Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 47
+ Guðborg Einars-
dóttir fæddist í
Reykjavík hinn 12.
apríl 1905. Hún lést á
Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund hér
í borg 23. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Einar
Einarsson, f. 9. aprfl
1858 að Háholti í
Gnúpveijahreppi, d.
8. janúar 1952, og
kona hans Guðríður
Guðmundsdóttir, f.
2. aprfl 1869, d. 15.
júlí 1961. Þeim hjón-
um varð átta barna auðið, fimm
dætra og þriggja sona, og eru þau
nú öll látin.
Guðborg giftist aldrei né eign-
aðist böm. Guðborg starfaði
lengstan hluta ævi sinnar sem
verkakona í Reykjavík.
Útför Guðborgar verður gerð
frá Frfldrkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Guðborg Einarsdóttir eða Bogga
frænka eins og við frændsystkinm
gjarnan kölluðum hana lifði lengst
sinna systkina. Það markar því
ákveðin kaflaskil hjá systkinabörn-
um Boggu að vera nú orðin elsta
kynslóðin innan fjölskyldunnar.
Við þau kaflaskil skynjar maður
hve tíminn er hraðfleygur því mér
finnst svo ósköp stutt síðan ég, lítill
drengur, heimsótti afa og ömmu á
Grettisgötu en þar bjuggu þau þá
með föðursystkinum mínum þeim
Boggu frænku, Ingveldi (Ingu
frænku) og Þorsteini (Steina
frænda).
Svo langt sem ég man hefur
Bogga frænka verið til í lífi mínu og
átt sér þar fastan sess lengst af sem
hluti fjölskyldunnar á Rauðarárstíg
30 en afi og amma fluttu ásamt áður-
nefndum þrem börnum sínum að
Rauðarárstíg 30 að mig minnir 1947
eða ’48.
Afi og amma lifðu bæði til hárrar
elli í skjóli þessara barna sinna sem
raunar héldu saman heimili á Rauð-
arárstíg 30 eftir að afi og amma voru
bæði látin. Eftir að Steini frændi féll
frá 1978 bjuggu þær systur Inga og
Bogga saman á Rauðarárstíg 30 allt
þar til þær, fyrir fáum árum, urðu
vegna heilsubrests að vistast á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund þar
sem Ingveldur lést hinn 4. júní sl. á
97. aldursári.
Eftir að Inga frænka lést var eins
og tómarúm myndaðist í lífi Boggu
frænku og er ég þess fullviss að hún
náði sér aldrei að fullu eftir andlát
systur sinnar. Minningar mínar um
Boggu frænku eru nátengdar minn-
ingum mínum um afa og ömmu og
síðan til langtíma minningum um
systkinin þijú á Rauð-
arárstígnum og loks
frænkurnar Ingu og
Boggu sem bjuggu
áfram saman og deildu
lífinu hvor með ann-
arri. Allar eru þær
minningar ljúfar því
vandfundið hygg ég
fólk jafn raungott og
þær systur og raunar
þau systkini öll voru
sínum ættmennum og
raunar öllum sem þeim
kynntust. Heimihð á
Rauðarárstíg 30 var
um áratugaskeið sama-
staður fjölskyldunnar, fyrst að sjálf-
sögðu vegna afa og ömmu en eftir að
þau létust hélst sú hefð að fjölskyld-
an kæmi saman á hátíðis- og tylli-
dögum hjá systkinunum á Rauðar-
árstíg 30 þar sem alltaf var tekið á
móti gestum hvort sem þeir voru
margir eða fáir, af sömu rausninni
og með þeirri góðvild og hlýju sem
einkenndi heimilishaldið. Tel ég
raunar fátítt í dag að jafnstór hópur
systkinabarna haldi tryggð við
frændfólk sitt með þeim hætti sem
við systkinabörnin höfum ræktað
sambandið við þær systur Ingu og
Boggu en þær hafa ávallt gegnt
hlutverki og verið þátttakendur
bæði í gleði okkar og sorgum.
Heimilishaldið á Rauðarárstígn-
um var með þeim hætti að ef til vU
má segja að Bogga hafi staðið frekar
fyrir heimilinu heldur en Inga enda
vann hún ekki úti hin síðari ár nema
í hlutastarfi meðan Inga vann fulla
vinnu úti. Bogga var lengst af ævi
sinnar heilsuhraust og varð eins og
títt var um börn frá fátækum heimil-
um að byrja að vinna barnung, fyrst
í vist hjá vandalausum en síðar er
hún hafði aldur til við fiskbreiðslu en
einnig vann hún um langt skeið hjá
Sambandi íslenskra samvinnufélaga
í garnastöðinni við Rauðarárstíg.
Nú þegar þær eru báðar horfnar
af sjónarsviðinu, Inga frænka og
Bogga frænka, situr eftir tóm sem
ekki verður fyllt því að þær skipuðu
allt til dánardægurs ákveðinn sess í
lífi mínu svo og eiginkonu minnar og
sonar sem þær reyndust ekki síður
traustir vinir, en mér. Því er mér og
fjölskyldu minni þakklæti í huga
fyrir þann tíma sem við nutum sam-
vista með Boggu frænku sem þeirr-
ar mannkostamanneskju sem hún
var bæði sem einstaklingur og hluti
systkinahópsins á Rauðarárstíg 30.
Ef einhver tilvera tekur við af
þessu lífi loknu þá er ég sannfærður
um það að nú er þær systur saman
að nýju því að báðar áttu þær ein-
læga trú á Guð og líf að þessu loknu.
Þorsteinn Júhusson.
Mig langar að minnast hennar
Boggu móðursystur minnar í nokkr-
um orðum en hún lést í hárri elli
sunnudaginn 23. janúar síðastliðinn.
Bogga var afar heilsteypt, trygg-
lynd og hjartagóð kona.
Hún bjó lengst af á Rauðarárstíg
30. Þar hélt hún heimili með foreldr-
um sínum meðan þeim entist líf, síð-
an með tveim systkinum sínum þeim
Ingu og Steina. Steini lést fyrir
rúmum 20 árum en Inga í júní síð-
astliðnum. Bogga er síðust úr stór-
um systkinahópi til að kveðja þenn-
an heim. Heimili þeirra á
Rauðarárstíg var alltaf opið íyrir
ættingjum og vinum og var vel tekið
á móti öllum. Oft var glatt á hjalla er
margir komu þar saman og ég tala
nú ekki um ef einhverjir voru tilbún-
ir að taka í spil. Bogga vann lengst
af hjá Reykhúsi Sambandsins og við
ræstingar hjá Tryggingastofnun
ríkisins.
Bogga var mikil hannyrðakona og
eru margar fallegar útsaumaðar
myndir til eftir hana. Er sjónin
dapraðist varð hún að gefa útsaum-
inn upp á bátinn, þá var gott að vera
flink í krossgáturáðningum. Áhuga-
mál áttu þær systur saman en það
var þátttaka í kvenfélagi Fríkirkj-
unnar í Reykjavík. Þær tóku virkan
þátt í því starfi og vildu veg
Fríkirkjunnar sem mestan. Bogga
naut þess að ferðast um landið í góð-
um félagsskap systkina sinna og
föður mínum. Þessar ferðir voru
þeim mjög kærar og minntust
þeirra oft.
Elsku Bogga, nú þegar við kveðj-
um þig langar mig til að þakka þér
fyrir allt og ég tala nú ekki um
pönnukökurnar og kleinurnar.
Elsku Bogga, guðgeymi þig.
Orn Jónsson.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRDÍSAR MATTHÍASDÓTTUR,
Miðvangi 41,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyf-
lækningadeildar St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
GUÐBORG
EINARSDÓTTIR
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Steinunn Bjarnadóttir, Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson,
Matthías Bjarnason, Sonja Eyfjörð,
Áslaug Hrefna Bjarnadóttir, Brandur Sigurðsson,
Ólafur Sveinn Bjarnason, Lára ÖfjörðGuðmundsdóttir,
Rut Sigurðardóttir, Bjarni Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Færum öllum innilegar þakkir, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARÍU BENEDIKTSDÓTTUR
frá Ljósalandi í Lýtingsstaðahreppi,
síðast til heimilis í sambýlinu
Gullsmára 11, Kópavogi.
Sigurgeir Jóhannsson, Fríður Sigurðardóttir,
Jóhann Jóhannsson, Magnea Guðmundsdóttir,
Snorri Jóhannsson, Stefanía Sigfúsdóttir,
Ingimar Jóhannsson, Kristín Helgadóttir,
Frosti Jóhannsson, Steinunn Jónsdóttir,
Jökull Jóhannsson, Guðný Sveinsdóttir,
Hjálmar Jóhannsson, Erla Stefánsdóttir,
Benedikt Jóhannsson, Valgerður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
K
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverður
framreiddur. Mömmu- og pabba-
stund í safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Dómkirkja. Bamastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára böm, kl.
15.30 íyrir 8-9 ára böm og kl. 17 fyrir
10-12 ára böm.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrúnskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20 býður
foreldrum fermingarbama í Laugar-
nes-, Langholts- og Grensássókn. Sr.
Ólafur Jóhannsson í Grensáskirkju
mun tala um trúrækni og trúarapp-
eldi og sr. Jón Helgi Þórarinsson í
Langholtskirkju mun að því búnu
fjalla um messuna og útskýra inntak
hennar í stuttu máli. „Þriðjudagur
með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðar-
stund í kirkjuskipi þar sem Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng, Gunnar
Gunnarsson leikur á flygil og sr.
Bjami Karlsson flytur guðs orð og
bæn.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backmannog Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Herdís
Storgaard kemur í heimsókn og talar
um slysavamir. Hittumst, kynnumst,
fi’æðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í við-
talstímum hans. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM & K og ldrkjunnar kl.
20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra
kl.11.15. Leikfimi IAK, léttur máls-
verður, helgistund og samvera. Sr.
Gunnar Sigurjónsson sér um dag-
skrá. Kl. 17 TTT10-12 ára starf á veg-
um KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund
kl. 10-12. Kyrrðar- og bænastund kl.
12.10-12.25. Organisti kirkjunnar
leikur á orgelið frá kl. 12. Þakkar- og
bænaefnum má koma til presta og
djákna kirkjunnar. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu að lokinni
bænastund. Starf fyrir 9-10 ára stúlk-
ur kl. 15-16. Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 16.30-17.30. Æsku-
lýðsfélagið fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Opið hús eldri
borgara kl. 13.30-16. Kyrrðarstund,
handavinna, söngur, spil og spjall.
Kaffiveitingar. Kirkjukrakkai- í
Rimaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl.
18-19. Æskulýðsstarf fyrir unglinga
15 ára og eldra kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
dag kl. 12.30. Fyrirbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar
Seljakirkja. Mömmumorgnar 10-12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyr-
irbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir 8-9
ára böm kl. 17-18.30.
Hafnarljarðarkirkja. Opið hús fyrir
10-12 ára böm í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl.
17-18.30 fyrir 7-9 ára böm.
Lágafellskirkja. Foreldramorgunn
kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og Þur-
íður.
Keflavíkurkirkja. Fjölskyldustund í
Kirkjulundi kl. 10.30-11.30. Helgi-
stund, fræðsla og samfélag fyrir
aðstandendur bama undir grunn-
skólaaldri. Umsjón Brynja Eiríks-
dóttir. Fermingarandirbúningur kl.
13.40-15 í Kirkjulundi.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16.30, spunaleikrit, kirkjuprakkarar,
7-9 ára krakkar í leik og lofgjörð.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgameskirkja. TTT tíu - tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgi-
stund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-
19.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30
í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Hvammstangakirkja. .- ,
Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20.30 á
prestssetrinu.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl. 10
mömmumorgunn í félagsheimilinu
Fellaborg. Kl. 16 KFUM og KFUK
fyrir böm 9-12 ára.
Ffladelfía. Samvera eldri borgara kl.
15. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS. Brauðsbrotning og bæna-
stund kl. 20.30.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10-12.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
áttu vegna andláts elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS MAGNÚSSONAR,
Víðihlíð, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar fyrir
hlýhug og góða umönnun.
Jón Ragnarsson, Kristín Thorstensen,
Gestur Ragnarsson, Jóhanna Garðarsdóttir,
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Ólína Ragnarsdóttir
og fjölskyldur.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jóhanna V. Haraldsdóttir,
Ólafur örn Haraldsson, Sigrún Richter,
Þrúður G. Haraldsdóttir, Þórður Friðjónsson.
+
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærra foreldra okkar, tengdaforeldra, afa og ömmu,
KRISTÍNAR S. ÓLAFSDÓTTUR og
HARALDS MATTHÍASSONAR,
Laugarvatni.