Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 63^
ALVORU 810!
STflFRÆNT
HLJÓÐKERFI í
ÖLLUM SÖLUM!
HX
Lokað í dag, Þorláksmessu
Opið annan í jólum
laugarasbio.is
[ÖÖ1 MAGNAÐ
DIGITAL ,,in'Í7W
BIO
H /DD/
Lokað í dag, Þorláksmessu
Opið annan f jólum
lesið allt um Jóhönnu nf Örk ó www.stjornubio.is
Matthildur kynnti aldamótaútlitið
Fötin, förðunin og fram-
koman á tímamótum
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Súlna-
sal Hótels Sögu á dögunum er út-
varpsstöðin Matthildur sló upp
glæsikvöldi ásamt nokkrum vel
völdum aðilum úr tískuheiminum á
Islandi og kynnti aldamótaútlitið.
Boðsgestir fylltu salinn en það var
Anna Gulla fatahönnuður sem
hafði veg og vanda af veglegri og
vandaðri dagskrá sem í hönd fór.
Gestir byrjuðu á því að
snæða kvöldverð og á meðan
léku Sigurður Flosason og
Gunnar Gunnarsson djass-
tónlist svo maturinn rann
ljúflega niður. Þá kynntu
fulltrúar Lalique-
snyrtivaranna aldamóta-
ilminn Kossinn og báru
kórónur með ártalinu
2000 af því tilefni.
Þá fóru í hönd þrjár
sýningar og var Anna
Björk Birgisdóttir
kynnir kvöldsins og
stóð sig frábærlega
þrátt fyrir að vera í
gifsi. Fyrst var tísku-
sýning frá Líni og lér-
efti þar sem sloppar og
náttfatnaður var
kynntur. Síðan kynnti
verslunin Flex dagfatnað
og að lokum komu sýning-
arstúlkurnar sem voru sér-
valdar, fram í loðfeldum frá
Eggerti Feldskera og í spari-
fatnaði frá versluninni Flex sem
einnig sýndi ýmsa fylgihluti svo
sem veski, trefla og slæður.
Hið sívinsæla tónlistarpar Sig-
ríður Beinteinsdóttir og Grétar
Orvarsson tók lagið fyrir gesti á
milli sýninga en kvöldinu lauk með
hár- og förðunarsýningu frá Face
og hárgreiðslustofunni Mojo og
hannaði Anna Gulla fatahönnuður
alla búninga í
þeirri sýningu.
Berglind Ólafsdóttir sýningar-
stúlka brosti blítt til gesta er
hún sýndi þennan prinsessukjól.
Leikkonan
vinsæla,
Þórunn
Lárusdótt-
ir, sýndi
jakka frá
Eggerti
feldskera.
Soley Krist)ans-
dóttir tók sig vel
út í þessum rauða,
stutta og glæsi-
lega kvöldkjól.
Dagrún Ólafsdóttir og Valgerður Frankhns
dóttir kynntu aldamótailminn „Kossinn".
Unnur Valdís Kristjánsdóttir
sýndi þennan glæsilega kjól.
(F.v.) Guðlaug Guðmundsdóttir stendur við hlið dóttur sinnar, Önnu
Gullu Rúnarsdóttur fatahönnuðar, þá er Inga Dóra Guðmundsdóttir,
móðursystir Önnu, við hennar hlið auk Sóleyjar Kristjánsdóttur, fyrir-
sætu og dóttur Önnu Gullu. Með þeim á myndinni er Gunnhildur Helga
Gunnarsdóttir.
Dönsum með
Geirmundi
GEIRMUNDUR Valtýsson, fjár-
málastjóri Kaupfélags Skagfírðinga
og tónlistarmaður, hefur sent frá sér
plötuna Dönsum. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um fyrri verk Geir-
mundar eða orðstír hans meðal þjóð-
arinnar, en hann er vissulega meðal
vinsælli hérlendra skemmtikrafta.
Geirmundur er höfundur heillar
tónlistarstefnu; hinnar svokölluðu
skagfirsku sveiflu. Á nýju plötunni er
hann trúr henni og veldur aðdáend-
um sínum ekki vonbrigðum frekar en
fyrri daginn. En hvernig er það, er
skagfirska sveiflan eilíf? „Ja, eigum
við ekki að segja að lögin mín lifi að
minnsta kosti jafn lengi og ég, von-
andi lengur,“ segir Geirmundur,
„ástæðan fyrir vinsældunum er ein-
föld; þetta er létt og hressileg tónlist,
sannkallað gleðipopp,“ bætir hann
við.
Fjöldi fólks hefúr fylgt Geirmundi
í gegnum tíðina og verið fastagestir á
skemmtunum hans. Er hann ekki
farinn að þekkja marga aðdáenduma
persónulega? „Jú, svo sannarlega.
Margir fylgja okkur hvert á land sem
er og ég hef bara ekki tölu á því hve
marga kunningja ég hef eignast frá
því ég byrjaði að spila,“ segir hann.
Kemur ekki niður á vinnunni
Þessi mikla spilamennska Geir-
mundar hefur ekki komið niður á
starfi hans sem fjármálastjóri Kaup-
félags Skagfirðinga. „Ég mæti bara í
mína vinnu eins og venjulegur starfs-
maður, nema hvað ég hætti oftast á
Morgunblaðið/Halldór
Geirmundur Valtýsson hefur
sent frá sér plötuna Dönsum.
t
hádegi á föstudögum. En það dregst
auðvitað af sumarfríinu hjá mér. Ég
hef gaman af spilamennskunni, en
ekki síður af starfinu. Ég er mikil fé-
lagsvera og er mikið innan um fólk,“
segir Geirmundur, en bætir við að
stundum sé einveran þó ágæt og
hann fari oft á búgarðinn sinn í
Skagafirðinum. „Það er oft þægilegt
þegar maður er búinn að vera innan
um fjöldann um helgar," segir hann.
Geirmundur fékk til liðs við sig
sömu valinkunnu listamennina ogr
hafa spilað inn á plötur hjá honum
síðasta áratuginn. Rúnar Júlíusson
syngur á plötunni eins og þeirri síð-
ustu, en þeir þekkjast frá gamalli tíð.
Hvemig var að vinna með Rúnari?
„Rúni er náttúrulega töffari aldar-
innar, ekki satt? Við erum báðir
fæddir 13. apríl. Kannski eigum við
eftir að semja lagið 13. apríl saman í
framtíðinni, hverveit?"
Spice Girls að hætta?
MEL C, ein af Kryddpíunum,
brast í grát þegar þær fluttu
lagið „Goodbye“ á hljómleik-
um sveitarinnar nýlega. Á
heimasíðu stóríyrirtækisins
Virgin, virgin.net, er því hald-
ið fram að ástæðan hafi verið
ótti stúlkunnar um að þær
væru að syngja saman í síð-
asta skipti.
Á fyrrnefndri síðu Virgin
kemur fram að stúlkumar
hafi síðasta föstudag rætt
hvemig best væri að koma
fréttum af „andláti" sveitarinnar tfi
aðdáenda.
Victoria, Mel G, Mel C og Emma
hyggjast, samkvæmt fyrmefndri
frétt, tilkynna endalok Spice Girls
snemma á nýja árinu. Ástæðan fyrir
endalokum sveitarinnar mun vera sú
að stúlkurnar em uppteknar við að
koma sjálfum sér á framfæri. Allar
hafa þær, nema Victoria, hafið eigin
tónlistarferil með ágætum árangri.
Annars hefur Victoria tjáð þá
skoðun sína að brottför Geri Halli-
well hafi styrkt hljómsveitina, frekar
en hitt. Vináttubönd þeirra sem eftir
vora hafi styrkst. Um tónlistarsköp-
un Geri sagði hún: „Mér líkar tónlist-
in hennar ekki og væri að segja ósatt^
ef ég héldi öðra fram. Ég held að
brottför hennar hafi ekki komið nið-
ur á okkur sem hljómsveit. Jú, við
eram einum vininum fátækari, en
það er allt og sumt.“
□□ |POU3YÍ
D I G I T A L
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
i^«*___________
Simi 462 3500 • Akureyri • www.nell.is/borgarbio
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
■ 1 FVR/R
■I 990 PUHKU I
Z fefwuIdIó
NVI/ll
Keflavík - sími 421 1170
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
Frostrásin fm 98,7
www.samfilm.is