Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 50

Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 50
50 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JÓNA GUÐNÝ FRANZDÓTTIR + Jóna Guðný Franzdóttir fæddist í Garðhúsi á Höfðaströnd í Skagafirði 16. mars 1898. Hún lést á Dvalarheimili aldr- aðra á Sauðárkróki 2. mars síðastliðinn og var elsti íbúi Skagafjarðar, tæp- lega 102 ára. For- eldrar Jónu voru Franz Jónatansson b. í Málmey, Jón- atanssonar, b. á Bæ á Höfðaströnd af Krossaætt og Jóhanna Gunnars- dóttir Guðmundssonar b. á Vatni á Höfðaströnd. Systkini Jónu voru Guðlaug Verónika, f. 14.3. 1896, d. 14.5.1988, Skálá í Sléttuhlið, maki Eiður Sigurjónsson og Hjálmar, f. 24.8.1901, d. 9.1.1914. Jóna giftist 13.12. 1928, Krist- jáni Sigfússyni, f. 17.1. 1902 og hófu þau búskap að Geirmundar- hóli í Hrolleifsdal 1929. Þau bjuggu svo að Bræðraá frá 1930- 32 en fluttust þá bú- ferlum að Róðhóli í Sléttuhlíð þar sem þau bjuggu í þijátíu og sjö ár eða þar til þau brugðu búi 1969. Þá fluttust þau til Sauð- árkróks og bjuggu að Skógargötu 17b. Jóna dvaldist siðan á Dval- arheimilinu á Sauðár- króki frá 1996 til dauðadags, en Krist- ján lést 5.5.1982. For- eldrar Kristjáns voru Sigfús Bjarnason og Valgerður Jónsdóttir. Áður en Jóna gifti sig eignaðist hún son, Stefán Karl Stefánsson, f. 14.1. 1928, en hann er búsettur í Mosfellsbæ, sambýliskona Ragn- hildur Þórarinsdóttir. Jóna og Kristján eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Valgerður, húsfreyja á Þrast- arstöðum á Höfðaströnd, f. 25.10. 1929, gift Þorvaldi Þórhallssyni bónda. Börn þeirra eru fjögur: Þórhallur, f. 1949 á þijú börn, Sig- urður Jón, f. 1953 á tvo syni, Val- geir Sigfús, f. 1960 á þrjú börn og Dagmar Ásdis, f. 1962 á tvær dæt- ur. 2) Dagmar Valgerður, húsfrú á Sauðárkróki, f. 15.2. 1931, gift Kára Steinssyni, íþróttakennara. Börn þeirra eru fimm: Valgeir Steinn, f. 1951 á fjögur börn og tvö barnabörn, Kristján Már, f. 1952 á tvö börn, Steinn, f. 1954 á flmm börn og eitt bamabarn, Soffía, f. 1956 á einn son, Jóna Guðný, f. 1963 á eina dóttir. 3) Jóhanna Mar- ín, húsfreyja á Róðhóli í Sléttuhlíð, f. 7.7.1934, gift Jóni Birni Sigurðs- syni, bónda og bifreiðarstjóra. Böm þeirra eru sex: Sigríður Sig- urlaug, f. 1953 á þrjú börn og eitt barnabarn, Jóna Guðný, f. 1955 á þrjú böm og eitt barnabam, Hel- en, f. 1958 á fjögur börn, Dagbjört, f. 1960 á fjögur börn, Þráinn Við- ar, f. 1962 á þrjú börn, Kristján Birkir, f. 1967 á tvö börn. 4) Sig- mundur Franz, f. 14.1. 1941, heildsali í Reykjavfk, sambýlis- kona Jónína Jónsdóttir. Sigmund- ur á þijú börn: Gunnar Kristján, f.1962 á tvo syni, Vilhelm Sigfús f. 1967 á eina dóttur, Harpa Iðunn, f. 1973 á einn son. Afkomendur Jónu eru nú orðnir 74. Utför Jónu fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Þegar ég horfí til baka og minnist hennar ömmu minnar eru margar góðar minningar sem koma upp í hugann. Hún náði háum aldri, varð tæplega 102 ára, og lifði tvenn alda- mót sem er meira en flestir ná. Henni ömmu verður líklega best lýst sem kjarkmikilli konu, jákvæðri og lífsglaðri. Ég sé hana fyrir mér hlæjandi, segjandi skemmtilegar sögur og fara með þulur og kvæði. Þannig vil ég minnast hennar. Á Róðhóli, þar sem amma og afí bjuggu lengstum, átti amma falleg- an garð. Þar tiplaði maður um með mikilli lotningu. í garðinum voru stór tré, stígar með skeljasandi af- markaðir með fallegum skeljum, og allt var þar í miklum blóma og vel hirt. Manni fannst maður kominn í heilagan reit. Það var ekki algengt að sjá svona garða á þessum tíma. Mest spennandi voru þó jarðarberin sem amma ræktaði í reit við fjós- vegginn. Þau voru dísæt og var mik- il eftirvænting að fá að bragða á þeim. Já, hún amma kunni svo vel að rækta garðinn sinn, bæði í eigin- legri og óeiginlegri merkingu. Ég dáðist af festu hennar og krafti þeg- ar hún lét gera garð bak við húsið á Skógargötunni. Lét hún setja upp- hitaða stétt, þar sem hún gekk um og gat andað að sér fersku lofti og haldið sér „í formi" eins og við myndum kannski segja í dag. Amma var dugleg við að segja frá lífínu „í gamla daga“ og hvað á daga hennar hafði drifíð. Þannig lærði maður að lífsbaráttan gat verið hörð og ekki var sjálfsagt að fá allt upp í hendurnar. Merkilegast þótti mér að heyra ömmu segja frá því þegar hún gekk alla leið úr Skagafirðinum til Reykjavíkur til að leita sér lækn- inga þegar hún var ung stúlka. Það hljómaði hreint ótrúlega, en ber vott um dugnað og kjark ömmu. í Reykjavík vann hún bæði sem vinnukona á heimili og á Hótel ís- landi. Spænska veikin geisaði með- an hún dvaldi í Reykjavík. Amma hjúki'aði heimilisfólkinu af mikilli umhyggju og þeim sem þar leituðu skjóls. En þar kom að hún lagðist sjálf. Hún lét veikina þó ekki buga sig og náði aftur heilsu. Hún vildi öllum gott gera og rétti mörgum hjálparhönd í gegnum tíðina. Það var alltaf jafn gott að koma á Skógargötuna til ömmu. Þangað leitaði ég mikið á uppvaxtarárunum. Við amma áttum margar góðar stundir saman. Ég setti upp fyrir hana jólaskrautið og seríurnar fyrir jólin. Það var hátíðleg stund að líta yfir þegar allt skrautið var komið upp í litla húsinu. Alltaf bauð hún upp á einhverjar kræsingar þegar fólk bar að garði. Hún fór léttstíg niður í kjallara til að ná í eitthvert góðgæti. Ég þáði líka stundum hjá henni siginn fisk og kjötsúpu sem var mikið lostæti. Amma var söngelsk og ræktaði trúna sem og tengsl við vini sína og ættingja. Hún missti bróður sinn ungan af voðaskoti og hans minntist hún með miklum söknuði. Hún bjó í Málmey í nokkur ár með foreldrum sínum, þar sem þau byggðu myndarlegt hús. Málmey hefur því ávallt skipað sérstakan sess hjá okkur afkomend- unum sem og Róðhóll. Hvergi er fagurra sólarlag en í Sléttuhlíðinni þegar sólin roðar eyjarnar. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þeirrar gæfu að eiga hana ömmu að. Við bárum öll mikla virð- ingu fyrir henni. Hún var traust stoð í tilverunni og gafst aldrei upp þótt á móti blési. Þeir eiginleikar sem og jákvæði og hressileiki hafa örugglega orðið okkur afkomendun- um innblástur á okkar lífsleið. Ég vil kveðja þig, amma mín, með þeim orðum sem þú tókst þér ávallt í munn þegar þú kvaddir mig með koss á kinn: Guð blessi þig. Jóna Guðný Káradóttir og fjölskylda. Mig langai- að minnast ömmu minnar í örfáum orðum. Ég var ekki gamall, er ég man fyrst eftir að ég fór í heimsókn í Róðhól til afa og ömmu. Það var æv- intýri. Brunað með Fedda á mjólk- urbílnum, komið við í Kaupfélaginu á Hofsósi. Hjá ömmu var ekkert rafmagn, bara olíuljós og auðvitað aladinlampinn. Það var dimmt að fara fram í bæjargöngin og út í fjós, sem innangengt var í. Svo varð maður að drekka flóaða spenvolga mjólk áður en farið var í háttinn, hún var svo holl. Mikil upplifun var að fá að fara á „Fergusoninn" hjá afa og stýra, en áður en hann kom var það hestasláttuvélin og rakstr- arvélin. Hundarnir Saba og Lappi komu við sögu. Saba var orðinn gamall og lasburða. En lífið var mikið strit í þá daga. Mikið slegið með orfi og ljá, jafnt þýfður Leyn- ingurinn og slétt Skriðan. Okkur krökkunum fannst langt að fara með kaffið til piltanna, afa og Ste- fáns, fram á Skriðu. Svo var það há- degisblundur fullorðna fólksins, sem oftast átti langan og erfiðan vinnu- dag. Yið krakkarnir voru þá látin sjá um að vaska upp og ganga frá eftir matinn. Nú eru aðrir tímar og aðrar aðstæður. Amma hafði lifað tímana tvenna, hafði haft viðkomu á þremur árhundruðum. Hún hafði kynnst hungri og harðindum, mikl- um breytingum á lífsafkomu og að- stæðum fólks. Erfiðleikarnir í lífinu höfðu hert hana en jafnframt mýkt svo hún mátti aldrei aumt sjá. Hún var trúuð kona og kenndi okkur barnabörnunum bænir, sagði okkur frá álfum og frá því hvemig þeir höfðu komið til hennar í draumum. Af hugðarefnum ömmu má nefna garðrækt og blómarækt og lagði hún metnað í að hafa fallegan garð bæði á Róðhóli og á Sauðárkróki, auk þess semhún hafði gaman af að taka í spil, lesa góðar bækur og syngja. Hún var afskaplega trygg sínum vinum, gestrisin og höfðingi heim að sækja. Hún lagði metnað sinn í að rækta frændsemi við ætt- ingja bæði hér á íslandi og í Vestur- heimi. Hún var kirkjurækin og sýndi kirkjum sínum í Felli og síðar á Sauðárkróki mikla ræktarsemi. Amma var mjög Ijóð- og söngelsk og kunni mjög mikið af ljóðum. Henni þótti mjög vænt um ljóð föð- ur síns, sem var gott skáld, einkum þau er hann hafði ort til Guðnýjar móður sinnar. En í þeim ljóðum koma vel fram þau kröppu kjör sem + Jórunn Ingibjörg Guðmundsdóttir fæddist á Þrasastöð- um í Stíflu, Skagafirði 12. október 1906. Hún ^Jést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu að Kumbaravogi 29. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðmundur Bergsson, bóndi á Þrasastöðum, f. 11. janúar 1871, d. 6. apríl 1961 og kona hans, Guðný Jóhannsdóttir, f. 8. desember 1876, d. 22. mars 1917. Systkini Jórunnar eru: Jóhann, f. 29. maí 1898, d. 13. júlí 1983; Þorvaldur, f. 10. maí 1899, d. 21. júlí 1989; Bergur, f. 25. september 1900, d. 5. maí 1988; Jórunn Ingibjörg, f. 20. aprfl 1903, ^I. 26. janúar 1904; Jón, f. 13. jan- úar 1905, d. 14. júní 1991; Eiríkur, f. 28. júní 1908, d. 9. maí 1980; Ein- ar, f. 21. október 1909, d. fárra mánaða gamall; Sigurður Júli'us, f. 2. janúar 1911, d. 11. febrúar 1911; drengur fæddur andvana 2. jan. 1911, Hartmann Kristinn f. 12. aprfl 1912, d. 29. október 1990 og Sigríður Stefanía, f. 30. aprfl 1914 og er hún ein eftir á lífí. Jórunn giftist 3. júní 1930 eftir- lifandi eiginmanni sinum, Vil- hjálmi Einari Einarssyni frá Reyk- holti, Borgarfirði, f. 29. desember 1907. Foreldrar hans voru hjónin séra Einar Pálsson, prestur á Hálsi, í Gaulverjabæ og síðast í Reykholti, f. 24. júlí 1868, d. 28. janúar 1951 og kona hans, Jó- hanna K. K. Eggertsdóttir Briem, f. 2. febrúar 1872, d. 4. desember 1962. Börn Vilhjálms og Jórunnar eru: 1) Gunnlaugur Briein, f. 9. júlí L931. Eiginkona hans er Ásgerður Jónsdóttir, f. 3. mars 1931 og eiga þau tvær dætur, a) Erlu, f. 26. október 1959 gift Þórhalli Bjarna- syni, f. 10. ágúst 1959. Börn þeirra eru Kristín f. 29. febr. 1984, Hjalti, f. 24. maí 1988 og Andri f. 8. nóvember 1990. b) Unni, f. 19. mars 1966. Dóttir hennar er Rakel, f. 23. júlí 1990. Unnur er í sambúð með Sig- urði Birgi Guð mundssyni, f. 30. júní 1965. Ás- gerður eignaðist dótturina Kol- brúnu, f. 16. ágúst 1954. Hún er gift og á fjögur börn og eitt barna- barn. 2) Sverrir, f. 2. október 1932, fráskilinn og barnlaus. 3) Hulda, f. 30. mars 1934. Eiginmaður hennar er Eggert Vigfússon, f. 27. aprfl 1932, börn þeirra eru: a) Guðrún, f. 14. janúar 1956. Var gift Krist- jáni Friðgeirssyni, (skildu). Börn þeirra, Eggert Freyr f. 13. júní 1975, d. 11. aprfl 1993 af slysförum og Jórunn, f. 19. júlí 1978. b) Helgi, f. 31. desember 1956, er kvæntur Helgu Rögnu Pálsdóttur, f. 6. október 1961, börn þeirra eru: Páll, f. 12. janúar 1989, Ragna, f. 10. janúar 1993 og Eggert, f. 16. nóvember 1994. c) Vilhjálmur Ein- ar, f. 19. maí 1962, er kvæntur Elísabetu Herbertsdóttur, f. 5. jan- úar 1964, börn þeirra eru: Her- bert, f. 11. desember 1987, Hulda, f. 2. júní 1989 og Hanna f. 5. sept- ember 1994. 4) Ása, f. 8. mars 1938. Var gift Guðna Vigfússyni (skildu). Dætur þeirra eru: a) Helga, f. 15. júní 1957, gift Hilmari Antonssyni, f. 7. maí 1949, börn þeirra eru: Bjarki, f. 14. nóvember 1977, kvæntur Rut Sverrisdóttur, f. 29. mars 1975, Elvar, f. 2. sept- ember 1979, Ása, f. 30. ágúst 1986 og Aldís, f. 30. janúar 1989. b) Elva, f. 26. apríl 1963, d. 22. sept- ember 1979 af slysförum. 5) Mar- grét Sigríður Pálsdóttir, f. 3 júní 1941 (ættleidd af Páli Einarssyni (bróður Vilhjálms) og Gyðu Sig- urðardóttir). Giftist Magnúsi Gústafssyni (skildu). Börn þeirra eru: a) Björn, f. 18. september 1966, kvæntur Dagbjörtu Ósk Steindórsdóttur, f. 17. september 1968. Börn þeirra eru Árni Guð- jón, f. 9. desember 1986, Magnús Már, f. 11. september 1989, d. íjan- úar 1991 af slysförum, Sigfús Már, f. 24. nóvember 1991 og Jórunn Sóley f. 18. nóvember 1993. b) Sig- fús, f. 8. maí 1968, d. 10. janúar 1970 af slysförum. c) Einar, f. 21. desember 1970 í sambúð með Ás- laugu Jóndsóttur f. 19. maí 1967. d) Jórunn María, f. 7. desember 1972, gift Hauki Þór Bragasyni, f. 5. maí 1969. Heiður Helgadóttir, f. 6. desem- ber 1945, ólst upp á heimili þeirra frá sex ára aldri. Hún á eitt barn og er nú búsett í Svíþjóð. Jórunn ólst upp á búi foreldra sinna og aðstoðaði við búskapinn eins og þá tíðkaðist að börn gerðu frá unga aldri. Um tvítugt hleypti hún heimdraganum og hélt til Reykjavíkur, þar sem hún var í vist hjá Ingibjörgu (sem síðar varð mágkona hennar) og Eyjólfi Ey- fells. Á sumrin var hún í kaupa- vinnu í Reykholti og kynntist þar eftirlifandi eiginmanni sínum, en þar var faðir hans prestur og gaf hann þau saman í hjónaband. Þau hófu búskap að Galtafelli í Hruna- mannahreppi. Þar bjuggu þau í flmm ár, en fluttu þaðan að Laug- arbökkum í Olfusi og bjuggu þar í 25 ár. Árið 1964 fluttust þau að Selfossi og unnu þar ýmis störf til sjötugs Utför Jórunnar verður gerð frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jórunn föðursystir mín er látin 93 ára að aldri. Hún var dóttir Guðmundar Bergssonar, bónda á Þrasastöðum í Stíflu, og Guðnýjar Jóhannsdóttur, konu hans, ein af átta börnum þeirra hjóna sem upp komust. Sigríður, sem var yngst, er nú ein eftir á lífi af þessum stóra systkinahópi og dvelur hún á Hrafnistu. Á þessum langa æviferli hefur Jórunn upplifað tímana tvenna. Hún sagði svo frá uppvexti sín- um: „Við börnin fórum að vinna strax og við höfðum getu til og vinnudagurinn var oft langur en við höfðum alltaf nóg að borða. Þegar ég var átta ára gömul var ég vakin snemma á morgnana til þess að reka kýrnar og var það hálftíma gangur hvora leið. Allur fatnaður var unninn heima. Kon- ur spunnu, karlar kembdu og fað- ir minn óf efni í utanyfirföt og milliskyrtur. Svo brá hann gjarð- ir, fléttaði reipi, smíðaði skeifur og alla hluti sem þurfti að nota við heyskapinn. Heimilið var mannmargt, þar voru Bergur afi og Katrín amma, og Sigrlður móðuramma mín. Oft- ast hafði móðir mín tvær vinnu- konur. Þegar ég var á ellefta ári dó móðir mín. Það var mikið áfall. Þá kom blessuð Kristín Bjarna- dóttir og gekk okkur börnunum í móðurstað. Hún var hjá okkur í átta ár. Faðir minn ól allan sinn aldur á Þrasastöðum." (Þrasa- staðaætt bls. 139.) Um tvítugsaldur fór Jórunn úr föðurhúsum til Reykjavíkur og réðst í vist til Ingibjargar í Bald- ursbrá sem var gift Eyjólfi Eyfells listmálara og rak hún þekkta hannyrðaverslun við Skólavörðu- stíginn ásamt Kristínu Jónsdóttur, frænku Jórunnar. Jórunni líkaði vel vistin í Baldursbrá hjá Ingi- björgu sem var öndvegiskona, en hugur hennar var bundinn við sveitina og þau störf sem hún hafði alist upp við. Það varð því að ráði að Ingi- björg kom henni sem kaupakonu til foreldra sinna í Reykholti, sr. Einars Pálssonar og Jóhönnu Katrínar Kristjönu Eggertsdóttur Briem. Þar kynntist Jórunn mannsefni sínu, Vilhjálmi, syni prestshjón- anna. Hjónaband þeirra varð mjög farsælt. Innileiki og um- hyggjusemi hvort fyrir öðru ríkti í sambúð þeirra alla tíð. Jórunn og Vilhjálmur leigðu jörðina Galtafell í Hrunamannahreppi af Einari Jónssyni myndhöggvara og bjuggu þar í fimm ár. Þar fæddust þrjú börn þeirra, Gunn- laugur, Sverrir og Hulda. Þau keyptu síðan jörðina Laugar- bakka í Ölfusi og bjuggu þar myndarbúi í 25 ár. Þar fæddust dæturnar, Ása og Margrét Sig- ríður. Til heimilis á Laugarbökk- um voru foreldrar Vilhjálms til dauðadags svo og systir sr. Ein- ars, Helga, sem giftist ekki en fylgdi fjölskyldunni alla tíð. Jórunn og Vilhjálmur brugðu búi, seldu jörðina Laugarbakka til bróðursonar Jórunnar og íluttu til Selfoss. Þá gafst þeim meiri tími til ferðalaga og náttúruskoðunar sem þau höfðu bæði yndi af. í garðinum við húsið þeirra á Sel- fossi eru tvö umfangsmikil og sérstæð rekaviðartré sem voru flutt sjóleiðis frá Trékyllisvík á Ströndum. Lífsstarf Jórunnar og áhuga- mál snerust um heimilið og fjöl- skylduna. Framkoma hennar einkenndist af hógværð og kurt- eisi. Hún var frændrækin og lagði sig fram um að fylgjast með og halda sambandi við skyldmenni sín. Vilhjálmur Einarsson á nú um sárt að binda, hniginn að aldri og þrotinn af kröftum. Ég sendi hon- um, börnum þeirra hjóna og öðr- um ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Gyða Jóhannsdóttir. JOR UNNINGIBJORG GUÐMUNDSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.