Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 39 I aðdrag- andajóla NÚ þegar jólin eru alveg að koma og flestir fara að kaupa mat og jóla- gjafir til þess að gleðja sjálfa sig og aðra, verður mér hugsað um kjör ör- yrkja, elllífeyris- þega og láglauna- fólks, sem ekki geta glatt sjálfa sig og aðra með dýrum jól- asteikum og jóla- gjöfum. Það er ein- faldlega staðreynd að fólkið sem er á lægstu laununum, láglaunafólk og lí- feyrisþegar, sitja ekki við sama borð og sömu kjör og meirihluti þjóðarinnar. Þetta ætti öllum að vera fullljóst sem hafa réttlætist- ilfinningu og innsýn í þjóðfélagið. Það er því miður grátleg staðreynd að ráðamenn þessa lands ei’u ekki læsir á þjóðfélagið og vilja ekki viðurkenna þá staðreynd að hér í öllu „góðærinu" hefur stéttarskipt- ing og launamisrétti stóraukist. Það er núverandi ríkisstjórn sem hefur skapað þennan vanda að hluta til, en hann var til staðar fyr- ir valdatöku hennar. Það sem gerst hefur í öllu „góðærinu“ er einfaldlega það, að þeir sem eiga peninga og hafa látið þá vinna fyr- ir sig, hafa stórgrætt á núverandi þjóðfélagsástandi. Alþingi til skammar Ég verð að minnast í þessari grein á þær umræður sem hafa verið á Alþingi og öllu þjóðfélag- inu, nú rétt fyrir jólin um álver og virkjanir. Ég er ekki með þessu að gera lítið úr þeim aðilum sem hafa verið að tala um virkjanir og álver eða skoðunum þeirra. Ég er alveg undrandi á öllum þeim tíma sem farið hefur í það á Alþingi og fjölmiðlum að ræða há- lendismálið og væntanlegt álver. Það hefur ekki verið hægt að opna fyrir útvarp, sjónvarp eða skoða blöðin að undanförnu, vegna þess að það hefur bara eitt mál nánast verið á dagskrá, það er fyrrgreint mál. A Alþingi Islendinga hefur nán- ast ekki verið rætt um annað und- anfarnar vikur og daga, en um ál- ver og hálendið. Ég spyr sjálfan mig og aðra; er þetta mál mál- anna? Þriðjudaginn 7. desember sl. fór fram utandagskrárumræða á Al- þingi íslendinga um kjör öryrkja. Hún stóð í einn klukkutíma, 60 mínútur. Ég spyr: Tekur það ekki nema einn klukkutíma að ræða hin raunverulegu vandamál sem ör- yrkjar standa frammi fyrir? Þessi umræða sem fram fór 7. desember er Alþingi til skammar, svo ekki sé fastara að orði kveðið. A sama tíma og verið hafa mara- þonumræður á Alþingi um fytT- gi'eint álver tekur ekki nema einn klukkutíma að ræða vanda öryrkja og þau hrikalegu kjör sem þeir búa við og verða að sætta sig við. Ef alþingismenn vilja láta taka sig alvarlega verða þeir að taka málefni fátæks fólks, öryrkja og annarra á dagskrá og ræða það á raunhæfan og sanngjarnan hátt. Það hlýtur, sem fyrr segir, að þurfa meira en einn klukkutíma í þá umræðu. Gjaldtakan eykst sífellt. í öllu „góðærinu" hafa kjör ör- yi-kja nánast staðið í stað og þær hækkanir sem þeir hafa fengið eru svo smánarlegar að það er varla hægt að kalla það hækkanir, ekki síst vegna þess að gjaldtökur í heilbrigðiskerfinu hafa hækkað margar hverjar um tugi prósenta, og allflestar svokallaðar smærri að- gerðir eru fram- kvæmdar á einkastofum og þess vegna þurfa all- ir sjúklingar að greiða fyrir þær, öllum þessum minni aðgerðum hefur verið komið út af sjúkrahúsum. Þetta hef- ur komið hvað verst nið- ur á öryrkjum og þeim sem eiga við langvar- andi veikindi að stríða. Þetta er málefni sem Alþingi ætti að ræða og það alvarlega. Kröfur öryrkja í komandi kjarasamningum verður verkalýðshreyfingin að krefjast þess að lægstu launin og örorkubætur verði hækkuð veru- lega. Sanngjarnt er að lágmar- kslaun og örorkubætur verði 100.000 kr. á mánuði og ennfremur að þessi lágu laun og bætur verði Láglaunafólk ✓ I öllu „góðærinu“, segir Þórir Karl Jónasson, hefur stéttaskipting og launamisrétti stórauk- ist. skattfrjáls. Það getur heldur ekki gengið að þeim öryrkjum sem eiga maka sé refsað fyrir það eins og núverandi tekjutengingar eru. Þetta er mikið sanngirnismál og vona ég að verkalýðshreyfingin sinni þeirri frumskyldu sinni og berjist fyrir þessum sanngjörnu kröfum, einnig er það mikið rétt- lætismál að afnema skatt á húsa- leigubætur. Það er sanngirnis- og réttlætis- mál að afnema skatt á húsaleigu- bætur, sem kosta ríkissjóð mjög litla upphæð. Þetta eru sanngjarn- ar kröfur, ekki síst þegar mið er tekið af því hvað þingmenn, ráð- herrar og stór hluti af embættis- mönnum fengu í launahækkanir fyrir skemmstu, eins og flestir muna. Ráðamenn ekki læsir á samfélagið í fyrrgreindum kröfum er verið að minna ráðamenn þessa lands á að þau kjör sem láglaunafólk og öryrkjar búa við. Þessi kjör geta ekki gengið mikið lengur. Því eins og fyrr segir hefur launamisrétti og stéttaskipting verið að stórauk- ast allan þennan áratug. Þessi þró- un getur ekki gengið svona áfram. Það er hér á Islandi nóg til skipt- anna þó svo að sumir vilji ekki við- urkenna það. Sú einfalda hagfræði sem ég nota við að reikna það út að nóg sé til skiptanna er það gríðarlega fjármagn sem er hér í umferð á verðbréfamörkuðum og allt það fjármagn sem er í umferð. Ráða- menn þessa lands geta ekki komið fram fyrir almenning aftur og aft- ur og sagt að það sé ekki nóg til skiptanna. Þessir ráðamenn eru ekki læsir á samfélagið og ég vona að íslensk- ir kjósendur sýni fulltrúum sínum það í næstu alþingiskosningum að svona getur þetta ekki gengið endalaust. Ég vil að lokum óska öllum gleðilegra jóla, þó að ég viti að jólin verði ekki jafn gleðileg hjá öllum, sökum þeirrar fátæktar sem er því miður staðreynd hér. Höfimdur cr varaformaður Leigjendasamtakamm. Þórir Karl Jónasson Gagnrýni gagnrýnd ÞAÐ fylgir því all- nokkur ábyrgð að vera gagnrýnandi á menn- ingu og listir, enda krefst sú iðja þess að gagnrýnandinn byggi hlutlaust mat sitt á þekkingu, innsæi og rökstuðningi. Lesend- ur og listamenn eiga kröfu á að ritstjórar út- hluti verkefnum til gagnrýnenda af skyn- semi, þannig að gagn- rýnendur fái verkefni við hæfi og lendi ekki í því að leggja mat sitt á viðfangsefni sem þeim hrýs hugur við. Gagn- rýnandinn má ekki einvörðungu láta áunninn smekk ráða för. Þegar gagnrýnendui- neyðast til að leggj- ast á sveif með því sem þeir „fíla“ best og stjórnast af smekkvísi sinni einni saman, er engu líkara en bæði greind og þroska skorti. Þá er ekki spurning um það hvort einhver til- tekin plata hlýtur góða dóma, heldur hvenær. Innan hverrar tónlistar- stefnu þarf að leggja mat á það hvaða tónlist og hvaða verkefni hæfa hverjum gagnrýnanda að rýna í. Stefnur og straumar í tónlist eru af ýmsum toga og áhugasviðin mis- munandi. Góður gagnrýnandi þarf að vera hlutlaus, hann þarf að fá verkefni við hæfi og ekki sakar að menntun styðji við bak. Undanfarin ár hefur ritað í dag- blöð Gunnar nokkur Hjálmarsson, sjálfmenntaður doktor í tónlistar- gagnrýni, fyrrverandi bankastarfs- maður og bassaleikari í hljómsveit- inni „Svart hvítur draumur" og síðar í hljómsveitinni „Unun“. Gunnar þessi hefur undanfarin misseri vaðið á súðum í helgarkálfi í DV, Fókus. Og er eitt af nýrri afrek- um hans, gagnrýni sem hann reit um geislaplötu hljómsveitarinnar Gildrumezz, þar sem hljómsveitin leikur sér að því að rokka til hin sí- vinsælu lög John Fogerty og hljóm- sveitarinnar Creedence Clearwater Revival. Dómur Gunnars birtist í Fókus 11.12 sl. Greinilegt er að Gunnar hefur lítið lagt sig eftir að hlusta á plötuna, sem er skiljanlegt þegar tekið er til- lit til þess, að hann hefur engan áhuga á þessari tegund tónlistai-. Áhuga hafa hins vegar margir, því platan hef- ur selst ágætlega og mæting á dansleiki og tónleika hljómsveitar- innar hefur verið með slíkum ágætum síðast- liðið ár að eftir hefur verið tekið. Gagnrýni Gunnars einkennist af undar- legri blöndu af háði og næstum sjúklegum til- raunum til að reyna að lítillækka þá menn og það verk sem hann neyddist tO að hlusta á. Þetta hefur að vísu einkennt stíl hans sem gagnrýnanda frá upphafi. Og þó les- endur sem og tónlistarmenn hafa vænst framfara hjá honum, þá virð- ast þær vonir á veikum grunni reist- Tónlistargagnrýni Það er dagblöðum til vansa, segir Sigurgeir Sigmundsson, fái gagn- rýnendur að upphefja einn hóp tónlistarmanna á kostnað hins. ar. Gunnar hefur greinilega gaman af ákveðnum tegundum framsæk- innar rokktónlistar (eins og fyrir- mynd Gunnars, Arni Matthíasson og hans lærisveinar), og heldur Gunnar vart vatni yfir ýmsum jaðarhljóm- sveitum, meðan hljómsveitir eins og Skítamórall, Buttercup og Land og synir verða fyrir óverðskulduðu skítkasti. Þegar ég tala um óverð- skuldað skítkast, á ég við að Gunnar virðist ekki gera greinarmun á því á hvaða markaði menn starfa og hvernig þeir reyna að ná athygli fjöldans. Greinar Gunnars um þess- ar hljómsveitir og aðrar slíkar, á undanförnum árum, hafa lýst van- þóknun og fyrirlitningu hans á popp- og danstónlist, á þeim tónlistar- mönnum sem starfa á dansleikja- markaðnum og framleiða afþreying- artónlist fyrh' almenning. Sama má segja um einn helsta aðdáanda Gunnars til skamms tíma og kollega, Árna Matthíasson á Morgunblaðinu. Staðreyndin er sú að hljómsveitir á borð við Skítamóral, Land og syni, Stjórnina, Stuðmenn, SSSól og fleiri, eru stór þáttur í íslensku tónl- istarlífi, og hafa þessar hljómsveitir meiri spilun á íslensku útvarps- stöðvunum og selja meira af tónlist hérlendis, en jaðarhljómsveitir þær sem Gunnar hampar. Jaðarhljóm- sveitirnar eiga þó engu að síður heiður skilið fyrir framtak sitt og elju, því það er virðingarvert þegar menn stefna ótrauðir að settu marki með tónlistarsköpun sinni. En það er þessi staðlaða, gelda og fyrirfram ákveðna, gerilsneydda nálgun sem gerir það að verkum að Gunnar og hans líkir eru ekki færir um að gagnrýna það sem smekkur þeirra þolir ekki. Hvert sem tónlist- armenn stefna, eiga þeir heiður skil- ið og ekki á að draga menn í dilka þótt þeir fari ekki í einu og öllu að duttlungum þröngsýnna gagnrýn- enda. Það er íslenskum dagblöðum til vansa ef nokkrir valinkunnir, svo- nefndir tónlistargagnrýnendur fá að stunda þann ljóta leik að upphefja einn hóp tónlistarmanna á kostnað » hins. Með „ofurskrifum“ og „ofur- hóli“ um ákveðna tónlistarmenn, strauma og stefnur hafa tónlistar- gagnrýnendur, lausir við faglegt mat og án rökstuðnings, hælt þeim sem þeir „fíla“, um leið og þeir hafa hundsað aðra, og þá gjarnan vinsæl- ustu popptónlistarmenn þjóðarinn- ar. Afleiðingin af þessari einörðu haftastefnu er sú að tónlistarmenn eru farnir að forðast að fara með af- urðir sínar til blaðanna, og er það miður. Það er greinilegt af rætnum skrifum Gunnars Hjálmarssonar um " tónlistarmenn, að hann er aðeins stytt vasaútgáfa af þeim doðranti sem hann langaði að verða. Og hér er við hæfi að lokaorð verði í rætn- um stíl doktorsins: Þegai' fram líða stundir kemur íslenska þjóðin ýmist til með að minnast Dr. Gunna sem riðvaxna karlsins sem söng Prumpu- lagið, eða gagnrýnandans sem vissi ekki um hvað hann var að skrifa. Margur hefur hlotið minna hól fyrir meiri vinnu. Höfundur er gítarleikari. Sigurgeir Sigmundsson ÞAÐ er guðsþakkar- vert hvað íslendingar eru fljótir að bregðast við þegar á þarf að halda. Það verður að viðurkennast, að sú er þetta ritar gerði sér ekki ljóst, að grein sem birtist sl. föstudag hér í blaðinu myndi vekja svo sterk og almenn við- brögð, sem raunin varð. Síðustu viku hefur jóla- undirbúningur verið einstakur, ég hef ekki nokkum tíma reynt annað eins. Fleiri en ég hef tölu á hafa haft sam- band og leitað ráða um hvemig best væri að verða að liði og sumir hafa verið ótrúlega rausnarleg- ir. Við þessar aðstæður finnur maður sig skuldbundinn öllu þessu góða fólki og finnur nauðsyn þess að axla ábyrgðina áfram, ábyrgðina á því, að um- ræðan og aðgerðimar falli ekki, falli eins og sápukúlan til jarðar og ekkert verði eftir. Ég mun leita liðsinnis til þess. Þið þekkið öll sög- una um skítugu bömin hennar Evu, bömin sem ekki vora nógu fín til að hitta Drottin er hann kom í heimsókn. Látum það ekki verða hlut- skipti nokkurs bams. Sú eða sá, sem sendi nafnlaust jólakort í dag þekkti það hlutskipti og sagði: „Áskoranin til nákominna, því miður þörf og ábend- ing um ábyrgð feðra nauðsyn. Þetta andlega og mikla tilfinningalega álag auk ofkeyrslu í vinnu utan heimilis og innan þekkja allar einstæðar fyrir- Hjálparstarf Þið þekkið öll söguna um skítugu börnin hennar Evu, segir Þórey Guðmundsdóttir. Látum það ekki verða hlutskipti nokkurs barns. vinnur. Félagslega afskiptaleysið er VERST.“ Ég þakka þér og öllum ykkur hin- um. Höldum áfram að bæta kjör r barna bæði efnalega, tilfinningalega og andlega, þau eiga skilið tvo for- eldra, móður og föður. Stöndum sam- an um það. Guð veri með ykkur á heil- ögum jólum og endranær. Höfundur er prestur og félags- ráðgjafi, Mosfellsbæ. Þakkir Þórey Guðmundsdóttir Skólavörðustíg 35, sími 552 3621. Áttu eftír að fá þér aldamotafötín? Ótrúlegt úrval samkvæmísefna fyrír dömuna og herrann. g- w VIRKA Mörkin 3. sími 568 7477

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.