Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
Samskipti
Hundahald bætir geðið og
heilsuna
Lyfjanotkun
Sum ofnæmislyf skerða
aksturshæfni
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjungar
Forðalyfjum fjölgar mjög
á næstu árum
Krabbamein
Sagt frá nýrri meðferð
við nýrnakrabba
Krabbamein í nýrum
Könnun á áhrifum ofnæmislyfja á ökuhæfni
New York. AP.
Ný meðferð
virðist
árangursrík
MEÐFERÐ, sem líkja má við bólu-
setningu, getur upprætt eða
minnkað æxli í sjúklingum með
nýrnakrabbamein sem breiðst hef-
ur út í líkamanum, samkvæmt
nýrri rannsókn.
Sérfræðingar töldu niðurstöðu
rannsóknarinnar mjög eftir-
tektarverða en vöruðu við of mik-
illi bjartsýni þar sem hún náði að-
eins til sautján sjúklinga. Þeir
sögðu að umfangsmeiri rannsóknir
væru nauðsynlegar.
Æxiin hurfu í fjórum sjúkling-
anna og minnkuðu um rúman
helming í tveimur öðrum, að því er
fram kemur í grein visindamanna
frá Göttingen-háskóla í nýjasta
hefti tímaritsins Nature Medicine.
Krabbamein, sem breiðst hefur
út frá nýra, er mjög erfitt viðfangs
og læknar hafa því oft beitt ýmsum
meðferðum sem eru enn á
tilraunastigi. I nýju rannsókninni
kom í Ijós að æxli hurfu í Iunga,
beinum, eitlum og víðar í líkaman-
um.
Markmiðið með rannsókninni
var að fá ónæmiskerfið til að ráð-
ast á æxli, líkt og þegar venjuleg
bóluefni fá líkamann til að verjast
sýklum. Vísindamennirnir notuðu
blóðfrumur, svokaliaðar greinótt-
ar frumur, sem fá yfirleitt ónæmis-
kerfið til að ráðast á sýkla með því
að bera hluta þeirra í aðrar frum-
ur.
Vísindamennirnir blönduðu
saman milljónum æxlisfruma úr
sjúklingunum og greinóttum frum-
um úr blóðgjöfum og sprautuðu
síðan blendingsfrumunum í sjúkl-
ingana. Frumurnar gátu þá kallað
fram ónæmisviðbrögð með því að
sýna hluta æxlanna í sjúklingnum.
Fyrst var ónæmingarefninu
sprautað tvisvar í sjúklingana,
með sex vikna millibili. Þeim sem
fengu bata var siðan gefin sprauta
á þriggja mánaða fresti. Engar al-
varlegar aukaverkanir komu fram.
í þremur sjúklinganna hurfu
æxlin á fyrstu tólf vikunum, að
sögn vísindamannanna.
Geta haft meiri áhrif
en áfengi
Reuters
Fjölmörg lyf geta skert hæfni manna til að stjórna ökutækjum.
Philadelphia. AP.
EFNI sem er algengt í ofnæmislyfj-
um, sem víða fást án lyfseðils, kann að
hafa meiri áhrif á ökuhæfni en áfengi
hefur, samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem birtar voru í vikunni.
Rannsakendur við Háskólann í Iowa í
Bandaríkjunum prófuðu 40 ofnæmis-
sjúklinga í ökuhermi og komust að
því, að venjulegur skammtur af and-
histamíninu diphenhydramín, sem er
í lyfinu Benadryl og hliðstæðum lyfj-
um, höfðu meiri áhrif á ökuhæfni en
nokkrir áfengir drykkir.
I rannsókninni voru áhrif nýrri
gerðar andhistamíns, fexofenadíns,
eiimig könnuð, en það er í lyfinu Al-
legra, sem er lyfseðilsskylt. Segja
rannsakendumir að hvað áhrif á öku-
hæfni varðar hafi ekki verið hægt að
greina mun á áhrifum fexofenadíns
og óvirks samanburðarlyfs.
Framleiðandi Benadryls gagn-
rýndi rannsóknina og sagði á henni
„alvarlega galla“ þar eð hún hafi verið
að hluta til fjármögnuð af fyrirtækinu
Aventis, sem framleiðir Allegra. Dr.
John Weiler, prófessor í læknisfræði
og höfundur rannsóknarinnar, jsagði
ekkert athugavert við hana. „Ég er
ekki til sölu,“ sagði hann. „Við erum
alls ekki að mælast til þess að hætt
verði að selja þessi lyf. Benadryl er
mjög áhrifaríkt andhistamín. Það eru
aukaverkanirnar sem valda áhyggj-
um.“
Richard Compton, starfsmaður
Þjóðvegaöryggisráðs Bandaríkjanna,
sagði að ekki hefðu verið gerðar næg-
ar rannsóknir á áhrifum ofnæmislyfja
á akstursöryggi og fólk virti of oft að
vettugi viðvaranir um að neyta ekki
áfengis eftir að hafa tekið ofnæmislyf.
Hver er munurinn á sálfræðingi
oggeðlækni?
GYLFIÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Það vill vefjast fyrir
sumum hvort þeir eiga að leita til
sálfræðings eða geðlæknis, þegar
þeir þurfa á aðstoð að halda vegna
geðrænna vandamála eða sjúk-
leika. Hver er munurinn á sálfræð-
ingi og geðlækni og undir hvaða
kringumstæðum á annar betur við
en hinn?
Svar: Meginmunurinn á sál-
fræðingum og geðlæknum felst í
ólíkri grunnmenntun þeirra, sem
leiðir til þess að þeir nálgast við-
fangsefni sitt á mismunandi hátt,
þótt vandinn sem fengist er við
kunni að vera sá sami. Námslengd
þessara tveggja starfsstétta er
ekki ósvipuð. Grunnmenntun sál-
fræðinga er oftast 5-6 ár, eftir því
hvaða námsleið þeir fara og í
hvaða löndum þeir eru menntaðir.
Læknanám hér á landi tekur 6 ár.
Sálfræðinámið felst einkum í því
að læra um sálarlífið, svo sem eðli-
leg þroskaferli, skynjun, hugsun,
nám og persónuleika. Einnig er
lögð áhersla á fræðilegar rann-
sóknaraðferðir og hagnýtar rann-
sóknir og mælingar á einstakling-
um, svonefnd sálfræðileg próf. A
lokastigi námsins er nokkur sér-
hæfing og skrifa nemendur loka-
ritgerð á sínu sérsviði. í sálfræði-
náminu er þó höfuðáherslan á hið
heilbrigða og eðlilega í sálarlífi
fólks og það er ekki fyrr en í sér-
fræðinámi að loknu embættisprófi
að sálfræðingurinn snýr sér að
þeirri sérgrein er hann hyggst
starfa við. Nám til sérfræðiviður-
kenningar tekur 414 ár og er eink-
um fólgið í starfsþjálfun á stofnun-
um undir handleiðslu, en einnig
viðbótar fræðilegu námi á sérsviði
og samningu fræðilegrar ritgerðar
sem fæst birt í ritrýndu sérfræði-
riti. Þetta sérnám getur verið á
sviði kh'nískrar sálfræði, sem er
ein stærsta sérgrein sálfræðinnar,
en hún fæst við greiningu og með-
ferð á afbrigðilegu og geðsjúku
fólki.
Læknanámið beinist einkum að
líkamanum og á seinni stigum
námsins aðallega að sjúkdómum
og lækningum á þeim. Meðal
helstu námsgreina eru líffæra-
fræði, efnafræði, lyfjafræði, líf-
fræði og lífeðlisfræði. Kennsla í
sálfræði er ekki mikil, en námskeið
eru um hina ýmsu sjúkdóma-
flokka, þar á meðal geðlæknis-
fræði. Að embættisprófi loknu fara
flestir læknar í sérnám, t.d. í geð-
læknisfræði, og er því hagað á
svipaðan hátt og sérnám í klínískri
sálfræði hjá sálfræðingum og leiðir
til sérfræðiviðurkenningar.
Ólík nálgun
Þótt bæði klíníski sálfræðingur-
inn og geðlæknirinn hafi lokið sér-
fræðinámi og fáist við svipuð eða
sömu viðfangsefni í starfi sínu, er
nokkur munur á því hvernig þeir
nálgast viðfangsefni sín, sem bygg-
ist m.a. á hinni ólíku grunnmennt-
un sem þeir hafa fengið. Geðlækn-
irinn beitir viðtölum og geðskoðun
og leitar uppi sjúkdómseinkenni,
sem leiða til sjúkdómsgreiningar.
Sálfræðingurinn notar einnig við-
töl við greiningu sína, en auk þess
beitir hann stöðluðum mælikvörð-
um og prófum til þess að greina
persónuleika sjúklingsins og geð-
ræn vandkvæði hans. Vegna þess
að í námi sálfræðingsins er lögð
áhersla á hið normala í sálarlífi
einstaklingsins, er sálfræðingurinn
ekki síður vakandi fyrir hinum
sterku og heilbrigðu þáttum í fari
sjúklingsins, sem geta haft veruleg
áhrif á batahorfur hans.
Meðferðin sem á eftir fylgir get-
ur verið margs konar. Sálfræðing-
urinn beitir einkum viðtalsmeðferð
og styðst þar við hugmyndafræði
og aðferðir fræðimanna eins og
sálkönnun Freuds eða viðtalstækni
Carl Rogers. Geðlæknar beita
einnig slíkri viðtalsmeðferð. Sál-
fræðingurinn hefur auk þess oft
sérþjálfun í kerfisbundnum atferl-
islækningum, eins og t.d. hug-
rænni meðferð. Það sem geðlækn-
irinn hefur umfram sálfræðinginn
við meðferð sína er að hann notar
lyf við lækningar sínar, sem sál-
fræðingurinn hefur ekki leyfi til að
nota. Þess vegna verður oft helsti
munurinn á meðferð geðlæknis og
sálfræðings sá, að læknirinn notar
lyf, en sálfræðingurinn notar við-
talsmeðferð í meira mæli en lækn-
irinn. Oft er nauðsynlegt að gefa
sjúklingnum lyf, einkum þegar um
alvarlegri geðsjúkdóma er að
ræða. Því er meira um það að geð-
læknar fáist við alvarlegri geðveiki
en sálfræðingar. Þó getur við-
talsmeðferð átt þar við einnig. í
hugsýki eða hinum vægari geð-
sjúkdómum er viðtalsmeðferð eða
aðrar aðferðir, sem sálfræðingar
beita einkum, mun meira notuð. Þó
getur tímabundin lyfjagjöf einnig
átt við þar. Oft fer saman viðtals-
meðferð og lyfjagjöf. Þetta á ekki
síst við þunglyndi, þar sem besti
árangurinn fæst með lyfjagjöf og
viðtalsmeðferð, einkum hugrænni
meðferð, samhliða.
Sá samanburður sem hér hefur
verið gerður á menntun og störf-
um sálfræðinga og geðlækna verð-
ur að skoðast með vissum fyrir-
vara. Hér er sálfræðingur að
skilgreina starfssvið annarrar
stéttar, geðlækna, og kynnu þeir
að hafa eitthvað við þann saman-
burð að athuga. Vonandi er þessi
samanburður þó ekki ósanngjam.
Sálfræðingar og geðlæknar
vinna mikið saman og nýta sér-
þekkingu hverjir annarra í grein-
ingu og meðferð og vísa á milli eft-
ir því sem þeim þykir vænlegast til
árangurs. Enn sem komið er
standa þeir þó nokkuð ólíkt að vígi
á eigin stofum utan stofnana. Þjón-
usta geðlæknisins er niðurgreidd
af Tryggingastofnun, en þjónusta
sálfræðingsins ekki. Því er oftast
nokkru dýrara að leita sálfræðings
en læknis. Þetta stendur vonandi
til bóta áður en langt um líður til
hagsbóta fyrir þá sjúklinga, sem
gætu átt von á betri úrlausn hjá
sálfræðingi eða kjósa fremur að
leita til sálfræðings en geðlæknis.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn um það sem þeim liggur
á hjarta. Tekið er á móti spumingum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 569 1100 og brcfum eða sím-
bréfum mcrkLVikulok, Fax:569 1222.