Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Flug um næturhimin Brautryðjendur, gleði og sigrar í 400 eintökum BÆKUR Barnabækur FALLEGI FLUGHVALUR- INN og sagan af litla stjörnukerfinu Eftir Ólaf Gunnarsson. Mynd- skreytingar eftirHöllu Sólveigu Þorgeirsdóttur. Útlit og umbrot: Hunang. Prentað í Danmörku. For- lagið 1999.31 bls. Það er talsverð kúnst að flétta saman barnasögu þannig að úr verði heil- stæð og umhugsunarverð saga. Olaf- ur Gunnarsson hefur samið sögu sína í nokkrum ólíkindastíl, lætur sér ekld fyrir brjósti brenna að beita fyrir sig fjórum þekktum frásagnarminnum úr barnasögum og steypa þeim sam- an í eina sem er þó engu síður laus- lega tengd á samskeytum. Fyrsta sagan og ysti rammi írá- sagnarinnar er af systkinunum Steini og Rósu sem búa í úthverfi. Þau eru óánægð með að þurfa að fara að hátta þegar pabbi og mamma sitja frameft- ir og horfa á spennandi mynd í sjón- varpinu. Uppi í Hvalfirði dvelur hins vegar Fallegi flughvalurinn sem hef- ur eins konar Óla lokbrár-eiginleika því hann heimsækir öll böm á hverju kvöldi og fullvissar sig um að þau séu sofnuð. Olafur Gunnarsson hefur áð- ur samið bamasögu um Flughvalinn sem naut mikilla vinsælda. Þegar Flughvalurinn heyrir systldnin kvarta kemur hann og býður þeim í flugferð um næturhimininn og segir þeim sögu í leiðinni. Sagan er af litla BURÐARGJALD GREITT heitir nýtt smásagnasafn Páls Kristins Pálssonar rit- höfundar. I því eru tíu smá- sögur skrifaðar á sjö ára tímabili, allt frá 1992 til þessa árs. Páll Kristinn segir að nafnið á bókinni og kápumyndin, hinn kunni stimpill ís- lenskra póstyfirvalda, eigi sér ofur einfalda skýringu. „Það var löngu áður en ég byrj- aði á þessum sögum að ég rak augun í að stafirnir mfnir væru í póstmerk- inu; PP sem stendur víst fyrir „portage paid“. Þetta er eitt af þeim táknum sem ber fyrir augu nánast daglega og ég ákvað þá þegar að nýta mér þetta einhvern tíma. Og það hef ég nú gert með útkomu þessarar bókar. Raunar er titilinn ekki allur þar sem hann er séður i samhengi sagnanna; sumar pcrsónur í bókinni þurfa nefnilega að greiða dýru gjaldi fyrir þær hugmyndir sem þær hafa verið að burðast með. Titillinn er allur kominn i þeim orðum, án þess að ég vilji fara út í nánari útlistanir á því. Það er lesandans að gera,“ segir Páll. Tilurð smásagnanna segir Páll mega að allnokkru Ieyti rekja til erfiðrar reynslu sem hann og kona hans urðu fyrir með yngsta barn sitt. Það hafi veikst alvarlega og sú reynsla hafi öll haft mjög mikil áhrif á hann, bæði sem manneskju og rithöfund. „Þetta var mjög erfið reynsla," rifjar Páll upp: „Á þessum tíma fannst mér aldrei það gerast sem ég hélt að myndi gerast eða vonað- ist eftir að gerðist. Og þegar þann- ig er ástatt fyrir manni fer maður að Ieggja eyru við því hvað viska kynslóðanna hefur um slíkt að segja. Forlagahyggja hefur alla tíð verið mjög sterk í okkur fslending- stjörnukerfinu sem varð eftir þegar heimurinn varð til. Til að fá botn í það hvað verður um litla stjömukerfið þarf enn eina sögu; söguna af vonda kónginum sem rak drottninguna sína að heiman með nýfætt bam þeirra. Stjörnukerfið litla og komabarnið hittast auðvitað og verða óaðskiljan- leg upp frá því með skondnum hætti. Og þar með em þau úr sögunni og bömin komin aftur heim úr flugferð- inni og fara sátt að sofa. Skemmtileg- an vísdóm má svo draga af sögunni um stjömukerfið og hvarflar að manni að þar sé fólgin kveikjan að sögunni og þráðurinn hafi verið spunninn út frá henni. Auðvitað má velta því fyrir sér hvort sú saga sem hvalurinn segir bömunum hafi nokkuð með óánægju- efni þeirra í upphafi að gera. Hvort þau hafi lært eitthvað eða orðið ein- hvers frekar visaii um sjálf sig eða hegðan foreldranna. Hvort það er svo aftur nauðsynlegt er álitamál. Vel má hugsa sér að höfundi gangi það til að benda börnunum á þann möguleika að allt sé hægt þegar ímyndunarafl- inu er beitt; allt getm- gerst og allir hlutir tengst saman svo úr verði saga, hversu ólíkindaleg sem hún virðist í upphafi. Sögur em bara sögur, þær má móta að viid ef ímyndunarafiinu erbeittáþær. Kostur bókarinnar er einnig ótví- rætt sá að hér heldur á penna vand- aður höfundur svo textinn er hnytt- inn og skemmtilega saminn, ágætlega fallinn til upplestrar íyrir börnin og myndirnar em vemlega vel unnar, líflegar og falla vel að efninu. Hávar Sigurjónsson um þegar við stöndum frammi fyrir því sem við eigum erfltt með að útskýra eða sætta okkur við. Henni tengjast allskyns varnarhættir sálar- innar, eins og kemur til dæmis fram í því viðhorfi að best sé að ganga alltaf út frá verstu niðurstöðunni. Ég var alltaf mjög ósáttur við þessa speki og kannski má segja að sögurnar séu að einhveiju leyti sprottnar upp úr því. En ég veit þó ekki hvort segja megi að ég hafi skrifað mig frá forlagahyggju eða ein- hverju slíku; þetta er engu síður tilraun í einhverri mynd til að tak- ast á við þessar hugmyndir." Hefur þér þá tekist að kveða þær í kútinn? „Ég veit það ekki. Það er aug- ljóslega svo margt í Iífinu sem við fáum engu ráðið um, hvort sem það er fyrirfram ákveðið eða til- viljanir. En þetta eru sem sagt helstu þemu bókarinnar og sög- urnar tengjast allar með einum eða öðrum hætti. Þó voru þær alls ekki frá upphafi skrifaðar sem heild- stætt safn smásagna sem alltaf áttu að koma þannig út á bók. Þetta miklu fremur þróaðist svona,“ svarar Páll. Hann segir sér hvorki líða betur né verr eftir skrifun sagnanna í ljósi hinnar erfiðu reynslu, lífið sé enn alveg jafn flókið fyrirbæri að sínu mati. „Samt var eins og þetta væri eitthvað sem ég þyrfti að géra. Ég held ekki að ég hafi upp- götvað eitthvað nýtt eða náð að skrifa mig frá einhverju, eins og stundum er sagt að menn geri. Kannski átta ég mig þó frekar á þessu seinna," bætir hann við. Páll hefur áður sent frá sér fjór- ar skáldsögur og tvær samtalsbæk- ur, en Burðargjald greitt er hans fyrsta smásagnasafn. Hvað er það BÆKUR íþróttir TBRÍ60ÁR Saga Tennis- og Badmint- onfélags Reykjavíkur 1938-1998 eftir Ármann Þorvaldsson. Hönn- un: Kristján Kristjánsson. Ut- gefandi: Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur. Prentvinnsla: Ás- prent/POB ehf. 1999. Um 150 myndir og 246 bls. BÓKIN.TBR í 60 ár - Saga Tenn- is- og badmintonfélags Reykjavíkur 1938-1988 - verður örugglega ekki lengi til sölu og gæti þess vegna verið uppseld þegar þetta birtist, en hún er gefin út í takmörkuðu upplagi og verður aðeins seld í 400 eintökum og aðeins hjá TBR, eins og fram kemur í fréttatilkynningu. Þar segir líka að TBR sé eitt fjölmennasta íþróttafé- lag landsins með meira en 3.000 iðk- endur. Ef að líkum lætur fara margir þeirra í jólaköttinn vegna þess að því verður ekki trúað að óreyndu að þeir vilji ekki eiga fyrstu bókina um félag- ið sitt og í raun fyrstu bókina um badminton á íslandi. Hins vegar gef- ur fjöldi útgefmna eintaka sterklega til kynna að selja þurfi 400 eintök til að standa undir kostnaði - íslensk íþróttafélög geta ekki leyft sér að taka áhættu í fjármálum. Þeir sem hafa verið eða eru í íþróttum vita hvað íþróttastarfið get- ur verið ggjöfult og uppbyggilegt, hvað það getur haft góð áhrif á sam- kennd og samvinnu og verið við síðastnefnda formið sem heillar hann mest? „Mér hefur alltaf þótt sérstak- lega heillandi að reyna að koma miklu til skila í knöppu formi. Skrifa einfaldan og látlausan texta þar sem margt hangir á spýtunni. Þessar sögur eru til að mynda þannig að það borgar sig fyrir fólk að lesa þær oftar en einu sinni áður en það gerir upp við sig efni þeirra og innihald. Ekki er allt sem sýnist og ég skrifa ekki eftir einhverri einstefnu. Hið fræga stefnumót textans og lesandans þar sem skáldskapurinn fæðist er það sem allt snýst um. Sami textinn getur verið svo margbreytilegur eftir því hver nálgast hann og hvernig. Þess vegna er hann í rauninni aldrei eins.“ Skyndilega sá hann hreyfíngu í háu sölnuðu grasinu rétt við vegarkantinn framundan. í geisla bílljósanna stirndi á svartan feld sem hlykkjaðist hratt og stefndi upp á þjóðveginn. Brot úr sekúndu horfði hann í glyrnur sem glömpuðu þétt við brún malbiksins, og sam- tímis - og án þess að koma upp orði - gerði hann sér grein fyrir því að hún hafði ekki tekið eftir neinu. Hún lyfti ekki fætinum af bensíngjöfinni fyrr en hægra framhjólið hoppaði snöggt og einn tveir þrír holdkennd- ir dynkir sungu í undirvagninum. Þá saup hún hveljur, hallaði sér fram, greip fastar um stýrið, herðarnar skulfu og hún kipptist til, eins og hún ætlaði að fara að kúgast. „Hv-hvað var þetta?“ „Köttur, held ég.“ „Verðum við ekki að snúa við?“ „Nei, það tekur því varla.“ „En..." „Við missum af ferjunni.“ „... ef hann er ekki dauður?“ „Hann er það örugglega. Þú varst á það mikilli ferð.“ „Ég!“ „Fyrirgefðu, við ... Við vorum á það mikilli ferð.“ tír Burðargjald greitt skemmtilegt. Þannig hefur lífið greinilega verið í TBR í 60 ár og Ár- manni Þorvaldssyni tekst að koma því til skila með léttum og hnitmiðuð- um texta ásamt stuttum innskots- greinum um ýmis atvik, einkum í létt- ari kantinum. Hann segir í formála að hann hafi leitast við að krydda bókina með forvitnilegum og skemmtilegum sögum og þær hitta flestar vel í mark, rista jafnvel dýpra en margan grun- ar. Margt er brallað í íþróttastai'finu og gaman er að halda sögunum til haga á prenti. Ekki er unnt að rekja þær hér, en frásögnin af skapheitum badmintonmönnum í íþróttahúsi Há- skólans um miðja öldina getur átt við hvaða íþróttamenn sem er hvar sprn er á hvaða tíma sem er. Sagan af Úlf- ari Þórðarsyni augnlækni og lög- reglumanninum er dæmi um kænsku íþróttamannsins. Máttur „kommún- istans" Steinars Petersen í Moskvu er mikill og árangur Árna Þórs Hall- grímssonar í umferðinni í Hollandi sýnii- að margt er í heiminum hverf- ult. Rannsóknai’vinna höfundar skil- ar heiðursfélaga sem gleymdist og frásögn af bréfi frá Ólympíunefnd ís- lands 1939 þar sem TBR er beðið um að hafa íþróttamenn félagsins tilbúna vegna fyrirhugaðra Ólympíuleika í Helsinki 1940, sem reyndar fóru ekki fram vegna síðari heimsstyrjaldar- innar, er skondin í ljósi þess að ekki var keppt í tennis á Ólympíuleikum á þessum árum og badminton varð ekki ólympíugrein fyrr en 1992. Og svo má lengi telja en í raun hefðu inn- skotin mátt vera fleiri, því að þau eru miklu meira en gott krydd. TBR er stórveldi í íslensku bad- mintonlífi en saga félagsins er áþekk sögu annarra íþróttafélaga á sama tíma. Fyrst og fremst þrotlaus sjálf- boðavinna frumkvöðlanna við erfiðar aðstæður, ekki síst aðstöðuleysi, samt sem áður háleit markmið, mót- læti, sigrar og ái-angur erfiðisins. Ár- mann rekur söguna í annálsformi, greinir frá helstu viðburðum hvers árs í stuttu máli. I upphafi voru hús- næðismálin sett á oddinn og 1944 var farið að huga að því að byggja höll en biðin varð löng. 1972 úthlutaði borg- arráð TBR lóð á mótum Gnoðarvogs og Holtavegar og fjóram árum síðar var fimm valla badmintonhús tekið í notkun. 1987 var annað hús með 12 völlum vígt. Með bættri aðstöðu var hægt að sinna fleiri iðkendum, bama- og unglingastarfið varð stöðugt öfl- ugra og bestu keppendurnir náðu æ betri árangri. Byggingarsagan er rakin en eftir því sem á líður söguna er meira greint frá keppni og helstu keppend- um og skal engan undra þótt Öskar Guðmundsson, Haraldur Kornelíus- son, Árni Þór Hallgrímsson, Broddi Kristjánsson, Elsa Nielsen og Vigdís Ásgeii-sdóttir séu í sviðsljósinu. Sama á við um forystumennina Jón Jó- hannesson, Garðai' Alfonsson og Sig- fús Ægi Amason, en fleiri koma við sögu, jafnt innan sem utan vallar, og er margra getið. Eftir lesturinn kemur einna helst á óvart að félagið skuli jafnframt hafa verið kennt við tennis alla tíð en íþróttin hefur lengst af legið niðri í fé- laginu og tennisiðkun var hætt í TBR-húsinu 1994. Myndir hafa mikið að segja í svona bókum og hefur þess verið gætt að hafa þær nógu margar. Litmyndirn- ar á kápu hefðu mátt vera líflegri en aðrar myndir era allar svarthvítar, sem er auðvitað miður, en sem fyrr má gera því skóna að kostnaður ráði för. Allir era nafngreindir á myndun- um og greint frá hvaðan þær era fengnar og era þetta vinnubrögð til íyrirmyndar, eins og allur frágangur bókarinnar. Sami háttur hefði átt að vera á myndaopnunni frá sjálfboða- vinnu (bls. 122 og 123). í lokin er skrá yfir heimildir og nafnalisti. Það var fróðlegt og góð upprifjun að lesa þessa bók, sem er í raun ágætis handbók um sögu badmintons á Islandi til þessa, og ekki kæmi á óvart að þegar þyrfti að huga að 2. prentun. Steinþór Guðbjartsson Saga um sögu BÆKUR Smásögur KÆRA GRETA GARBO eftir William Saroyan. Óskar Árni Óskarsson þýddi. Bjartur, 1999, 124 bls. HÉR era samankomnar tólf smásög- ur af tuttugu og fimm sem gefnar vora út saman í bók í Bandaríkjunum árið 1935. Sögusviðið er San Francisco. Oft er það þó bara lítið herbergi sem viðkomandi söguper- sóna býr í og þá skiptir ytra umhverfi ekki máli. Söguhöfundurinn er þó ekki einn og sá sami í sögunum og herbergin þar af leiðandi mismun- andi. Nokkrar sögur fjalla um það hvernig er að vera smásagnahöfund- ur að störfum. Hvemig það er að sitja við og reyna að fanga efnið. En það er ýmislegt sem getui' tafið rithöfund við vinnu sína. Þar á meðal er óyfir- stíganlegur kuldi sem frystir bæði hugsun og flæði. Þrátt fyrir leikfimi- æfmgar hitnar líkaminn ekki nóg til að halda loga á hugmyndinni sem heitur kaffisopinn kveikti um morg- uninn. Uppákomur eins og stríðsyfirlýs- ing og herkvaðning herja á hugann. Rithöfundurinn þarf að há sitt stríð við óvæntar gestakomur og ski-ýtin atvinnutilboð. Stríð er aldrei auðvelt, einkum þar sem „... síðasta styrjöld fór illa með taugar rithöfunda og ... fæddi af sér ýmsar sérviskulegar bókmenntastefnur og alls kyns til- gerð og látalæti." (bls. 94). Það er ein- mitt mótsögn þessara sagna; þær era tilgerðarlegar og með látalæti en á látlausan hátt. Yfirlýsing þess efnis að þessi saga sé nú ekki um neitt sér- stakt vekja forvitni lesandans sem verður að komast að því hvort til- kynningin sé rétt eður ei. Textinn fjallar svo mikið um sjálfan sig og til- urð sína að lesandi þarf að vera vak- andi fyrir litlum setningum sem koma af stað íhugun hans sjálfs. Einfaldir hlutir eins og erindi á rakarastofu velta upp spurningum um hvort upprani og þjóðerni skipti einhverju máli. Sögupersónan í Sjöt- íu þúsund Assýríumenn er Armeni og þar sem það er fámennur þjóðflokkur heyrir það til tíðinda þegar þeir rek- ast hver á annan. Minnir óneitanlega á íslendinga í útlöndum. Söguper- sónan segist ekki hafa „... hugmynd um hvernig það er að vera Armeni eða ... Japani eða eitthvað annað. Ég hef óljósa hugmynd um hvemig það er að vera lifandi. Það er það eina sem ég hef veralegan áhuga á.“ (bls. 14). Þessi hugmynd er á skjön við sjálfsmynd okkar íslendinga sem teljum að hún markist af því að við búum á einangraðri eyju, með sér- stöku tungumáli, veðráttu og lands- lagi. Og kollvarpar í raun og veru heimsmyndinni. Og fordómum, góð- um og slæmum. En þær skýra aðlög- unarhæfni mannsins. Kynslóðin sem losar sig við ok fortíðarinnar og að- lagast. Hvar sem er í heiminum. Hef- ur áhuga á að lifa hér og nú og lifa af. Írónía en jafnframt einhver hlýja og virðing fyrir öllu lífi einkenna sög- urnar. Hversdagsleikinn er áhuga- verður, kúvending er óþörf til að vekja áhuga. Textinn er oft nokkuð hraður sem er í mótsögn við atburða- rás hans og myndar togstreitu. Sög- urnar eru flestar skemmtilegar en þó er líklega betra að lesa eina og eina í senn heldur en allai' saman því marg- ar era sjálfhverfar og þá fer nýja- brumiðafupplifiminniKr.stínólafs Forlög eða tilviljanir Páll Kr. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.