Grátmúrnum.
Tugnm kristinna manna
vísað úr landi
Yfirvöld í ísrael hafa mestar
áhyggjur af því að hópar kristinna
manna, sem trúa því að dómsdagur
sé í nánd, komi saman í gamla borg-
arhlutanum til að svipta sig lífi eða
beita ofbeldi í því skyni að flýta fyrir
endurkomu Krists á dómsdegi. Tug-
ir kristinna manna hafa því verið
handteknir og fluttir úr landi.
Lögreglan óttast ennfremur að
hægrisinnaðir gyðingar reiti músl-
ima til reiði með árás á E1 Aksa-
moskuna, þriðja helgasta stað músl-
ima.
Yfirvöldin hafa einnig áhyggjur af
herskáum múslimum, sem eru taldir
hafa undirbúið hermdarverk gegn
Bandaríkjamönnum og Israelum.
Hættan á ofbeldi setur ísraela í
vanda því þeir vilja laða að ferða-
menn og öryggisviðbúnaðurinn hef-
ur mælst misjafnlega fyrir meðal
þeirra. Sumir ferðamannanna eru
sáttir við öryggiseftirlitið og telja
það nauðsynlegt en öðrum þykir lög-
reglan hafa gengið of langt.
Einn þeirra, Ramon Rodgers, 36
ára kaupsýslumaður frá Bahamaeyj-
um, var handtekinn á Píslarvegi
Krists og yfirheyrður í fjórar
klukkustundir vegna þess að klæða-
burður hans -hvítar buxur, her-
mannajakki og sandalar - þótti
grunsamlegur. „Ég vil komast héðan
sem allra fyrst og kem hingað aldrei
aftur,“ sagði hann og kvaðst hafa
bókað flugfar til heimalandsins dag-
inn efth'.
„í öðrum löndum þurfa menn ekki
að sanna að þeir séu löghlýðnir,"
sagði Emilio Barcena, prestur sem
starfar við upplýsingamiðstöð í
gamla borgarhlutanum. „Hér liggja
menn undir grun þar til þeir sanna
að þeir séu ekki illmenni."
Lögreglan í Jerúsalem herðir öryggiseftirlitið
Kumaratunga endur-
kjörin forseti Sri Lanka
Reuters
Chandrika Kumaratunga, forseti Sri Lanka, heilsar munkum í embætt-
isbústað sínum í Colombo eftir að hafa svarið embættiseið.
Bandaríkin
Strangari
reglugerð
um út-
blásturs-
kerfí bfla
Washington. AP.
BÚIST er við að forseti Bandaríkj-
anna, Bill Clinton, kynni á næstunni
strangari reglur um útblástur bfla,
m.a. jepplinga.
Með reglugerðinni er stefnt að því
að útblástur af völdum bíla minnki
um 90% á næsta áratug og er nú í
fyrsta skipti gert ráð fyrir að reglu-
gerðin nái til jepplinga og minni
vörubfla. Blaðafulltrúi Hvíta húss-
ins, Joe Lockhart, hefur ekki viljað
að staðfesta þessar upplýsingar.
Brennisteinsinnihald í
dísilolíu verði minnkað
Skrifstofa umhverfisvemdarmála,
EPA, mun þá fylgjast með að bens-
ínframleiðendur dragi úr brenni-
steinsmagni í bensíni um allt að 90%.
EPA er einnig með ráðagerðir uppi
um að sett verði reglugerð sem kveð-
ur á um minna brennisteinsinnihald í
dísilolíu, en margir bflaframleiðend-
ur líta í æ ríkara mæli til dísilolíu
sem eldsneytis framtíðarinnar.
Á við flestar gerðir
eftir 2004
Gert er ráð fyrir að reglugerðin
um útblástur bifreiða eigi við flestar
þær bílgerðir sem framleiddar verða
frá árinu 2004, en lengri frestur
verði þó gefinn fyrir stærri bifreiðar
sem munu hafa til ársins 2009 til að-
lögunar.
Colombo. AP, AFP.
CHANDRIKA Kumaratunga sór
embættiseið forseta Sri Lanka í gær
eftir að hafa verið endurkjörin í emb-
ættið í kosningum á þriðjudag.
Þremur dögum áður hafði hún særst
lítilsháttar þegar tamflskur aðskiln-
aðarsinni reyndi að ráða hana af dög-
um og morðtilræðið kann að hafa
ráðið úrslitum í kosningunum þar
sem talið er að margir hafi kosið
Kumaratunga vegna samúðar með
henni.
Kumaratunga var með sáraum-
búðir á öðru auganu vegna morðtil-
ræðisins þegar hún sór embættiseið-
inn á heimili sínu í Colombo. Hún
áréttaði loforð sín um að beita sér
fyrir friði í landinu og skoraði á Ta-
mfla að hafna „ofbeldi og hatri“
skæruliða sem beijast fyrir sjálf-
stæðu ríki Tamfla í norðausturhluta
landsins. „Enginn á jörðinni er jafn
staðráðinn og ég í að binda enda á
þessar hörmulegu og tilgangslausu
blóðsúthellingar og eyðileggingu,“
sagði hún.
Kumaratunga fékk 51,12% at-
kvæðanna og helsti keppinautur
hennar, Ranil Wickremesinghe,
42,7%. Níu aðrir voru í framboði og
annað val kjósenda þeirra hefði ráðið
úrslitum ef Kamaratunga hefði ekki
fengið meirihluta atkvæðanna.
Forsetinn fékk mun meira fylgi í
kosningunum árið 1994, eða 62%, og
stjórnmálaskýrandinn Jayadeva
Uyangoda, við Colombo-háskóla,
sagði að skilaboð kjósendanna væru
skýr; Kumaratunga yrði „reyna að
endurheimta traust tamílsku þjóðar-
innar með pólitískum ráðum í stað
þess að beita hervaldi".
Kumaratunga lofaði fyrir kosning-
arnar árið 1994 að binda enda á stríð-
ið, sem hefur kostað 61.000 manns
lífið á sextán árum, en átökin hörðn-
uðu eftir að hún fyrirskipaði hernum
að hefja mikla sókn gegn skærulið-
unum í norðausturhluta landsins.
Tamflsk kona reyndi að ráða Kum-
aratunga af dögum á kosningafundi í
Colombo á laugardag en forsetinn
slapp naumlega. Konan reyndi að
faðma forsetann en verðir drógu
hana í burtu og skömmu síðar
sprakk sprengja sem hún hafði falið
innan klæða. Rúmlega 20 manns
biðu bana í tilræðinu.
Nokkrir fréttaskýrendur leiddu
getum að því að morðtilræðið hefði
bjargað Kumaratunga þar sem hún
hefði fengið atkvæði margra kjós-
enda, sem höfðu ekki gert upp hug
sinn fyrir tilræðið og eru taldir hafa
viljað votta henni samúð sína með
því að kjósa hana. Margir stjórn-
málaskýrendur telja að Wickremes-
inghe hafi haft forskot á forsetann
fyrir tilræðið.
Ásakanir um viðamikið
kosningamisferli
Kjörsóknin var um 73% þótt ta-
mílskir skæruliðar hefðu reynt að
hræða fólk frá því að kjósa með því
að hóta árásum á kjörstaði.
Óháð eftirlitsnefnd sagði að ógilda
þyrfti kosningarnar og endurtaka
þær í norðausturhluta landsins
vegna viðamikils kosningamisferlis.
Hún sagði að mörg dæmi væru um
að stuðningsmenn frambjóðendanna
hefðu stolið skráningarkortum kjós-
enda og notað þau til að greiða at-
kvæði. Þá hefðu víða verið settir upp
vegartálmar til að hindra að fólk
kæmist á kjörstaði.
Fangelsi
fyrir sæl-
gætissmygl
DÓMSTÓLL í Saudi-Arabíu
hefur dæmt farandverkamann
frá Filippseyjum til fjögura
mánaða fangelsisvistar og til að
þola 75 svipuhögg fyrir að hafa
reynt að smygla súkkulaðimol-
um með vínfyllingu inn í landið.
Samkvæmt lögum landsins, sem
byggja á íslömskum rétti, er
refsivert að hafa áfengi um
hönd.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu mannréttindasamtak-
anna Amnesty Intemational í
Svíþjóð var maðurinn handtek-
inn 23. september síðastliðinn á
flugvellinum í höfuðborginni Ri-
yadh en hafði keypt sælgætið
skömmu áður þegar flugvélin
sem hann var farþegi í millilenti
á flugvelli í nágrannaríkinu
Bahrain. Fulltrúar samtakanna
fóru á þriðjudag í sendiráð
Saudi-Arabíu í Stokkhólmi og
færðu sendiherranum öskju af
súkkulaðimolum og bréf þar
sem yfirvöld í landinu voru hvött
til að milda refsinguna yfir
manninum.
Lést af völd-
um geisla-
virkni
STARFSMAÐUR kjamorku-
vers þar sem geislavirkni varð
laus í september síðastliðnum
lést á þriðjudag á sjúkrahúsi í
Tókýó. Maðurinn var 35 ára og
hafði legið þungt haldinn frá því
að mannleg mistök við með-
höndlun kjamorkueldsneytis
ollu því að starfsmenn urðu fyrir
geislavirkni. Komið hefur í ljós
að starfsmenn hunsuðu ítrekað
öryggisreglur í kjarnorkuverinu
til að flýta fyrir sér við vinnu.
Maðurinn er sá lyrsti sem lætur
lífið af völdum óhapps í kjarn-
orkuveri í Japan.
• •
Oflugur
jarðskjálfti
á Jövu
AÐ MINNSTA kosti fjórir biðu
bana og rúmlega 200 slösuðust
þegar öflugur jarðskjálfti reið
yfir eyjuna Jövu í Indónesíu í
fyrrakvöld.
Skjálftinn mældist 6,4 stig á
Richterskvarða og hundrað
húsa skemmdust eða eyðilögð-
ust í nokkrum þorpum á vestur-
hluta eyjunnar.
Skjálftamiðjan var undir Ind-
landshafi, um 230 km suðvestur
af Jakarta. Skjálftans varð vart í
borginni en mun ekki hafa vald-
ið tjóni þar.
Skjálftasvæðið er nálægt
Krakatá, eldfjalli á Súndasundi
milli Súmötra og Jövu. Jarð-
skjálftai- era algengir í Indónes-
íu og þrír snarpir skjálftai- hafa
riðið yfir afskekkt svæði á Súm-
ötra frá 18. september.
Ný ríkis-
stjórn á Italíu
NÝ ríkisstjórn miðju- oghægri-
manna var mynduð á Ítalíu í
gær undir forystu Massimos
D’Alema. Fyrri ríkisstjóm D’A-
lemas missti meirihluta sinn á
þingi á mánudag þegar smá-
flokkur sem átti aðild að henni,
Þriggja laufa smárinn, hætti
þátttöku. Nýja ríkisstjórnin
verður sú 57. í röðinni á Italíu
frá lokum seinni heimstyrjaldai-.