Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 25

Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 25 Reuters. Sveppalaga ský rís yfir Nagasaki eftir að kjarnorkusprengju hafði verið varpað á borgina 9. ágúst 1945. Merkustu atburðir 20. aldarinnar BANDARÍSKA fréttastofan Associ- ated Press hefur tekið saman lista yfir tíu merkustu atburði aldar- innar og er hann byggður á skoð- anakönnun meðal 71 (jölmiðils í 36 löndum sem skipta við fréttastof- una. Fer hann hér á eftir: 1. Bandaríkjamenn varpatveim- ur kjarnorkusprengjum á Japan 1945. Japanir gefast upp og síðari heimsstyrjöld lýkur. 2. Rússneska byltingin og valda- taka kommúnista 1917. 3. Heimsstyijöldin síðari hefst með innrás Þjóðveija í Pólland 1939. 4. Bandariski geimfarinn Neil Armstrong gengur á tunglinu 1969. 5. Fall Berlínarmúrsins 1989 boðar endalok Sovétríkjanna. 6. Þjóðverjar gefast upp fyrir bandamönnum 1945. Hryllingur út- rýmingarbúðanna verður öllum ljós. 7. Morðið á Ferdinand erki- hertoga 1914 hrindir af stað fyrri heimsstyrjöld. 8. Wright-bræður verða fyrstir til að fljúga vélknúinni flugvél 1903. 9. Fyrsta fúkalyfið, pensillín, er uppgötvað 1918. 10. Tölvuöld hefst með „ENLAC“ 1946. Eftirlit með kosningunum í Rússlandi Hnökrar en ekki mikil svik SENDINEFND evrópskra þingmanna fylgdist með nýaf- stöðnum þingkosning- um í Rússlandi og var Sigríður Jóhannes- dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar á Reykjanesi, i þeim hópi. Að hennar sögn bar töluvert á tor- tryggni meðal almenn- ings í Rússlandi um að rétt væri staðið að kosningum. „Rússneska þingið samþykkti að fá er- lenda þingmenn til eft- irlits því það er vanda- mál að fólk þar í landi trúir ekki á kosningar og var með yíirlýsingar þess efnis að það vildi ekki taka þátt vegna þess að það þýddi ekkert," segir Sigríður og kveður þetta hafa verið skemmtilega en erfiða reynslu. Alls var um 100 manna hópur evrópskra þingmanna og starfs- manna frá skrifstofum þjóðþinga þessara landa í vinnu vegna kosning- anna og var Sigríður í hópi fjögurra þingmanna á vegum Norðurlanda- ráðs. Sigríður segir að hópnum hafi verið dreift um Rússland en flestir þingmannanna hafi þó verið í Moskvu. Norski þingmaðurinn var þó send- ur til Krasnójarsk í Síberíu þar sem mikið er um kosningasvindl, til dæm- is er töluvert algengt, að þar sé látið fólk á kjörskrá, einkum í afskekktum byggðarlögum. Þar séu oft fleíri á kjörskránni en búi á hverjum stað og tilgangurinn meðal annars sá að fela byggðavandann og við- halda ríkisframlögum. Látnir, fluttir og þeir sem aldrei hafi verið til séu á kjörskrá til að fylla upp í íbúafjöldann og séu þá líka notaðir til að skila inn atkvæðum í kosningum. Svindlleiðir kynntar Sigríður sjálf var hins vegar í Moskvu ásamt starfsmanni norska þjóðþingsins og höfðu þau umsjón með tólf kjördeildum í Norður- Moskvu. Hún segir ekki hafa borið á kosningasvindli í þeim kjördæmum, en þau funduðu með forsvarsmönn- um allra þingfiokkanna fyrstu tvo dagana til að kynna sér stöðuna í stjórnmálunum og var þar m.a. helstu svindlleiðum lýst. „Þannig að við fengum innsýn í það sem við átt- um að vera á varðbergi gegn,“ segir Sigríður. Hún kveður þó aðra þingmenn hafa, suma hverja, orðið vara við kosningasvindl. „Við bárum saman bækur okkar og sumir höfðu orðið varir við ýmislegt, en það var sam- dóma álit okkar að ekki væri það mikið um kosningasvik að það hefði nein afgerandi áhrif á niðurstöður kosninganna.“ .jt%. Gleraugnasalan, g Laugavegi 65. Sunnuhlíð sími:462 4111 1 X t f Rúllukragapeysa 3.499- Peysa m/ísaumi 3.890- Buxur 2.640- Faxafeni 8 sími: 533 1555 mánudag 20.des. 10-22 þriðjudag 21.des. 10-22 miðvikud. 22.des. 10-22 fimmtud. 23.des. 10-23 föstudag 24.des. 9-13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.