Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 33
BÆKUR
S1 y s a f r á s a g n i r
ÚTKALL í ATLANTSHAFI
A JÓLANÓTT
eftir Óttar Sveinsson.
Útlit kápu: Mátturinn & dýrðin ehf.
íslenska bókaútgáfan 1999, 207 bls.
Ógleyman-
legir atburðir
SJÖTTA bókin í flokki svokallaðra
útkallsbóka höfundarins Óttars
Sveinssonar lítur hér dagsins ljós og
nefnist Utkall í Atlantshafi á jóla-
nótt. Að þessu sinni hefur höfundur
valið sér örlagaríka atburði til að
fjalla um sem fyrr og segir frá því er
flutningaskipið Suðurland sökk 290
sjómílur austnorðaustur af Lannesi
á jólanótt árið 1986. Ellefu menn
voru um borð þegar skipið lagði af
stað frá Islandi á Þorláksmessu með
síldarfarm sem sigla átti með til Sov-
étríkjanna. Fimm þeirra komust hfs
af þegar skipið sökk og var bjargað
við illan leik þar sem danskir þyrlu-
björgunarmenn tefldu sannarlega á
taspasta vað við að bjarga þeim úr
hriplekum gúmbjörgunarbáti úti á
opnu Atlantshafi. Skipbrotsmenn-
irnir höfðust við í bátnum í óhemju
kulda, illa búnir og ekki bætti úr
skák að ekki gátu þeir hvílst með því
að leggjast út af því ískaldur sjórinn
náði þeim í hné.
Atburðir sem lýst er í bókinni eru
sannarlega ógnvekjandi og efni
hennar sem slíkt því ógleymanlegt.
Höfundur segir í formála að sam-
starfið við viðmælendur sína, sem
lýsa reynslu sinni, hafi verið afar
ánægjulegt og ekki er það að efa því
frásögn þeirra virðist tiitölulega yfir-
veguð og þeir af öllum vilja gerðir til
að segja sem nákvæmast frá - allt frá
því þegar þeir stíga um borð í Suður-
landið til þess er þeir stíga á íslenska
grund að lokinni frækilegri björgun.
Höfundurinn hefur tekið þá
ákvörðun að láta viðmælendur sína
vera í aðalhlutverid í bókinni og
halda sig til hlés að öðru leyti en því
að kynna persónur til sögunnar jafn-
óðum þegar þær segja frá tilteknum
atburði sem myndar hverja frásagn-
areiningu, t.d. hvernig skipveijar
upplifa dýfu eða högg sem kom rétt
áður en skipið sökk, þegar skipverjar
stökkva í gúmbátinn, þegar hverjum
og einum var bjargað um borð í þyrl-
una o.s.frv. Að þessu leytinu finnst
mér bókin opinbera helsta veikleika
sinn. Hvergi tekur höfundur af skar-
ið og skapar almennilega sögu held-
ur raðar frekar saman orðræðum all-
ra á rétta staði og hefur mestalla
bókina í gæsalöppum. Sú aðferð
fannst mér ekki góð. Atburðimir
sem bókin greinir frá eru stórkost-
legir og er óviðjafnanlegur efniviður
í kynngimagnaða sögu þar sem höf-
undur gæti byggt á frásögnum
þeirra sem upplifðu sjálfa atburðina
og hefði alla þræði í hendi sér. Það
sem við blasir í bókinni endurspeglar
ekki slík efnistök heldur frekar frá-
sagnartorg þar sem margir ólíkir að-
ilar hittast og rifja upp liðna tíma.
Þannig rata hinir stórkostlegu at-
burðir á prent og mynda nákvæma
mynd af Suðurlandsslysinu en ekki
kjarngóða sögu sagða af sterkum
sögumanni. Víða hefði ég óskað að
höfundur hefði dregið frásagnir
margra aðila af sama andartakinu
saman í nokkrar lipurlegar hending-
ar í stað þess að láta viðmælenduma
hvem af öðmm endurtaka í grófum
dráttum það sem síðasti ræðumaður
sagði. Kannski er þetta gert til að fá
ólík sjónarhorn á sama atburðinn en
gildi þeirra efnistaka hefur þá alveg
farið fi'am hjá mér.
Stíllinn í bókinni fannst mér ekki
upp á marga fiska því víðast hvar er
beitt hliðskipun hvort heldur sem er í
beinum tilvitnunum í viðmælendur
eða inngripum höfundar. Langflest-
ar setningamar em með öðmm orð-
um of stuttar fyrir minn smekk og
samtengingar í öllum sínum fjöl-
breytileika em sjaldan notaðar sem
er miður. Þess í stað er valin sú leið
að setja þeim mun fleiri punkta og
byrja því næst á nýrri setningu:
„Klukkan var farin að ganga tólf.
Ame Fröge sigmaður var kominn
um borð í þyrluna. Hann rýndi út í
sortann. Skyggnið var afar takmark-
að.“ (91)
I bókinni er sagt frá frétt í bresku
dagblaði um að breskur njósnakaf-
bátur hafi elt risastóran sovéskan
kjarnorkukafbát sem samkvæmt
fréttinni sigldi undir Suðurlandinu
svo rafeindabúnaður í 1.800 metra
löngum hlustunarkapli breska báts-
ins næði ekki til hans. Svo óheppilega
vildi til að þegar Suðurlandið sökk
marðist kapall breska kafbátsins á
hafsbotni, með þeim afleiðingum að
Morgunblaðið/Asdís
Guðmundur Guðlaugsson, Gunnsteinn Ólafsson og Þórunn Sigurðar-
dóttir undirrita samning um Þjóðlagasetur á Siglufirði.
Samningur um Þjóðlaga-
hátíð á Siglufírði
SIGLUFJARÐARBÆ, Félag um
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þor-
steinssonar á Siglufirði og
Reykjavík, menningarborg
Evrópu 2000, hafa undirritað
samning vegna þjóðlagahátíðar
sem haldin verður í Siglufirði
dagana 19.-23. júlí næstkomandi.
Á hátíðinni verður kynnt allt það
helsta sem tengist islenskum þjóð-
lagaarfi, allt frá þjóðlögum,
rímnalögum og vikivakadönsum
til smíði fornra hljóðfæra. I frétta-
tilkynningu segir að hátiðin standi
yfir í fimm daga og munu færustu
menn, hver á sínu sviði, halda fyr-
irlestra og stýra námskeiðum auk
þess sem boðið verður upp á
fjölda tónleika og sýninga.
Þjóðlagahátíðin er fyrsta skref-
ið til uppbyggingar Þjóðlagaset-
urs séra Bjarna Þorsteinssonar á
Siglufirði. Séra Bjarni var prestur
á Siglufirði í áratugi og var auk
þess afkastamesti þjóðlagasafnari
þjóðarinnar. Hann stjórnaði einn-
ig uppbyggingu sfldarbæjarins á
fyrstu áratugum aldarinnar.
Ætlunin er að finna þjóð-
lagasetri sr. Bjarna stað í húsi
sem tengist minningu hans og
bjóða upp á lifandi flutning þjóð-
legrar tónlistar. Þar verður einn-
ig stundað fræðslu- og rannsókna-
starf, auk þess sem reglulegar
þjóðlagahátíðir fara fram í bæn-
um.
FRAMSÆKXI ALÞ.IÓDA IILFTAIJREFAS.IODrRIX.\
kafbáturinn lá þar fastur í ellefu
daga en sá sovéski komst hins vegar
undan. Höfundur bókarinnar hringdi
í John Hodgkins, yfirlautinant hjá
breska vamarmálaráðuneytinu,
„þegar hann var að leggja lokahönd á
bókina" og spurði Hodgkins hvort
fréttin í breska dagblaðinu væri rétt.
Svarið var já. Islensk stjórnvöld
fengu hins vegar ekki varnarmálar-
áðuneytið til að segja sér að fréttin
væri rétt þegar þau hringdu í ráðun-
eytið. Þetta varð fréttaefni í haust í
íslenskum fjölmiðlum og vakti verð-
skuldaða athygli á bókinni. Hefði
ekki líka verið merkilegt að rejma að
rannsaka hvort Suðurlandið hefði í
raun rekist á sovéskan kafbát og
sokkið af þeim sökum, samhliða því
að staðfesta gamlar fréttir? Það
hefði svo sannarlega verið merkileg
rannsóknarblaðamennska sem vel
hefði átt heima á bók að mínu mati.
Skipbrotsmenn segjast hafa séð
torkennileg ljós þegar þeir voru
komnir um borð í gúmbjörgunarbát-
inn sem einn þeirra staðhæfði að
kæmu frá kafbáti en höfundur segir í
formála sínum að í viðtölunum komi
fram óvæntar upplýsingar um atriði
sem enn eru óútskýrð í sambandi við
atburðinn. Ég geri ráð fyrir að höf-
undur eigi þar við kafbátatilgátuna
óútskýrðu. Spurningunni um hví
Suðurlandið sökk er því enn ósvarað
með óyggjandi hætti en kannski var
það ekki tilgangurinn með bókinni.
Synt til Islans er heiti stuttrar
sögu, sem hnýtt er aftan við frásögn-
ina af Suðurlandsslysinu. Þar er sagt
frá tveim konum sem fljúga á eins
hreyfils fjögurra sæta ílugvél til ís-
lands frá Skotlandi en lenda í því að
verða bensínlausar rétt áður en þær
ná Islandsströndum. Vélin brotlenti í
hafinu og konurnar björguðust í
land, þar af önnur af sjálfsdáðum.
Hin konan velktist um í sjónum í
tvær klukkustundir áður en henni
var bjargað og átti líf sitt að launa ís-
lendingum.
Frásögn af atburðum er mjög ná-
kvæm og heimildagildi textans óefað
mikið og í því liggur meginstyrkur
frásagnarinnar. Þau „heljartök“ sem
sagt er á aftari bókarkápu að höfund-
ur nái á lesandanum skildu samt ekki
eftir sig stóra marbletti þrátt fyrir ít-
arlega leit að loknum lestri.
Örlygur Steinn Sigurjónsson
Nýjar plötur
• 3 PÍRAMÍDAR hefur að geyma 7
raftónverk eftir Jóhann G. Jóhanns-
son.
I innsiðu á plötuumslagi segir höf-
undurinn m.a. „Snemma árs 1995
hóf ég að vinna myndverk sem ég
kallaði Tindaseríu, þriggja mynda
seríur sem byggja á formi þríhyrn-
ings. Haustið 1995 hóf ég svo nám í
Tónveri Tónlistarskóla Kópavogs
þar sem hugmyndin að verkinu 3
pýramídar kviknaði út frá þeim
möguleika að hægt er að sjá tónlist
sem grafískt form á tölvuskjá. Eftir
nokkra tilraunastarfsemi ákvað ég
að vinna tónverk með aldamótin í
huga sem byggðist á þremur sjálf-
stæðum þáttum; Framtíð, Nútíð og
Fortíð. Hver þáttur er hugsaður
sem sjálfstætt verk sem í samtímis
flutningi mynda eina heild. Hug-
myndin að baki er vegferð okkar í
tíma og rúmi; það sem er, var og
verður. Þríhyrnt form hvers þáttar
er byggt upp af 16 mismunandi
röddum (hljóðum) og er leitast við
að skapa tilfinningu fyrir hæð,
breidd og dýpt.
Jólatilboð
CDD-BSS
Allt að 130 númera minni
Þar af 50 með nafni
Blikkljós, valhnappur
Tlmamæling
Getur geymt útfarandi númer
Islenskar leiðbeiningar og merkingar
Á vegg eða borö
Jólatilboð
JDD-E000
Allt aó 150 númera minni
Þar af 50 með nafni
Blikkljós, valhnappur
Timamæling samtala
Getur geymt útfarandi númer
23 skammvalsminni, hátalarí
Islenskar leiöbeiningar og merkingar
Á vegg eða borð
1‘MiIil
stgr.
Jólatilboð
TDD-1000
30 númera minni
Blikkljós, valhnappur
Tímamæling samtala
3 skammvalsminni
Islenskar leiðbeiningar og merkingar
Á vegg eða borð
!!ETil
stgr.
CDD-HD03
Jólatilboð
m
30 númera minni
Tímamæling samtala
Blikkljós, valhnappur stgfT
islenskar leiðbeinmgar og merkingar
Á vegg eða borð
fiíste l
Sfðumúla 37 - S. 588-2800
ALÞ.IODA 11Ll’TABREFAS.IODITRIXX
80,6% 46,4%
Ilækkún sjóf\sins ira stoí'nnn hnns 10. tles. ÍOOS miO.iO við 1. tles. 1000
ÍL'ekkun sjóðsins lV;i stotnnn h.ins 20. nov. 1008 miðnð við 1. des. 1000
/ x • <
OKKAR SERFRÆÐINGAR - ÞIN AVOXTUN
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Hafnarstræti 5 • sími 525 6060 • fax 525 6099 • www.bi.is • verdbref@bi.is