Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 60
^50 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBOND
Bráðskemmti-
leg boltamynd
Leikurinn
(TheMatch)
Gamanmyn tl
'k'kVz
Framleiðendur: Guyman Cassady,
Steve Golin og Allan Scott. Leik-
stjórn og handrit: Mick Davis. Aðal-
hlutverk: Max Beeley, Laura Fra-
ser og Richard E. Grant. (95 mín.)
Háskólabíó, desember 1999. Öllum
leyfð.
LEIKURINN er bráðskemmtileg
og vel gerð gamanmynd. Umfjöllun-
arefnið er reyndar langt frá því að
vera nýtt af nál-
inni þar sem
myndin fjallar um
áhugamannafót-
boltalið í skosk-
um smábæ sem
keppir fyrir hönd
hverfisknæpunn-
ar gegn liði óvina-
knæpunnar. Hér
er unnið vel úr
bæði smábæjar-
' »g fótboltaþemanu, það gætt lífi og
hlýlegri kímni. Hver fótboltabulla á
sína forsögu og fótboltinn er nát-
engdur sigrunum og ósigranum í til-
vera þeirra. Richard E. Grant leikur
vonda kallinn sem jafnframt er eina
misheppnaða persónan í myndinni.
Við sögu koma einnig misjafnir sauð-
ir, svo sem fyrrverandi poppstjaman
Samantha Fox og Bond-stjarnan
Pierce Brosnan. Það er heilmikið
spunnið í þessa bráðfyndnu bolta-
mynd.
Heiða Jóhannsdóttir
Leitin að hinum
eina rétta
Einhver stelpa
(Some Girl)
Gamanmynd
★★%
Framleiðandi: Boaz Davidson, Abra
Edelman, Gay Ribisi. Leikstjóri:
Rory Kelly. Handritshöfundur:
Marissa Ribisi, Brie Shaffer. Kvik-
myndataka: Amy Vincent. Tónlist:
Ýmsir. Aðalhlutverk: Marissa Rib-
isi, Michael Rappaport, Giovanni
Ribisi, Juliette Lewis, Jeremy Sisto.
(96 mín.) Bandaríkin. Myndform,
1999. Myndin er bönnuð innan 16
ára.
HÉR er um að ræða enn eina
myndina í hið gífurlega stóra safn af
myndum sem fjalla um ástamál á 9.
áratugnum. Aðalsöguhetjurnar era
stúlkur sem eru á þrítugsaldri og er
þeirra draumur að finna hinn eina
rétta og eyða æv-
inni með honum
en sumar hafa
gefist upp á leit-
inni. April (Jul-
iette Lewis) hef-
ur farið verst út
úr þessu og eyðir
kvöldunum í að
drekka sig blind-
fulla og fara með
einhverjum gæja heim. Claire (Mar-
issa Ribisi) heldur enn í vonina, þótt
hún sé orðin dauf.
Prýðilegt handrit og góður leikur
hjá Marissu Ribisi, Giovanni Ribisi
og Juliette Lewis halda þessari
mynd yfír meðallagi. Maður hefur
það samt oft á tilfinningunni að kvik-
myndagerðarmennimir hafi haldið
að þeir væra að gera eina sönnustu
mynd um tilfinningar x-kynslóðar-
ínnar og hafi ekki tekið eftir öllum
þeim klisjum sem þeir hafa hlaðið í
myndina. Kvenpersónurnar era mun
betur skrifaðar en karlarnir og verð-
ur það til þess að samskipti persón-
anna verða oft flatneskjuleg. Þegar
öllu er á botninn hvolft er þetta
mynd sem rennur ljúflega í gegn, en
*yr gleymd daginn eftir.
Ottó Geir Borg
KVIKMYNDIR/Háskólabíó og Laugarásbíó frumsýna gamanmyndina „Mickey Blue Eyes“ með Hugh
Grant, Jeanne Tripplehorn og James Caan í leikstjórn Kelly Makin.
Hugh Grant og Jeanne Tripplehorn í hlutverkum sínum í
„Mikey Blue Eyes“.
Tengdasonur
mafíunnar
Frumsýning
egar Michale Felgate (Hugh
Grant), breskur uppboðs-
haldari í New York, biður
kærustuna sína, Ginu Vitale (Jeanne
Tripplehorn), að giftast sér fær
hann viðbrögð sem varla teljast upp-
örvandi. Gina brestur í grát og
hleypur út úr veitingahúsinu þar
sem þau sitja.
Michael skilur viðbrögðin betur
þegar hann kynnist föður kærast-
unnar, hinum heillandi Frank Vitale
(James Caan), einum af foringjum
hinnar alræmdu og illræmdu
Graziosi-glæpafjölskyldu. Gina
skýrir út fyrir honum að Frank og
félagar eyðileggi öll hennar sam-
bönd með því að ráða kærastana
hennar til starfa fyrir fjölskylduna.
Michael lofar að halda sig langt
fjarri öllum framkvæmdum
Graziosi-fjölskyldunnar og Gina
segist vilja giftast honum. En að
halda sig fjarri Graziosi-fjölskyld-
unni reynist erfiðara en hann grun-
aði.
Þannig er „Mickey Blue Eyes“,
sem Háskólabíó og Laugarásbíó
framsýna um jólin en með aðalhlut-
verkin fara Hugh Grant, Jeanne
Tripplehorn og James Caan. Það er
framleiðslufyrirtæki Grants og El-
isabeth Hurley, Simian Films, sem
standa að baki myndarinnar en
fyrsta myndin sem það framleiddi
var læknatryllirinn „Éxtreme Meas-
ures“.
Grant las handritið íyrst árið 1996
en þá var Michael, aðalsöguhetjan,
bandarískur lögfræðingur sem
flæktist inn í mafíufjölskyldu í gegn-
um kærastuna sína. Michael var
breytt í Breta í síðari útgáfum og
gerður að uppboðshaldara, en víst
mun að fjölmargir Bretar starfa sem
slíkiríNewYork.
„Við breyttum sögunni gersam-
lega til þess að fella hana að Hugh,“
er haft eftir Elisabeth Hurley.
Handritinu var einnig breytt á þann
veg að úr því yrði rómantísk gaman-
Góðir gæjar; Grant í faðmi fjölskyldunnar.
Mafíósinn og tengdasonurinn; James Caan og Grant í
rómantísku gamanmyndinni.
mynd en Hugh Grant er þekktastur
fyrir að leika í slíkum myndum.
Grant mun sjálfur hafa unnið í
handritinu ásamt Adam Sheinman
og Robert Kuhn og síðan var fund-
inn leikstjóri til þess að sjá um fram-
leiðsluna. Fyrir valinu varð Kelly
Makin, sem áður hafði gert gaman-
myndina „Brain Candy. „Margir
reyndir og þekktir leikstjórar höfðu
lýst áhuga sínum á að gera mynd-
ina,“ er haft eftir Hurley, „en við
leituðum að nýjum og ferskum aðila
og fundum hann í Kelly.“
Kelly fékk áhuga á myndinni
vegna þess að Hugh Grant fór með
aðalhlutverkið. „Égheld," segir hún,
„að Hugh sé einn af örfáum leikur-
um starfandi í dag sem geta fengist
bæði við gaman og alvöra. Þegar við
settumst niður og lásum handritið
saman veltist ég um af hlátri vegna
þess að ég sá hann fyrir mér í þess-
um undarlegu kringumstæðum. Það
er ekkert betra að hafa í kvikmynd-
unum en Hugh Grant í vanda.“
James Caan fer eins og áður sagði
með hlutverk mafiósans í myndinni
en hann hefur nokkra reynslu af
slíkum hlutverkum frá því hann var
Sonny í Guðföðurnum. „James Caan
var fæddur til þess að fara með þetta
hlutverk," er haft eftir leikstjóran-
um.
KVIKMYNDIR/Kringlubíó, Laugarásbíó, Nýja bíó
Keflavík og Borgarbíó Akureyri frumsýna nýjustu
hasarmynd fínnska leikstjórans Renny Harlins,
_______„Deep Blue Sea“._
Hákarlamynd
Harlins
Frumsýning
RSUSAN McAJester (Saffron
Burrows) gerir tilraunir með
hákarla sem skapað gætu ný
og byltingarkennd lyf en til þess að
ná hámarksafköstum þarf hún að
eiga við erfðaþætti hákarlanna og
breyta þeim þannig að þeh- verða
sneggri og greindari og hættulegri.
Rannsóknarstöð McAlester heitir
Aquatica og er að finna á hafi úti en
vísindaaðferðir hennar hafa valdið
nokkram ugg í brjósti samstarfs-
manna. Á meðal þeirra era hákarla-
sérfræðingurinn Carter Blake
(Thomas Jane) og Sherman „Predik-
ari“ Dudley (LL Cool J). Sá sem fjár-
magnar verkefnið heitir Russell
Franklin (Samuel L. Jackson).
Stormur er í aðsigi og þegar gerð era
mistök sleppa hákarlarnir úr prísund
sinni.
Þannig er söguþráðurinn í há-
karlatryllinum „Deep Blue Sea“ sem
fmnski hasarleikstjórinn Renny
Harlin gerir með Saffron Burrows,
Thomas Jane, LL Cool J og Samuel
L. Jackson í aðalhlutverkum en hún
verður framsýnd á annan í jólum.
Samuel L. Jackson í hlutverki
sínu í „Deep Blue Sea“.
Myndin hefur verið fimm ár í smíðum
en handritið varð til árið 1994. Fram-
leiðendurnir Alan Riche og Tony Lu-
dwig fengu það í hendur „og höfðum
ekki lesið neitt svipað síðan Ókindin
var og hét“, er haft eftir Ludwig.
Framleiðendurnir kynntu yfir-
mönnum Warner Bros. kvikmynda-
versins hugmyndina sem byggðist
mjög á hinni tiýju tölvubrellutækni
sem m.a. Steven Spielberg beitti í
Júragarðinum. „Það tók okkur um
tvö ár að komast að því að við gætum
yfirleitt gert þessa mynd og það hafði
meira að gera með þá tölvutækni sem
hafði þróast en okkar starf sem fram-
leiðenda," segir Ludwig.
Þeir fengu fínnska hasarleikstjór-
ann Renny Harlin í lið með sér.
„Deep Blue Sea“ er stórmynd og
tryllir sem vill svo til að er einnig
hryllingsmynd, er haft eftir Harlin,
sem á undan þessari mynd gerði
„The Long Kiss Goodnight". Hann
tekur það fram að hér sé ekki um sér-
stakan vísindaskáldskap að ræða
eins og finna má í þeim
myndum sem gerast í út-
geimi. „Þegar hákarlar eru
annars vegar ertu að fást við
skepnur sem eru mjög raun-
verulegar þar sem þeir era
rándýr og finnast í umhverfi
okkar,“ segir Harlin. „Mér
fannst ég verða að leggja
áherslu á að sagan og pers-
ónurnar væru mjög raun-
verulegar þannig að hættan
af hákörlunum yrði einnig
sem raunveralegust og myndin yrði
þar með um þig og mig undir þessum
kringumstæðum."
Harlin lagði ekki síður áherslu á að
fá í lið með sér leikarann Samuel L.
Jackson, sem hann stýrði í „The
Long Kiss Goodnight". Þeir áttu
rnjög gott samstarf en Harlin lýsir
Jackson sem kvikmyndastjörnu sem
getur leikið. Hann sagði Jackson
vera akkerið í miðri sögunni „og þeg-
ar við höfðum hann, gátum við snúið
okkur að því að finna fólk í hin hlut-
verkin“.