Morgunblaðið - 23.12.1999, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
jra ajtansong
í Grafarvo&sk.
Nú geta íslendingar um allan heim fylgst með
ísienskum aftansöng. Á aðfangadag verður mbl.is
með beina útsendingu frá aftansöng í Grafarvogskirkju
kl. 18.00 í samstarfi við Skjá 1 og Símann-internet.
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti guðsþjónustunnar verður Hörður Bragason
og kór Grafarvogskirkju syngur.
Einleikarar eru Birgir Bragason, bassi, Bryndís Bragadóttir,
fiðla, og Einar Jónsson, básúna, og síðast en ekki síst
flytur Egill Ólafsson stórsöngvari einsöng.
0
SKJÁSEINtN
Jól á mbl.is!
vf*>mbl.is
-^\LL7y\f= £/7T//lí4£7 /VÝ/ /
FÓLK í FRÉTTUM
Kristinn Ingvarsson
Hljómsveit Bjartmars Guðlaugssonar.
Popplög í dúr
TONLIST
Geisladiskur
STRIK
Strik, sólóplata Bjartmars Guð-
laugssonar. Lög og textar eru eftir
Bjartmar. Tómas M. Tómasson
stýrði upptökum. Tómas útsetti
einnig í félagi við Bjartmar og
hljómsveitina Strik sem á plötunni
eru Jón Indriðason á trommur,
Georg Bjarnason á bassa, Kristján
Eldjárn á gítar og Pálmi Sigur-
hjartarson á pianó, hammondorgel
og dragspil. Hilmar Orn Hilmars-
son lagði til önnur hljómborð/
slæður. Tómas M. Tómasson hljóð-
blandaði en Ivar Ragnarsson sá um
lokavinnslu hljóðs. Utgáfa og dreif-
ing: Japis.
ÞAÐ ER orðið langt um liðið síðan
Bjartmar Guðlaugsson sendi síðast
frá sér plötu. Hann hefur alið
manninn í Oðinsvéum Danmerkur
um árabil þar sem myndlistin hef-
ur tekið stóran hluta tíma hans.
Bjartmar var mjög vinsæll á
níunda áratugnum hér á landi fyrir
einföld, grípandi lög og afar góða
texta. Ástæða er til að fagna end-
urkomu hans inn á íslenskan tón-
listarmarkað þótt ekki fari hann
nýjar leiðir í tónlistar- og texta-
sköpun sinni. Bjartmar hefur ná-
kvæmlega ekkert breyst.
Á Striki er að finna tíu einföld
popplög í dúr sem flest hver inni-
halda ekki fleiri en þrjá hljóma.
Þetta þekkir maður frá íyrri smíð-
um Bjartmars, sem oft hefur
minnt mig á danskan kollega sinn,
Kim Larsen. Laglínurnar má sjálf-
sagt flokka undir eins konar „naív-
isma“, einfaldar og grípandi en á
stundum heldur einsleitar. Text-
arnir eru sem fyrr mjög vel ortir
og langt yfir meðallagi í annars
heldur sorglegri textaflóru ís-
lenskrar dægurtónlistar. Það sem
meira máli skiptir er þó sú stað-
reynd að textar Bjartmars hafa
ávallt innihald. Bjartmar heldur
uppteknum hætti við að skoða
samfélag okkar og mannlíf og er
einkar glöggur samfélagsrýnir.
Fyrsta persóna í textum Bjart-
mars virðist oftast vera utangarðs-
Jólagjafirnar
jr
I
RCWELLS
Kringlunni 7,
sími 5 88 44 22
maður í eigin samfélagi, í hug-
myndafræði og hugsun yfirleitt.
Hún gagnrýnir neysluþjóðfélagið
en veit ekki hvort hún á að rísa
upp gegn því: „það er ekki hægt/til
orða tekið vægt/að tala bara um
þetta og gera ekki neitt“ (Fjar-
stýringin Fjóla). Á hann að gera
byltingu eða fá sér í pípu, leggja
aftur augun og halda áfram að
dreyma um betra líf: „og ég stend
hér starandi á þig/þar sem ljós þitt
lifandi skín/þar er hún til húsa/
hamingja mín“ (Sólin).
Dreymandi byltingarmaðurinn
og hippinn er þekkt þema úr fyrri
smíðum Bjartmars og á þessari
plötu kvartar hann áfram yfir auð-
valdinu og er að sjálfsögðu farinn
að fetta fingur út í nútíma fyrir-
bæri eins og gsm-síma og arðvæn-
legar genarannsóknir. Gamall
kunningi, Fúll á móti, er einnig
mættur til leiks og í laginu Meira
Jollý er hann í takt við tímann og
þolir ekki nýbúa í blokk! Á plöt-
unni er einn dæmigerður „hann og
hún“-texti sem einnig er þekkt
minni frá fyrri verkum Bjartmars.
I þetta skiptið eru þau af „sítt að
aftan-kynslóðinni" og eins og hæfir
er stúlkan ákveðnari aðilinn: „hann
var með sítt að aftan/þó tókst
henni að kjaftann/inn á meira-
prófsnámskeið/er haldið var það
haust/svo hann fengi steddí tekjur/
og yfirvinnu vetur/í dásamlegum
díselkeim/hann drifi dæmalaust“.
Þótt lagasmíðar Bjartmars séu
heldur einhæfar þá eru sem fyrri
daginn nokkur prýðislög og eflaust
eru einhver þeirra líkleg til vin-
sælda. Sjálfum þykir mér Sólin
vera afbragðsgott lag og sömuleið-
is upphafslagið Jörð, sem er
skemmtilega útsett og vel leikið af
góðum hljóðfæraleikurum plötunn-
ar. Utsetningar eru reyndar allar
til fyrirmyndar á plötunni þótt
ekki bjóði lögin upp á neinar stór-
kostlegar hugmyndir. Hljóðfæra-
leikurinn er þéttur, líflegur og laus
við alla dauðhreinsun þó að hugs-
anlega hefði mátt liggja meira yfir
brussulegum munnhörpuleik
Bjartmars, sem hefur reyndar
ákveðinn „Dylan-sjarma“ yfir sér
en er ansi taktvilltur á köflum.
Bjartmar og Dylan spila þannig að
fyrir hverja nótu í laglínu hljóma
ávallt fleiri nótur með; ósköp
heimilislegt. Þeir Guðlaugsson og
Bob eru heldur ekki bestu söngv-
arar í heimi en mér finnst þeir
báðir virka mjög vel fyrir sitt eigið
efni og tek ég ofan fyrir Bjartmari
að hafa ekki látið aðra um að
syngja lög sín og texta.
Upptökustjórn og hljóðblöndun
Tómasar M. Tómassonar eru
fyrsta flokks og má segja að um
ánægjulega endurkomu hjá honum
sé að ræða hvað varðar stjórn og
útsetningar, en hann var um árabil
okkar helsti upptökustjóri en hef-
ur haldið sig meira til hlés í þeim
efnum undanfarin ár þótt hann
hafi starfað mikið við hljóðupptök-
ur og blandanir. Bjartmar Guð-
laugsson má vel við una með end-
urkomu sína og aðdáendur hans
verða ekki sviknir af smellnum
textum og auðlærðum laglínum.
Strik er gamalt vín á gömlum belg
sem hefur ekkert versnað.
Orri Harðarson