Morgunblaðið - 11.03.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 67
Fyrirlestur
í Foreldra-
húsinu
FYRIRLESTUR verður í Foreldra-
húsinu í Vonarstræti 4b, bakhúsi,
mánudaginn 13. mars kl. 20:30. Fyr-
irlesturinn heitir „Hverjir hafa að-
gang og afskipti af unglingunum
okkar?“
Farið verður yfir mikilvægi þess
að þekkja vini, foreldra, kennara,
þjálfara og aðra þá sem unglingur-
inn umgengst. Tilraunir gerðar til að
varpa Ijósi á „nýja“ unglingamenn-
ingu. Fjallað verður um fyrstu ein-
kenni á vímuefnaneyslu og hvemig
foreldrar geta tekið á því.
Fyrirlesari er Sigrún Hv. Magn-
úsdóttir félagsráðgjafi. Hún er með
langa reynslu í fjölskyldumeðferð.
Starfar sem fjölskylduráðgjafi í For-
eldrahúsinu og hjá félagsþjónustu
Seltjarnamesbæjar.
Allir em velkomnir. Aðgangseyrir
500 kr.
Tungumála-
kennsla og
póstmódern-
ismi
MARGRÉT Jónsdóttir bókmennta-
fræðingur heldur fyrirlestur þriðju-
daginn 14. mars í hádegisfundaröð
Sagnfræðingafélags íslands í Nor-
ræna húsinu sem hún nefnir „Póst-
módemisminn í tungumálakennslu".
Fundurinn hefst kl. 12:05 í stóra sal
Norræna hússins og lýkur stundvís-
< lega kl. 13. Hann er öllum opinn og
aðgangur er ókeypis.
Margrét Jónsdóttir er lektor í
spænsku og er að Ijúka við doktors-
ritgerð sína við Princeton-háskóla í
New Jersey, Bandaríkjunum. Dokt-
orsritgerð hennar fjallar um móttök-
ur á Poema de mio Cid, sem er epískt
ljóð frá 13. öld en ljóðið breyttist í
þjóðargersemi þegar Spánverjar
misstu síðustu nýlendur sínar 1898.
Helgi o g
hljóðfæra-
leikararnir
leika syðra
HLJÓMSVEITIN Helgi og hljóð-
færaleikaramir úr Eyjafirði leggur
land undir fót um helgina og leikur í
Reykjavík laugardagkvöld í Hinu
húsinu kl. 21. Meistari Megas hitar
upp segir í frétt frá hljómsveitinni. A
sunnudagskvöld leika Helgi og
hljóðfæraleikaramir á Næsta bar,
einnigkl. 21.
Helgi og hljóðfæraleikararnir
spila eingöngu framsamið efni og
hafa þeir gefið út þrjá geisladiska á
ferlinum. A efnisskránni um helgina
verða bæði ný og gömul lög sveitar-
innar en áhersla verður lögð á nýj-
asta diskinn - Bréf til Stínu.
Skíðagöngur
ogjeppaferðír
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir um
þessar mundir til skíðagönguferða á
sunnudögum, en einnig era helgar-
ferðir af og til og er sú næsta helgina
18.-19. mars. Þá verður gengið á
skíðum frá Þingvöllum að Skjald-
breið og þaðan niður á Laugarvatn.
Starfsemi Jeppadeildar Útivistar
er einnig lífleg, en næst verður farin
helgarferð 18.-19. mars í Setrið
suðaustan við Kerlingarfjöll. Nánari
upplýsingar gefur skrifstofan, en
undirbúningsfundir verða miðviku-
dagskvöldið 15. mars á Hallveigar-
I stígl.
Skíðaganga sunnudagsins 12.
mars er um Hellisheiði og á Skálafell
og er brottför kl. 10:30.
Morgunblaðið/Sverrir
Bæklingi Hjartaverndar
dreift um allt land
HJARTAVERND hefur gefið út
átta blaðsíðna bækling, Kryddlegin
hjörtu, í tcngslum við niðurstöður
rannsóknar Hjartaverndar á dánar-
tíðni vegna hjarta- og æðasjúk-
dóma sem rekja má til reykinga. Sl.
haust gaf Iljartavernd út ljórblöð-
ung um þetta efni.
Bæklingurinn nú var gefinn út í
115 þúsund eintökum og hefur ver-
ið dreift til allra landsmanna og
fyrirtækja í landinu.
Á myndinni afhendir formaður
Ujartaverndar, Gunnar Sigurðsson
prófessor, Ingibjörgu Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra bæklinginn.
Tvær fínnskar
brúðumyndir sýndar
TVÆR finnskar brúðumyndir verða
sýndar sunnudaginn 12. mars kl. 14 í
fundarsal Norræna hússins. Mynd-
imar era með finnsku tali og að-
gangur er ókeypis.
Myndirnar heita Jotaarkka og
Gullrokkurinn og era báðar gerðar
eftir bókum eftir finnska rithöfund-
inn Joel Lethonen. í Jotaarkka segir
frá tveimur konungum sem eiga í
stríði. Óvinir taka Jotaarkka til
Tsj ekho v-my nd
íbíósal MIR
RÚSSNESKA kvikmyndin Anna
um hálsinn eða „Anna na sheje“
verður sýnd sunnudaginn 12. mars
kl. 15 i bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Mynd þessi var gerð í Moskvu árið
1954 og er byggð á einni af smásög-
um hins fræga rithöfundar og leik-
skálds Antons Tsjekhov. Kvikmynd-
in heíúr stundum áður verið sýnd
undir heitinu Anna Kross. Enskur
texti. Aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Sálfræðiþjón-
usta opnuð
MAGNEA B. Jónsdóttir sálfræðing-
ur hefur opnað sálfræðiþjónustu á
Suðurlandsbraut 6.
Magnea veitir ráðgjöf og meðferð
fyrir börn og fullorðna og segir í
fréttatilkynningu að hún hafi sér-
staka reynslu af sjálfstyrkingu
kvenna, meðferð kynferðisbrota-
mála og að vinna með neytendur
vímuefna og aðstandendur þeirra.
Nettoii^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Innréttingar
Frí teiknivinna og tilboösgerb
Friform
| HÁTÚNI6A (í húsn. Fðnix) SÍMI: 552 4420
r-
fanga og hann verður þjónn kon-
ungsdótturinnar. Jotaarkka og
prinsessan verða góðir vinir, en
hershöfðingjar konungs verða af-
brýðisamir og reyna að spilla vinátt-
unni með öllum ráðum. Gullrokkur-
inn fjallar einnig um konungsdóttur
sem komin er á giftingaraldur. En
enginn biðill er nógu góður fyrir
hana, hvorki heiðursmaður eða
greifi. Einnig hryggbrýtur hún son
nágrannakeisarans. En þessi biðill
er mesti þrákálfur og er ákveðinn í
að giftast stúlkunni hvað sem það
kostar.
•ijlssalt með kryddjurtum f al!anw
Herbamare
( ./(Rtmíi' e<) jiirtt* \it i
Náttúrusalt
Herbamare kryddsalt
er blanda af hafsalti,
kryddjurtum og lífrænt
ræktuðu grænmeti.
Ljúffengt og hollt
kryddsalt á matarborðið
og í matargerðina.
Heilsa ehf. S:533 3232
Málþing um
betri ákvarðanir
AX-HUGBÚNAÐARHÚS hf.
stendur fyrir ráðstefnu á Radisson
SAS, Hótel Sögu, Þingsal A,
fimmtudaginn 16. mars frá kl. 9 til
12 undir yfirskriftinni „í takt við
tímann: Betri ákvarðanir með „Bus-
iness Intelligence“-lausnum.
Kynntar verða nýjar áherslur í
notkun stjórnendaupplýsingakerfa
(Business Intelligence Systems) til
að stuðla að betri ákvörðunum í
rekstri fyrirtækja.
Aðalræðumaður verður Fredrik
Prien, forstjóri Cognos Nordic, og
ber erindi hans yfirskriftina: „Bus-
iness Intelligence for the New Mill-
enium: The Vision of IT Support for
the Modern Day Enterprise". Aðrir
ræðumenn verða Árni Sigfússon,
framkvæmdastjóri Tæknivals, og
Dagur Egonsson, verkefnisstjóri
hjá upplýsingaþróunardeild Flug-
leiða. Þeir munu fjalla um reynslu
þessara fyrirtækja af notkun Cogn-
os-lausna til aukins ávinnings í
rekstri. Einnig mun Hafliði Sævars-
son, ráðgjafi hjá Axi hugbúnaðar-
húsi, kynna nýjungar í Cognos-
lausnum.
Fundarstjóri verður Gylfi Ama-
son, framkvæmdastjóri Opinna
kerfa.
Ráðstefnan er öllum opin. Vegna
takmarkaðs sætaframboðs vinsam-
legast tilkynnið þátttöku til Ax hug-
búnaðarhúss hf. Dagskrá fundarins
er nánar auglýst á heimasíðu Ax,
www.ax.is.
Dagur harmonikunn-
ar í Ráðhúsinu
HARMONIKUFÉLAG Reykjavík-
ur heldur tónleika undir nafninu
Dagur harmonikunnar sunnudaginn
12. mars kl. 15 í Ráðhúsi Reykjavík-
ur.
Flytjendur era á öllum aldri. Leik-
in verður létt tónlist úr ýmsum átt-
um en dagskráin hefst með nem-
endatónleikum. Síðan koma fram:
Systumar Hekla, Inga og Ása Ei-
n'ksdætur, Margrét Arnardóttir,
Matthías Kormáksson, dúettinn
Harmslag og tvær stærstu hljóm-
sveitir félagsins undir stjóm Arnars
Falkner og Léttsveitin undir stjórn
Jóhanns Gunnarssonar.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
505 afsláttur
Rýmum fyrir nýrri förðunarlínu
Augnskuggar óður kr. 1. 395 nú kr. 690
Naglalökk áður kr. 995 nú kr. 490
Kökumeik áður kr. 2.090 nú kr. 1.040
Púðurmeik áður kr. 1.595 nú kr. 790
25% afsláttur af öörum vörum
Afslóttur aðeins >■ 'ace
í nokkra daga Spegill tískuheimsins Laugavegi 39, sími 562 7677.
f: .