Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ekkert hefðbundið við hefðina Höfundar hafa kannað mörk skáldsögunnar og þanþol á undanförnum árum, segir Þröstur Helgason og játar á sig klisjuna. Hefðin er í endurvinnslu sem þýðir ekki að sögur séu hefðbundnar. Það er ekkert hefð- bundið lengur við hefðina. HVERNIG skáldsögu má skrifa? Hvemig skáldsögu er hægt að skrifa nú á tímum? Hvernig og um hvað? Þetta virðast vera spumingamar sem skáldsagnahöfundar síðustu ára hafa verið að glíma við í verkum sín- um. Þetta hefur verið kallað að kanna mörk skáldsögunnar eða reyna á þanþol hennar og ljóst má vera af öllu því sem gengið hefur á að mörk hennar era óljós og þanþolið mikið. Á síðasta ári komu út nokkrar bækur sem gagnrýnendur áttu í nokkram vanda með að skilgreina vegna þess að þær virtust fljótt á litið standa fyrir utan mörkin, sprengja utan af sér form skáldsögunnar. Og enn skal skáldsöguna reyna. Þótt ekki séu átökin jafn mikil nú og síð- asta ár era höfundar að kanna hvað þeir geta leyft sér innan þessa forms í lok aldar þar sem það hefur drottn- að yfir öðram bókmenntaformum. Flokkunarvandinn sem gagnrýn- endur lentu í fyrir ári vegna skáld- sagna á borð við Vargatal Sigfúsar Bjartmarssonar og Fylgjur eftir Harald Jónsson fékk farsæla lausn eftir að hafa valdið talsverðu ójafn- vægi í viðkvæmum sálum vertíðar- þreyttra ritdómara. Skáldsagan breiddi að endingu út sinn mikla faðm og tók að sér alla undanvilling- ana. Hið sama hefur gerst nú enda hin póstmóderníska skáldsaga með afbrigðum frjálslynd. (Hún virðist hafa sömu eiginleika og hin alltum- vefjandi nýfrjálslynda miðja í stjórn- málalandslaginu þar sem öllu ægir saman, en auðvitað án þess að skyggja hvað á annað?!) Endurvinnsla Eins og fyrr sagði era átökin ekki jafn mikil og á fyrra ári. Áhugaverð- ust er ef til vill ákveðin tilhneiging til afturhvarfs, eins konar endurvinnslu á formgerð og frásagnarhætti sem skáldsagan virtist hafa gefið upp á bátinn. Endurvinnslan er eitt af megin- einkennum hins póstmódemíska ástands. Viss vantrú á framþróun- inni, afli sögunnar, hefur beint at- hyghnni að því sem þegar hefur verið gert, endurmati þess og endurlifun, - sagan er endurannin. Slík bók- menntasöguleg endurvinnsla birtist nú með hvað skýrastum hætti í skáldsögum á borð við Mannveiði- handbókina eftir fsak Harðarson og Vetrarfcrðina eftir Ólaf Gunnarsson. Bók ísaks er djörf og skemmtileg tilraun með form allegórískrar sam- félagsádeilu þar sem boðskapurinn fer aldrei miUi mála í augljósu sam- spili hins rétta og ranga. Við lestur sögunnar komu upp í hugann bækur eins og 1984 og Animal Farm eftir George Orwell og Leigjandinn eftir Svövu Jakobsdóttur, svo einhver dæmi séu nefnd. Hjá ísak era það hinar margnotuðu andstæður, sveit og borg, sem vegast á. Bókin er aug- ljós, já og öllum auðskilin ádeila á neysluþjóðfélagið, hraðann, þensluna og sýndarveruleikann sem Reykja- vík sögunnar og Ringla hennar era táknmyndir um. Sveitin er hins veg- ar heimkynni hins heila og sanna manns, trúar og sannleika, náttúra og hreinleika. Formgerðin er með öðram orðum skýr og einföld, jafnvel svo að sumum gagnrýnendum hefur fundist nóg um. En það sem hefur bókina ótvírætt upp úr farinu sem hún vissulega fer í era frábær (og leikandi létt) tök höfundar á forminu og efninu, en ekki síður lifandi stíll sem alltaf kemur á óvart. Bók Ólafs er eins og af hinum enda þráðarins sem skáldsagan hefur spunnið í gegnum tíðina, - breið og raunsæ epík í anda sagnameistara nítjándu aldarinnar. Bókin er sú síð- asta í þríleik sem hófst með Trölia- kirkjunni og hefur haldið uppi merki frásagnarinnar í íslenskum skáld- skap á þessum áratug. Sögusvið Vetrarferðarinnar er Reykjavík á síðari hluta fimmta áratugarins og aðalsöguhetjan er jobsgervingur, ung og sterk kona sem gengst undir hverja þrautina á fætur annarri, og stendur þær af sér þótt beygð sé í lokin. Bókin er skemmtileg aflestrar enda með æði stórkarlalegum sög- uþræði eins og Ólafur á vanda til, þegar á líður verður hann þó heldur teygður. Sem úrvinnsla á hinni raun- sæju epísku skáldsögu hefur sagan ekki mikið gildi, það er ekki hægt að segja að hún víkki út formið en Ólaf- ur fer vissulega kunnáttusamlegum höndum um það. í báðum þessum bókum er hins vegar mikill hljómur. Þær eiga það sameiginlegt að hafa sterkan sið- ferðilegan boðskap sem hefur ekki átt svo mjög upp á frægt pallborðið að undanfömu. Ekkert hefðbundið! Setja mætti bráðskemmtiiega skáldsögu Jóns Kalmans Stefánsson- ar, Birtan á fjöllunum, í þennan flokk en sagan segir frá sveitalífi vestur á landi. Bókin er einnig síðasta bók í þríleik sem höfundur hóf með Skurð- um í rigningu, sem var einmitt ein af þessum tilbrigðum sem gátu skipað sér hvoram megin markanna sem var en hafa nú hlotið þegnrétt í ríki skáldsögunnar (eða hvað?). Enginn vafi leikur hins vegar á ættemi Birt- unnar á fjöllunum þrátt fyrir efa- semdir sögumanns um að hann sé að segja sögu eins og á að segja hana (sbr. kaflann „Hér rýf ég frásögnina og viðurkenni jafnframt vankunnáttu mína“). Nei, hér er um stóra og með- vitaða skáldsögu að ræða, það er að segja skáldsögu sem hafði aldrei neitt annað í huga en að verða ein- mitt það. Hin sterka sjálfsvitund sög- unnar - eða skáldsöguvitund - kemrn- fram í því hvemig hún leikur á form hins hefðbundna sveitarómans, - það er nefnilega ekkert hefðbundið við þennan sveitaróman þó að hann þykist vera hefðbundinn með náttúrasak- leysið í ástinni og skondna fólkið með skrýtnu tilsvörin á sínum stað. í skil- virkri endurvinnslu heldur aldrei neitt hefðbundið við hefðina. Sagan er full af framlegum útúrsnúningum og tilraun- um með formið og hefðina, bók- menntahefðina sem birtist til dæmis í hundinum Þórbergi sem kærir sig kollóttan um bókmenntalega höfuð- strauma. Nema hvað! Bók Jóns Kalmans sætfr tíðindum og hið sama á við um fyrstu skáldsögu Braga Ólafssonar, Hvíldardaga, en báðar beina þær spjótum sínum að band(víddar)óðum nútímanum - hrað- anum, tómleikanum og óraunveraleik- anum. Saga Braga er hæg og við- burðalítil á yfirborðinu en undir henni allri lúrir þessi sérlundaði sumarleyf- ishafi sem uppliffr sjálfan sig eins og misskilda persónu í skáldsögu - óraun- veralegan, hálfmeðvitundarlausan og alls ekki sjálfs sín ráðandi. Eins og Jón Kalman kemst ekki úr sveitasælunni í sagnaþríleik sínum, þá kemst þessi eirðarlausa „sögupersóna" (sem er eiginlega skáldsögulegur Traman) aldrei úr borginni, nema rétt í blálokin þegar hann skríður í var ofan í Maríu- helli í Heiðmörk og óskar sér að leys- ast upp í dimmunni. Skáldsaga Þórunnar Valdimars- dóttur, Stúlka með fingur, á það sam- eiginlegt með bókum Jóns Kalmans, Braga og Isaks að bera í sér bæði sveitina og borgina. (Er þetta þema ársins?) Eins og í Birtunni á fjöllun- um glittir í sveitarómaninn í for- granninum en Þórann ljær forminu líf með uppbroti á sögufléttu og þematískri úrvinnslu, auk þess sem sérstæður frásagnarháttur hennai’ og stíll setja mark sitt á söguna. Spenna, hryllingnr og þýðingar Og vissulega mætti nefna fleiri dæmi um áhugaverða úrvinnslu á skáldsagnahefðinni í bókum ársins. Bjarni Bjamason er sennilega einn sérstæðasti skáldsagnahöfundur okkar nú um stundir en ævintýi'a- skáldsögur hans og fantasíur era mjög áhugaverð viðbót við flórana. Bjami sendir nú frá sér bókina Næt- urvörður kyrrðarinnar. Sömuleiðis er Börkur Gunnarsson að gera skemmtilega tilraun með skáldsa- gnaformið í fyrstu skáldsögu sinni, Sama og síðast. Spennusagan er ein sú grein skáldsögunnar sem tekin hefur verið tO endurvinnslu á undan- förnum áram. Napóleonsskjölin er önnur bók Arnalds Indriðasonar af þessu tagi og Hrafn Jökulsson og Stefán Máni senda frá sér fyrstu spennusögur sínar. Birgitta H. Hall- dórsdóttir hefur auðvitað haldið uppi þeirri hefð sem verið hefur hér á landi í þessari grein bókmennta og sendir nú frá sér bókina Eftirleikur. Af allt öðram toga era bækurnar Laufey eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Gullið í höfðinu eftir Diddu en báðar mætti samt flokka undir ein- hvers konar hryllingsbókmenntir. Hér er heldur ekki rúm til að gera öllum þeim frábæra þýðingum sem gefnar hafa verið út á árinu skil en eins og Ástráður Eysteinsson bendir á í nýrri grein sem birtist í nýút- komnu greinasafni hans, Umbrot. Bókmenntir ognútími, hefur blómleg útgáfa þýddra bókmennta á síðustu áram og áratugum „átt þátt í að gera skáldsöguna á íslandi, málheim hennar og orðræðu, fjölbreyttari en nokkra sinni áður“. Hér verður þó varla komist hjá því að nefna nýjar þýðingar á bókmenntasögulegum stórvirkjum á borð við Tídægru eftir Boccaccio, Eneasarkviðu eftir Virgil, Meistara Jim eftir Joseph Conrad, Ljós í ágúst eftir William Faulkner, Blikktrommuna eftir Gunter Grass og Búddenbrooks eftir Thomas Mann. Þar með er ekki sagt að inn- flutningur á samtímabókmenntum sé ekki líka mikilvægur en þar mættu útgefendur reyndar halda sér betur við efnið, ef eitthvað er á annað borð út á þá að setja í þessum efnum. Nokkrar gusur um dauðann og fleira BÆKUR Ljoð HUGÁSTIR eftir Steinunni Sigurðardóttur. Mál og menn- ing, Reykjavík 1999. Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. 70 bls. Leiðb. verð: 2.680 kr. FYNDNIN og þessi ísmeygilegi undirtónn era enn til staðar í ljóðum Steinunnar Sigurðar- dóttur en raunsæisskammturinn hefur stækkað á kostnað leiksins. Ljóðin era opnari í nýrri bók hennar, Hugástum, en í síðustu bókum hennar, myndmálið beinna þar sem áður var meira um myndhverfa orðaleiki - þessi heimspeki útúrsn- úningsins (viðsnúningsins kannski) sem gerði fyndnu kynslóðina svona fyndna hefur vikið fyrir annarri og íhugulli íyndni hjá Steinunni, hinni raunsæju fyndni, ef svo má kalla. Það sem ég er að reyna að segja er að þessi nýja ljóðabók Steinunnar hefur svolítið alvar- legra yfirbragð en síðustu ljóðabækur hennar. Það er kannski svolítið dýpri tónn í henni, þó að þetta lýsingarorð sé varasamarg en flest í rit- dómum. Eg vil að minnsta kosti ekki segja: dekkri tónn. Ef til vill ætti ég bara að segja að hann væri blár, þótt auðvitað sé hætta á að ein- hverjir hafi tilhneigingu til að misskilja það. Vafalaust væri réttast að segja bara að bókin fjallar um ástina og dauðann og örvæntinguna í lífinu, hún segir frá árum sem era hlaðnir vegg- ir milli elskhuga, stjömulausum fossi, flösku- skeytislausum flöskum á sandströnd, bílferð án takmarks, langdregnu sólarlagi og brotnum Steinunn Sigurðardóttir borgum þar sem fegursta útsýni í heimi hér gerir mann óhuggandi frekar en sorg- mæddan og „hinn látni er SKALD / og enginn hefur heyrt hans getið“. Þetta gætu virst dimm ef ekki þung- lynd umfjöllunar- efni en Steinunn lyftir Ijóðum sínum upp með hinni létt- lyndu afstöðu til hlutanna, húmor- ískri og stundum ír- ónískri sýn á þenn- an oft og tíðum kalda veruleika. Lesandinn sveiflast.því stöðugt milli hláturs og gráts, jafn- vel í einu og sama ljóðinu. Bókin skiptist í fimm hluta. Ástin kemur við sögu í þeim öllum, annars era það tónninn og afstaðan sem binda saman hlutana. Bestir og skemmtilegastir era sá íyrsti og sá síðasti. Sá íyrsti heitir því léttlynda nafni „Nokkrar gusur um dauðann og fleira“ og hefst á þessum línum: Allt sem skiptir máli kemur ekki jafnt og þétt, ekki smátt og smátt Allt sem skiptir máli kemur nefnilega í hviðum. Timburmenn, ástríðan, ergelsið. Já, lífið gengur í gusum, það kemur í mörgum slíkum en „að koma í heiminn útheimtir hríðir“; og það „gengur fram í hviðum“. Það eina „sem kemur ýmist í gusum / eða í eitt skipti fyrir öll“ er dauðinn: „Hann getur átt aðdraganda í langri hryglu / eða hann gerir árás sem er bæði sú fyrsta og síðasta / og allt lætur undan, í einu.“ Þessi óborganlega gususkilgreining nær yfir ástina sem „er mest á morgnana" og örvænt- inguna sem „er sárast síðdegis" og dauðann sjálfan: Dauðinn sjálfur er mestur að morgni, fyrir dögun, eftir langanótt þegar fólk gefst upp fyrir sjúkdómum með latneskum nöfnum sem gætu sómt sér á blómi. Eða ellin leggur að velli með hælkrók, eftir leiðindaglímu. í fyrstu skímu lengist snyrtileg röðin á bakka móðunnar miklu. Allra þjóða menn hinkra í suddanum vegmóðir, hálfvegis fegnir. Láta ekki á því bera, skima eftir feijumanni, segja sem fæst Umræðuefnin tæmd og tungumálaerfiðleikar. Dauðir hafa tæmt öll umræðuefni, kannski sem betur fer því þeir skilja hvort eð er ekki hver annan; já, ekki einu sinni dauðir skilja. Reyndar hefiir ljóðmælandi í síðasta ljóði þessa fyrsta hluta komist að óvæntri niðurstöðu um það út á hvað lífið gengur. Þar segir meðal ann- ars í þessum ljúfsára, húmoríska tóni: Lífið gengur einmitt út á það að ná sér. Að ná sér eftir nætursvefn, það tekur hálfan daginn. Að ná sér eftir kríu er verkefni framákvöld. Að ná sér eftdr fæðinguna, upphafsöskrið, í það fer heil mannsævi. Að ná sér eftir óhamingjusama æsku, Qörutíuárminnst svo fer að halla undan fæti. Efmaðurlifir.aðsegja. „Til fimm borga verður ekld aftur snúið“, segir í upphafi fyrsta ljóðs síðasta hlutans sem heitir „Brotnar borgir". Hér era dregnar upp brotamyndir úr borgum þar sem leynast minn- ingar, vonir og skuggar við hvert fótmál: „Eg kem til að heilsa upp á skugga svo langt sem þeir ná / ég kem til að heyra skuggana söngla á ný.“ Það era skuggar í Sarajevo, Prag og Barcelona þar sem Demantstorgið er nefnt eft- ir dekkjaverkstæði en ekki gimsteinaslípun. Einnig borg mestu sorgar og Nanterre þar sem maður er afvegaleiddur af tveimur öryrkjum ef maður spyr til vegar í matvörubúð á sunnudegi í desember, hvaða ár sem er. Og Reykjavík, svo kunnugleg í sinni pínlegu en líka elskulegu mynd: „Borg næturfrostanna löngu“, og borg „innlyksa gamalmenna í vetrarhálkum" en „umfram allt, höfuðborg vindanna“ og „kaldra sólbaða / þar sem konur á nærbuxum leggjast undir hvaða glætu sem er“. Ohætt er að segja að Steinunn fari á kostum í þessari bók. Hún markar sennilega ákveðin tímamót í ljóðagerð hennar þótt ekki sé hægt að tala um rof. Hvað úr verður er vandi að spá, kannski er þetta ein af þessum gusum en von- andi er þetta bara ein af þessum bílferðum án takmarks eða eitt af þessum sólarlögum sem ætla aldrei að taka enda. Þröstur Helgason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.