Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Gúllas Bettinu Kristín Gestsdóttir skrifar þetta á bolludaginn, 6. mars. Þá hafði gengið gjörningaveður yfír N-Austurland eins og maður einn komst að orði í útvarpinu. FYRIR allmörg- um árum var ég ásamt systur minni á ferð með strandferðaskipi frá Seyðisflrði í slíku veðri. Sú lífsreynsla gleymist aldrei. Við hér á höfuð- borgarsvæðinu býsnumst yfir veðurhæð og snjóþyngslum, sem er hreinn bamaleikur sam- anborið við aust- firskt gjörninga- veður. Full ástæða er þó til að býsnast yfir hálkunni, sem er geysimikil eftir að fraus ofan í blotann á föstu- daginn. Þótt ekki viðri til göngu- túra læt ég það ekki aftra mér frá að stunda útiveru og dreg þrek- hjólið út og hjóla úti. í síðustu viku auglýsti Karla- kórinn Fóstbræður vortónleika og bætti við að vorið væri komið. Blómabúðir auglýsa sumarblóma- sáningu, sem vafalaust varpar vetrarkvíða frá viðkomandi. Ég hresstist öll við að setjast á þrek- hjólið og hugsaði um leið til kríunnar, sem er lögð af stað frá suðurheimskautinu á 300 km hraða á sólarhring. Aður hafði ég sett afar ljúffengan gúllasrétt með mjög miklum lauk í pott, en hann matreiddi austurrísk vin- kona fyrir okkur hjónin þegar við vorum í heimsókn hjá móður hennar í Graz sl. vor. Réttinn kalla ég einfaldlega: Gúllas Bettinu maður steikir lítið í einu verður ekki eins mikil kæling og kjötið brúnast betur. Setjið síðan allt kjötið í- pottinn með lauknum, stráið salti og paprikudufti yfir. Setjið síðan edikið í vatnið og hell- ið yfir. Vatnið á að vera lítið, en hugsanlega má bæta aðeins við það. Sjóðið við hægan hita í minnst 1 klst., jafnvel lengur. 4. Takið kjötbitana upp úr pott- inum, setjið rósavatn í pottinn, ef þið notið það. Merjið síðan lauk- inn í pottinum með kartöflustapp- ara. 5. Setjið kjötið út í og hitið vel í gegn. Meðlæti. Soðin hrísgrjón eða kartöflustappa (mús). Kartöflustappa (mús) 1 kg bökunarkartöflur 1 kg laukur 2 tsk. salt 1 kg nautagúllas vatn svo fljóti yfir kartöflurnar Vi dl matarolía 15 g smjör (1 smópakki) 3 tsk. salt ögn af sykri, ef ykkur hentar 1 msk. milt paprikuduft hluti kartöflusoðsins 1 msk. rauðvíns- eða hvítvínsedik Vi 1 lítri vatn 1. Afhýðið kartöflumar og skerið í sneiðar. Setjið í pott 2 tsk. rósavatn (mó sleppa) ásamt salti og vatni og sjóðið þar til þær em meyrar. Hellið soðinu af og geymið. 2. Stappið kartöflurnar, þynnið með hluta soðsins, setjið smjör út í og sykur, ef þið notið hann. Kona hringdi til Kristínar um daginn og bað um uppskrift að kólesterol-lausum bollum. Ekki tókst að birta uppskrift að þeim fyrir bolludaginn og biður Kristín konuna að hringja í sig. 1. Afhýðið lauk og saxið smátt, gjaman í grænmetiskvörn. 2. Setjið olíu á pönnu og sjóðið laukinn við hægan hita á henni í 7 mínútur. Setjið í pott. 3. Smyrjið matarolíu á pönn- una, aukið hitann og steikið V4 hluta kjötsins í einu, þerrið pönn- una á milli með eldhúspappír, smyrjið síðan aftur með olíu og steikið aftur Vt og síðan áfram. Ef Byggingaplatan WDK©(S® sem allir hafa bedið eftir VIROCbyggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf VIROC*byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi VIROC®byggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni VIROC® byggingaplatan er umhverfisvæn VIRQC®byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. PP &CO Leitið frekari upplýsinga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100 Ekkert spaug MÉR hefur fundist „Tví- höfði“ stundum bara nokkuð fyndnir - og þeirra spaug var ágætis mótvægi við aðra spaug- þáttagerðarmenn - þar til nú. Þetta, sem þeir buðu uppá sl. miðvikudag- skvöld þ. 8. mars á Stöð 2, á besta sýningartíma, var nánast allt eitt allsherjar ógeð, þar sem saman fór sóðaskapur, ljótt orð- bragð, ofbeldi, illmennska og almennur vesaldómur í hrærigraut. Þetta átti ekkert skylt við grín, hvað þá list. Að mínu viti eiga svona grófir þættir ekkert er- indi við almenning. Almenningur vill ekki hafa sitt grín á svona lágu plani. A.m.k. er ég fokreið yfír að þurfa að greiða fyrir svona viðbjóð. Ég veit um ömmu og afa, sem hreiðruðu um sig í stofu með barnabörnunum sín- um þetta kvöld og ætluðu að gleðja þau með því að leyfa þeim að horfa á ís- lenskan skemmtiþátt, en sátu orðlaus og miður sín undir þessum ósköpum. Þið, „Tvíhöfði“(/„Fóst- bræður") virðist ekki hafa tilfinningu fyrir þeirri hárfínu línu, sem góðir spaugarar verða að vera sér meðvitaðir um, til að fara ekki yfir strikið. Þið fóruð yfir strikið. Og það er ekkert spaug. Ég hef heyrt fleiri tala um þetta; venjulegt fólk vill almennt ekki sjá þætti um sk. „öfuguggahátt", sóðaskap, fantaskap og nauðgun, illmennsku, ljótt orðbragð, „dóp“, morð, VELVAKAIVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags geðveiki eða andlega van- heilsu í íslenskum grín- þáttum - því þetta eru grafalvarleg mál og sorg- leg og eiga margir um sárt að binda einmitt vegna þannig vandamála. Það er heldur ekkert spaug. Mér finnst Stöð 2 vera mikil minnkun að því að stuðla að gerð/útsendingu þátta sem þessa. Ef þið getið ekki betur en þetta, þá hættið þið heldur „Tvíhöfða“-par! Ps. Ég treysti alveg þeim, sem vilja sjá sora og ógeð í sjónvarpi til að verða sér úti um það á öðrum vettvangi. Virðingarfyllst, Rafnhildur Björk Eirfksdóttir, hjúkrunarfræðingur Þakklæti til Míru ÞAÐ er nú svo oft minnst á það sem miður fer hjá verslunum og verslunar- fólki gagnvart viðskipta- vinum þeirra, en sjaldan minnst á það sem vel er gert. Þess vegna langar okkur hjónin að koma á framfæri þakklæti til verslunarstjóra og alls starfsfólksins hjá hús- gagnaversluninni Míru við Bæjarlind í Kópavogi. Fyrir stuttu festum við kaup á sófa hjá þeim og voru þau svo indæl að senda okkur hann heim vegna sérstakra að- stæðna, sem er alls ekki venja hjá húsgagnaversl- unum. Eftir nokkra daga urðum við þess áskynja að þessi sófi hentaði okk- ur ekki fullkomlega eins og tilefni stóð til. Við færðum þetta í tal við verslunarstjórann og hún sagði okkur að hún myndi láta sækja sófann og við myndum síðan koma í verslunina og ræða um hvernig við myndum ganga frá málinu. Daginn eftir sóttu sömu .tveir ungu mennirnir sófann og þar voru sannarlega fag- menn á ferð. Jafnframt komu þeir með bréf frá verslunarstjóranum með kredit-reikningi og ávísun fyrir endurgreiðslu á sóf- anum. Við erum mjög ánægð og þakklát á allri þeirri vinsemd og elsku- legheitum sem við urðum aðnjótandi af hendi alls starfsfólks verslunarinnar og mega eigendur versl- unarinnar sannarlega vera stoltir af og ánægðir með sitt st'arfsfólk. Anna og Halldór Óánægð með þjónustuna ÖLDRUÐ vinkona bauð okkur hjónunum í kaffi á veitingahúsið Apótekið í Reykjavík. Hún hlakkaði mikið til að fara þangað, vegna þess að þarna voru engar breytingar gerðar á húsnæðinu. Þegar við komum þangað báðum við um reyklaust borð, sem var ekki hægt að fá. Við pöntuðum drykki og báð- um um að sígarettuaska yrði þurrkuð af borðinu. Drykkirnir komu á borðið en ekkert bólaði á tertun- um, sem við höfðum einn- ig pantað. Eftir um það bil korter kom ung stúlka með servíettur og gaffla og varð vinkonu minni á að spyrja, hvort verið væri að baka tertuna, unga stúlkan svaraði önug að það tæki nú tíma að skera tertuna. Okkur fannst ófært að fá drykk- ina löngu áður en tertan kom á borðið því það er lítið spennandi að drekka hálf kalda drykki með og vera jafnvel búinn með þá, þegar meðlætið kemur loksins á borðið. Okkur fannst þjónustan afar lé- leg og lítil þjónustulund í starfsfólkinu, okkur var til dæmis ekki þakkað fyrir komuna eða boðin velkomin aftur. Jónína Ásbjarnardóttir Hvar er bflstjórinn ? LAUGARDAGINN 4. mars sl. um kl.18.30 var keyrt á bílinn minn, rauð- an Nissan Terrano, fyrir utan Engihjalla 3. Ég týndi númerinu hjá mann- inum sem keyrði á bílinn, hann var á dökkum jeppa og bið hann um að hafa samband við mig í síma 862-2828. Jóhanna Tapað/fundió Þrír gullhringir týndust ÞRÍR gullhringir, sem þræddir voru upp á armb- andsúr, týndust fimmtu- dagsmorguninn 2. mars sl. á leiðinni frá Hjúkrun- arheimilinu Eir niður í bæ og upp í Húsahverfið í Grafarvogi. Hringirnir hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann og er skilvís finnandi vinsa- mlegast beðinn að hafa samband við Asgerði í síma 567-0806 eða 567- 2956. Fundarlaun. Víkverji skrifar... YÍKVERJI sá sem pistilinn rit- ar er hlynntur rekstri Ríkis- útvarpsins, eins og margoft hefur komið fram á þessum vettvangi. A það einkum við um „gömlu guf- una“ þar sem Víkverja finnst margt hafa verið vel gert á undan- förnum árum, enda starfa þar margir fagmenn með áralanga reynslu í dagskrárgerð. En þótt finna megi ýmislegt jákvætt í starfsemi Ríkisútvarpsins er stofn- unin ekki hafin yfir gagnrýni og Víkverji getur tekið undir margt af því sem fram kemur í Viðhorfs- grein Hávars Sigurjónssonar blaðamanns í Morgunblaðinu síð- astliðinn miðvikudag. Þar segir Hávar meðal annars: „Hinn geðþekki framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins lofar því í DV í fyrradag að ef hann hefði úr meiri peningum að spila þá myndi hann endurtaka hrylling- inn frá síðasta laugardagskvöldi. Vonandi lætur enginn neitt af hendi rakna til þess arna. Pen- ingaleysi er ekki vandi sjónvarps- ins. Meginástæðan fyrir því að Sjónvarpið hefur dagað uppi er einfaldlega getuleysi til að gera eitthvað fyrir þá peninga sem til eru. Það er hinn raunverulegi vandi. Kunnáttuleysi í grundvall- aratriðum er ástæðan fyrir frá- munalega lélegri innlendri dag- skrá í vetur, kunnáttuleysi og lágkúrulegur undirlægjuháttur við lægstu samnefnara alþjóð- legrar dagskrárgerðar. Samfara misskilningi á því hvað felst í hugtakinu „afþreyingarefni11. Þar þarf ekki að vera um illa undir- búið og illa framleitt efni að ræða, heldur efni sem lýtur ákveðnum lögmálum hvað varðar efnistök og úrvinnslu." Líklega hittir Hávar hér nagl- ann á höfuðið og ekki síður í eftir- farandi klausu: „Hvaða tilgangi þjónar það að dubba upp dag- skrárgerð undir heitinu Sunnu- dagsleikhús þegar enginn virðist finnast innan Sjónvarpsins sem getur metið hvort handrit eru hæf til framleiðslu eða ekki?“ xxx 1* FRAMHALDI af þessu fór Vík- verji að velta því fyrir sér hver væri ábyrgur fyrir efnisvali í Sunnudagsleikhús Sjónvarpsins. Hér með er óskað eftir upplýsing- um þar að lútandi. Víkverji verður að játa að hann og kona hans störðu opinmynnt hvort á annað að lokinni sýningu Sunnudagsleik- hússins síðastliðinn sunnudag. Langt er orðið síðan önnur eins lágkúra hefur sést í íslensku sjón- varpi og er þó ekki úr háum söðli að detta hvað varðar íslenska sjónvarpsleikritun. Hver var eigin- lega boðskapur verksins? Var þetta lofsöngur til íslensku hand- rukkarastéttarinnar eða ádeila á ungu athafnamennina? Víkverji bara spyr. Hver svo sem boðskap- urinn var gekk verkið engan veg- inn upp. Það er einfaldlega ekki hægt að bjóða fólki upp á svona vinnubrögð. Já, Víkverji vill fá að vita á hvern hjá Sjónvarpinu hann á að stíla handritið að leikritinu, sem hann ætlar að semja nú í kvöld og ljúka fyrir miðnætti. Það getur fjandakornið ekki orðið verra en það sem boðið var upp á síðastliðið sunnudagskvöld. xxx VÍKVERJI ætlar svo að ljúka pistli dagsins á jákvæðum nótum og fjalla dálítið um knatt- spyrnu. Það var einkár ánægjulegt að verða vitni að því í beinni út- sendingu síðastliðið þriðjudag- skvöld hvernig Norðmaðurinn geð- þekki Ole Gunnar Solskjær kom, sá og sigraði í leik Manchester United gegn franska liðinu Bord- eaux, og notaði til þess þær örfáu mínútur sem hann fékk til umráða í leiknum. Þessi glaðbeitti leikmaður, með strákslega grallarasvipinn, hefur fyrir löngu unnið hug og hjarta stuðningsmanna Manchester Unit- ed, og þó á hann ekki fast sæti í byrjunarliðinu. En það eru ef til vill mestu töfrarnir við þennan skemmtilega leikmann, hvernig hann notar oft þann litla tíma sem hann að jafnaði fær í hverjum leik til að „klára dæmið“ fyrir liðið sitt. Á þriðjudagskvöld vann enginn betur fyrir kaupinu sínu en einmitt Ole Gunnar og þó var hann ekki nema sjö mínútur inni á vellinum. Geri aðrir betur! Talandi um þetta fornfræga enska knattspyrnufélag, sem lík- lega hefur aldrei notið meiri vin- sælda víða um heim en einmitt nú, vill Víkverji lýsa yfir stuðningi við Búlgarann, sem nú berst fyrir að fá nafni sínu breytt. Og hvað hald- ið þið að maðurinn vilji heita: Jú vitaskuld „Manchester United". Víkverji tekur ofan fyrir svona mönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.