Morgunblaðið - 11.03.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ p iflKII IM
■
I fylgd með besta vini.
Associated Press
Hundar fjölga vinum
og bæta heilsuna
London. The Daily Telegraph.
HUNDAR auðvelda mönnum mjög
að kynnast fólki og það kann að vera
ein af ástæðum þess að gæludýraeig-
endur eru taldir heilbrigðari en aðrir.
Þetta er niðurstaða dr. June
McNicholas og dr. Glyn Collis við
Warwick-háskóla í grein sem birt var
í breska tímaritinu British Joumal of
Psychology. McNicholas kveðst hafa
viljað rannsaka hvað hæft væri í því
að hundar gegni félagslegu hlut-
verki, hjálpi mönnum að brjóta ísinn
og koma af stað samræðum, jafnvel
utan almenningsgarða og fleiri staða
þar sem algengt er að fólk gangi með
gæludýr sín.
McNicholas fór í gönguferðir til að
kanna hversu margir gæfu sig á tal
við hana og mæla lengd samtalanna.
Hún var ýmist einsömul eða með
hundi sem þjálfaður var til að fylgja
blindum og var vaninn á að gefa veg-
farendum engan gaum.
McNicholas kannaðist við suma
sem urðu á vegi hennar og þegar hún
var með hundinn þrefaldaðist fjöldi
þeirra sem gaf sig á tal við hana.
Áhrifin á þá sem hún kannaðist ekk-
ert við voru sláandi - aðeins þrír
þeirra ræddu við hana þegar hún var
ein á ferð en 65 þegar hundurinn var
með henni.
„Fólk hneigist frekar til að hefja
samræður ef öruggt umræðuefni er
fyrir hendi,“ sagði Nicholas. „Hund-
ar virðast uppfylla þetta skilyrði.“
Fram hafa komið tengsl milli
gæludýrahalds og heilbrigðis og
kann það að stafa af því að gæludýrin
fjölga vinum og nánum félögum, en
sá þáttur er talinn stuðla að minni
streitu og betri heilsu.
Gel við testósterónskorti
Washington. AP.
KARLMENN sem þjást af testó-
sterónskorti geta nú nýtt sér
nýja meðferð við vandanum:
Testósteróngel. Framleiðand-
inn, bandaríska lyfjafyrirtækið
Unimed, segir gelið, sem hefur
vöruheitið AndroGel, „auðvelda,
áhrifaríka og ósýnilega" aðferð
sem nota megi í stað hefðbund-
innar meðferðar við skorti á
karlhormóninu testósterón.
AndroGel fæst eingöngu
gegn lyfseðli. Það er glært og
er því nuddað á húðina, en fara
verður varlega, að því er
bandaríska Matvæla- og lyfja-
eftirlitið sagði þegar leyfi var
veitt fyrir sölu lyfsins. Því er
nuddað inn í húðina á kviði eða
öxlum, en ekki nálægt kynfær-
um.
Þegar menn bera það á sig
verða þeir að gæta þess að það
berist ekki af þeim og á húð
kvenna, og þá sérstaklega
barnshafandi kvenna, því að
testósterón getur haft skaðleg
áhrif á fóstur. Framlciðandinn
segir að með lyfinu sé hægt að
færa testósterónmagn í cðlilcgt
horf. Það verður komið á mark-
að um mitt sumar.
Lengri
verkan lyfja
New York. AP.
KOMIN eru á markað í Bandaríkjun-
um nokkur lyf sem hafa lengri verkan
en önnur og þarf ekki að taka þau inn
nema einu sinni í viku eða sjaldnar. í
lok næsta árs verða fáanlegar slíkar
langverkandi gerðir af lyfjum sem nú
eru notuð gegn beingisnun, þung-
lyndi, blóðleysi og hormónaskorti.
Langverkan lyfja hefur verið þróuð
með því að nota stærri skammta af
lyfjunum og breyta því hvemig lyfið
fer út í blóðrásina.
Markmiðið með þessari nýju gerð
lyfja er að tryggja að fólk taki ráðlögð
lyf á réttum tíma, sérstaklega í tilfell-
um eldra fólks sem oft þarf að taka
mörg lyf við langvarandi sjúkdómum.
Rannsóknir hafa sýnt að fólk sem
ekld lýkur ráðlögðum lyfjaskammti,
er lengur að ná sér af veikindum.
Gallamir við langverkandi lyf, sem
jafnan em nefnd „forðalyf, kunna að
vera þeir, að fólki hætti til að gleyma
að taka lyf ef það er ekki daglegur
þáttur í tilvemnni. Þá hafa sumir
lyfjal'ræðingar áhyggjur af því, að
langverkandi lyf verði lengur í blóð-
rásinni, sem kunni að magna auka-
verkanir.
Fulltrúar lyfjafyrirtækja telja þó,
að fleira fólk muni Ijúka ráðlögðum
lyfjaskömmtum ef það þarf einungis
að taka lyfið einu sinni í viku. Það
PRN
Gangast forðalyfin hinum
gleymnu?
leiði aftur til þess að færri pillur fari
til spillis, og því þurfi síður að kaupa
nýja skammta. Ekki hefur verið til-
kynnt um verð á þessum nýju forða-
lyfjum, en talið er að lyfjaframleið-
endur muni krefjast hærra verðs
fyrir þau.
Meðal fyrirtækjanna sem em að
þróa forðalyf er Eli Lilly, sem mun
væntanlega fara fram á leyfi frá
bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlit-
inu í vor til að setja á markað lang-
verkandi gerð af þunglyndislyfinu
Prozac, en sú gerð þess sem nú fæst
er tekin daglega.
LAUGARDAGUR11. MARS 2000 39
Airwear
Airwear eru gler sem þú finnur ekki fyrir vegna þess aö þau eru einstaklega
I
t t
létt og þunn og óbrjótanleg. Airwear er bæði fyrir nærsýna
1
&
og fjarsýna og fást í öllum styrkleikum. Airwear er einnig fyrir þá
= sem þurfa margskipt gler. Fáðu nánari upplýsingar um
1
| Airwear hjá starfsfólki Linsunnar,
LINSAN
Aðalstræti 9 • 551 5055
Laugavegur 8 • 551 4800