Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 28
VIÐSKIPTI
28 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Fj ár festingar stefna
Burðaráss mörkuð
10 stærstu hluthafar
9. mars 2000
Eignar-
hlutí, %
Hlutafé,
nafnverð, kr.
1 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 473.288.216 15,48%
2 Háskólasjóður Hf. Eimskipafélags ísl. 168.451.396 5,51%
3 Margrét Garðarsdóttir 123.335.787 4,03%
4 Hf. Eimskipafélag íslands 92.000.000 3,01%
5 Lífeyrissjóður verslunarmanna 61.537.430 2,01%
6 Indriði Pálsson 55.137.371 1,80%
7 Lífeyrissjóður Hf. Eimskipafélags ísl. 47.405.271 1,55%
8 Verðbréfasjóður VÍB hf. Sjóður6 40.448.716 1,32%
9 Ingvar Vilhjálmsson 38.310.946 1,25%
10 Hlutabréfasjóðurinn hf.__________________35.548.028 1,16%
10 stærstu samtals:
LM
1.135.463.161 37,12%
_
EIMSKIP
BENEDIKT Sveinsson, stjórnar-
foi-maður Eimskipafélags Islands,
sagði í ræðu sinni á aðalfundi félags-
ins í fyrradag að stefna Burðaráss,
dótturfélags Eimskips, hefði verið
mörkuð, samhliða endurmótun á
hlutverki samstæðunnar.
Stefnan byggist á þremur megin-
þáttum. „í fyrsta lagi eru það áhrifa-
fjárfestingar í nokkrum félögum þar
sem Burðarás á umtalsverðan eign-
arhlut, yfirleitt um þriðjung eða
meira. Par lítur félagið á sig sem
leiðandi fjárfesti og ábyrgan fyrir
stefnumörkun og þróun viðkomandi
fyrirtækis."
Annar þátturinn sagði Bendikt að
væri ávöxtunarfjárfestingar þar sem
áhrif og eignarhluti Burðaráss væru
minni. Tilgangurinn með slíkum
fjárfestingum væri að vera þátttak-
andi í ýmsum arðsömum og traust-
um fyrirtækjum með það að mark-
miði að tryggja góða ávöxtun og
kaupa og selja bréf með hagnaði
þegar slíkt teldist hagkvæmt.
„í þriðja lagi eru það áhættufjár-
festingar, oft í ungum og hraðvaxta
fyrirtælqum, sem þó eru oft áhættu-
söm. Þær fjárfestingar eiga að jafn-
aði að skila meiri arðsemi og eru lið-
ur í að vera þátttakandi í nýjum
vaxtagreinum t.d. á sviði upplýsinga-
tækni og líftækni," sagði Benedikt í
ræðu sinni.
Breytingar á vísitölu neysluverðs
Frá janúar til mars 2000 5&Ö Mars 1997=100
01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (16,9%)
012 Kjöt (3,1%)
02 Áfengi og tóbak (3,2%)
03 Föt og skór (5,2%)
031 Föt (4,2%)
04 Húsnæði, hiti og rafmagn (18,8%)
042 Reiknuð húsaleiga (9,7%)
05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,2%)
051 Húsgögn og heimilisbúnaður (2,1 %)
06 Heilsugæsla (3,0%)
07 Ferðir og flutningar (17,9%)
072 Rekstur ökutækja (7,6%)
08 Póstur og sími (1,6%)
09 Tómstundir og menning (12,8%)
10 Menntun (1,0%)
11 Hótel og veitingastaðir (5,2%)
12 Aðrar vörur og þjónusta (9,3%)
124 Tryggingar (2,7%)
-0,7% Q
-0,2% |
|+0,1%
+5,2%^
]+1,6%
ZMo%
I +0,4%
□ +1,1%
1 +0,6%
i +0,8%
r~i +2,0%
0,0%
0,0%
0,0%
1 +0,5%
0,0%
-0,7% □
VÍSITALA NEYSLUVERÐS í MARS: 196,4 stig +0,8% [j breyting
Yísitala
neyslu-
verðs
hækkaði
um 0,8%
VÍSITALA neysluverðs miðuð við
verðlag í marsbyrjun 2000 var 196,4
stig og hækkaði um 0,8% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs án hús-
næðis var 195,7 stig og hækkaði um
0,5% frá febrúar.
í frétt frá Hagstofu íslands kemur
fram að markaðsverð á húsnæði
hækkaði um 3% (vísitöluáhrif:
0,28%). Verð á fötum og skóm hækk-
aði um 4,4% (0,22%) og verð á
bensíni og olíum hækkaði um 2,7%
(0,12%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 5,9% og
vísitala neysluverðs án húsnæðis um
4,2%. Undanfarna þijá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,2% sem jafngildir 5,0% verðbólgu á
ári.
Verðbólgan í ríkjum EES frá jan-
úar 1999 til janúar 2000, mæld á
samræmda vísitölu neysluverðs, var
1,8% að meðaltali. Á sama tímabili
var verðbólgan 1,9% í helstu við-
skiptalöndum íslendinga en 4,6% á
íslandi. Vísitala neysluverðs í mars
2000, sem er 196,4 stig, gildir til
verðtryggingar í apríl 2000. Vísitala
fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem
breytast eftir lánskjaravísitölu, er
3.878 stig fyrir apríl 2000.
Besta afkoma Fjárvangs
Fjárvangur hf.
Rekstrarreikningur mijónrkróna fl999 1998 Breyting
Hreinar rekstrartekjur 336 232 +45%
Rekstrargjöld 238 206 +16%
Tekjuskattur 30 8 +275%
Hagnaður af reglul. starfsemi 68 19 +258%
Óregiulegar tekjur 19 0 -
Hagnaður ársins 87 20 +335%
Efnahagsreikningur 31. des. 1999 1998 Breyting
Eignir samtals Milljónirkróna 891 677 +32%
Eigið fé 282 190 +48%
Skuldir alls 609 486 +25%
Skuldir og eigið fé samtals 891 677 +32%
Kennitölur 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin f jár 45,6% 11,6% +293%
Eígínf járhlutfali 32,0% 28,0% +14%
Innra virði 2,24 1,51 +48%
AFKOMA Fjárvangs á síðasta ári
var sú besta í sögu félagsins. Hagn-
aður fyrir skatta varð 126 milljónir
króna og eftir skatta kr. 87 milljónir.
Arðsemi eigin fjár var 45,6%, eigin-
fjárhlutfall er 31,6% og innra virði
hlutafjár er 2,240. Heildartekjur fé-
lagsins á árinu námu 365,5 milljón-
um og hækkuðu um 41,3% á milli
ára.
í tilkynningu frá Fjárvangi kemur
fram að af heildartekjum ársins var
söluþóknun 224,3 milljónir en var
138 milljónir árið áður, sem er hækk-
un um 61,5%. Þar munar mestu um
auknar tekjur af verðbréfaeign fé-
lagsins. Umsýsluþóknun hækkaði
um 8 milljónir á árinu og nam 96,4
milljónum. Hreinar rekstrartekjur
ársins námu 336,1 milljónum á móti
232,3 milljónum árið áður. Rekstrar-
kostnaður var 238 milljónir á árinu
1999 samanborið við 205,7 milljónir
árið áður, sem er 15,7% hækkun.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrir skatta varð 98,2 milljónir eða
26,9% af heildartekjum samanborið
við 10,3% árið áður. Óreglulegar
tekjur eftir tekjuskatt nema 19,3
milljónum. Hagnaður ársins eftir
skatta hefur hækkað úr 20,2 milljón-
um í 87,2 milljónir milli ára sem er
rúmlega fjórföldun milli ára.
Á árinu jukust heildareignir fé-
lagsins um 31,6%, úr 676,8 milljón-
um í 890,6 milljónir. Eigið fé í árslok
nemur 281,7 milljónum og hefur
hækkað um 47,8% milli ára. Eigin-
fjárhlutfall er 31,6%.
Ljósmynd/Sveinn Hjartarson
Ámi M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ávarpar gesti á almennum
fundi um sjávarútvegsmál sem haldinn var á Sauðárkróki. Á myndinni
eru einnig Ármann Ólafsson, aðstoðarmaður ráðherra, Sigríður
Ingvarsdóttir og Vilhjálmur Egilsson alþingismaður.
Sjávarútvegs-
ráðherra á
N or ð vesturlandi
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra heimsótti sjávarútvegs-
fyrirtæki á Norðurlandi vestra í
vikunni en heimsóknin var sú
sjöunda í röð heimsókna ráðherr-
ans í kjördæmi landsins í sumar og
vetur. í heimsókninni fór Árni í
Fiskiðjuna Skagfirðing á Sauðár-
króki, ásamt fleiri fyrirtækjum þar
í bæ og hélt almennan fund um
sjávarútvegsmál á Kaffi Krók.
Einnig fór ráðherrann til Siglu-
fjarðar og heimsótti Þormóð
Ramma-Sæberg og SR-mjöl. Þá
sat ráðherrann fund með bæjar-
stjórninni á Siglufirði og hélt al-
mennan fund um sjávarútvegsmál
með Siglfirðingum og nærsveita-
mönnum.
Á seinni degi heimsóknarinnar
heimsótti Árni Skagstrending og
fleiri fyrirtæki á Skagaströnd auk
þess sem hann fór í sjávarútvegs-
fyrirtæki á Blönduósi og á
Hvammstanga.
Árni segir að greinilega sé mikill
kraftur í sjávarútvegi á Norðvest-
urlandi, eins og sjá mætti á af-
komutölum stærstu sjávarútvegs-
fyrirtækjanna. „Enn fremur eru
menn að nýta aflann vel, eins og
vinnsla á afskurðinum á Hofsósi og
Skagaströnd gefur til kynna. Þá
fannst mér athyglisverð ufsasölt-
unin á Hofsósi þar sem framleitt er
fyrir markaði í Karabíska hafinu.
Það var einnig vel mætt á fundina
sem ég hélt um sjávarútvegsmál og
þar spunnust fjörugar umræður,"
segir ráðherrann.
Byr byrjar betur
á túnfískinum
Sjö tonn á tveimur vikum
TÚNFISKVEIÐISKIPIÐ Byr
VE hefur verið á miðunum á
svæði í grennd við Azoreyjar und-
anfamar tvær vikur og er kominn
með milli sex og sjö tonn af tún-
fiski. Það er mun betri byrjun en í
fyrra en þá fór reyndar mikill tími
í ferðir og bið eftir japönskum
leiðangursstjórum og fiskimeist-
urum.
Byr fór frá Vestmannaeyjum 6.
febrúar, tók vistir á írlandi og hélt
svo suður á túnfiskmiðin en skipið
er nú um 200 mílur austur af
Azoreyjum. „Þetta hefur gengið
upp og niður og verið heldur lak-
ara síðustu daga miðað við byrj-
unina,“ segir Sævar Brynjólfsson,
útgerðarstjóri. „Hann er kominn
með á sjöunda tonn en þetta hafa
verið milli 400 og 500 kfló í lögn
sem er ágætt á okkar vísu.“
Um 2/3 hlutar aflans er bláuggi
sem er verðmætastur, en Sævar
segir að markaðsverðið sé mjög
breytilegt og fari eftir fituinni-
haldinu. Verðið sé hæst um 2.600
krónur fyrir kflóið, þegar fiskur-
inn er feitastur á haustin og í ís-
lensku lögsögunni, en fari niður í
um 1.200 kr. „Reyndar fara ein-
staka fiskar á síðasta stigi á upp-
boðsmörkuðunum í Japan á hærra
verði en það hefur ekki skilað sér
til okkar.“
Heildaraflinn í
fyrra 30 tonn
Heildaraflinn hjá Byr í fyrra
var rúmlega 30 tonn að verðmæti
tæplega 40 milljónir króna. „Það
var ósköp dapurt enda var veiðin í
fyrra ekki svipur hjá sjón miðað
við árið áður. 1998 voru Japanirn-
ir með um 55 tonn að meðaltali en
fóru undir 20 tonn í fyrra.“
Kaupa Rússakvóta
NORSKA útgerðarfélagið North
Atlantic Resources í Álasundi, hefur
samið við hina opinberu auðlinda-
nefnd Rússlands um kaup á 17.000 til
18.000 tonna kvóta af þorski og ýsu á
þessu ári. Jafnframt hefur norska fé-
lagið keypt 29.000 tonna loðnukvóta.
Verð á þorskkvótanum er 64.000
krónur tonnið en fyrir loðnutonnið
eru greiddar 3.600 krónur íslenzkar.
Þessar veiðiheimildir verða síðan til
sölu innan Noregs og er þá gert ráð
fyrir að hvert tonn af þorski kosti um
71.000 krónur, eða 71 krónu kflóið.
Islendingar hafa enn ekki svo vit-
að sé keypt kvóta af Rússum, enda
mun þetta væntanlega þykja hátt
verð. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er leiguverð á íslenzkum
kvóta í Barentshafi 30 krónur á kíló
Noregsmegin en 20 krónur Rúss-
landsmegin. Fá íslenzk skip eru nú
að veiðum þarna og gengur sæmi-
lega.