Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þannig kemur svonefndur Vetrargarður í Smáralind til með að líta út.
Framkvæmdir við 60 þúsund fermetra verslunarmiðstöð hefjast í mars
Semja á við Istak um
bygffingu Smáralindar
ÍSTAK hf. verður verktaki við
byggingu verslunarmiðstöðvarinnar
Smáralindar í Kópavogi. Stjórn
Smáralindar ehf. ákvað síðastliðinn
fimmtudag að ganga til samninga
við ístak. Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, segir að
samningsupphæðin verði innan við
sex milljarðar króna. Stefnt er að
því að ganga frá undirritun verk-
samnings fyrir lok febrúar og segist
Pálmi ekki geta tilgreint nákvæman
kostnað fyrr en því verður lokið.
Framkvæmdir eiga að hefjast í
mars.
„Við erum að kaupa á því verði
sem við vildum kaupa,“ sagði Pálmi
um verkið en ákvörðun stjórnar
Smáralindar er tekin í kjölfar við-
ræðna við fjórar innlendar og er-
lendar verktakasamsteypur. Auk
ístaks eru það ÍAV hf. og Höjgaard
& Schultz A/S í Danmörku, Skanska
Jensen A/S frá Danmörku og Bygg-
ingarfélag Gylfa og Gunnars og síð-
an samsteypa íslenskra verktaka
sem eru ÁHÁ-verktakar, Fjarðar-
mót ehf., Gissur og Pálmi efh. og
fleiri.
Pálmi Kristinsson vildi ekki stað-
festa þá tölu sem fram hefði komið
að ístak hefði boðið 6,7 milljarða í
verkið en sagði upphæðina nokkru
lægri, innan við sex milljarða. Hann
sagði þennan verksamning einn
hinn stærsta sem gerður hefði verið
hérlendis og væri hann talinn sam-
bærilegur við Búrfellsvirkjun á sín-
um tíma.
Smáralind verður stærsta bygg-
ing landsins eða rúmlega 60.000 fer-
metrar að flatarmáli. Þar af eru um
40.000 fermetrar sem leigðir verða
til um 100 verslana, veitingastaða,
þjónustufyrirtækja og kvikmynda-
húss. Alls verða um 3.000 bílastæði
umhverfis verslunarmiðstöðina sem
síðar er gert ráð fyrir að fjölga í
4.000 stæði. Við skipulag hússins
hefur verið lögð áhersla á að þar
verði öflug dagvöruverslun í þeim
tilgangi að laða að fólk frá upphafi
til loka vikunnar.
Fimm stærstu verslanirnar í hús-
inu verða samtals um 18-19.000 fer-
metrar að stærð eða sem svarar til
55-60% af nettóverslunarrými húss-
ins.
í miðhúsinu verða tískuverslanir
pg ýmsar sérverslanir og þjónusta.
í austurenda verður um 2.000 fer-
metra yfirbyggður sýningar- og
skemmtigarður sem hlotið hefur
nafnið Vetrargarðurinn, sem er á
stærð við Laugardalshöllina. I Vetr-
argarðinum verða haldnar skipu-
lagðar sýningar af ýmsu tagi auk
menningarstarfsemi og skemmtiv-
iðburða í tengslum við veitingastaði,
bíó og aðra starfsemi hússins.
Mikil eftirspurn eftir leigurými
Smáralind hefur þegar gengið frá
samningum um leigu á meginhlut-
um hússins, þ.e. helstu verslanir,
veitingastaði, bíó og ýmsar smærri
sérverslanir. Pálmi sagði mikinn
áhuga meðal innlendra og erlendra
verslana og þjónustufyrirtækja að
fá inni fyrir starfsemi sína í húsinu
og að stór hluti hússins væri frátek-
inn. Samningar við nýja leigutaka
hafa verið í biðstöðu um nokkurn
tíma meðan unnið hefur verið að
hönnun, frágangi verksamnings og
fleiri atriða.
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
og Landsbanki íslands munu hafa
umsjón með lánsfjármögnun verk-
efnisins. Stærstu hluthafar Smára-
lindar ehf. eru Olíufélagið hf., Bykó
hf., Bygg ehf., Saxhóll ehf., sem er í
eigu Nóatúnsfjölskyldunnar, Skeif-
an 15 sf., Baugur hf. og Gaumur ehf.
r~-
Lést í
bflslysi
í Hrúta-
firði
SJÖTUG kona beið bana eftir
bílslys í Hrútafirði á sunnu-
dagskvöld.
Hún var ásamt eiginmanni
sínum á suðurleið þegar bif-
reið þeirra fór út af brúnni yfir
Hrútafjarðará og lenti í djúp-
um hyl í klakabrynjaðri ánni.
Hin látna hét Sigríður And-
résdóttir, til heimilis í Holta-
gerði 15 í Kópavogi. Hún var
fædd 22. febrúar árið 1929 og
lætur eftir sig átta uppkomin
börn og barnabörn.
Vegfarandi sem kom að
slysstað við Hrútafjarðará
gerði viðvart. Hjónunum var
bjargað upp úr ánni með að-
stoð björgunarsveitarmanna
úr nágrenninu. Þau voru flutt
með sjúkrabifreið til Borgar-
ness, þar sem þyrla Landhelg-
isgæslunnar beið þeirra.
Þyrlan gat ekki lent í
Norðurárdal
Snjókóf hamlaði för þyrl-
unnar inn Norðurárdal, þar
sem þyrlan átti að mæta
sjúkrabifreiðinni.
Við komuna í Borgarnes var
Sigríður látin. Eiginmaður
hennar var fluttur á Sjúkra-
hús Reykjavíkur en var út-
skrifaður fljótlega eftir kom-
una þangað.
Kínverjar semja við Is-
lendinga um lækkun tolla
FASTANEFND íslands hjá Al-
þjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) í
Genf, hefur gengið frá samkomulagi
milli íslenskra og kínverskra stjóm-
valda, sem felur í sér að Kínverjar
lækka tolla á sjávarafurðum og öðr-
um iðnaðarvörum sem ísland selur
til Kína úr 25-30% niður í 10-15%.
Tollalækkanimar koma að fullu til
framkvæmda á ámnum 2001-2005
eftir vömflokkum.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, segir að samkomulagið sé
árangur samningaviðræðna milli ís-
lenskra og kínverskra stjórnvalda
sem átt hafa sér stað um nokkurt
skeið í tengslum við umsókn Kína
um aðild að Alþjóðaviðskiptastofn-
uninni. Tollalækkanirnar ganga í
gildi þegar aðildin verður að vem-
leika, væntanlega um mitt þetta ár.
Hann segir að Kína eigi nú í viðræð-
um við flest aðildarríki Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar um tollamál. í
lok síðasta árs hafi náðst samningar
milli Kína og Bandaríkjanna um
tollamál og sé það mikilvægt skref í
átt að því að Kína fái aðild.
ísland er aðili að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni og hefur því sniðið
sínar tollareglur að reglum stofnun-
arinnar. Sverrir Haukm- segir að
þess vegna hafi ísland ekki þurft að
lækka sína tolla í samningum við
Kína.
Sérblöð í dag
m.
A ÞRIÐJUDOGUM
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is