Morgunblaðið - 21.01.2000, Side 40

Morgunblaðið - 21.01.2000, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Frelsi og fyrirmyndir / Afram ber að horfa til Rússlands eftir fyrirmyndum á fjármálamarkaði. Þótt sináþjóð sem íslendingar þurfi ávaílt fyrst og fremst að vera á varðbergi gagnvart erlendri ásælni er einnig mikilvægt að jafn- framt sé hugað að því, sem unnt er að nýta úr reynslu útlendra manna. Vissulega liggur í senn fyr- ir og er morgunljóst að erlendar þjóðir, einkum Evrópuríki, hafa sameinast um það markmið að komast yfir auðlindir íslendinga og uppræta tungu landsmanna og einstaka menningu. Þessi vitn- eskja íslensku þjóðarinnar kallar á þrotlausa varðstöðu og mikla var- fæmi í samskiptum við fólk, sem er svo ógæfusamt að búa í öðrum löndum. Gæfa íslendinga felst ekki síst í því að hvergi hefur verið slakað á þessari varðstöðu um leið og skyggnst hefur verið af hófsemd og ábyrgð til erlendra ríkja. Á tím- um kalda stríðsins var tekist á um hvort íslendingum bæri að horfa til austurs eða vesturs. Sú barátta er nú á enda. Nú geta mikilvæg- UUIUADE UStU SyUÍr 0g * l‘'nUlfr dæturþjóðar- innar gotið augum í senn til austurs og Eftir Asgeir Sverrisson vesturs og jafnvel suðurs þótt jafn- an sé ástæða tO að vera sérstak- lega á varðbergi gagnvart áhrifum er þaðan berast. Enda býr á íslandi bjartsýn og hamingjusöm þjóð. Endalok kalda stríðsins hafa þannig haft í för með sér ákveðnar viðhorfsbreytingar. Flestar hafa þær verið til góðs og reynst Islend- ingum hagfelldar. Hitt er einnig rétt að svo gríðarleg umskipti geta reynt mjög á aðlögunarhæfni manna og raunar heilu þjóðanna. íslendingar búa yfir þeirri að- lögunarhæfni. Forðum skipuðu Bandaríkin sérstakan sess í huga þorra Is- lendinga. Ráðamenn þar vestra sýndust Islendingum heldur vin- samlegir og gerðu ekki skipulegar tiiraunir til að sölsa undir sig fisM- ■Jf miðin og aðrar auðlindir þjóðar- innar. Hermdarverk gegn tungu og einstakri menningu Islendinga voru bundin við rekstur sjónvarps- stöðvar á Miðnesheiði en þjóðhollir menn og góðir sáu til þess að þeim útsendingum var beint frá byggð- um íslenskra manna. í Bandaríkjunum ríkti hins veg- ar frelsi og einstaklingshyggja, sem heillaði marga á Islandi. Þar gátu duglegir menn orðið ríkir. Þróunin í Bandaríkjunum á seinni árum hefur á hinn bóginn ekM verið jákvæð að öllu leyti. Reglugerðahyggja hefur náð traustri fótfestu þar vestra. Þann- ig er nú svo illa komið fyrir Banda- ríkjamönnum að settar hafa verið alls kyns starfs- og siðareglur varðandi fjármálamarkaðinn þar m.a. til að koma í veg fyrir svo- nefnd „óleyfileg innheijavið- sMpti“. Ahrif tilsMpanafíMa í Banda- ríkjunum munu raunar vera slík að reglur m.a. um verðbréfaviðskipti yfirmanna fjármálafyrirtækja hafa verið settar í öðrum löndum, jafn- vel í því lastabæli leti og félags- legrar ómennsku, Danmörku. Það er hins vegar ánægjulegur mælikvarði á þá hugmyndafræði- y legu frelsun, sem fylgir endalokum kalda stríðsins, að íslendingar geta nú hæglega leitað annað eftir ráðgjöf og fyrirmyndum. Það hafa þeir líka gert. Fyrir- mynd íslenska fjármálamarkaðar- ins er að finna í Rússlandi. Miðstýringarmenn og aðrir ein- staklingar haldnir viðlíka ónáttúru reyndu fyrir skemmstu að þyrla upp moldviðri þegar í ljós kom að nokkrir helstu yfirmenn Búnaðar- bankans höfðu hagnast um millj- ónir króna á nokkrum dögum með því að versla með hlutabréf í bank- anum sjálfum, sem verið er að einkavæða. Þessum fulltrúum reglugerðatrúarinnar, sem eru réttnefndir „aðilar", er sýnilega ókunnugt um sMpan mála í fyrir- myndarríMnu en í Rússlandi hefur markaðsvæðing gert að verkum að fjármálakerfið allt er nú komið í hendur fárra en sérlega hæfra manna, sem margir eru ungir og allir reka glæsileg fyrirtæM. Þess er enda gætt í hvívetna að svigrúm þeirra sé á engan hátt takmarkað. Þar hafa ekM verið leiddar í gildi heftandi reglur varðandi inn- herjaviðsMpti, starfshætti á fjár- málamarkaði eða svokallaða „dreifða eignaraðild" enda iðka Rússa þann kapítalisma frelsis og framtaks, sem forðum var við lýði í Bandaríkjunum og íslendingar hrifust svo af. Er fagnaðarefni að þau viðmið skuli loks hafa verið leidd til öndvegis hér á landi. Islendingar geta hins vegar enn horft vestur um haf enda er þar ýmislegt að finna, sem til fyrir- myndar getur talist. Nú þegar hafa glæsileg íslensk trygginga- fyrirtæM teMð upp bandarísk við- mið; sú gleðilega frétt barst á dög- unum að fólM hér á landi, sem átt hefði við þunglyndi að stríða, væri nú gert að greiða hærri iðgjöld en hinum heilbrigðu. Þessi þróun er í senn jákvæð og eðlileg. Ástæða er til að vona að með til- komu miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði verði þessar fram- farir festar í sessi. Úr honum verð- ur unnt að selja gagnlegar upp- lýsingar um tÚtekna hópa fólks t.a.m. til glæsilegra tryggingafyr- irtækja og annarra þeirra, sem stunda atvinnurekstur og manna- ráðningar. Einkar vel fer á því að upplýsingar frá veiku fólM í gagna- grunninum verði notaðar til að tryggja að þeir, sem veikjast í framtíðinni, leggi ekM fjái-hagsleg- ar byrðar á þá, sem heilbrigðir eru. Hópur manna á Islandi hefur á síðustu árum barist fyrir því að þjóðin renni saman við útlendinga, sem búa suður í álfu undir merkj- um Evrópusambandsins svo- nefnda. Ástæða er til þess að vera á varðbergi gagnvart slíkum áróðri. Hafa ber t.a.m. í huga að reglur um umsagnarrétt al- mennings og framgang mála í samfélaginu hafa verið settar á vettvangi ESB og þetta reglu- gerðaveldi mun hafa getið af sér margvíslegar tilsMpanir, sem fallnar væru til þess eins að hefta frumkvæði hinna dugmestu á ís- lenska fjármálamarkaðinum. Að vísu hafa Evrópubúar til- hneigingu til að hugsa einkum tU ættingja sinna og vina þegar þeim eru fengin völd og áhrif og má þar vissulega finna ákveðna samsvör- un með þeim góðu hefðum, sem mótast hafa að þessu leyti hér á landi. Sökum linnulausrar ásælni Evrópumanna er hins vegar heppilegast að áfram verði horft austur til Rússlands hvað fjár- málamarkaðinn varðar. Eðlilegt er að viðmið frá Bandaríkjunum verði innleidd í enn tTkari mæli m.a. tU að tryggja flæði upplýsinga um einstaMinga og þjóðfélagshópa, sem haft geta áhrif á afkomu ís- lenskra fyrirtækja og eignar- haldsfélaga. + Einvarður Rúnar Albertsson fædd- ist á Akranesi 30. október 1947. Hann lést af slysförum 15. janúar síðastliðinn. Einvarður var sonur hjónana Alberts Ein- varðssonar, sem lést 1.3. 1992, og Helgu Indriðadóttur, sem dvelur á dvalarheini- ili aldraðra á Akra- nesi. Einvarður ólst upp á Akranesi. Systkini hans eru Indriði og kona hans Helga Sveinbjömsdóttir búsett í Reykjavík; Rósa og eiginmaður hennar Gunnar Hafsteinsson bú- sett á Akranesi; Helga Þórný og eiginmaður hennar Sturlaugur Gíslason, búsett á Akranesi. Einvarður kvæntist 31.12. 1968 Ingibjörgu Sólmundardóttur, f. 14.5.1950, vom þau búsett á Akra- nesi til 1975 er þau fluttu í Garð í Gerðahreppi. Þau slitu samvistir í maí 1998. Börn þeirra em: 1) Sig- ríður Birna, f. 19.12.1968, unnusti hennar er Jón Már Sverrisson, börn þeirra eru Sverrir Marínó, Guðmundur Marínó og Ingibjörg Elsku pabbi, við kveðjum þig með harm í hjarta, minningamar um þig munu ávallt lifa í hjarta okkar. Okkur langar að þakka þér fyrir allar yndis- legu stundimar sem við áttum sam- an. Megi Guð geyma og varðveita sál þína. Nú legg ég augun aftur, ó Guð þinn náðarkraftur mínverivömínótt. Ævirztmigaðþértaka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Pýð. S. Egilsson.) Bima og Jón Már, Albert og Elva Hmnd, Helga og Hannes, Sólmundur. Elsku afi, það er erfitt að sMlja hvers vegna þú varst teMnn frá okk- ur svona snögglega. Það var svo margt sem við ætluðum að gera sam- an. Alltaf gast þú fengið okkur til að hlæja og hafðir alltaf tíma fyrir okk- ur. Við erum þakklátir fyrir að hafa fengið að vera með þér síðustu nótt- ina. Það var svo gaman þetta kvöld, þú eldaðir góðan mat og svo horfðum við á fótboltaleik saman eins og svo oft áður. Heimsins besti afi, við eigum eftir að sakna þín sárt en við vitum að þú átt eftir að halda þinni verndar- hendi yfir okkur eins og þú hefur allt- af gert. Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn, tilkomi þitt ríki. Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgef- um vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni heldar frelsa oss frá illu, því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin, að eilífii amen. Einvarður Már og Jón Gunnar. Rúnar á Marbakka. Einvarður Rúnar, ýmist kallaður Varði eða Rún- ar okkar á meðal, seinna nafnið til- heyrði bernskunni, en stytting fyrra nafnsins algeng á unglingsárunum. Og nú er hann skyndilega farinn, hrifsaður burt, horfinn öllum sem hann unni svo heitt. Þessi leikfélagi minn af Vesturgöt- unni á Akranesi er í minningunni forkur duglegur og útsjónarsamur svo af bar, vogaður, hlýr og traustur. Leiksvæðið við Vesturgötuna markaðist nokkurnveginn af Lindai'- brekku og Bjargi í vestri og Kothús- um í austri; það teygði sig líka í suð- urátt og náði þannig upp á Laugarbraut og yfir neðri hluta Ak- urgerðis, sem við kölluðum reyndar ennþá Bragagötuna, eins og gatan Sól. 2) Albert Rúnar, f. 1.3. 1971, unnusta hans er Elfa Hrund Guðmundsdóttir og eiga þau eina dóttur, Anítu Mist. 3) Helga Steinunn, f. 3.9. 1973, unnusti hennar er Hannes Jón Jóns- son, börn þeirra eru Einvarður Már, Jón Gunnar og Alexand- er Aron. 4) Sólmund- ur Ingi, f. 28.9.1982. Einvarður lauk prófum í vélvirkjun 1969 og lauk meist- araprófi í vélvirkjun hjá Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi. Hann hóf nám við Tækniskóla Islands árið 1987 og útskrifaðist þaðan sem vélaiðnaðarfræðingur og iðn- rekstrarfræðingur árið 1990. Að loknu námi við Tækniskólann varð Einvarður útgerðarstjóri hjá Miðnesi hf. en eftir sameiningu Miðness og Haraldar Böðvarsson- ar og co. varð hann rekstrarstjóri HB og co. í Sandgerði og starfaði þar síðan. Útför Einvarðs fer fram frá tít- skálakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. hét áður, en norðurmörMn voru klettarnir, fjaran og Krókalónið. Inn- an svæðisins voru gömul hús með nöfn eins og Sandvík, Ás, Setberg, Dvergasteinn, Steinai', Jörfi (sem nú er á Bráðræðisholtinu), Gimli, Reyk- ir, TraðarbakM, MarbakM og fáein nýiri en nafnlaus hús. Á þessu svæði höfðum við greiðan aðgang að nokkrum fótboltavöllum, einkum samanlögðu Setbergs- og Ástúninu og Traðarbakkatúninu. Stærsti, náttúrlegi sparkvöllur bæj- arins, Merkurtúnið, var skammt utan við okkar heimasvæði, en hafði þó miMð aðdráttarafl. Og allir spiluðu fótbolta í þessum bæ, það var ekM spurning um val. Rúnar var vel lið- tækur eins og svo margir, við spiluð- um í félagi okkar strákanna í hverf- inu og einhvem tíma spiluðum við saman í KA man ég, en fótboltinn vék fyrir öðrum áhugamálum. Og ég hygg að Rúnar hafi aldrei skort áhugamál, því hann var alla tíð önnum kafinn, það var ævinlega eitt- hvað fyrir stafni, eitthvað sem gaman var að sinna. Og „gaman“ er ef til vill lýsingarorð við hæfi. Honum þótti gaman. Lífið var skemmtilegt og ögrandi. Honum var snemma lagið að finna sér eitthvað til að fást við sem gæfi í aðra hönd. Þannig safnaði hann til að mynda brotajárni í stórum stíl ef von var á brotajámssMpi, hann hafði ein- hvem veginn alltaf ömggar spurnir af sMpakomum. Séðui’. Tólf eða þrettán ára komst hann yfir bátsskel og gerði út á rauðmaga og grásleppu ásamt, að mig minnir, Gvendi á Dvergasteini, og bauð hverjum okkar hinna af örlæti sínu að róa með þeim. Ég flaut stundum með, sætti þó jafnan lagi og gætti þess vel að ekM sæist til mín úr gluggunum heima í Ási, því móður minni og ömmu var ekkert um það gefið að ég væri að dandalast þetta út á sjó, sjálfsagt einkum vegna þess að rauðmagamið- in vora fyrir utan Bræður, klettana sem greindu pollinn okkar, Króka- lónið, frá víðáttum Faxaflóans. Og áramótabrennurnar. Rúnar var jafnan iðnari og margfalt klókari en við hinir að afla til áramótabrennunn- ar, en brennumar okkar sem bjugg- um í kallfæri við innri hluta Króka- lónsins á norðurströnd Skagans bára tvímælalaust af öðram slíkum og sá- ust að minnsta kosti upp í Melasveit, ef ekki norður á Mýrar og jafnvel Snæfellsnes! Ég var að minnsta kosti tilbúinn að trúa því, einkum þó ef Rúnar hélt þessu fram, því hann með öll sín tengsl við farmenn og fiski- menn vissi svo margt betur en ég. Hvað sem því leið var undirstaðan í bálköstunum okkar oft veigamikil. Eitt árið stóð kösturinn þannig á tveimur aflóga nótabátum, sem reyndust eldinum margra daga þrot- laust verk að vinna á. Brennusöfnun var líka teMn alvarlega, því sam- keppni um brennuefni var miMl og miskunnarlaus á Skaganum. Ein- hvern tíma við upphaf aðventu voram við Guðmundur, uppeldisbræðumir í Ási, að koma úr sendiferð og hafði dvalist við einhvem glingurfullan búðargluggann. Þá mættum við Rún- ari sem var að draga miMa tréhlera og fleira viðarkyns á eftir sér í snjón- um á Vesturgötunni. I desember sá- um við yfirleitt aldrei lengra en til un- aðssemda jólanna, súkkulaðisins og gjafanna, en Rúnar var þá farinn að huga að brennusöfnun og kvað ekM ráð nema það væri tekið í tíma. Þetta var auðvitað hárrétt og í mínu bamsminni er desember fyrst og fremst miMll brennusöfnunartími. Við hraukuðum aðföngunum upp neðst í stóra kartöflugarðinum hans Sverris Bjamasonar sem náði fram á klettana við lónið, en leigðum síðan vörabíl - gott ef Rúnar sá ekki um það - til að flytja allt draslið á brennustaðinn góða, hól einn breiðan og háan sem stóð upp af Kalmansvík- inni sem þá var fyrir innan bæinn. Oft urðum við að standa vörð um eldsmatinn sem við höfðum dregið saman, aðiir brennuflokkar áttu það til að láta eitt og annað fjúka á sig ættu þeir leið hjá. Þá vora einnig brögð að því að stelvísir braskarar, fullorðnir menn með ríka hneigð til óheiðarlegrar sjálfsbjargar, kæmu til að gramsa í haugnum okkar og hirða þar sitthvað sem þeir gætu hugsan- lega komið í verð. Varðstaðan reynd- ist því nauðsynleg að mati Rúnars og lá hann ekM á liði sínu í þeim efnum fremur en öðra. Og hann vílaði ekM fyrir sér að segja harðfullorðnum bís- um til syndanna ef svo bar undir. Réttlætiskenndin var rík og ekM skorti kjarkinn. Vinahópurinn dreifðist þegar bernskan var að baM og unglingsár- in. Sumir gengu menntaveginn og yf- irgáfu Akranes fyrir fullt og fast, en aðrir fundu þar yndi sitt og ílentust. Ég hitti Varða bara endrum og sinn- um hin seinni ár, og það var ævinlega gaman, en ég hygg að við höfum sein- ast átt alvarlegt samtal fyrir tæpum þrjátíu áram. Mér er það minnis- stætt. Hann var þá orðinn tvöfaldur pabbi og var að hvetja mig og annan vin okkar til dáða í þeim efnum, ekk- ert væri merkilegra í þessum heimi, allt annað væri fánýti. Ég hef aldrei séð stoltari föður. Mynd hans á þeirri stundu er greypt í huga minn. Það er mynd af kærleiksríkum manni sem vildi gefa svo margt. Ég geymi ljúfa minningu um góð- an dreng, en sorg hans nánustu er mikil. Ég votta þeim dýpstu samúð. Ámi Ibsen. Kæri frændi, mig langar að senda þér kveðju við þessi leiðarlok. Ég átti eftir að þakka þér fyrir humarinn sem þú sendir mér fyrir matarklúbb- inn. Hann vakti mikla lukku. Enn er maður minntur á hversu líf- ið er hverfult. Það fór ekki á milli mála að röðin var komin að þér. Þú áttir að mæta núna og enginn fyrir- vari var gefinn. Það er tilgangslaust að spyrja hvers vegna þú og hvers vegna núna. Þetta er bara svona, þinn tími var kominn núna en okkar kemur seinna. Á meðan er aðeins einn möguleiM og hann er að halda áfram að vera til og njóta lífsins, rétt eins og þú gerðir alltaf. „Því sá einn lifir sem nýtur lífsins lifandi" (Men- andros). Þegar ég var lítill gutti kom ég oft í heimsókn í Garðinn með mömmu og pabba og bræðram mínum. Það var frábært að koma til ykkar. Mikið fjör og margt gert. Þegar maður varð eldri fækkaði svo heimsóknunum eins og oft vill verða. Ég man vel eftir samverastundum okkar norður í Skagafirði sumarið 1998. Það var miMð farið á hestbak og einnig stunduð veiðimennska, en það var þitt uppáhald. Einnig voram við að leggja frárennsli fyrir Villa og Indu og keyrðum norður á Akureyri að sækja efni. Á leiðinni ræddum við miMð um lífið og tilverana og það sem gengið hafði á undanfarin ár. Við voram sammála um að það era ekki allir sáttir við það sem maður gerir, EINVARÐUR RÚNAR ALBERTSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.