Morgunblaðið - 23.12.1999, Page 48
*f8 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
KARL ANDRÉS SIGURGEIRSSON,
Melrakkanesi,
Djúpavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn
20. desember.
Kveðjuathöfn verður í Hafnarkirkju, Hornafirði,
þriðjudaginn 28. desember kl. 15.00.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. desember
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á slysavarnafélögin á Höfn og
Djúpavogi.
Þórunn Margrét Ragnarsdóttir,
Guðjón Björgvin Karlsson,
Ragna Sigurbjörg Karlsdóttir, Gísli Stefán Karlsson,
Oddur Sigurgeir Karlsson,
Karl Andrés Gíslason,
Bryndís Rún Gísladóttir,
Július Geir Gíslason.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL HRÓARJÓNASSON,
frá Hróarsdal,
lést á öldrunarlækningadeild Landakots þriðju-
daginn 21. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jónas Pálsson, Þórunn Skaftadóttir,
Lilja Pálsdóttir, Pétur Ársælsson,
Sigríður Pálsdóttir, Reynir Sigurðsson,
Hróar Pálsson, Kristín Guðmundsdóttir,
Heiðbjört Pálsdóttir,
Hallfríður Pálsdóttir, Árni Þórður Jónsson,
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐLAUG INGUNN EINARSDÓTTIR,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
21. desember.
Jarðsungið verður frá Neskirkju fimmtudaginn
30. desember kl. 15.00.
Smári Einarsson, Guðrún Halldórsdóttir,
Guðjón Á. Einarsson, Elín Guðmundsdóttir,
Jón Ingi Einarsson, Olga A. Björnsdóttir,
Einar Dagur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÞÓR ÓSKAR SÆMUNDSSON,
frá Þórunúpi,
lést á Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn
21. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Gunnar Sigurþórsson, Sigurdís Baldursdóttir,
Sigurður Sigurþórsson, Helga Baldursdóttir,
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, Ágúst Eyjólfsson,
Sæmundur Sigurþórsson, María Einarsdóttir,
Guðbjörg Sigurþórsdóttir, Jóhann Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
vinur,
JÓHANNJÓNSSON,
lést á St. Jósefsspítala mánudaginn 20. des-
ember.
Jarðsungið verður frá Víðistaðakirkju miðviku-
daginn 29. desember kl. 13.30.
Ólafur Jóhannsson,
Jóna María Jóhannsdóttir,
Sigurður Jóhannsson,
Kristín Sigurjónsdóttir,
tengdadóttir, barnabörn
og barnabarnabarn.
Safnaðarstarf
Þýsk lútersk
jólaguðs-
þjónusta
ÞYSKA lúterska jólaguðsþjónustan
verður 24. desember kl. 14:00 í Dóm-
kirkjunni. Séra Gunnar Kristjánsson
messar og þýski sendiherrann, dr.
Reinhard Ehni, flytur jólaguðspjallið.
Annan í jólum, 26. desember, kl.
17:00, mun séra Jiirgen Jamin annast
þýska kaþólska messu í Landakots-
kirkju.
(Der deutsche evangelische
Weihnachtsgottesdienst wird am 24.
Dezember um 14:00 Uhr in der Dóm-
kirkja von Pastor Gunnar Kristjáns-
son gehalten. In diesem Jahr wird der
Botschafter der Bundesrepublik
Deutschland, Herr Dr. Reinhard
Ehni, das Weihnachtsevangelium les-
en.
Der deutsche katholische Gottes-
dienst wird von Kaplan Jiirgen Jamin
am 26. Dezember um 17:00 Uhr in der
Landakotskirkja gehalten.)
Jól og áramót
í Hallgríms-
kirkju
FJÖLBREYTT helgihald og tón-
leikar verða í Hallgrímskirkju um jól
og áramót.
Hátíðin hefst með aftansöng á að-
fangadag kl. 18, þar sem séra Jón
Dalbú Hróbjartsson mun prédika og
þjóna fyrir altari og Kór Menntaskól-
ans við Hamrahlíð og Hamrahlíðai--
kórinn syngja undir stjóm Þorgerðar
Ingólfsdóttur.
Miðnæturguðsþjónusta verður síð-
an kl. 23.30, þar sem Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur undir stjóm
Harðar Áskelssonar. Prestur er séra
Sigurður Pálsson.
Þá era hátíðarguðsþjónustur á
jóladag kl. 14 og annan jóladag kl. 11.
Þriðjudaginn 28. des. kl. 20 verða
síðari jólatónleikar Mótettukórsins
undú stjórn Harðar Áskelssonar.
Með kórnum syngja og leika Marta G.
Halldórsdóttir sópran og Sigurður
Flosason saxófónleikari. Daginn eftir,
miðvikudaginn 29. des., kl. 20 mun
Unglingakór Hallgrímskirkju ásamt
Unglingakór Selfosskirkju syngja
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 ’ Sími 568 8055
wwvi.islandia.is/kerfisthroun
þætti úr Ceremony of Carols eftir
Benjamin Britten undir stjóm þeirra
Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugs-
dóttur og Margrétar Bóasdóttur. Að
tónleikunum loknum verður sunginn
náttsöngur.
Á gamlársdag kl. 17 hefjast Hátíð-
arhljómar við áramót þar sem þeir
leika Ásgeir H. Steingrímsson og Ei-
ríkur Öm Pálsson trompetleikarar
ásamt Herði Áskelssyni organista. Að
þeim loknum, kl. 18, hefst aftansöng-
ur. Prestur er séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson og organisti Hörður Ás-
kelsson. Hálfri klukkustund eftir
miðnætti, kl. 00.30, verður bænastund
með biskupi Islands, herra Karli Sig-
urbjörnssyni, og prestum kukjunnar.
Tónlistarflutningm- verður í umsjá
Harðar Áskelssonar. Kirkjan verður
opin frá kl. 00.15.
Árinu 2000 verður fagnað við hátíð-
arguðsþjónustu á nýársdag kl. 14. Þar
mun Mótettukórinn syngja undir
stjóm Harðar Áskelssonar. Prestur
er séra Sigurður Pálsson. Kl. 17 þenn-
an sama dag verður bænastund fyrir
friði með biskupi, herra Karli Sigur-
bjömssyni, og Röddum Evrópu, kór
menningarborga Evrópu. Stjórnandi
hans er Þorgerður Ingólfsdóttir.
Daginn eftir, 2. janúar, er guðs-
þjónusta kl. 11. Séra Kristján Valur
Ingólfsson prédikar og þjónar ásamt
séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Org-
anisti er Ágúst Ingi Ágústsson.
Opið er sem hér segir í Hall-
grímskirkju yfír jól og áramót:
Á aðfangadag verður Hallgríms-
kirkja opnuð klukkan 16:45 vegna aft-
ansöngs og klukkan 22:45 vegna mið-
næturguðsþjónustu sem hefst
klukkan 23:30. Á jóladag og annan
dag jóla verður opnað klukkustund
fyrir auglýstar gúðsþjónustur og á
gamlársdag er opnað klukkan 16.
Sérstök athygli er vakin á því að
vegna bænastundar á nýársnótt sem
hefst klukkan 00:30 verður opnað
klukkan 00:15. Á nýársdag er opnað
klukkan 13:00 og sunnudaginn 2. jan.
verður opið 10-14. Lokað verður í
kirkjunni mánudaginn 3. janúar. All-
ar frekari upplýsingar um hvenær
kirkjan er opin svo og um athafnir yf-
ir hátíðina má fá í síma 510-1000.
Tónlistarflutn-
ingur á jólum
í Hafnar-
fjarðarkirkiu
Jólum verður vel fagnað íHafnar-
fjarðarkirkju á 85 ára afmæli hennar.
A aðfangadagskvöld 24. desember fer
bæði fram aftansöngur kl. 18.00, en
þá syngur fullskipaður kór kirkjunn-
ar undir stjórn Natalíu Chow, en
hann telur um 40 manns.
Eins og undanfarin þrjú ár verður
boðið upp á miðnæturguðsþjónustu í
Hafnarfjarðarkirkju á jólanótt. Hefst
guðsþjónustan kl. 23.00. Þessi mið-
næturguðsþjónusta er með einföldu
sniði og byggist á enskum aftansöng á
jólum. Jólasálmar era sungnir og
textar lesnir úr ritningunni er tengj-
ast jólum og spádómum um fæðingu
Jesú. Ætlunin er að bjóða upp á ljúfa
stund þar sem öll fjölskyldan getur
notið friðai- jólahátíðarinnar. Að
þessu sinni munu félagar úr karla-
kómum Þröstum syngja og leiða
safnaðarsöng undir stjóm Jóns Krist-
ins Cortes. Prestur er sr. Þórhallur
Heimisson.
Við hátíðarguðsþjónustu á jóladag
25. desember kl. 14.00 syngur Þórann
Sigþórsdóttir einsöng. Við fjölskyldu-
guðsþjónustu annan dag jóla 26. des-
ember syngur Kór Flensborgarskóla
undir stjórn Hrafnhildar Blomster-
berg.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Helgistund í
Austurstræti
Á Þorláksmessukvöld verður opið
hús í Loftstofunni í Austurstræti 20.
Þar rekur miðbæjarstarf KFUM&K
kaffihús fyrir ungt fólk. Þangað eru
allir velkomnir í smákökur og kakó.
Þar verður Ijúf stemmning og gott
spjall. Kl. 22:00 verður síðan helgi-
stund fyrir utan Loftstofuna. Jóla-
guðspjallið verður flutt og léttsveit
Kvennakórs Reykjavíkur syngur
nokkur jólalög. Stjórnandi kórsins er
Jóhanna Þórhallsdóttir. Gefum okkur
stund í miðbænum til að næra sálina
fyrir hina helgu hátíð.
Starfsfólk í miðbæjar-
starfi KFUM & K.
Laugarnes-
kirkja reiknar
með börnunum
um jólin
OKKUR langar að vekja athygli á
því að á aðfangadegi kl. 16, þegar
spennan nálgast hámark í ungum sál-
um, verður samvera í Laugames-
kirkju sem ber heitið „Jólasöngvar
bamanna“. Þar verður jólaguðspjallið
sviðsett undir stjóm Hrandar Þórar-
insdóttur, söngvar sungnir við undir-
leik Gunnars Gunnarssonar og svo
mun sr. Bjami Karlsson ræða við
Beyeni Gallassie frá Konsó í Eþíópíu
og forvitnast fyrir hönd krakkanna
um það, hvemig jólin era hjá bömun-
um í heimalandi hans.
Annan dag jóla kl. 14 verður svo
haldinn sunnudagaskóli með hátíðar-
brag í kirkjunni. Þar syngur Drengja-
kór Laugameskirkju, jólasagan verð-
ur endursögð með myndum og helgi
jólanna lifuð í söng og bæn.
Hvetjum við foreldra til að nýta
þessi góðu tækifæri fyrir bömin og
gefa þeim innihaldsríka samveru í
kirkjunni á helgri hátíð.
Prestur og starfsfólk
Laugameskirkju.
Menningarkvöld
í Þorlákskirkju
JÓNAS Ingimundarson leikur á pía-
nó á menningarkvöldi í Þorlákskirkju
þriðjudagskvöldið 28. desember kl.
20.30. Haukur Ingi Jónasson guð-
fræðingur flytur hugleiðingu og sókn-
arprestur flytur ávarp í upphafi og
lýkur stundhmi með bæn og blessun.
Állir nær og fjær era að sjálfsögðu
velkomnir.
Aðgangur er ókeypis en gestum
verður boðið upp á það að leggja ein-
hverju góðu málefni lið.
Dómkirkjan. Þorláksmessa kl.
12.10. Þorlákstíð. Léttur hádegis-
verður á eftir. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson.
Digraneskirkja. Kl. 18 bænastund.
Fyrirbænarefnum má koma til prests
eða kirkjuvarðar.
Kópavogskirlq'a. Kyrrðai- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbænar-
efnum má koma til prests eða kirkju-
varðai’.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffl eftir athöfn. Biblíu-
lestur kl. 21.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 18 kyrrðar- og bænastund. Beðið
fyi'ir fólki með jólakvíða.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam-
koma í umsjón Hallelújakórsins. Allir
hjartanlega velkomnir.
Hvammstangakirkja. Kapella
Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi- og
bænastund í dag kl. 17. Fyrirbænar-
efnum má koma til sóknarprests.