Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
&5Q)J ÞJOÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiSið kt. 20.00
GULLNA HLIÐIÐ — Davíð Stefánsson
Fmmsýning annan í jólum 26/12, uppsett, 2. sýn. þri. 28/12, uppseit, 3. sýn. mið. 29/12,
uppsett, 4. sýn. mið. 5/1, örfá sæti laus, 5. sýn. flm. 6/1, nokkur sæti laus, 6. sýn. lau.
8/1 nokkur sæti laus, 7. sýn. mið. 12/1, nokkur sæti laus, 8. sýn. fim.13/1 nokkur
sæti laus.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Fim. 30/12 kl. 14.00, uppselt, kl. 17.00, uppselt, sun. 2/1 2000 kl. 14.00, örfá sæti
laus, og kl. 17.00, nokkur sæti laus, 9/1 kl. 14.00, nokkur sæti laus og kl. 17.00,
nokkur sæti laus, 16/1 kl. 14.00, uppselt, kl. 17.00, örfá sæti laus, 23/1 kl. 14.00,
nokkur sæti laus, kl. 17.00, nokkur sæti laus, 30/1 kl. 14.00, nokkur sæti laus,
kl. 17.00, nokkur sæti laus.
KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS — Bertolt Brecht
Fös. 7/1, lau. 15/1.
TVEIR TVÖFALDIR —Ray Cooney
Fös. 14/1, lau. 22/1
litla st/iM kt. 20.00:
ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt
Þri. 28/12, uppselt, mið. 29/12, 70. sýning, uppselt, fim. 30/12, uppselt, þri. 4/1,
laus sæti, mið. 5/1, laus sæti, fim. 6/1, lau. 8/1 og sun. 9/1. Síðustu sýningar að
sinni. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftir að sýning hefst.
Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13-20.
ATH. Opiö til kl. 20.00 á Þorláksmessu. Lokað á aðfangadag.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200.
Gjafakort t Þjóðteikkúsið — gjöfin sem tifnar t/ið!
ISLENSKA OPERAN
The Rape of Lucretia
Ópera eftir Benjamín Britten
Frumsýning 4. febrúar 2000
3
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Allra! Allra! Allra!
síðustu sýningar
verða í janúar
Miðasala lokuð fram til 5. janúar 2000.
5 30 30 30
STJÖRNUR
Á MORGUNHIMNI
Forsýning mán 27/12 UPPSELT
Frumsýning mið 29/12 UPPSELT
2. sýn. fim 30/12 2. kortasýn. örfá sæti
3. sýn. sun 2. jan. 3. kortasýn. örfá sæti
Gjafakort - tilvalin jólagjöf!
líatíiLeikhúsíö
Vesturgötu 3
I HLADVARPANUM
Þorláksmessugleði
kl. 22
KK og Magnús Eiríksson
flytja lög
af nýjum geisladiski
MIÐAPANTANIR I S. 551 9055
Blessuð jólin
eftir Arnmund Backman.
sýn. þri. 28. des. kl. 20,
sýn. mið. 29. des. kl. 20,
sýn. fim. 30. des. kl. 20.
Miðasala opin alia virka daga
kl. 13—17 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
k IKI
PANODIL
fyrir tvo
Rómantískur gamanleikur
með Jóni Gnarr, Þorsteini Guðmunds-
syni, Kotlu Margréti Þorgeirsdóttur o.fl
Forsala aðgöngumiða hefst milli jóla og
nýárs. Frumsvnt í ianúar.
JÓN GNARR: „ÉG VAR EINU
SINNI NÖRD“ fim. 30/12, lau. 8/1.
Kl. 21. Upphitari: Pétur Sigfússon.
MIÐASALA I S. 552 3000.
SÁLKA
ástarsaga
eftir Halldór Laxness
Mið. 29/12 kl. 20.00 uppselt
Fös. 7/1 örfá sæti laus
Fös. 14/1, lau. 15/1
Munið gjafakortin
aSJ) LEIKFELAG M
REYKJAVÍKURJ®
18ÍI7- 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
Stóra svið:
^rifrfi
eftir David Hare, byggt a verki Arthurs
Schnitzler, Reigen (La Ronde)
5. sýn. þri. 28/12 kl. 19.00,
uppselt.
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
Fim. 30/12 kl. 20.00, uppselt,
fim. 30/12 kl. 23.00, aukasýning.
n í svtn
eftir Marc Camoletti.
Mið. 29/12 kl. 19.00 aukasýning
Litla svið:
Höfundur og leikstjóri
Öm Árnason
Leikarar Edda Björgvinsdóttir,
Valur Freyr Einarsson, Halldór
Gyifason, Hildigunnur Práinsdóttir
og Öm Ámason.
Leikmynd og búningar Þórunn
María Jónsdóttir.
Lýsing Kári Gíslason.
Undirleikari Kjartan Valdimarsson.
Frumsýning sun. 26/12 kl. 15.00,
uppseít,
2. sýn. mið. 29/12 kl. 14.00
3. sýn. fim. 30/12 kl. 14.00
Sala er hafin
Litla svið:
Fegurðardrottningin
frá Línakri
eftir Martin McDonagh
þri. 28/12 kl. 19.00, uppselt
Sýningum fer fækkandi.
Litla svið:
að
orvt vítsMíinðof
í aMeítnínoito
eftir Jane Wagner.
Fim. 30/12 kl. 19.00,
örfá sæti laus.
í/ár
Gjafakort í Borgarteikhúsið
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
FOLKI FRETTUM
Ljúfsár
rómantík
TOIVLIST
Geisladiskur
STELLA
Stella, geisladiskur Stellu Haux.
Stella syngur og leikur einnig á gít-
ar í síðasta lagi plötunnar. Henni til
aðstoðar á plötunni eru Jóhann
Hjörleifsson (trommur, ásláttur),
Georg Bjarnason (bassi), Eðvarð
Lárusson (gítar), Kristján Eldjárn
(gítarar), Tómas Tómasson (hljóm-
borð, bassi), Jón Indriðason
(trommur), Einar Rúnarsson
(Hammond-orgel), Kristján Krist-
jánsson (munnharpa), Ásgeir Ósk-
arsson (trommur), Guðmundur Pét-
ursson (gítar), Jakob Magnússon
(Hammond-orgel), Pálmi Sigur-
hjartarson (pfanó), Hilmar Orn
Hilmarsson (strengir, hljómborð,
ásláttur, önnur hljóð), Andrea
Gylfadóttir (rödd, söngur), Kven-
leggir (bakraddir), dægurlaga-
pönkhljómsveitin Húfa (bakraddir),
Hallgrímur Guðsteinsson (söngur),
Finnur Júlíusson (Hammond-orgel)
og Englakórinn (bakraddir). Öll lög
og textar eru eftir Stellu Haux
nema lagið við „Taktu skítugar"
sem er eftir G. MacLellen. Upp-
tökum stýrðu Georg Bjarnason og
Tómas Tómasson. 38,11 mín. Stella
gefur sjálf út.
HLJÓMDISKUR Stellu Haux
deilir mörgu með hljómdiski Guð-
mundar Vals Stefánssonar, „Valur“,
en hann kom út fyrr á þessu hausti
og var þá tóndæmdur af undirrituð-
um. Báðir eru þeir gefnir út fyrir til-
stilli höfunda, hugsjónir ráða útgáf-
unum og í báðum tilfellum er um að
ræða lagasmíðar sem hafa verið að
safnast saman hjá höfundum í gegn-
um árin og fjalla um ýmislegt það
sem orðið hefur á lífsleið þeirra.
Diskarnir eru að þessu leyti hálf-
gerðar sálarhreinsanir en á meðan
Guðmundur tók skúffuna út og
hvolfdi nett úr henni tekur Stella sig
til með skrúbb og sápulög og hamast
á henni 1 bak og fyrir og leggur hana
svo í klór að endingu.
Lagasmíðarnar á plötunni eru
rammíslenskir trúbadúrasöngvar
viðlíkir þeim sem Bubbi Morthens
og Hörður Torfason hafa fengist við
og hvort sem litið er til söngraddar
Stellu eða texta er auðsjáanlegt að
þetta er kona með sögu sem er lítið
fyrir að skafa utan af hlutunum.
Textarnir eru sannar reynslusögur
og eru allt í senn: hádramatískir,
rómantískir og lj'úfsárir og stundum
drýpur nístandi sársaukinn nánast
af þeim. Það leikur enginn vafi á því
Stella Hauksdóttir
að hún er að meina hvert einasta orð
sem hún syngur, eiginleiki sem vant-
ar sárlega í flest allt nútímapopp.
I öðru hverju lagi er sú staðreynd
að Stella er samkynhneigð rekin of-
an í kokhlustir áheyrandans og oft er
hún næstum því óþægilega bein-
skeytt og heiðarleg í túlkunum sín-
um. í laginu „Þorðu“ stendur
hvunndagshetjan Stella ein, hug-
rökk og yfirgefin á veðurbörðum
kletti, með vindinn í hárinu og tár á
hvörmum. „Láttu ekki fordóma ann-
arra lýsa þér leið. Láttu ekki tala í
þig ótta, gatan er greið“ segir þar
m.a. Það verður ekki öllu raunveru-
legra en þetta og á hún lof skilið fyrir
að leggja spilin svona harkalega á
plötuna.
Stella hefur fengið marga og mis-
munandi tónlistai-menn til liðs við
sig, þekkta sem óþekkta, og nægir að
nefna nöfn eins og Hilmar Órn Hilm-
arsson, Ásgeir Óskarsson, Pálma
Sigurhjartarson og Tómas Tómas-
son þessu til stuðnings. Þetta gerir
að verkum að lögin, sem eru reyndar
allflest frekai' melódísk fyrir, verða
mörg hver afar álitleg að vöxtum. Til
dæmis gefur Hilmar Örn Hilmars-
son (HÖH) þeim lögum sem hann
kemur nálægt undarlega en flotta
áferð eins og við mátti búast af hon-
um og á heildina litið eru lagaútsetn-
ingar vel af hendi leystar.
Svona plötur eiga það á hættu að
verða hálf rytjulegar eðlis síns vegna
þar sem lög og textar eru frá löngu
tímabili. Þetta kemur þó lítið niður á
heildarútkomu þessarar plötu sem
er í senn bæði heiðarleg og heillandi
en umfram allt lítill en glæstur stór-
sigur fyiir höfundinn.
Arnar Eggert Thoroddsen
Jóhann Helgason með tvær plötur fyrir jólin
/
Ostöðvandi áhugi
Afkastamikill Jóhann Helgason og
Þorkell Þorkelsson
Halldóra Lillý, dóttir hans.
Jóhann Helgason sendir frá sér
tvær plötur fyrir þessi jól, annars
vegar sólóplötu, Sóló, þar sem
hann flytur sjálfur eigin lög við
texta Regs Meuross, en einnig
kemur út plata með lögum hans
við ljóð eftir aðra, Sólskinsstund.
Jóhann segist hafa gert það
öðru hvoru undanfarin ár að
senda frá sér ljóðaplötur og hafi
þannig hugsað sér að gefa út
slíka plötu á síðasta ári. Ilonum
vannst þó ekki tími til þess og
því kemur platan út fyrir þessi
jól. Hann segir að á plötunni séu
að mestu lög frá 1979 til 1980,
„en ég samdi tvö á síðasta ári og
tvö á þessu ári til að styrkja
hana. Eg samdi fyrsta lagið
1976 uppúr skólaljóðunum og
síðan hefur tínst eitt og eitt í
safnið til viðbótar. Signý Sæm-
undsdóttir og Bergþór Pálsson
syngja, en hljóðfæraleikarar eru tíu
talsins. Árni Harðarson útsetti lög-
in, en hann hefur áður unnið fyrir
Jóhann með góðum árangri að sögn
Jóhanns. Eg hef verið mjög ánægð-
ur með samstarfið við hann hingað
til og finnst að honum hafi tekist
sérstaklega vel upp á þessari plötu.“
Undanfarin ár hefur Jóhann tam-
ið sér ný vinnubrögð í lagasmíðum,
skipulagt tíma sinn vel og samið lög
markvisst uppúr áramótum á plötur
sem síðan hafa komið út fyrir jól.
Hann segir þessa tilhögun hafa gef-
ist vel og kann því vel að setja sér
það mark að reyna að semja eitt-
hvað á hverjum degi.
„Það er gott að hafa einhvern
fastan punkt í tilverunni," segir
hann. „Ég var kominn með tíu lög í
byrjun maí og tók síðan plötuna upp
í september, en gaf mér heldur
lengri túna til að ljúka við hana en
ég hef áður gert,“ segir Jóhann og
bætir við að að verkinu hafi ýmsir
komið aðrir en hann; Jón Kjell Selj-
eseth hafi séð um útsetningar, Birg-
ir Baldursson leikið á trommur,
Guðmundur Pétursson og Sigurgeir
Sigmundsson á gítara, Jóhann Ás-
mundsson á bassa, Szymon Kuran á
fíðlu, Kristinn Svaarsson á saxófón,
SigurðurSigurðsson á munnhörpu
og Egill Örn á flygilhom og tromp-
et.
Sjálfur syngur Jóhann allt nema
eitt lag sem hann segist hafa samið
sérstaklega fyrir dóttur sína, Hall-
dóru Lillý, sextán ára gamla, sem
syngur það. „Ég veit ekki hvort ég
vilji að bömin fari í tónlist," segir
Jóhann. „Eldri dóttir mín fór nú í
viðskiptafræði svo ég varpaði önd-
inni léttar," segir hann og kímir.
Það er nú bara svo með tónlistina að
ef áhugi er fyrir henni þá verður
það ekki stöðvað," segir hann að
lokum, minnugur þeirra áratuga
sem hann hefur gefið tónlistargyðj-