Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 64
^ 104 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ r HASKOLABIO HASKOLABIO Hagatorgi, simi 530 1919 Lokað í dag, Þorláksmessu Opið annan í jólum mm S90 PUNKTA FEfíÐU i BÍÓ BÍÓHOUl NÝTT 0G BETRA SACAr Álfabakka S, sími 587 8900 og 587 8905 Lokað í dag, Þorláksmessu Opið annan í jólum www.samfilm.is Kvikmyndahátíðin í Berlín Reuters Leikstjórinn Wim Wenders ásamt leikkonunni Daryl Hannah við frumsýningn heimildarmyndar hans Buena Vista Social Club fyrr á þessu ári. U2, Mel Gibson og Wim Wenders í Berlín NÝJASTA kvikmynd Wim Wend- ers, The Million Dollar Hotel verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Berlín þann 9. febrúar á næsta ári. Það eru stórleikararnir Mel Gibson, Milla Jovovich (The Fifth Element) og Jeremy Davies (Saving Private Ryan) sem fara með aðalhlutverkin í myndinni. Kvik- myndin verður frumsýnd við setn- ingu hátíðarinnar sem verður á næsta ári haldin í fimmtugasta sinn. ■ ' I tilefni af gullafmæli hátíðarinnar verður hún flutt á nýjan stað í Þýskalandi og verður haldin í Potsdamer Platz, sem er staðsett í miðju höfuðborgarinnar. Fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, Moritz de Hadeln sagði að þessu tilefni: „Við erum mjög ánægð með það að kvikmynd eftir einn virtasta leik- stjóra Þýskalands með öðrum eins stórleikurum skuli verða opnunar- mynd fimmtugustu Kvikmyndahá- tíðarinnar í Berlín. Þetta er í annað árið í röð sem kvikmynd sem á rætur að rekja til Þýskalands er opnunar- mynd hátíðarinnar sem er einkar ánægjulegt. Eg og samstarfsfólk mitt hlökkum til að deila með hátíð- * argestum þessari spennandi mynd.“ Hugmynd Bono Myndin Million Dollar Hotel er byggð á hugmynd írska tónlistar- mannsins Bono úr hljómsveitinni U2 og gerist í Los Angeles árið 2001. Mel Gibson leikur alríkislögreglu- mann sem rannsakar morð á syni fjölmiðlajöfurs á subbulegu hóteli. Bono á heiðurinn af tónlistinni í myndinni og er hún flutt af hljóm- sveit hans, U2. Nicholas Klein samdi handritið. „Eg gæti ekki ímyndað mér betri '•“’stað til að frumsýna The Million Dollar Hotel en Kvikmyndahátíðina í Berlín," sagði Gibson. „Þetta er frá- bær leið til þess að heiðra tuttugustu kvikmynd Wim Wenders sem hann hefur gert á þeim þrjátíu árum sem hann hefur starfað í kvikmynda- gerð.“ ' jjf Wenders finnst sjálfum mikilvægt ;ið mynd hans verði sýnd á hátíðinni. Mel Gibson fer með aðalhlut- verk f myndinni The Million Dollar Hotel. Söngvarinn Bono átti hugmynd- ina að myndinni The Million Dollar Hotel og semur tónlist- ina. „Þegar við kvikmynduðum Wings of Desire í Potsdamer Platz, hefði ég ekki getað ímyndað mer að fimmtán árum síðar myndum við vera í þeim spoi-um að eiga opnunarmynd Kvik- myndahátíðarinnar í Berlín með aðra mynd eftir mig,“ sagði hann stoltur og þakklátur. The Million Dollar Hotel er viður- nefni á skemmu þar sem hljómsveit- in U2 tók upp myndbandið við lagið Where the Streets Have No Name árið 1987. Wenders kynntist síðan hljómsveitarmeðlimum árið 1990 eft- ir að sveitin kom fram í sjónvar- psþættinum Red Hot + Blue. U2 hefur átt lög í nokkrum mynda Wen- ers þ.a.m. Until the End of the World, Faraway, So Close og The .End of Violence. Kvikmyndahátíðin í Berlín mun standa frá 9. febrúar til 20. febrúar. Þriggja platna Bjöggajól Björgvin Halldórs- son á sér fastastað í íslensku þjóðarsál- inni. Hann lætur ekki deigan síga um þessi jól og sendir frá sér þrjár hljóm- plötur í jólapakka landsmanna. ívar Páll Jónsson spjall- aði við Bjögga. BJÖRGVIN Halldórsson hefur staðið í ströngu fyrir þessi jól eins og svo oft áður. Plöturnar sem hann er viðriðinn eru þrjár; Islandslög 4 sem hann framleiðir og ljær rödd sína ásamt fjölda annarra söngvara, tvöfalda geislaplatan Bestu jólalög Björgvins sem hefur að geyma helstu jólalög hans í gegnum tíðina og endurútgáfa vísnaplötunnar Út um græna grundu sem hann gaf út ásamt Gunnari Þórðarsyni á árum áður. Morgunblaðið hafði samband við Björgvin í ösinni á dögunum og spurði fyrst hvort hann fengi aldrei leiða á tónlist. „Jú jú, það kemur fyrir að maður fái svolítið ofnæmi eins og gengur. Þá reyni ég bara að hafa þögn í kringum mig, fer að veiða eða eitthvað svoleiðis. Ég held að allir fái endrum og sinnum leiða á starfinu og ég er engin undan- tekning," segir Björgvin. Björgvin hefur í vaxandi mæli snúið sér að upptökustjórn, eða framleiðslu á tónlist. Líkar honum betur að vera í því hlutverki en sem flytjandi tónlistarinnar? „Framleið- andi er oftast nær sá sem kemur með hugmyndina að verkinu og vinnur það frá a til ö; reynir t.a.m. að fá útgefanda til fjármögnunar. Mér finnst það starf mjög gefandi og svo er gríðarlega gaman að vinna í hljóðveri, ekki síst fyrir mann eins og mig sem man hvernig upptöku- vinnan var fyrir tækniframfarir síð- ustu ára. Hitt er svo annað mál að ég hef líka mjög gaman af því að koma fram á sviði,“ segir hann. Vil gera eins vel og ég get Upptökustjórar eru misjafnir, sumir eru „fullkomnunarsinnar", á meðan aðrir eru afslappaðri. Hver er stíll Björgvins? Er hann full- komnunarsinni? „Það hefur verið sagt við mig að ég sé óþolandi á stundum, en það helgast bara af því að ég vil gera eins vel og ég get. Ég reyni að taka þátt í öllum þáttum framleiðslunnar, en þó er ég alltaf með aðra atvinnumenn í liði með mér. Þótt ég kunni til dæmis nokk- ur skil á tæknivinnunni fæ ég yfir- leitt færustu tæknimenn til að stjórna þeim þætti,“ segir Björgvin. Björgvin segir að mjög hafi fjölg- að í „úrvalsliði" hljóðfæraleikara og söngvara í seinni tíð. „Ég hef unnið mikið með sama fólkinu, en nú er svo komið að fjölmargir söngvarar og hljóðfæraleikarar eru á heimsmælikvarða. Sú þróun er að sjálfsögðu af hinu góða og gerir starfið léttara," segir hann. Nú er nánast óbærilega stutt í jólin. Er Björgvin farinn að hlakka til? „Jú, að sjálfsögðu. Jólin eru góður tími.“ Bakar Björgvin Hall- dórsson fyrir jólin? „Nei, það geri ég ekki. Ég bý bara til góðan mat og nýt samverunnar með fjölskyld- unni.“ Hið árlega diskókvöld Margeirs Einblínt á góðu diskó- tónlistina „HVERT einasta kvöld er laugar- dagskvöld og allir dagar eru sunnu- dagar" er slagorð diskókvöldsins sem haldið verður á Astró þann 26. desember og hefst kl. 23. Diskókvöldið er nú haldið fjórða árið í röð og er kennt við Margeir- ,skífuþeytinn óborganlega, sem var mjög heitur víða um veröld á áttunda ára- tugnum, ef marka má með- fylgjandi myndir, og mætti aftur til leiks eftir tíu ára hlé nú fyrir fjórum árum. Margar leyndar perlur „Þetta hafa verið alveg rosalega skemmtileg kvöld,“ sagði Margeir þegar blaðamanni loksins tókst að ná sambandi við þennan umsetna mann. „Og mér er það mikið í mun að fólk misskilji ekki hvernig diskótónlist verður leikin. Fólk hefur ákveðnar hug- myndir um hvernig diskó- tónlist er, og dettur í hug Bee Gees, I Will Survive, It’s Rain- ing Men, en það er alls ekki þannig diskótónlist sem ég ætla að spila. Ég er meira að spila „neðanjarðar"— diskó frá gullaldarárum diskósins frá 1975 og fram á níunda áratuginn. Það eru margar perlur sem leynast í þessari tegund tón- listar sem aldrei heyrðust á Islandi, en ég komst í kynni við í New York og víðar á þessum ár- um. Þannig ein- blíni ég á góðu diskótónlist- ina sem var heldur betur til staðar líka, en Margeir hefur margt brallað mcð mörgum gegnum tíðina. kannski ekki ein- mitt hér á íslandi." Margeir er mcð reyndari skífuþeytum sem Island á. Góð tilbreyting frá jólunum - Ég hef frétt að stemmningin sé alveg óborganleg. „Ég veit ekki af hverju þessi frábæra stemmning skapast en hún hefur verið alveg frá fyrsta kvöldinu sem ég stóð fyrir. Þetta er geggjuð tónlist og fólk er byrjað að mæta í fönkföt- um, þótt það megi alls ekki misskilja það og halda að þetta sé eitthvert grímuball. Þetta er reyndar mjög skemmtilegur dagur, og fólk er alveg brjálað í að hlusta á diskó eftir öll jólin. Þetta er agaleg stuðtónlist og góð tilbreyting frá jólasálmunum. Fólk er æst í að komast burt frá ættingjunum, jólaboðunum og hangikjötinu, og vill helst hreyfa sig eftir kræsingarnar í brjáluðum diskófíling. Það er ekki skilyrði að vera í öðruvísi fötum, en ég verð að sjálfsögðu í diskógallan- um og margir verða vel til hafðir. Svo koma líka fram gestir einsog slagverksleik- arinn Ýmir sem ber húðir undir tónlistinni hjá mér, og leynigestur sem ég get því miður ekki sagt hver er, en í fyrra var það Páll Óskar eða Dr. Love sem sneri diskó- plötum í hálftíma. Þegar allt þetta safn- ast saman verðu úr algjör stuð- bomba og þannig verður það án efa núna á öðrum jóladegi," sagði Margeir og fór að raða plötunum sín- um.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.