Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 59

Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 59 FOLKI FRETTUM ■ ÁSGARÐUR v/Glæsibæ Á fimmtudagskvöld er bingó kl. 19.15. ■ BLÁI ENGILLINN, Austur- stræti 6 er opinn alla nóttina um helgar. Boðið er upp á allar íþrótta- stöðvar í sjónvarpinu og karaoke. ■ BREIÐIN, Akranesi Nýr skemmtistaður tekur til starfa 2. í jólum og mun þá hljómsveitin Sljórnin leika. Sérstakur gestaspil- ari er saxófón- og hljómborðsleik- arinn Davíð Þór Jónsson, Akurnes- ingur. ■ BROADWAY Á sunnudagskvöld, 26. desember, verður stórdansleik- ur Skítamórals. ■ CAFÉ MENNING, Dalvík Annan í jólum er dansleikur með hljóm- sveitinni PPK. Miðvikudaginn 29. desember verða tónleikar með Helga og hljóðfæraleikurunum þar sem þeir kynna nýútkominn geisladisk. ■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó- leikarinn Bubby Wann leikur öll kvöld. Hann leikur einnig íýrir matargesti Café Óperu. ■ EGILSBÚÐ, Neskaupstað Á 2. í jólum verður sýningin Las Vegas. Sýningin hefst kl. 22 og dansleikur á eftir. Miðaverð 1.500 kr. á sýn- ingu og 1.500 kr. á dansleik eða 2.000 kr. á hvort tveggja. ■ GAUKUR Á STÖNG A fímmtu- AtilO Hljómsveitin Milljónamæringarnir leikur í Súlnasal, Hótel Sögu, 2. í jólum. Með hljómsveitinni syngja þeir Bogomil Font, Páll Ósk- ar, Bjami Ara og Raggi Bjama. dagskvöld verður Þorláksmessu- djammið í höndum Hálft í hvoru. 2. í jólum leika Papar, þriðjudag- skvöld leikur Tríó Jóns Leifs og á miðvikudagskvöld leika strákarnir í hljómsveitinni Á móti sól. ■ GLAUMBAR stendur fyrir funk- veislum á miðvikudögum og verður leikið fönk af plötum og strákarnir í Funkmaster 2000 sjá um að allir fari sveittir heim. ■ HÓTEL SAGA Árlegur jóladans- leikur Milljónamæringanna verður haldinn 2. í jólum. Að þesssu sinni koma fram fjórir söngvarar með hljómsveitinni. Það eru þeir Bogo- mil Font, Páll Óskar, Bjarni Ara og Raggi Bjarna. Forsala aðgöngu- miða er þegar hafin í hljóðfæra- versluninni Samspili, Laugavegi 168, en verður einnig á Hótel Sögu 26. des. frá kl. 13 í anddyri Súlna- sals. Verð aðgöngumiða er 1.800 kr. Þess má geta að húsið verður opn- að kl. 22 og stendur skemmtunin yfir til kl. 3. ■ KAFFILEIKHÚSIÐ Á fimmtu- dagskvöld leika þeir KK og Magnús Eiríksson lög af nýjum geisladisk sínum. Tónleikarnir hefjast kl. 22. ■ KAFFI 15, Akranesi Þau Þóra Gréta söngkona og Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari leika fimmtudagskvöld. Á efnisskránni verða ýmsar þekktar jazz og jóla- perlur í skemmtilegum búningi og hefst leikurinn um klukkan 22. ■ MÓTEL VENUS, Borgarnesi Hljómsveitin Sixties leikur eftir miðnætti á jóladagskvöld. ■ NÆTURGALINN Á annan í jól- um heldur söngkonan Hjördís Geirs upp á 40 ára söngafmæli sitt ásamt hljómsveit. Húsið opnað kl. 21.30. ■ SINDRABÆR, Höfn í Horna- firði Hljómsveitin Buttercup leikur 2. í jólum. Of seint af stað farið TONLIST Geisladiskur H ULIN ANDLIT, GEISLA- PLATA BIRGIS HENN- . INQSSONAR Birgir Hennmgsson semur öll lög og texta, á disknum koma fram auk Birgis Jón Ólafsson, Friðrik Sturlu- son, Ólafur Hólm og Jón Elvar Haf- steinsson. BIRGIR Henningsson hefur ekki verið áberandi hingað til í tónlistar- lífi landsins, hann hefur enda ekkert gefið út áður, en fyrsta geislaplata hans, Hulin andlit, kom út fyrir skemmstu. Birgir hefur dundað sór við að semja tónlist undanfarin ár og gefur geislaplötuna út á eigin vegum. Birgir semur sjálfur .sína tónl- ist og útsetur auk þess sem allir textar eru hans. Á geislaplötunni eru áberandi rólegar stemmur, að miklu leyti óraftnagnaðar og kassa- gítarhljómar áberandi enda lögin hklega flest samin við þannig að- stæður þar sem Birgir hefur sagst semja að miklu leyti á sjó. Birgi eru hugleiknar skuggahlið- ar mannlífsins og þær síður sjáan- legu, titill plötunnar vísar í hulin andlit afbrotamanna á blöðum dag- blaða. Raddbeiting Birgis minnir um margt á rödd Megasar og reyndar gi'einilegt að texta- og tónlistargerð er undir nokkrum áhrifum frá hon- um. Það er og erfitt að semja um ut- angarðinn án þess að vera borinn saman við þann mæta tónlistar- mann. Til liðs við sig hefur Birgir Henn- ings fengið þaulreynda tónlistar- menn, m.a. Jón Ólafsson og Ólaf Hólm, tónlistarílutningurinn er enda ^SÍemanta/iúóic) Urval jólagjafa Birgir Henningsson. til fyrii*myndar og vel útfærður. Mikið hefur verið lagt í geislaplötuna og er því miður að Bii-gir, einkum rödd hans, veldur hlutverki sínu varla. Rödd Birgis er óslípuð enda er hann svo að segja nýgræðingur, hún er hrjúf og við það að bresta á stund- um. Tónlistin er þægileg og skemmti- leg oft en þó líður platan fyrir styttri lög, t.d. Eru þau ekta og Dissarinn sem hljóma frekar sem uppfyllingar- efni og hefði platan mátt vera þrem- ur til fjórum lögum styttri. Birgi tekst best upp þar sem hann er laus við hótfyndni og rembing sem of oft eyðileggur heildar- myndina. Textar eru flestir sæmilega ortii' og fullir af boðskap en engan veginn er hægt að segja að þeir séu frumlegir. Auk þess að minna á Megas minnir hann svo á stundum á Bjartmar Gunnlaugs- son, t.d. í Kirkjunnar barni, Dissaranum og Eg var svo nærri þar sem tilraunir til að til- einka sér orðalag yngri kynslóða og hót- fyndni eyðileggur ann- ars ágæta plötu. I raun er leitt að Birgir Henningsson skuli ekki hafa byrjað fyrr að gera tónlist, hann hefur aug- ljósa hæfileika til að gera hana og ef fyrr hefði verið af stað farið og með metnaði hefði Birgi eflaust tekist að verða fullmótaður tónlistarmaður. Margt er vel gert á disknum og gæti Birgir eflaust betur með tíman- um. Á geislaplötunni Hulin andlit eru hins vegar augljós bytjendamis- tök og skrifast þau án efa flest á það að Birgir er í raun byrjandi. Gísli Árnason Fyrsta sólóskífa Labba Tuttugu ára aðdragandi ÓLAFUR Þórarinsson, sem allir þekkja sem Labba, á sér lengri feril í tónlistinni en flestir og löngu tímabært að hann sendi frá sér sólóskifu. Þar kom og að; fyrir nokkrum dögum kom út fyrsta sólóskífa Labba, Leikur að vonum. Labbi segir að platan eigi sér nokkum aðdrag- anda, hún hafi verið að gerjast með honum síð- ustu tuttugu ár. „Það er langt síðan ég ákvað að senda frá mér plötu en byrjaði ekki á upptökum fyrr en fyrir tveimur ár- um. Ég hef svo verið að vinna að henni öðru hvoru, en dreif mig svo í að klára hana í haust.“ Labbi segir að megn- ið af lögunum á plötunni sé frá síð- ustu árum, en inn á milli séu svo eldri lög. Eins og áður er getið Labbi lagan feril að baki í tónlist- inni, var á sínum tíma meðal annars í sveitunum Mánum og síðar Karma, en síðan sneri hann sér nánast alfar- ið að búskap og bar lítið á honum á tónlistarsviðinu í nokkur ár. Bú- skapurinn vék svo aftur fyrir tón- listinni og hann kom sér upp hljóð- veri sem hann hefur rekið síðan. Platan nýja er tekin upp í því veri, en Labbi er ekki frá því að vinna við plötuna hafi gengið hægar en ella vegna þess að hann hefur starfa sinn af því að sitja við takk- ana og spila með Karma og vill því heldur gera eitthvað annað þegar stund gefst milli stríða. „Ég hef yfir- drifið af verkefnum, tek upp kóra og lúðrasveitir, þannig að það má segja að ég sé alltaf að vinna í tón- listinni,“ segir Labbi og bætir við að ekki hafi hann skort lög til að gefa út plötu til þessa, það hafí einfald- lega allt hjálpast að við að tefja fyr- ir honum. Eins er víst aftur á móti Ólafur Þórarinsson, sem allir þekkja sem Labba. að hann á eftir að gefa mun meira út á næstu árum nú þegar búskap- urinn er frá, ekki skortir hann vilj- ann. Labbi segir að það sé talsverður munur á að vera einn að fást við tónlist og gefa út en að vera hluti af hljómsveit. Hann kunni því þó bráð- vel en hann er enn í hljómsveitar- stússi, leikur reglulega með Karma og hefur notað tækifærið til að lauma á dagskrána eigin lögum. „Það er auðvitað best af öllu að leika eigin lög,“ segir hann, „ekki síst þegar þeim er eins vel tekið og við höfum fundið fyrir." DEMANTAHUSIÐ Nýju Kringlunni, sími 588 9944 600 krónur gegn framvlsun þessa miða. Við höfum opnað nýja og glæsilega naglastofu í hjarta Kópavogs. Vinnum eingöngu með efni frá Light Concept nails. Gegn framvísun þessa miða fæst fyrrgreindur afsláttur. Gildir til 10. janúar 2000. Naglastofan Klær Hamraborg I, sími 564 0018. V/SA VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4543-3700-0022-1781 4543-3700-0027-9888 4507-4500-0026-7523 4548-9000-0053-6690 4539-8600-0012-1409 4543-3700-0029-4648 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. r cAnnav íjálum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.