Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðskiptaráðherra telur að fjármagnsmarkaðurinn hafí á
vissan hátt brugðist þvi trausti sem honum hefur verið sýnt
Útilokar ekki
lagasetningu
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra segist vera mjög
óánægð með það sem komið hafí í ljós
síðustu dagana og telur það ekki í
samræmi við það siðferði sem ætti að
ríkja á fjármagnsmarkaði. Hún úti-
lokar ekki að á þessum málum þurfi
að taka með lagasetningu.
„Þar sem ég fer með eignarhlut
ríkisins í Landsbanka og Búnaðar-
banka kallaði ég á minn fund for-
menn bankaráða og bankastjórna og
fór yfir þessi mál með þeim, en þetta
snýst um það að verklagsreglur sem
fyrirtækin hafa sjálf sett sér hafa
verið brotnar í ákveðnum tilfellum og
misalvarlega og einnig það að það
hafa verið veitt frávik frá reglunum í
sumum tilfellum. Mér finnst að
markaðurinn hafi á vissan hátt ekki
staðið undir því trausti sem við hann
var bundið,“ sagði Valgerður.
Hún sagði að Fjármálaeftirlitið
gegndi mikilvægu hlutverki í þessu
máli sem eftirlitsaðili og hún teldi að
það hefði brugðist alveg rétt við og
lýsti yfir fyllsta trausti á því.
Hún sagði að brot á verklagsregl-
unum væri alvarlegt mál. „Það er um
það að ræða að einstaklingar að mínu
mati hafa verið að hugsa meira um
eigið skinn í ákveðnum tilfellum en
hag bankans, einstakl-
ingar sem vinna hjá
þessum stofnimum, og
það er alvarlegt og á því
þarf að taka,“ sagði hún
aðspurð hvort um það
væri að ræða að menn
hefðu brotið reglumar
sér til fjárhagslegs
ávinnings.
Aðalatriðið að móta
reglur til framtíðar
Valgerður sagði að
aðalatriðið væri að
móta reglur til framtíð-
ar sem farið yrði eftir
og bæta siðferðið í þess-
um efnum. Það yrði
hins vegar ekki horft framhjá því
sem gerst hefði og það yrði að koma í
Ijós hvemig tekið yrði á málum í
þeim efnum. Þær sex stofnanir sem
Fjármálaeftirlitið hefði gert athuga-
semdir við þyrftu að svara ákveðnum
spumingum og síðan myndi Fjár-
málaeftirlitið væntanlega meta málið
að nýju þegar þau svör hefðu borist.
Þá hefði hún farið fram á það við þá
banka sem ríkisvaldið hefði eignar-
hald á að forsvarsmenn þeirra gerðu
grein fyrir afstöðu sinni til þessa
máls og hverjar skýr-
ingar þeirra væru á
þessum meintu brotum
á reglum fyrir 25. febr-
úar næstkomandi.
Hún sagði ljóst að
reglur hefðu verið
brotnar í þessum efn-
um, en því væri ekki að
neita að Fjármálaeftir-
litið gerði alvarlegri at-
hugasemdir við Búnað-
arbankann, enda hefði
það fundað með banka
stjóm og bankaráði þar
í gær. Það segði sína
sögu.
Hún bætti því við að í
framhaldi af fundi sem
hún hefði haldið með aðilum á mark-
aðnum og eftirlitsaðilum fyrir um
hálfum mánuði hefðu verið í vinnslu
nýjar verklagsreglur, sem væra um
það bil að líta dagsins ljós. Þær yrðu
sendar Fjármálaeftirlitinu til stað-
festingar. „Það mikilvægasta er nátt-
úmlega að markaðurinn sjálfur komi
sér saman um reglur sem Fjármála-
eftirlitið getur samþykkt, en ég úti-
loka samt ekki að á þessu þurfi að
taka með lagasetningu," sagði Val-
gerður ennfremur.
Valgerður
Sverrisdóttir
Páll Gunnar Pálsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Framkvæmd reglna
ekki nægilega góð
PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir greinilegt
að framkvæmd verklagsreglna sem
giida um viðskipti stjómenda og
starfsmanna fjármálafyrirtækja hafi
ekki verið nægilega góð. Þess vegna
hafi Fjármálaeftirlitið sent sex stofn-
unum bréf þar sem gerðar séu at-
hugasemdir og óskað eftir frekari
upplýsingum. Nauðsynlegt sé að fjár-
málastofnanimar fari yfir þessi mál
og bæti eftirlitið.
„Stjómir fjármálastofnana eiga að
setja þessar verklagsreglur og það
hafa þær gert í flestum tilvikum. Þær
bera ábyrgð á þeim og eiga að hafa
eftirlit með að þeim sé fylgt. Fjár-
málaeftirlitið er að koma tÚ skila með
þessum aðgerðum að stjómimar
verði að tryggja að farið sé eftir þess-
um reglum og kanna hvort það sé eitt-
hvað fleira sem þurfi að laga. Einnig
beinum við því til stjómanna að þær
skoði þau viðskipti sem
þegar hafa farið fram
þar sem vikið er frá
verklagsreglunum og
meti í hverju tilviki til
hvaða aðgerða þurfi að
gripa. Við höfum einnig
óskað eftir að stjómir
stofnana, sem við ger-
um athugasemdir við,
geri okkur grein fyrir
sínum sjónarmiðum.
Við munum síðan
leggja mat á hvort við
teljum að nóg sé að
gert. Ef ekki krefjumst
við frekari úrbóta.
Það er alveg greini-
legt að framkvæmd
verklagsreglnanna hef-
ur að einhverju marki farið úrskeiðis
hjá sumum þessara stofnana og þess
vegna erum við að grípa til þessara
aðgerða," sagði Páll
Gunnar.
Páll Gunnar sagði að í
sumum tilvikum teldu
fjármálafyrirtækin sig
vera að fylgja megin-
markmiðum reglnanna
jafnvel þó að um frávik
hafi verið að ræða vegna
þess að ekki hafi verið
um að ræða hættu á
hagsmunaárekstrum. í
öðmm tilvikum væri
eftirlitið ekki nægilega
gott.
Snýst um trú-
verðugleika
Páll Gunnar sagðist
ekki geta fullyrt hvort
Fjármálaeftirlitið hefði á þessari
stundu upplýsingar um öll tilvik þar
sem bragðið hefur verið frá verklags-
reglum. Þess vegna hefði Fjármála-
eftirlitið óskað eftir því í bréfi til
nokkurra stjóma fjármálastofnana að
þær gangi sérstaklega úr skugga um
að ekkert fleira hafi farið úrskeiðis.
Hann tók jafnframt fram að stofnanir
hefðu veitt umbeðnar upplýsingar og
í einstökum tilvikum hefðu starfs-
menn eftirlitsins skoðað framgögn.
Páll Gunnar sagði að Fjármálaeft-
irlitið hefði hafið rannsókn á þessu
máli fyrir jól. Upplýsingar hefðu
komið fram í Morgunblaðinu um
þessi mál í janúar og það hefði flýtt
fyrir rannsókninni.
„Þetta mál snýst ekki síst um trú-
verðugleika stofnananna. Stjómend-
ur og starfsmenn þeirra verða að geta
sýnt fram á það á hverjum tíma að
það séu hagsmunir viðskiptamanna
sem séu í fyrirrúmi. Ef þeir geta ekki
sýnt fram á það era þessi fjármálafyr-
irtæki í erfiðri stöðu.“
Eldingunni siglt í
kjölfar Leifs heppna
TIL stendur að sigla í sumar skút-
unni Eldingu frá Noregi um
Hjaltland, Færeyjar og Island til
Grænlands og Kanada í tOefni af
1000 ára afmæli landafunda ís-
lendinga í Vesturheimi.
Leiðangurinn er farinn til minn-
ingar um Eirík rauða, Leif heppna
og Bjarna Heijólfsson, sem fyrst-
ur fann Ameríku og vísaði Leifi
heppna veginn vestur um haf.
Hafsteinn Jóhannsson verður
skipstjóri í ferðinni og siglir Eld-
ingunni hingað til lands í vor. Sex
til níu manns verða með honum í
áhöfn og leiðangursstjóri verður
Rúnar H. Sigdórsson.
Gert er ráð fyrir því að leiðang-
urinn Vínland 2000 taki átta vikur
frá því lagt verður af stað frá ís-
landi í júlíbyrjun í sumar. Fyrir-
hugað er að vera við hátíðahöld í
tilefni 1000 ára afmælis landa-
funda í Bröttuhlíð á Grænlandi 15.
júlí og er síðan ætlunin að Elding-
in verði í samfloti með víkinga-
skipinu íslendingi frá Grænlandi
til „Vínlands hins góða“.
Páll Gunnar Pálsson
forsljóri Fjármála-
eftirlitsins.
Aðalbankastj ori Búnaðarbankans
Tilbúnir að
vinna með Fjár-
málaeftirlitinu
STEFÁN Pálsson, aðalbankastjóri
Búnaðarbankans, segir að bankinn
sé tilbúinn að vinna með Fjármála-
eftirlitinu, því fyrst og fremst vilji
hann skapa traust á starfsemi
sinni.
Stefán sagðist telja að fundur
bankastjórnarinnar og bankaráðs-
ins með Fjármálaeftirlitinu í gær
hefði skýrt málin töluvert og þeir
hefðu nú tíma til 10. febrúar til að
svara Fjármálaeftirlitinu. Þeirri
vinnu yrði hraðað og bæði banka-
ráð og bankastjórn hefðu lýst sig
fús til að vinna með Fjármálaeftir-
litinu í þessari skoðun.
Stefán sagði að þeir hefðu skilið
7. gr verklagsreglnanna rýmra en
hún væri túlkuð nú. í fyrstu máls-
grein 7. greinar segði: „Starfs-
mönnum bankans er óheimilt að
eiga viðskipti með önnur verðbréf
en þau sem skráð eru á opinberum
verðbréfamarkaði eða ganga kaup-
um og sölum á öðrum skipulegum
markaði sem starfar reglulega og
er opinn almenningi.“ Um það
væri að ræða að gefnar hefðu verið
heimildir fyrir viðskiptum með
deCode-bréfin af því að þau
gengju kaupum og sölum á al-
mennum markaði.
„Þetta er nú kannski meginmál-
ið; það er með þessi bréf sem ekki
era ennþá skráð en sannanlega
ganga kaupum og sölum á mark-
aði. Við höfum fengið skilning
Fjármálaeftirlitsins á þessu og við
virðum hann,“ sagði Stefán.
Eiga ekki við um
alla starfsmenn
Hann sagði rétt að það kæmi
fram að þegar rætt væri um
starfsmenn bankans ættu þessar
reglur ekki við um þá alla, því í
fyrstu grein verklagsreglnanna
segði að þær tækju, eftir því sem
við gæti átt, til bankaráðs, banka-
stjórnar, aðstoðarbankastjóra,
þeirra sem sitja í fjármálanefnd
bankans, ritara hennar, starfs-
manna verðbréfa- og fjárstýring-
arsviðs, starfsmanna hagdeildar og
verðbréfaráðgjafa og maka þeirra.
Almennir starfsmenn væru undan-
þegnir þessum ákvæðum.
Stefán sagði að þetta væra verk-
lagsreglur sem bankaráðið hefði
sett og þáverandi bankaeftirlit
Seðlabankans samþykkt.
Hann bætti því við að verklags-
reglur sem tækju til verðbréfafyr-
irtækja almennt hefðu verið í end-
urskoðun í nærfellt ár og væru nú
komnar á lokastig. Hann vissi ekki
betur en þær yrðu sendar Fjár-
málaeftirlitinu í dag
til staðfestingar. „Þannig að það
er verið að vinna að því að skýra
og koma á reglum sem fortaks-
laust á síðan að fara eftir,“ sagði
Stefán.
Hann tók undir að það væri höf-
uðatriði að fjármálastarfsemi nyti
fyllsta trausts og þeir sem störf-
uðu á því sviði.
„Ég legg áherslu á að við eram
tilbúnir til þess að vinna með Fjár-
málaeftirlitinu. Fyrst og fremst
viljum við skapa traust á starfsemi
okkar,“ sagði Stefán að lokum.
Ekki nýjar ábendingar
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands hf.,
sagði að í bréfi Fjármálaeftirlits-
ins hefðu ekki komið fram nýjar
ábendingar um framkvæmd verk-
lagsreglnanna hjá Landsbankan-
um að því er varðar undanþágur
frá viðskiptum með óskráð bréf,
enda engar slíkar undanþágur
veittar innan Landsbankans sjálfs.
Hins vegar hefði komið fram at-
hugasemd við að stjórn Lands-
bréfa, verðbréfafyrirtækis bank-
ans, hefði samþykkt afmarkaða
undanþágu frá reglunum eftir að
erindi þess efnis barst frá starfs-
mönnum. I því máli hefði þeirri
spurningu verið velt upp hvort
stjórnin hefði haft heimild til að
víkja frá reglunum. Ekki hefði
hins vegar verið gerð athugasemd
við framgöngu starfsmanna.
„Framkvæmd reglnanna innan
Landsbankans hf. hefur verið
mjög nákvæm og í bréfi Fjármála-
eftirlitsins eru ekki gerðar veiga-
miklar athugasemdir við hana. Það
eru gerðar minniháttar athuga-
semdir um framkvæmdaratriði
eins og ég held að gert hafi verið
við flest önnur fjármálafyrirtæki,“
sagði Halldór.
Halldór sagði að eina efnislega
athugasemdin sem Fjármálaeftir-
litið hefði gert lyti að þessu til-
tekna máli hjá Landsbréfum. Þar
hefðu verið settar skýrar reglur
um langtímaeignarhald, en heim-
ildin hefði verið nýtt í mjög af-
mörkuðum tilvikum. Undanþágan
sem stjórn Landsbréfa veitti í því
máli hefði nú verið afnumin og því
liti hann svo á að málinu væri lok-
ið. Landsbankinn myndi að sjálf-
sögðu gera Fjármálaeftirlitinu
frekari grein fyrir málinu. Á næst-
unni yrðu settar nýjar og sam-
ræmdar verklagsreglur fyrir fjár-
málastofnanirnar og þar með ætti
öllum vafa um framkvæmd regln-
anna að verða eytt.
Umbeðnar
upplýsingar veittar
Valur Valsson, bankastjóri Is-
landsbanka, sagði að bankaráði
Islandsbanka hefði borist bréf frá
Fjármálaeftirlitinu þar sem gerðar
væra athugasemdir við fram-
kvæmd verklagsreglna bankans.
Þessum athugasemdum yrði svar-
að og umbeðnar upplýsingar veitt-
ar. Valur sagði að fram hefði kom-
ið opinberlega að undanþága hefði
verið veitt frá verklagsreglum sem
bankinn hefði sett starfsmönnum
sínum. Það hefði hins vegar verið
mat manna að undanþágan hefði
verið í samræmi við meginefni
reglnanna. Valur staðfesti einnig
að gerðar hefðu verið minniháttar
athugasemdir við framkvæmd
verklagsreglna hjá Verðbréfa-
markaði íslandsbanka.
Ekki gerðar
athugasemdir við FBA
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
sagði að í bréfi Fjármálaeftirlits-
ins til FBA kæmi fram að fram-
kvæmd verklagsreglnanna væri í
góðu lagi hjá bankanum og eftirlit
almennt gott. Einu undanþágurnar
sem veittar hefðu verið frá reglu-
num væru hvað varðar kaup
starfsmanna bankans í íþróttafé-
lögum.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavík-
ur, sagði að Fjármálaeftirlitið
hefði gert athugasemdir við að
SPRON hefði ekki lokið við að
setja verklagsreglur um viðskipti
starfsmanna og meðferð trúnaðar-
upplýsinga.
Ástæðan fyrir þessu væri sú að
sparisjóðurinn hefði mjög nýlega
stofnað viðskiptastofu. Búið væri
að semja drög að verklagsreglum
og yrðu þau lögð fyrir næsta
stjórnarfund.
Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur
heldur ekki lokið við að setja
starfsmönnum sínum verklagsregl-
ur og gerir Fjármálaeftirlitið at-
hugasemdir við það líkt og hjá
SPRON.