Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 27
Hagnaður Marel hf. og dótturfélaga 331 milljón kr. í fyrra
Besta afkoma frá upphafí
HAGNAÐUR af rekstri Marel hf. og
dótturfélaga þess á árinu 1999 nam
331 milljón króna en var 9 milljónir
árið áður. Nemur þessi tala 5,8% af
rekstrartekjum samstæðunnar og er
jafnframt besta afkoma hennar frá
upphafi. Hagnaður móðurfélagsins
var 47 milljónir króna á árinu 1999.
I tilkynningu frá Marel segir að
hlutafé Marel Trading hafí á árinu
verið aukið með þátttöku nokkurra
fyrirtækja sem tekið höfðu þátt í
verkefnum fyrirtækisins. Nafni þess
var einnig breytt í MT ehf. Hlutur
Marel hf. minnkaði við þetta í 40% og
er MT ehf. ekki innan Marel-sam-
stæðunnar á árinu 1999.
Fram kemur að veruleg aukning
hafí orðið á síðasta ári í sölu hjá Mar-
el. Eigi það við um allar iðngreinarn-
ar þrjár, sem Marel selur einkum
vörur sínar til, þ.e. fisk-, kjúklinga-
og kjötiðnað. Fiskiðnaðurinn er enn
mikilvægasta iðngreinin hjá fyrir-
tækinu og var sala þangað um 50% af
veltu félagsins.
Sala og þróun á nýjum búnaði til
laxavinnslu gekk vel á árinu, að því
er fram kemur í tilkynningunni. Sala
í kjöt- og kjúklingaiðnaði varð í
fyrsta sinn um 50% af heildarsölu.
Marel hf. keypti allt hlutafé
danska fyrirtækisins Carnitech a/s á
árinu 1997. Alls voru rekstrartekjur
Carnitech a/s og tveggja dótturfé-
laga þess í Bandaríkjunum og Nor-
egi 2.307 milljónir króna, sem er 48%
aukning frá fyrra ári. Hagnaður nam
261 milljón króna og er það besti
árangur í sögu fyrirtækisins.
Olíufélagið ht
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 11.461 10.438 +9,8%
Rekstrargjöld 10.552 9.587 +10,1%
Afskriftir 278 265 +4,9%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 56 2
Hagnaður f. aðrar tekjur og gjöld 687 588 +16,8%
Aðrar tekjur og gjöld 288 24
Tekju- og eignarskattar 357 219 +63,0%
Hlutdeild minnihluta -12 1
Hagnaður ársins 606 394 +53,8%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 12.825 11.599 +10,6%
Elgið fé 5.897 5.100 +15,6%
Skuldir 6.928 6.499 +6,6%
Skuldir og eigið fé samtals 12.825 11.599 +10,6%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 11,9% 8,4%
Eiginfjárhlutfall 46% 44%
Veltufjárhlutfall 1,25 1,37
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 722 801 -9,9%
Afkoma Olíufélags ins hf. árið 1999
Hagnaður jókst
um 54% milli ára
OLIUFELAGIÐ hf. var rekið með
606 milljóna króna hagnaði árið
1999. Árið 1998 nam hagnaður fé-
lagsins 394 milljónum króna og nam
því aukning hagnaðar 54% milli
áranna. Sala Olíufélagsins nam
11.461 milljónum króna árið 1999 og
jókst um 9,8% frá árinu áður, en
rekstrargjöld félagsins voru 10.552
milljónir króna og jukust um 10,1%.
„Við erum ánægðir með þessa af-
komu sem er sú besta í sögu félags-
ins. Einnig er efnahagur félagsins
mjög traustur. Eiginfjárhlutfall
móðurfélagsins er um 50% en eigið
fé hækkar um tæpar 800 milljónir
milli ára og arðsemi eigin fjár er um
12%.
Það sem einkenndi árið var veru-
legar hækkanir á heimsmarkaðs-
verði, en okkar afkoma er reyndar
svipuð hvort sem verð er að hækka
eða lækka, enda miðast hún við
birgðastöðu. Tekjur félagsins af
verslun með aðrar vörur en fljót-
andi vörur uxu um 26% milli ára,
svo að þar erum við í sókn. Svo má
nefna að rekstrarkostnaður hækk-
aði tímabundið umfram okkar áætl-
anir vegna yfírtöku á starfsemi sem
aðrir voru að reka,“ segir Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélagsins,
í samtali við Morgunblaðið.
Um aukningu annarra tekna og
gjalda um 264 milljónir, sem gerir
201 milljón eftir skatta, segir Geir
það vera hagnað af sölu hlutabréfa,
sem hafi verið talinn fram með
reglulegum liðum í ársreikningi,
eins og mörg önnur félög séu farin
að gera.
Um árið sem í hönd fer segir Geir
Marel gerir ráð fyrir að félagið
verði áfram í fremstu röð með auk-
inni þróunarvinnu vegna hátækni-
búnaðar og áherslu á hugbúnaðar-
lausnir. Að sögn var verkefnisstaða
fyrirtækisins ágæt nú í byrjun ársins
2000. Segir í tilkynningu félagsins að
á árinu verði áhersla lögð á að bæta
afkomu móðurfélagsins. Reiknað er
með að viðunandi hagnaður verði af
rekstri samstæðunnar.
Jákvæð umskipti hjá Marel
Esther Finnbogadóttir hjá grein-
ingadeild Kaupþings segist álíta
uppgjör Marels mjög gott og að um-
skiptin frá fyrra ári séu mjög já-
kvæð. „Tekjurnar aukast um 50%
milli ára og erlenda starfsemin kem-
ur vel út. Breyting fjármagnsliða
kemur þó ekki á óvart, því það er
svipuð þróun og hjá öðrum fyrir-
tækjum.
Hún bendir á að afkoman á seinni
hluta síðasta árs hafi ekki verið alveg
eins góð og á fyrri hluta ársins.
„Samt sem áður virðast horfurnar
vera góðar og Marel er að færa sig
meira yfir í aðra starfsemi. Við sjá-
um að nú kemur helmingur tekna fé-
Marel hf. Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 5.680 3.775 +50,5%
Rekstrargjöld 5.209 3.680 +41,5%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 17 -97
Hagnaður (tap) fyrir skatta 488 -2
Reiknaðir skattar -171 19
Aðrar tekjur og (gjöld) 13 -11
Áhrif af rekstri hludeildarfélaga 1 3 -66,7%
Hagnaður ársins 331 9_ +3.578%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 3.000 2.710 +10,7%
Eigið fé 817 492 +66,1%
Skuldir 2.183 2.218 -1.6%
Skuldir og eigið fé samtals 3.000 2.710 +10,7%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 65,6% 1,8%
Eiginfjárhlutfall 27,2% 18,1%
Veltufjárhlutfall Milljónir króna 1,8 2,0
Veltufé frá rekstri 404 84 +381%
lagsins úr öðru en fiskiðnaði. Það er
því margt spennandi í gangi hjá
Marel og ég tel að þarna sé á ferðinni
spennandi fjárfestingarkostur," seg-
ir Esther.
Gengi bréfa Marels hf. á Verð-
bréfaþingi íslands hækkaði í gær um
3,8%, og endaði í 55. Heildarviðskipti
með bréf félagsins námu tæpum 263
milljónum króna, sem var mesta
magn viðskipta með bréf einstaks fé-
lags á þinginu í gær.
Ma bjooa i=>er S ÆTI ?
að auk venjulegrar áherslu á
rekstrarhagræðingu megi nefna að
Olíufélagið hafí1 fengið umhverfis-
verðlaun á seinasta ári. „Því tengt
lögðum við vinnu í að koma upp
tækjabúnaði til sölu á metangasi í
samvinnu við Sorpu sem safnar gas-
inu og hreinsar það. Það er meiri
kostnaður af þessu en tekjur til að
byrja með, og lítum við á þetta sem
þróunarverkefni sem tengist okkar
áherslu á umhverfismál,“ segir
Geir.
Hann segir einnig að stjórn Olíu-
félagsins hafi ákveðið nýjar áhersl-
ur í hlutabréfaviðskiptum félagsins.
„Við munum e.t.v. stunda slíkt e.t.v.
aðeins ákveðnar í framtíðinni en áð-
ur. Við erum með sterkan efnahags-
reikning sem þolir meiri umsvif á
því sviði,“ segir Geir að lokum.
Björn Snær Guðbrandsson, verð-
bréfamiðlari _ hjá viðskiptastofu
Landsbanka Islands, segir að hagn-
aður Olíufélagsins fyrir árið 1999
hafi verið töluvert hærri en mark-
aðsaðilar reiknuðu með. „Skýringin
liggur trúlega í liðnum aðrar tekjur
og gjöld en sá liður er 288 mkr. en
var 24 mkr. árið á undan. Ef litið er
á hagnað félagsins fyrir fjármuna-
liði og aðrar tekjur þá sést að hann
er 631 mkr. sem er einungis 7,7%
aukning á milli ára.
Sambærilegar tölur fyrir hin olíu-
félögin eru 34% aukning hjá Olíu-
verslun íslands og 76% aukning hjá
Skeljungi. Árið 1999 hefur ljóslega
verið félaginu mjög gott þótt það
hafi ekki náð að nýta sér hagstæð
ytri skilyrði í jafn miklum mæli og
hin olíufélögin," segir Björn Snær.
íd: 220x270 cm
HAK 9 1 CM
M2
SYi.N IN GARSALUR
TM • HÚSGÖGN
0:00 -10:00 • Lauganl. 11:00 -16:00 • Sunnud. 13:00 -16:00
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintýri likust